Morgunblaðið - 24.12.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.12.1958, Blaðsíða 16
16 MoncmsnL AÐIÐ Míðviknrtagur 24. des. 1958 < Ef þeir tá grammotón og gleraugu eru þeir ánœgðir Viðtal v/ð Kristján Gunnlaugsson flugmann um ársdvöl i Afriku ÞAÐ hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir nokkrum árum, ef blöðin hefðu skýrt frá því, að ís- lendingur væri að flytjast til Afríku. En í dag þykir slíkt varla meira en svo frásagnarvert, það tæki okkur vart sólarhring að komast héðan frá íslandi suður til Mið-Afríku. Mönnum kemur yfirleitt ekkert á óvart nú á tím- um nema þá, ef skatturinn er lægri en hann var síðast. í dag er það engin ný saga, að íslendingar flytjist til Afríku. íslenzkir trúboðar hafa numið iand í svörtustu skógum Abess- iníu — og íslenzkir flugmenn eru starfandi í þremur löndum Afríku. En jafnan er gaman að íylgjast með því hvernig landan- um vegnar erlendis, sér í lagi í fjarlægum löndum — og þess vegna mæltum við okkur mót við einn hinna íslenzku flug- manna í Afríku, er hann skrapp hingað heim ekki alls fyrir löngu. *® Maðurinn er Kristján Gunn- laugsson, sem fýrir rúmu ári hélt suður til Belgísku Kongó og réð- ist til starfa hjá belgíska flugfé- laginu Sabena. Afríkumiðstöð fé- lagsins er í Leopoldville, á bökk- um Kongó neðanverðrar. Þar hefur Kristján líka aðsetur, svo og Þorsteinn Jónsson, flugstjóri. Hann hefur verið hjá Sabena lengur en Kristján, en áður voru báðir starfandi flugstjórar hjá Flugfélagi íslands. Kristján kom beint úr hita- beltissólinni, sólbrenndur og sæl- legur — og sagðist una hag sín- um hið bezta þarna suður frá. ** — Það var auðvitað margt, sem kom mér einkennilega fyrir sjónir, þegar ég fór suður eftir. En ég vandist þessu skjótlega — og finnst lifið nú ósköp notalegt, kaupið er lika mjög gott. Auð- vitað er betra og skemmtilegra að vera hér heima — og það var ekki vegna annars en launanna, sem ég fór út í þetta. Og svo er einnig um alla aðra flugmenn í Afríku, að S-Afríku undanskil- inni. Alls staðar annars staðar í Afríku, þ. e. a. s. fyrir sunnan Egyptaland, eru flugmenn inn- fluttir. Svertingjarnir eru enn ekki byrjaðir að læra að fljúga. Flugmennirnir hjá Sabena i Kongó eru af ýmsum þjóðernum, ég held 13 eða 14 — bæði frá Evrópu, Ameriku og Ástralíu. Flugsamgöngurnar innan Kongó hafa farið í vöxt á síðustu árum og hefur Sabena fært mjög út kvíarnar þar. Félg^ið byggir yfir alla starfsmenn sína og hefur jafnframt byggt gististaði fyrir áhafnir og ferðamenn við flug- velli víða í landinu. í Leopold- ville hefur félagið byggt heil hverfi, á þar stór sambýlishús og einbýlishús. Þorsteinn hefur þar einbýlis- hús og ég lief ágætis íbúð — og öll lífsins þægindi, jafnvel þjóna á hverjum fingri. Það er okkur n*uðsyniegt. Ég held að flestir eða allir hviiir menn í Kongó hafi einn eða fleiri þjóna, hitinn er nefnilega svo mikill stundum, að hvítir menn geta vart hreyft sig lil líkamlegrar vinnu. ** — Minn þjónn? ílann er gamall negri, sér um að halda íbúðinni hreinni. þjónar mér og eldar ma<inn, begar ég er heima. Við getum ekkert taiazt við — það gerir svo sem ekkert til. Hann býr til goðan rnat og upp- fyiiir að óðru leyti aiiar kröfur. En þeir koma ótrúlega litlu í verk þessir svertingjar þarna suður frá, ég held að okkur þætti þeir latir og linir til vinnu hér heima. Kaup þeirra er lika lítið, en þeir vilja miklu heldur hafa lítið kaup og taka lífinu með ró, en ganga karlmannlega að vinnu. Vinnan er eitur í þeirra beinum — og mér hefur skilizt, að flestir hverjir komist á hátind jarð- neskar sælu, ef þeir eignast grammófón og gleraugu. Skiptir engu máli hvort þeir sjá vel eða illa. Gleraugnaumgerðirnar ein- ar eru jafnvel betri en ekki neitt. ** — Atvinnan? Mér er óhætt að segja, að hún sé jafnólík flug- mennskunni á Islandi og mest má vera, aðallega hvað véðráttu snertir. Sabena hefur í Kongó bæði Douglas DC-3- og Skymast- er-flugvélar. Ég hef aðallega flogið Douglas — og þar er einn flugmaður látinn nægja auk loft- skeytamannsins og þjóns, sem í þessu tilfelli þjónar farþegum. Venjulega er ég 6—8 daga að heiman í senn og kem við á yfir 20 stöðum í hverri ferð. Flýg þá um alla landshluta, bæði með farþega og vörur. Venjulega er lagt af stað um 6-leytið á morgn- ana, en aldrei flogið lengur en fram um eitt til tvö á daginn. Síðari hluta dags er oft hætt við þrumuveðrum og mikilli rign- ingu, sem getur orðið svo þétt, að skyggnið verður aðeins nokkr- ir metrar. Um næturflug er aldrei að ræða í Kongó, flugvellir eru þar teljandi fáir með upp- lýstar brautir. Að öðru leyti eru flugskilyrði mjög góð og stöðug í Kongó, sól og blíða — stundum æði heitt að vísu. Enda þótt oft sé fremur til- breytingarlaust að fljúga þarna suður frá, þegar flogið er klukku- stund eftir klukkustund yfir ó- endanlega skóga, þar sem hvergi er kvikt að sjá úr loftinu, er æði tiíbreytingarríkt að ferðast um Afríku. Víða er ótrúlega skammt á milJi menningarinnar svoköll- uðu og frumstæðra ættflokka, sem eru síður en svo hrifnir af menningunni. Leopoldville og margar aðrar borgir í Kongó eru með miklum tízkubrag. Þar eru öll hugsanleg nýtízku þægindi, byggingarstíll hinn sami og nú ber mest á í Evrópu og Ameríku — og spánnýir og gljáfægðir bíi- ar bruna eftir malbikuðum hreið- götum. Víða þurfa menn ekki að fara um langan veg úr þessu ný- tízkulega umhverfi til þess að sjá svertingja, sem lifa enn svo að segja alveg eins og þeir hafa gert í margar aldir. Það er fyrst og fremst vinnan, sem fælir þessa negra frá hvítum mönnum og þeirra lífi. „Menningin" hefur aðeins flutt inn í Afriku eitt, sem allir negrar girnast. Það er gling- ur og skrumbótt klæði. ** — Hvernig frístundunum er varið? JMú, í hópi vinnufélaga, á skemmtistöðum og við útilíf. Við iðkum mikið af alls kyns úti- leikjum og sund og sólböð eru líka snar þáttur í lífinu þarna suður frá. Ég kem stundum í bæ einn, við vatn, sem heitir Kivu, á landamærum Kongó og Ruanda Urundi. Þetta er inni í miðri Afríku — í 5 þús. feta hæð. Þar er dásamlegasti baðstaður, sem ég hef komið á. Þar er vatnið tært eins og í íslenzkum fjalla- lindum — og þetta er að ég held eina vatnið í Kongó þar sem ekki fyrirfinnast krókodílar. Annars er nóg af þeim — og maður fer aldrei of varlega á baðströndun- um. *» ' Við erum víst fjórir íslenzkir flugmennirnir í Afríku. Snæbjörn Samúelsson er hjá Africair, í S-Afríku. Hasn á heima í Bechu- analandi, en því miður hef ég aldrei fengið tækifæri til þess að heimsækja han*. Hins vegar kom ég við hjá Ómari Tómassyni í Kanó í Nígeríu á leiðinni hingið heim. Hann flýgur hjá Nigerian Airways og hefur komið sér vel fyrir, nýgiftur enskri stúlku og lifir eins og enskur lord. Þau eiga mjög skemmtilegt heimili og Ómar er mikið heima. Hann flýg ur á stuttum leiðum og kemur alltaf heim samdægurs — og er allur í íþróttum og reiðmennsku. Hann á góðan gæðing — og hefur hestasvein, negra, sem ekkert gerir annað en hugsa um hest- inn hans, kemba honum og klóra bak við eyrun. Sá hefur það náðugt. En svertingjarnir sækj- ast mest í atvinnu sem þessa — þar sem ekkert er að gera og lítil laun. Þeir geta þó alltaf sagt, að þeir séu í vinnu. ** Af þessu sjáið þið, að íslenzku flugmennirnir una sér vel í Af- ríku. Kristján er miklu ánægð- ari með Afrikuvistina en veru sína í Jórdaníu. Þar vár hann eitt sinn í tvö ár, flaug hjá ara- bíska flugfélaginu skömmu eftir að hann lauk flugnámi. — Ég hefði sennilega aldrei farið út í það ævintýri ef ég hefði gert mér grein fyrir ástandinu hjá því flugfélagi. En ég var nýbakaður flugmaður, þyrstur í ævintýri og nýjungagjarn. f Jór- daníu flaug gS til nálaégra landa fyrir botni Miðjarðarhafsins. Við vorum á litlum tveggja hreyfla flugvélum, einn flugmaður með hverja vél, sem hafði engin örygg istæki nema áttavitann. Ég var þar með öllu ókunnugur, veður voru umhleypingasöm, og segja má, að flugvélarnar hafi margar hangið saman á spottum. Arab- arnir virtust láta sér í léttu rúmi liggja hvort við kæmumst á áfangastað eða ekki — að undan- skildum farþegum. Einu sinni skutu Sýrlendingar á mig, sendu orrustuflugvél á mig, ég vogaði mér inn á bannsvæði vegna veð- urs. Og þeir eru ekki feimnir við að skjóta, þykir gaman að því. Þess eru mörg dæmi, að þeir hafi skotið á flugvélar, sem ! 'a verið í fullum rétti á heimiluð- um flugleiðum. En sem betur fer tókst þeim ekki að skjóta mig niður, ég komst undan — eins og Hussein á dögunum. h.j.h. Silfurtunglið * Aramótadansleikur verður haldinn í Silfurtunglinu 31/12 (gamlárskvöld ) Sala aðgöngumiða er hafin. Pantanir teknar frá í síma 19611. Vélsljórar athugið JÓLATRÉSSKEMMTUN verður haldin fyrir börn fé- lagsmanna í Tjarnarcafé sunnud. 4. jan. kl. 15,30. SKEMMTINEFNDIN. Mew Vork — IVew York 11. S. A. Duglegur og ábyggilegur maður hefur fyrirhugað ferðalag til Bandaríkjanna um 29. desember n.k. Vill taka að sér að annast ýmis konar viðskipti í New York og nágrenni. Uppl. í síma 33862. FRAMSÓKIMARHtiSIÐ Hljómsveit Gunnars Ormslev leikur. Söngvarar Helena Eyjólfsdóttir og Gunnaa- Ingólfsson. F. U. F. í Reykjavík heldur DANSLEIK annan í jólum kl. 9 e.h. Miða- og borðpantanir í síma 22643 frá kl. 2 e.h. sama dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.