Morgunblaðið - 28.01.1947, Qupperneq 8
8
Þriðjuöagur 28. jan. 1947
i n
iing:
Stefáns Hermannssonar
jí DAG verður til grafar bor
inn hjer í bæ, Stefán Her-
mannsson úrsmiður, en hann
andaðist á St. Jósefsspítalan-
um 18. þ.m. eftir fárra daga
legu, 69 ára að aldri.
Stefán var fæddur 8. febrú
ar 1878 í Fremra-Seli í Hróars
tungu. Var hann sonur Her-
manns bónda Stefánssonar
Einarssonar frá Burstarfelli í
Vopnafirði og konu hans Guð-
nýjar Sigfúsdóttur, Sigfússon
ar frá Sunnudal í sömu sveit.
Stefán var með foreldrum
sínum til 16 ára aldurs. Rjeðst
hann þá til úrsmíðanáms til
Stefáns Th. Jónssonar, á Seyð
isfirði og starfaði hjá honum
í 5 ár. Þaðan fór Stefán upp á
Hjerað og stundaði ýmist sjó-
mennsku eða var í vinnu-
mennsku þar eystra um hríð.
Árið 1907 fluttist hann til
Reykjavíkur og vann hjer við
úrsmíðar, lengst af hjá Stef-
áni heitnum Runólfssyni, þar
til hann fluttist vestur til ísa
fjarðar árið 1912. Veitti hann
þar fyrst forstöðu verslun og
úrsmíðaverkstæði Jóns Gunn
Jaugssonar um tveggja ára
skéið, en þá keypti hann bæði
verkstæðið og verslunina og
rak hvorttveggja fyrir eigin
reikning til ársins 1922, er
liann flutti alfarinn frá ísa-
firði aftur hingað til Rej'kja-
vijíur. Hjer stundaði hamr
svo úrsmíðar til æviloka, síð
us^u 10 árin hjá Jóni Her-
mánnssyni.
Jeg, sem þesar línur rita,
kynntist Stefáni fyrst á ísa-
firði og tókst brátt með okk-
ur góð vinátta, enda var Stef-
án glaðvær maður og skemti-
legur og kunni vel að vera
með ungum mönnum. Hann
var fróður vel og ágætlega
minnugur, enda kunni hann
feiknin öll af ljóðum og lausa
vísum, og gaman var að hevra
hann segja frá gömlum at-
burðum og sjerkennilegum
mönnum, sem hann hafði
kynnst, því að hann var kím-
inn og sagði ágætlega frá
Endaþótt Stefán ljeti ekki til
sín taka stjórnmál á opin-
berum vettvangi, hugsaði
hann mikið um þau mál, var
fastur í skoðunum og ekki
myrkur í máli, ef því var að
að skifta. Hann var eindreg-
inn heimastjórnarmaður á
sínum tíma og mat Hannes
Hafstein, og virti, mest allra
íslenskra stjórnmálamanna og
nú á síðari árurn fylgdi hann
Sjálfstæðisflokknum að mál-
um og var þar allur og óskift
ur eins og jafnan er hann tók
afstöðu til einhverra mála.
Þó að Stefán væri ókvænt
ur og barnlaus fór hann ekki
með öllu á mis við gleði heim
ilislífsins, því að hann var tíð
ur gestur á hemili bróður síns
Björgvins Hermannssonar
trjesmíðameistara hjer í bæ
Naut hann þar ástríkis bróð-
ur síns og mágkonu og barna
þeirra, sem hændust mjög að
frænda sínum, enda var Stef-
án barngóður maður og skap-
þýður.
Fyrir þrem árum kenndi
Stefán fyrst þeirrar mein-
semdar er varð hónum að ald
urtila. Ágerðist sjúkdómur-
urinn mjög á árinu, sem leið
en Stefán var þrekmaður og
Ijet lítt á sjá og æðraðist
hvergi. En sjúkdómurinn hef
ur verið kominn á hærra stig
en menn bjuggust við, því að
ekki hafði Stefán legið rúm-
fastur nema örfáa daga, er
andlát hans bar að.
Stefán Hermannsson var
hugþekkur öllum þeim, sem
höfðu af honum kynni. Hann
var hreinskiftinn og grand-
var í dagfari — trygglyndur
og drengur góður, og þannig
rnunu vinir hans og vanda-
menn jafnan minnast hans.
Sigurður Grímsson.
Atvinna
Fataverslun hjer 1 bænum rjett við Miðbæinn
vantar 15. febrúar n.k. afgreiðslukonu með
góða söluhæfileika. Umsóknir sendist afgr.
blaðsins, merkt: „Afgreiðsla 1002“, fyrir 1.
febrúar.
Gólfdreglar nýkomnir
— Meðal annara cröa
Framh. af bls. 6
hafa gert uppreisn gegn komm
únistunum.
—Nei, er það satt? sagði
hann. En það getur ekki verið
að Lettland sje með í því stríði.
— Því þá ekki, sagði jeg.
Það er stundum betra að berj-
ast en að rotna lifandi.
— Það er heldur ekki þess-
vegna, sagði hann. Haldið þjer
að við myndum ekki berjast,
ef þess væri nokkur kostur. En
það eru engir til þess að berj
ast í Lettlandi. Rússar hafa
flutt alla vopnfæra menn til
Síberíu í nauðungarvinnu og
við, sem erum erlendis, snú-
um ekki heim aftur. Það væri
sama og sjálfsmorð.
, Það varð þögn. Við gengum
út úr háskólanum og niður í
gegnum um súlnagöngin. Fyrir
neðan okkur lá borgin. Borg,
sem um langan aldur • hafði
notið friðar og farsældar, svo
íbúar hennar höfðu ekki álit-
ið það nauðsynlegt að viðhalda
víggirðingunum. Nú eru að-
eins leyfar eftir af borgarmúr-
unum, sem reistur var ein-
hverntíma í fyrndinni. En í
fjarska lá annað land. Víggirð-
ingar þess komu því að engu
haldi, því það var á valdi óvin-
anna.
En hvað þá? sagði jeg að
lokum. Hvað getið þið gert?
Ekki getið þið verið hjer í Vest
ur-Evrópu lengi. Flóttafólkið í
Danmörku er þungur baggi á
ríkinu og Danir vilja losna við
það eins fljótt og hægt er. í
fyrra ljetu Svíar á annað hundr
að Estlendinga af hendi við
Rússa. Hvað er hægt að gera?
— Jeg veit það ekki, sagði
hann þunglega. Hamingjan vei*
hvað gera skal. Jeg sje að
minsta kosti ekkert annað ráð
en að bíða.
— En Pólland berst — and-
æfði jeg — og Lithauar hafa
ekki gefist upp!
— Nei, það er satt, sagði
hann íhugandi. En Rússland
hefir næstum 200 miljónir í-
búa. Rússar hafa hergögn og all
an útbúnað og þeir hafa völd-
in.
— Jeg veit það, sagði jeg.
En hafði ekki Þýskaland marg
ar miljónir undir vopnum og
rjeði það kannske ekki yfir*
mest allri Evrópu árið 1942?
— Jú, sagði hann. Það er
satt.
Við tókumst í hendur til
kveðju og brostum hvert öðru
til huggunar.
Hver veit, hvað framtíðin
ber í skauti sínu!
Guðrún Jónsdóttir
frá Prestsbakka.
í ^<$^<^<&^^<Sx$k®>^^^<Sx^<^^x5»<í^$>3>^^>^<Íx^k^<®x®k^^<$xJx$xSx$xSx$x&3x^<®x^x$>@><
Skákþingið
Lau'
• 48. Sími 7530.
FJÓRÐA umferð á Skák-
þingi Reykjavíkur var tefld
á sunnudaginn, að Þórscafé.
Úrslit í meistaraflokki urðu
þau að Guðm. Pálmason vann
Benóný Benediktsson, Jón
Þorsteinsson vann Pjetur
I Magnússon, Magnús G. Jóns-
son vann Gunnar Ólafsson
og Eggert Gilfer vann Guð-
jón M. Sigurðsson. Biðskák
varð milli Sturlu Pjetursson-
ar og Lárusar Johnsen.
Sigurgeir Sigurjónsson
* ScBstoréttarlögmaður
.§:*s ;; :. -
Slcrifstofutimi 10—12 og 1-6.
Aðalstrœti 8 S mi 1043
Gylfi Þ.
Gíslason
Jónas
Haralz
Klemens Ólafur
Tryggvason Björnsson 1
HVAR
?
ER ISLENZKA ÞJOOIN A VEGISTODD FJARHAGSLEGA ;
Þessu fáið þjer svarað í
Áiiti hagfræðinganefndar
sem nú er komið í bókabúðir. „Hagfræðinga-
álitið“ er bók, sem þjóðin 'hefur beðið eftir með
óþreyju og mun áreiðanlega vekja meiri at-
hygli og umræður en allar aðrar bækur, sem
komið hafa út í seinni tíð.
Tilkýnning frá Aiýbyggingarráði
Nýbyggingarráð hefur lokið úthlutun þeirra
jeppabíla, sem ákveðið er að flytja til lands-
ins í ár á vegum ráðsins. Þeir, sem ekki hafa
þegar fengið tilkynningu ráðsins um úthlut-
un, geta ekki búist við, að umsóknir þeirra
hafi verið teknar til greina.
Þýðingarlaust er því að senda frekari umsókn
ir á þessu ári um jeppabíla, sem og leita til
Nýbyggingarráðs, hvorki til einstakra nefnd-
armanna nje skrifstofustjóra, með fyrir-
spurnir varðandi jeppabifreiðar.
m
ijbycj-cfmcjamz
é
Vjelritunarstúlka
óskast á skrifstofu hjá ríkisstofnun, nú þeg-
ar. Laun skv. launalögum. Eiginhandarum-
sóknir sendist fyrir 10. n. m. til afgreiðslu
Mbl., merkt: „Framtíðarstarf“.
^^^xMx$xí>^x$x®xS>^<8x$x$>^<$x^<$xM><$x:.><í><$><S>^x$><$x^>^<í><íxí><S><Sxí>^<^<^V
Ungan skrifstofumann
(Ci,
vantar oss nú þegar.
maróóon, 2oe^a C(o. L.f.
Hamarhúsinu, símar 6697 & 7797
< i
REYKJAVÍK — BORGARNES — REYKHOLT
Áætlunarbílferðir frá Rvík: mánud., fimtud.
Frá Borgarnesi: þriðjud., föstud.
Afgreiðsla í Hótel Borgarnes og b.s. Heklu.
Kristinn Friðriksson, sími 6515, Týsgötu 5.