Morgunblaðið - 04.10.1959, Page 8

Morgunblaðið - 04.10.1959, Page 8
8 MORCUWTIL 4Ð1E Sunnudagur 4. okt. 1959 — . . . . en nú má ég ekki COSPER vera að því að skrifa meira. Kær kveðja, þinn Alfreð. — Ó, hvað það er gaman að sjá þig mamma Þú kemur tímanlega. — Alfreð er einmitt að ljúka við að taka til í herberginu þínu! F i m m nœfur í lausu lofti ÞETTA þverhnýpta berg, sem myndin er af, hefur haldið vöku fyrir mörgum fjallgöngu garpinum, því að það er sagt illkleifasti tindur' Alpafjalla, og er þá mikið sagt. Margur kappinn hefur látið freistast og reynt að klífa þennan 550 metra klettavagg, en allir orð- ið að snúa frá — þar til fyr- ir skemmstu, að fjórir af — fræknustu fjallagörpum Þýzkalands - sigruðu tind- inn, en sigur- inn varð lang- sóttur. Þeir voru sex daga og fimm næt- ur á leiðinni upp (hvíta strikið sýnir leið þeirra). I 5 næstur höfðust þeir við utan í hengifluginu, sváfu svefni hinna réttlátu í hengi- sfeðis rúmum úr nylonneti, sem þeir^ tylltu í sprungur og nafir á klettaveggnum. Ekki hefði öllum liðið vel að dingla þarna í lausu lofti, ef svo mætti segja — og ekki orðið svefnsamt. En félagarnir fjórir voru í sjöunda himni. Það var talið til tíðinda í sambandi við afrekið, að fjalla garparnir notuðu enga haka, eins og titt er í erfiðum fjall- göngum, heldur lásu sig upp bergið með berum fingurgóm- unum. Ekki rýrir það afrekið. ☆ Á föstudags- kvöldið verður sjötugsafmælis Jakobs Jóh. Smára minnzt í útvarpinu. — ☆ SKALDIÐ OG MAMMA LIT LA 1) Eitthvað gengwr nú á! 2) Ég rak stórutána í rennu 3) Svona, svona — var þetta Hvað hefur komið fyrir Lotta steininn! nokkuð alvarlegt? 4) Jú, vist — sjáðu bara sjálf hvað það er sárt! 1) Ég er búinn að ganga frá töskunni þinni ...setti í hana matarböggulinn og epli ..... 2) .... .... og stóran bita af heimabökuðu sandkökunni minni... Tveir söngvarar Á" f miðdegistónleikunum í útvarpinu í dag syngur franski söngvarinn Gérard Souzay, einn frægasti ljóðasöngvari sem nú er uppi. A. m. k. hefur Fischer Dieskau sagt, að Sou- zay sé eini núlifandi ljóða- söngvarinn, sem syngur betur en hann sjálfur. — Svo er vert að benda á að norska söngkonan Aase Nordmo- Löv- berg syngur í útvarpinu á þriðjudagskvöldið með sin- fóníuhljómsveit finnska út- varpsins. Hún er nú ráðin til Metropolitan og hefur áður sungið við óperurnar í Stokk- hólmi og Vín. Lövberg er arf- taki Flagstad, segja Norð- menn. Litla krossgatan Lárétt: — 1 kuldi — 6 keyrðu — 8 æð — 10 veitinga- hús — 12 veikar — 14 sér- hljóðar — 15 fangámark — 16 fæða — 18 hækkaður í tign. Lóðrétt: — 2 stúlka — 3 byrði — 4 óreiða — 5 rigning — 7 sorg — 9 púki — 11 kveik- ur — 13 brúka — 16 sund — 17 til. Létt kýmni í kvöldsögu Á MIÐVIKUDAGINN hefst ný kvöldsaga 1 útvarpinu, gaman- saga eftir þýzka rithöfundinn Heinrich Spoerl. „Þetta er ævintýri um smáborgarlegan hugsunarhátt, um það hvernig oft vill fara, þegar vandamál daglega lífsins eru ekki tekin réttum tökum — og afleiðing- in verður eintómur misskiln- ingur og sifellt basl. Og Spo- erl lýsir þessu öllu á smellinn hátt. í rauninni er þessi saga sérstæð í þýzkum síðari tíma bókmenntum, því þar er frek- ar lítið um létta kímni“, segir Ingi Jóhannesson, enskukenn- ari, sem þýðir og les söguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.