Morgunblaðið - 03.05.1947, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIB
Laugardagur 3. maí 1947
íslenskn þjóðin fylkir liði til nð
hnldn i heiðri lögum og lýðræði
I 'ÞESSUM umræðum hef-
ur sannast, að allar ásakanir
háttvirts Socialistaflokks á
stjórnina eru staðleysu stafir.
Núverandi stjórn er ekki að
húa til kreppu heldur er hún
að reyna að leysa þann vanda,
sem Socialistaflokkinn skorti
hug til að leggja í baráttu við.
Launastjettunum hlíft
Núverandi ríkisstjórn hefur
ekki lagt sjerstakar kv'aðir á
launastjettir landsmanna, held
ur hefur hún með skattaálög-
um sínum einmitt hlíft þeim
svo mikið sem unnt er, þegar
inn þarf að ná jafnmiklum
upphæðum og rau'n ber vitni
um.
Núverandi stjórn hefur
el;ki fundið upp það ráð, að
halda dýrtíðinni niðri með
niðurgreiðslum úr ríkissjóði.
Sú aðferð hefur verið notuð
árum saman og socialistar
samþykktu hana meðan þeir
voru í ríkisstjórn og fulltrúar
þeirra voru einmitt, ásamt
öðrum fjárveitinganefndar-
mönnum, nú flytjendur að til-
iöguninni um að ætla 35 millj.
úr ríkissjóði í þessu skyni. og
enginn kommúnisti greiddi á
Alþingi atkvæði á móti þess-
ari fjárveitingu. Ef þar er því
um að ræða árás á launastjett-
irnar, sem ekki er, þá er Socia
listaflokkurinn ekki síður sek
ur en aðrir.
Auknar tekjur nauösynlegar
Það hefur sannast, að þó að
það hafi fallið i hlut þessarar
stjórnar, að fá samþykkt ný
tekjuaukalög fyrir ríkissjóð,
þá er það ekki hennar verk,
að útgjöldin eru nú svo há, að
nauðsyn er á þessu. Þetta er
annarsvegar afleiðing verð-
bólgunnar, hinsvegar ýmiskon
ar nytsemdar löggjafar, sem
sett hefur verið _síðustu árin,
en befur þann galla með sín-
um kostum, að fjármuni verð-
ur að gjalda til að framkvæma
hana.
Þó að ríkistjórnin hafi beitt
sjer fyrir nokkrum sparnaði á
sumum útgjöldum fjárlag-
anna frá því áður var, þá er
nú engu að síður meira veitt
til verklegra framkvæmda en
nokkru sinni áður.
„Er þaö hœkkunartíllaga?“
Það hefúr sannast, að þó að
Socialistaflokkurinn ávíti
stjórnina fyrir of háa skatta,
þá hefur enginn flokkur
nokkru sinni í sögu landsins
gengið lengra í útgjaldakröf-
um en þessi flokkur hefur gert
á þessu þingi.
Þegar formaður flokksins
kom inn i alþingissalinn eitt
sinn meðan á atkvæðagreiðsl-
unni stóð og vissi ekki um
hvað verið var að greiða at-
- kvæði, þá spurði hann upp
yfir alla:
„Er það hækkunartilíaga?“.
Þegar því var svarað ját-
andi, þá greiddi hann henni
| atkvæði, án- þess . að vita um
; hvað hún vár. Þarna er
■' stefnu flokksins rjett lýst.
Flokkurínn hefur vérið méð
hverri einustu hækkunartil
Ræða Bjarna Benedikts-
sonar við eldhús-
umræðurnar
lögu og á móti hverri einustu
lækkunartillögu annari en að
lækka framlag til Elliheimilis-;
ins Grundar hjer í Reykjavík.
Af einhverri óskiljanlegri á- j
stæðu var það eina málið, fyr- ]
irgreiðslan fyrir gamla fólk- J
inu, sem Socialistaflokkurinn
vildi ekki styðja heldur
greiddi atkvæði á móti.
Ætla aö beita ólögmœlum
ráöum
Ferill Socialistaflokksins í
þessum umræðum og afskipt-
um af málefnum þingsins, er
með þeim hætti, að einsdæmi
er. Út yfir tekur þó, að flokk-
urinn hyggst nú, eftir að
hann hefur orðið undir í rök-
ræðum og atkvæðum á Al-
þingi, að reyna að beita áhrif-
um sínum í verkalýðsfjelögum
landsins til að brjóta á bak
aftur nauðsynlega skattalög-
gjöf, sem Alþingi hefur sett á
lögmætan hátt.
Almenningur rwöur
Það hefur verið sagt, að
kommúnistar rjeðu yfir verka-
lýðshreyfingunni á Islandi og
þess vegna væri nauðsynlegt
að semja við þá. Þetta er ekki
nema að litlu leyti rjett. Sem
betur fer þá er það enn al-
menningur sem úrslitaráðin
hefur.
1 frjálsu þjóðskipulagi ráða
verkamenn fjelögum sínum
gagnstætt því þar sem komm-
únisminn hefur náð öllum
völdum í ríkinu. Það er að
vísu rjett, að kommúnistar
geta efnt til verkfalla og mis-
beitt aðstöðu sinni í verklýðs-
fjelögunum á pólitiskan hátt
a.m.k. um sinn. En þeir geta
þetta ekki til lerígdar nema
þeir fái til þess fvlgi almenn-
ings.
Hruniö bíöur kommúnista
Nú er að því komið, að al-
menningur verður að vakna
til vitundar um skemmdar-
starfsemi kommúnista. Komm
únistar ætla nú að misbeita
trúnaðarstöðum sínum i verka
lýðsfjelögunum til að brjóta á
móti lögmætum fyrirmælum
Alþingis Islendinga.
Ef almenningur lætur nota
fjelagsskap sinn til slíkra ó-
þurftarverka, gerist hann eigin
böðull.
Málin hafa nú verið skýrð
og glögglega lögð fyrir almenn
ing þessa lands.
Blekkingar kommúnista eru
sundurtættar. Þeim sem á
þær trúa er því engin vork-
unn lengur og mun svo reyn-
ast, að þeir eru færri en komm
únistqr hefðu kosið.
Islenska þjóðin fylkir nú liði
til þésS að halda í heiðri lög-
um og lýðræði þessa lands. —-
Þess vegna er dómurinn kVeð-
inn upp yfir kommúnistum.!
Það er flokkur þeirra, sem
bíður hruns og launaðir eidnd-
rekar þeirra, sem bíða at-
vinnuleysis. Það er þess vegná,
sem nú lætur svo ámátlega í
þeim. En íslenska þjóðin læt-
ur þau óp ekki trufla sig held-
ur sækir einhuga fram til
betri tíma.
Ríkisráðsfundur
sfaðfestir fjáriögin
Á RÍKISRÁÐSFUNDI sem
haldinn var 1. maí 1947, stað-
festu handhafar valds forseta
Islands, samkv. 8. gr. stjórnar
skrárinnar, forsætisráðherra,
forseti sameinaðs Alþingis og
forseti hæstarjettar fimm eftir
greind lög’:
1. Fjárlög fyrir árið 1947.
2. Lög um breyting á raf-
orkulögum nr. 12, 2.
apríl 1946.
3. Lög um heimild fyrir rík
isstjórnina til að selja Dal
víkurhr. jörðina Böggvis-
staði.
4. Lög um heimild fyrir rík
isstjórnina til að selja Ó1
afsfjarðarkaupstað jörð-
ina Hringverskot í Ólafs-
firði.
5. Lög um skipulag og hýs-
ingu prestssétra.
it- og ialsíma-
samband tekið upp
Berlín í gærkvöldi.
Opinberlega var tilkynnt
hjer í Berlín i dag, að sam-
komulag hefði náðst um að
opna rit- og talsímasamband
á ný milli breskbandarísku her
námssvæðanna í Þýskalandi og
Danmerkur, Luxemburg, Sví-
þjóðar, Noregs, Tjekkóslóvakíu
Svisslands og Frakklands.
Aðeins þeir Þjóðverjar, sem
standa í beinu sambandi við
efnahagslega endurreisn Þýska
lands, fá að senda símskeyti og
hringja til annara landa. -—
Reuter.
GARÐYRKJA
Matjurtir og hætiefni
LE CAPITAN
•
GAMLA BlÓ sýnir um þess
ar mundir franska kvikmynd,
sem nefnist Le Capitan og ger
ist á öndverðmn stjórnarárum
Lúðvígs XIII. og fjallar um
einn hraustan riddara, ástir og
baktjaldamakk fyrir auði og
völdum.
Þeir, sem gaman hafa af fjör
ugum og spennandi kvikmynd
um, skilmingum og eltingar-
leikum munu hafa ánægju ag
þessari löngu kvikmynd, sem
er í tvfeimur kÖflum og stend
ur yffr í 3 klukkustundir,
Danskúf téVti er tneð mynd-
inni. »
Eftir Ragnar Ásgeirsson.
VORIÐ ER KOMIÐ og vor-
hugurinn er farinn að gera
vart við sig — Það er svo
margt sem ræktunarmaðurinn
þarf að athuga og undirbúa
fyrir sumarið. Fyrirhyggja
hefur alltaf verið talin til
hinna fornu dygða og er i góðu
gildi enn, þó sumar þeirra
hafi verið mikilsmetnar und-
anfarin veltuár. En sólin er nú
óðum að hækka á lofti og ylja
jörðina og marga kitlar i lóf-
ana af löngun yfir að fara að
fást við moldarverkin, rækt-
unarstörfin.
En er nokkur ástæða til að
fara að hreyfa sig frekar nú
en áður í þessu efni? Mjer
sýnist vera fullkomin ástæða
til þess. Alþýða rnanna er nú
farin . að skilja glöggt live
nauðsynlegt það er ungum og
gömlum að hafa holla og góða
— og fjölbreytta fæðu. Það
hefur verið kvartað árum
saman yfir að innflutningur
skuli ekki vera leyfður nægi-
legur hvað suðræna ávexti
snertir — og því máli verið
þokað svo áfram að þingsálykt
unartillaga hefur verið sam-
þykkt á Alþingi um nauðsyn
á innflutningi þeirra. Lækn-
arnir hafa skýrt frá þeirri lífs-
nauðsyn sem bætiefni eru
okkur mannfólki ■— og þau
eru m.a. í ríkum mæli í um-
ræddum aldinum. Enginn lít-
ur á þau sem lúxus og er nær
sanni að telja þau til lífsnauð-
synja.
En það er nú einu sinni
þannig að samþykktir eru
ekki alltaf fullnægjandi í mál-
unum — og hjer þarf líka er-
lendan gjaldeyri, og lands-
menn heimta að ávextir sjeu
keyptir og hann höfum við af
skornum skammti, svo skorn-
um að bjartsýni þarf til að
halda að aldinin muni verða
nóg á boðstóhun hjá okkur á
þessu ári. Það er fullt útlit
j fyrir að færri en vilja fái
I þessa vöru á næstunni og því
rjett að reyna aðrar leiðir sem
færar eru í þessu máli.
Það hefur verið bent á, af
þeim sem á sínum tima neit-
uðu um innflutning á ávöxt-
um að í hrognum væri svo
mikil bætiefni að þau ættu að
vera „sítrónur" okkar Islend-
inga. Það er að vísu satt að
þau eru góð og bætiefnarík,
en þó þýðir ekki að vísa öllum
við sjó og sveit á hrognin. Það
er erfiðara að geyma þau ó-
skemmd en ávextina — og er
það engin móðgun við hrogn-
in þó þau sjeu ekki talin jafn-
góð og hressandi sem hinir suð
rænu ávextir.
En það er til leið, sem öll-
um er fær, til að útvega sjer
ljúffenga, bætiefnaríka fæðu,
sem óhikað má jvísa fólki á:
Að rækta matjurtir sem þola
veðurfarið islenska — og að
neyta þeirra. Sje það gert svo
að í lagi sje, þurfa engin vand-
ræði að verða þó þina erfendu
ávexti vanti. 'AIlir sem háfa
eitthvað lært í bætiefnafraAi
vita að bætiefnin myndast í
grænum blöðum jurjanna fyr-
ir áhrif sólargeislanna á þau.
Þess vegna er rjett að telja
jurtirnar nokkurskonar bæti-
efnaverksmiðjur — og allt
sem lífi lifir, jafnt dýr og
menn, fær þessi aýrmætu
efni, sem ekki verður lifað án
til lengdar frá þeim. — Þess
vegna er það -rjett að nefna
hollar og vel ræktaðar mat-
jurtir „undirstöðufæðu“, því
án nægilegra hætiefna fá
menn ekki heilsu haldið, enda
þótt þeir hafi nóg af öllu öðru,
sem til lífsins þarf. Meðan
menn vissu ekkert um bæti-
efni og fæðan var metin mest
eftir eggjahvitu, fitu- og kol-
vetnainnihaldi fæðitegund-
ánna, var grænmetið ekki met
ið bátt og oft nefnt „ljettmeti".
Má með sanni segja að hlutir
þess hafi hækkað um helming
eða meira, síðan bætiefnin og
áhrif þeirra á heilsufar
manna og dýra voru kunn.
Þess vegna eiga allir sem
einhver tök hafa á — og ráða
yfir þó ekki sje nema örlitlu
landi að rækta matjurtir, sjer
og sínum til heilsuverndar og
hagsbótar. Ekki einasta það er
hollt að neyta þeirra — held-
ur hefur vinnan, útiveran, við
ræktunina orðið fjölda mörg-
um til heilsubótar. Og enda
þótt mikið sje rætt nu á dög-
um um stórvirka tækni við
ræktun á víðáttumiklum svæð
um, þá hefur ræktun heimiU
anna stórkostlega þjóðhagslega
þýðingu, þó hver einstakur
blettur sje allt að því hlægi-
lega smár. En hve mikla og
verðmæta uppskeru má fá af
litlum garði, vita þeir best
sem reynt hafa og hirt um
garðinn með alúð. Hvert heim
ili sinn litla garð — ætti að
vera kjörorðið.
Þó landið okkar sje norð-
j lægt og kalt, er svo fyrir að
' þakka að ýmsar matjurtir þríf
| ast hjer ágætléga og sumar ná
: ekki minni þroska hjer en í
j heitari löndum. Jurtir vinna
, ekki efni úr loftinu nema í.
I birtu, eins og kunnugt er ,—
^en þegar sólargangur er lengst
I ur hjer og auk þess nógu hlýtt,
' vaxa þær allan sólarhringinn
| og er það skýringin á að sum-
ar tegundir þurfa hjer
skemmri tíma til þroska, en
sumar þar sem nóttin er
dimmari. Auk þess hentar hin
rakasama veðrátta Suðurlands
ýmsum tegundum matjurta
einkar vel, t.d. blómkálinrf.
Allir þéir, sem ráða yfir
einhverjum bletti ættu að nota
hann til matjurtaræktunar í
sumar, sjer og sínum til heilsu
og hagsbóta. Það er munur að
taka hjá sjálfum sjer nýjar og
óskemmdar matjurtir eða
verða að kaupa þær að dýru
verði og ekki alltaf eins vel
með farnar og æskilegt er.
Þetta suinar ætti að verða
garðy'rkjusumar.
LONDON: — Bevin utanrík-
ismálaráðherra, hefir boðið
Sforza greifa, utanríkisráð-
herra Ítalíu, að koma til Bret-
lands, til viðræðna við stjórn-
arvaldin þar um ýmislegt, sém
viðkemur hagsmunum beggja
landa.