Morgunblaðið - 28.01.1947, Side 7
Þriðjudagur 28. jan. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
7
n
t i
Minningarorð um
Jón Bjarnason
a
JON BJARNARSON frá
Sauðafelli andaðist að heimili
sínu hjer í bæ 14. þ. m. Hann
var fæddur að Sauðafelli í Döl-
um hinn 4. maí 1894.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Guðný Jónsdóttir Borgfjörð og
Björn Bjarnarson sýslumaður í
Dalasýslu. I Dölum vestra, á-
Sauðafelli, ólst Jón upp í for-
eldrahúsum við áhrif frá bjart-
sýnum stórhug og athafnasemi.
Sauðafellsheimilið var um
margt á undan samtíð sinni. —
Sýslumannsfrúin, móðir Jóns
var fyrirmyndar húsmóðir, og
Stjórnsöm og góð móðir. Faðir
Jóns var hrifnæmur, stórhuga
athafnamaður, er samhliða em-
bættisrekstri sínum rak stórt
bú, og vann, á þeirra tíma mæli
kvarða, stórvirki til umbóta, á
jörð sinni. Við áhrif frá þessum
aðstæðum mótaðist bernska
Jóns og síðara viðhorf hans til
lífsins.
Hann var mjög bráðþroska
og gjörvilegur í hvívetna. Hann
átti stórbrotið lundarfar, og var
því erfitt á stundum að beygja
sig að vilja annara. Fór því eigi
alltaf troðnar götur samtíðar
sinnar. í æsku varð hann s^álf-
kjörinn foringi hinna yngri
manna, og það bæði í starfi
og leik.
Foreldrum Jóns sýndist eins
og eðlilegt má heita, að hann
ætti að ganga menntaveginn,
fara í latínuskólann, en hugur
hans hneigðist strax til búskap-
ar. I viðræðum, er faðir hans
átti við hann, rjett um ferming-
araldur, um framtíð hans, benti
hann Jóni á, að búskapur krefð
ist mikils erfiðis. Svar sonar-
ins var skýrt, stutt og ákveðið:
„Jeg veit það og jeg hefi nóga
krafta“. Fimmtán ára gamall
tók Jón við bústjórn á hinu
stóra búi föður síns, og fórst
vel úr hendi. Hann ljet sjer
aldrei nægja að skipa fyrir og
horfa á fólkið vinna. — Hann
gekk sjálfur til verka með fólki
sínu, og hlífði sjer aldrei við
erfiðustu verkunum. Jón var
þrekmikill og afkastamaður við
vinnu, en jafnframt verklaginn.
Þau ár, sem hann stjórnaði búi
foreldra sinna, hafði hann sjer
samhent verkafólk, því að heim
ilið var hjúasælt og sama fólk-
ið vann ár eftir ár hjá sýslu-
mannshjónunum, og það vildi
hag húsbænda sinna sem bestan
í hvívetna.
Er faðir Jóns ljet af embætti
sakir heilsubrests, fluttust þau
hjónin til Reykjavíkur með
börnum sínum, en Jón vildi
ekki skilja við sveit sína og bú-
skapinn. Hann hjelt búi á
Jón Bjarnason
Sauðafelli eitt ár, og keypti svo
jörð í Miðdölum og bjó þar tvö
ár. Um það leyti missti hann
föður sinn, móðir hans og syst-
kini bjuggu í Reykjavík. Þessi
atvik og önnur leiddu til þess,
að hann brá búi og flutti til
Reykjavíkur.
Eftir stutta dvöl þar sigldi
hann til Danmerkur', til að
kynna sjer kaffibætisgerð. Er
hann kom aftur heim stofnsetti
hann Kaffibrennslu Reykjavík-
ur ásamt föðurbróðir sínum
Pjetri M. Bjarnarsyni. Síðar
gerðist hann meðeigandi firm-
ans Magnús T. H. S. Blöndal.
Ferðaðist hann þá víða um land
sem sölumaður fyrirtækisins,
eignaðist hann marga vini og
kunningja, því að meðfætt fje-
lagslyndi og hispurslaus glað-
værð fylgdu Jóni hvar sem
hann fór.
Síðustu tíu árin var Jón
starfsmaður við löggildingar-
stofu ríkisins. Þeir, sem þekktu
Jón, hafa margs að minnast.
Hann var karlmenni í lund, á
það reyndi oft í lífi hans, því
að þar skiptust á skin og skúr-
ir. Hann var óeigingjarn, hrein
lyndur og hreinskilinn, skoð-
anafastur og áliti hann sinn mál
stað rjettan, fylgdi hann hon-
um með festu og ljet sig þá
ekki ætíð skifta álit fjöldans.
Hann var með afbrigðum örlát-
ur og hjálpfús. Hann bar jafnan
sjerstakan hlýhug til átthag-
anna og þess fólks, er hann
kynntist þar á æskuárum sín-
um. ,
Nutu Dalamenn í ríkum mæli
gestrisni á heimili hans og að-
stoðar í mörgum greinum.
i Jeg kveð þig vinur og fjelagi,
með þökk frá mörgum árum.
I Leiðirnar skiljast í bili, en
til góðs vinar liggja gagnvegir,
einnig handan við landamæri
þau, sem þú nú hefir stigið yfir.
Pálmi Einarsson.
Guðmundur Jónsson
Söngskemtun í
Gamla Bíó
ÞAÐ LEYNIR sjer ekki, að
Reykvíkingar bíða með óþreyju
hverrar söngskemtunar, sem
Guðmundur Jónsson heldur. —
Utsölustöðunum helst ekkert á
miðunum, ailt selt upp á svip-
stundu! Nú hafði farið frægðar-
orð af honum í Ameríku, þar
sem hann söng með Karlakór
Reykjavíkur. Hvernig skyldi
hann vera nú?
Jú, kastljósin lýstu'upp pall-
inn, og þarna kom hann inn,
mikill að vallarsýn og raunar
gjörbreyttur, breiður og búst-
inn, svon rjett og jeg hefi allt
af hugsað mjer að barytón-
söngvari ætti að líta út. — Jeg
hugsaði sí-svona: Bara að ekki
fari nú fyrlr honum eins og
tenórnum, sem engin brynja
passaði lengur á! En svo þegar
hann hóf raust sína, var mjer
strax ljóst, að engin ópera
mundi horfa í kostnaðinn við að
láta gera honum nýja brynju
við hans hæfi. Já, menn eiga
ekki að grafa sín pund. — Og
Guðmundur sýndi það nú enn
betur en fyrr, að hann hefur
ekki legið á liði sínu, heldur
stundað list sína með þeirri
kostgæfni, sem sæmir góðum
þjóni í víngarðr sönglistarinn-
ar. Hann hefur vaxið hið innra,
tekið miklum þroska og syng-
ur nú af meiri myndugleik en
áður. Hann söng með ágætum
undirleik Fritz Weisshappel, lög
eftir Hándel og Schubert af
prýði, einnig sex íslensk lög al-
veg ágætlega; tvö óperulög, ann
að var „Prologo“ úr Pagliacci,
eftir Leoncavallo erfitt mjög, en
þar minnti söngur Guðmundar
mig sjerstaklega á söng Helge
Lindberg’s, hinn finnska stór-
söngvara, er ljest fyrir nokkr-
um árum, en var stór í brotun-
um. Söngskránni lauk með
lögum eftir Rachmaninoff,
Richard Strauss, René og Huhn.
í öllum lögunum kom i ljós,
hversu söngvaranum er um-
hugað um að allt sje sem vand-
aðast og best af hendi leyst,
og er það dygð, sem sumir
söngvarar flíka ekki æfinlega
um of. Ber því að virða það
að maklegleikum, því það er
sú höfuðdyggð, sem ætti ekkj
að þurfa að fjölyrða um, en
snertir þó sjálfan kjarna máls-
ins, sem sje listina sjálfa og
tilveru listamanBsins.
Þessi söngckemmtun var hin
prýðilegasta. Raddgæði Guð-
mundar eru mjög sjaldgæf,
hvar sem leitað er, og sjálfur
er hann á þroskabrautinni, og
siglir hraðbyri beint inn á
ónerusviðin. Góðan byr, Guð-
mundur!
P. í.
Embættaveitingar og rálning
opinberra starfsmanna
GYLFI Þ. GISLASON flytur
í Nd. frv. um embættaveitingar
og ráðningu opinberra starfs-
manna. ♦’ ”
í frv. þessu felast þrjú meg-
inatriði:
í fyrsta lagi skal ráðherra
óheimilt að stofna til embættis
eða opinbers starfs án laga-
heimildar.
í öðru lagi skulu öll embætti
og opinber störf, sem ráðherra
veitir auglýst til umsóknar með
minnst mánaðar fyrirvara.
I þriðja lagi skal ráðherra,
áður en hann veitir embættið,
leita umsagnar viðkomandi að-
ilja (sem nánar er tilekið í frv.)
Gylfi benti á hve ólíkar reglur
hafa gilt í þessum efnum fram
til þessa.
Mönnum væri enn í fersku
minni hinar miklu deilur, sem
urðu á Alþingi um stofnun
tveggja dócents embætta við
háskólann, — í sögu og bók-
mentasögu, — sem þó að lokum
var samþykkt. Aftur á móti
hafi atvinnumálaráðherra, Aki
Jakobsson stofnað á s. 1. tveim
árum ekki færri en 10 embaetti
við Atvinnudeild Háskólans, án
þess að það kæmi til nokkurra
kasta Alþingis.
Gylfi minnti í þessu sambandi
á skipun deildarstjóra iðnaðar-
deildar atvinnudeildar háskól-
ans. Hann gat þess, að í haust
hefði deildarstjóri iðnaðarat-
vinnudeildar Háskólans, Trausti
Olafsson sagt starfi sínu lausu,
en starfar áfram sem sjerfræð-
ingur við deildina. Atvinnu-
málaráðherra hafi skipað nýj-
an starfsmann við þessa deild
og gerði hann jafnframt að
deildarstjóra.
Samkv. lögum um náttúru-
rannsóknir, nr. 68, 7. maí 1940
væri ráðherra skylt að hafa
samráð -við rannsóknarráð
ríkisins, er hann skipar nýjan
starfsmann við atvinnudeildina.
Þessi lagafyrirmæli hafi ráð-
herra virt að vettugi í sam-
bandi við ráðningu þessa starfs
manns, og hefði þó ekki síður
verið ástæða til þess að fylgja
þeim fyrir þá sök, að þessi nýji
starfsmaður vaí þegar í stað
skipaður yfirmaður hinna, sem
fyrir voru.
Gylfi kvaðst hafa borið fram
fyrirspurn til ráðherra fyrr á
þessu þingi varðandi þetta mál,
en ráðherra hafi ekki svarað.
Einnig tóku til máls Gísli
Sveinsson og Jörundur Brynj-
ólfsson, en því næst var umr.
frestað.
BEST AÐ AUGLYSA
í MORGLTNBLAÐINU
«»<$h$><^<$><$><$><§><§><§><§><$>3><$><§><§><§><§><§><$><§><$><$><§>3><§><$><$><§h$*$*§><§*$><$><§><§><$><^<^^
I
i Vanan línumann
t
vantar nú þegar á góðan vjelbát frá Sandgerði
Uppl. hjá Landssambandi íslenskra útvegs-
manna, Hafnarhvoli, sími 6651.
Bæð og kjallari
fokhelt, í Hlíðahverfinu, ca. 130 fer.m, til sölu.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
L. Fjeldsted, Th. B. Líndal og Ág. Fjeldsted,
Hafnarstræti 19, sími 339*5.
VersIunarsEarð
Tvær ungar stúlkur óskast til afgreiðslu-
starfa nú þegar eða síðar. Tilboð með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf, send
ist Morgunblaðinu fyrir næstu mánaðarmót,
og auðkennist „Bókaverslun“.
IS. í.
í DAG, á 35 ára afmælt
íþróttasambands íslands, mun
stjórn Í.S.Í. taka á móti sam-
herjum sínum, vinum og vel-
unnurum, í Oddfellowhúsinu,
niðri. Klukkan 8,30 í kvöld
verða methöfum á árinu
1946 afhent verðlaun sín í
Oddfellowhúsinu, uppi.
Borgnesingar!
Afgreiðslumaður óskast fyrir Morgunblað-
ið í Borgarnesi.
Uppl. hjá Bjarna Guðjónssyni, Borgarnesi,
eða skrifstofu blaðsins í Reykjavík.
Plitur eða stúllca
óskast til að veita forstöðu vefnaðarvöruversl
un í Reykjavík. Umsóknir merktar „1947“ ósk
ast sendar afgreiðslu blaðsins fyrir 1. febr. n.k.