Morgunblaðið - 04.10.1959, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 04.10.1959, Qupperneq 13
Sunnudagur 4. okt. 1959 MORCVNBLAÐIÐ 13 Hermann Jónasson og White hershöfðingi. — White dvaldi hér, þegar Hermann sveik loforðið um brottrekstur hersins og samdi um stofnun „fínu-manna-nefndarinnar“, sem Þórarinn Þórar- insson var settur í. Ekki leynir sér, að vel liggur á Hermanni og hershöfðingjanum, þegar myndin er tekin. Þeir hafa báðir verið ánægðir með verkið sitt þann daginn. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 3. október Um hvað er kosið? í kosningum ræður oftast tvennt atkvæði kjósenda: Ann- ars vegar afstaða þeirra til stefnu og starfa flokka og frambjóð- enda almennt. Hins vegar afstaða til einstakra mikilvægra úrlausn- arefna. Að sjálfsögðu hlýtur þetta tvennt að blandast meira og minna saman. Flokkar taka yfirleitt ákvörðun um úrlausn tiltekinna þýðingarmikilla vanda mála í samræmi við hina al- mennu stefnu sína. Engan veg- inn er þó fyrir það að synja, að svo stór kunni einstök mál að vera og sérstök í eðli, að venjuleg flokkssjónarmið ráði litlu um úr- lausn þeirra, bæði í huga for- ystumanna og kjósenda. Nú stendur svo á, að mikill voði steðjar að þjóðinni. Það er hætt- an á öngþveiti og jafnvel upp- lausn og hruni efnahagskerfisins. Bráðri ógn af völdum verðbólg- unnar var bægt frá á sl. vetri. En allir skynbærir menn gerðu sér þá þegar ljóst, að einungis var um bráðabirgðaráðstafanir að ræða. Stöðvunarlögin í vetur voru í meginatriðum í samræmi við samþykktir flokksráðs Sjálf- stæðismanna hinn 18. desember sl. Þá þegar gerðu Sjálfstæðis- menn grein fyrir því, að fyrst yrði að koma á réttlátari kjör- dæmaskipun, svo að allsherjar- viljinn nyti sín betur en áður á þingi þjóðarinnar. Síðan yrði að snúa sér að lausn efnahags- málanna með öðru en hreinum bráðabirgðaráðstöfunum. Staðið \ið gefið heit I ályktun sinni 18. desember sagði flokksráðið: „Ráðstafanir þessar til stöðvun- ar verðbólgunnar eru aðeins fyrsta skrefið til jafnvægisbú- skapar og heilbrigðrar þróunar i atvinnulífi þjóðarinnar. En til þess að koma á jafnvægi í þjóð- arbúskapnum, er þörf fjölþættra ráðstafana, og telur flokkurinn óhj ákvæmilegt, að þjóðin fái, svo fljótt, sem við verður komið í almenniun kosningum, að nieta ðgerðir stjórnarflokkanna að undanförnu og tillögur allra flokka til lausnar þessu mikla vandamáli. Mun Sjálfstæðisflokk urinn þá gera þjóðinni grein fyr- ir viðhorfi sínu og úrræðum í einstökum atriðum. — —“ í kosningastefnuskrá sinni, sem birt var 2. okt., hefur Sjálfstæð- isflokkurinn efnt þetta lofovð. Þar er annars vegar gerð almenn grein fyrir viðhorfi flokksins í þjóðmálum nú en hins vegar og einkanlega ítarlega raktar tillög- ur flokksins í efnahagsmálum. Þær tillögur eru byggðar á ná- inni athugun allra aðstæðna í ís- lenzku þjóðlífi nú. Um lausn þessara vandamála segir berum orðum í stefnuskránni: „Vandi þeirra verður ekki leystur með neinni skyndiákvörð- un né á skammri stundu. Breyt- ing til bóta verður ekki gerð nema á löngum tíma. Þess vegna kann að þurfa að sækja á mörg- um árum fram að settu marki. Allt er þess vegna undir þvi komið, að tryggð verði samhent stjórn, sem hafi nægan 'tíma til að rétta við hag þjóðarinnar.“ Aukin framleiðsla, bætt lífskjör Haldið er áfram: „Markmiðið er aukin fram- leiðsla og bætt lífskjör, en til þess að því verði náð verður að ieysa starfsþrótt og hugkvæmni íslendinga úr viðjum, svo að þeir geti í frjálsri og heilbrigðri samkeppni skapað sem mest verðmæti fyrir þjóðarbúið. Á leiðinni að þessu marki má greina á milli nokkurra áfanga; I. Stöðvun verðbólgunnar. II. Jafnvægi þjóðarbúskapar- III. Stéttafriður. IV. Uppbygging atvinnuveg- anna. V. Hlutdeild í frjálsum við- skiptaheimi. VI. Aukin framleiðsla og bætt lífskjör. Torsótt kann að reynast sums staðar á þessari leið, stundar- hagsmunir geta þurft að víkja til þess að fprðast áföll, sem skerða mundu afkomu þjóðarinn- ar í bráð og lengd. Svo mikilvæg viðfangsefni verða ekki leyst nema með samhentu átaki allra stétta þjóðfélagsins. Enda er ó- hugsandi á íslandi að hægt sé að bæta kjör þjóðarheildarinnar með því að skerða kjör einstakra stétta“. Síðan er í glöggri sundurliðun rakið hverjar ráðstafanir þurfi að gera. Hver einasti kjósandi þarf að kynna sér þessar tillögur og stefnuskrána í heild. Fjas Framsóknar Hinar ákveðnu, glöggu og sundurliðuðu tillögur Sjálfstæð- ismanna eru mjög ólíkar fjasi því, sem Framsóknarflokkurinn hefur nú látið frá • sér fara um þessi efni. Fyrir kosningarnar 1956 lofaði Framsókn og Hræðslu- bandalagið í heild að gera „var- anlegar ráðstafanir" í efnahags- málum. Aldrei var þó sagt frá því í hverju þessar „varanlegu ráð- stafanir" ættu að vera fólgnar. Því var haldið sem leyndardómi fyrir kjósendum fram yfir kosn- ingar. Af verkum V-stjórnarinnar varð smám saman Jjóst, hvað fyrir lof- orðsgefendum hafði vakað. Sú stjórn hafði aldrei neina sam- eiginlega stefnu í efnahagsmál- um fremur en flestum öðrum þýðingarmestu stjórnmálum. A- huginn var sá einn að hremma völdin og njóta þeirra til þess að víkja nær helming þjóðarinn- ar til hliðar, eins og Hermann Jónasson á sínum tíma hældi sér af, að stjórn hans væri komin vel á veg með. Árangurinn varð öllum ljós, þegar Hermann hljóp af stjórnarskútunni hinn 4. des. sl. með þessum orðum: „Ný verðbólgualda er skollin yfir“, °g „í ríkisstjórninni er ekki sam- staða um nein úrræði í þessum málum“. Velta vandanmsi á aðra Slíkar voru, efndirnar á lof- orðinu um „varanleg úrræði". Á sunnudaginn var reyndi Tím- inn að skýra stefnu Framsóknar í efnahagsmálunum nú. Tíminn sagði: „Þar getur verið um mismun- andi leiðir að ræða og kann ekki að skipta neinu höfuðmáli, hvaða leiðir verða farnar-- Bollaleggingunum lauk svo: „--------skiptir ekki höfuð- máli hvaða leiðir verða farnar, heldur hljóta þær þá að verða valdar eftir því hvað stéttasam- tök og sérfræðingar álíta væn- legast." Stjórnmálamennirnir hafa sem sagt ekki annað til mála að leggja en frómar bollaleggingar um fagran tilgang. Sjálfum vandan- um við að velja leiðirnar til hins fyrirheitna lands, er velt yfir á „stéttasamtök og sérfræðinga." Þeir, sem svo tala eru ekki hæfir til forystu. Þeir skilja ekki hlut- verk brautryðjandans heldur vilja eingöngu gerast sporgöngu- menn „stéttasamtaka og sérfræð- inga.“ Tóku við biómlegu búi Þegar litið er til ferils núver- andi foringja Framsóknarflokks- ins verður þessi hugsunarháttur þeirra auðskýrður. Þeir ruddftst til valda í flokki, sem aðrir höfðu byggt upp. Þar urðu brautryðj- endurnir að víkja fyrir klókind- valdhyggjumanna. Síðan hafa þeir haldið völdum sínum við, ekki sízt með mis-. notkun á SlS, einstökum félögum þess og fyrirtækjum. Sá risafé- lagsskapur er byggður upp með þátttöku yfir 30 þúsund lands- manna. Af þeim eru Framsókn- armenn ekki nema lítill hluti. En Framsókn hefur búið svo um sig innan SÍS að hún hefur þar öll ráð. Þeir bræður Kristinssyn- ir, Jóni Árnason og Vilhjálmur Þór gerðu úr SÍS voldugasta fyr- irtæki landsins. Ekki er líklegt, að nokkur þessarra manna hafi vilj- að lána SÍS til misnotkunar valda braskara Framsóknar á þann veg sem orðið hefur. Vilhjálmur Þór hefur af fenginni reynslu sagt: „Ef pólitíkin nær undirtökun- um í samvinnufélögunum, eru þau sjálf í mikilli hættu“. Hver vill kljúfa kaupfélögin ? Fleiri þaulreyndir samvinnu- menn en Vilhjálmur Þór láta um þessar mundir uppi ugg út af því, ef pólitíkin nær undirtökunum í samvinnufélögum. Bjartmar bóndi á Sandi sagði nýlega: „--------ég var aldrei Fram- sóknarmaður og hef aldrei yerið í þeim flokki, og vita það, hugsa ég, allir Þingeyingar, sem á ann- að borð láta sig einhverju skipta um nafn mitt. Það vissi og aðal- fundur K. Þ. 1937 mæta vel, þeg- ar hann bað okkur Pál á Græna- vatni að taka sæti í stjórn félags- ins, — líklega af því að við vor- um hvorugur okkar í Framsókn- arflokknum. Elzta kaupfélag landsins K. Þ. rambaði þá ábarmi gjaldþrots, rúið öllu trausti. Til- trú Framsókriarmanna, sem þá um sinn höfðu gert félag þetta að pólitísku hreiðri meira en hag- lega reknu fyrirtæki, var þá þverrandi í héraði eða jafnvel engin. Þetta hefði ég nú ekki rifjað upp, ef Dagur, það blessaða blað, hefði ekki farið að neyða mig til þess. Síðan hefur K. Þ. þolað mig í stjórn sinni, eða meira en 20 ár, og hefir lengst af verið frjáls- lyndara í þessum efnum en Dágs- maðurinn telur sómasamlegt, að því er lesa má milli lína hans. Nefni ég einkum kaupfélagsstjóra tíð Þórhalls Sigtryggssonar, sem hóf K. Þ. upp úr rúst sinni meira en nokkur annar og átti til að setja hnefa í borð og segja: Eng- an pólitískan áróður hér í Kaup- félagi Þingeyinga, ella er ég far- inn mína leið. Ég hef verið í K. Þ. síðan ég var barn að aldri, líka kreppu- árin, þegar sumir í Framsóknar- flokknum sneru sér annað. Það gæti sagt sína sögu að einhverju leyti. En pólitisk hreiðurgerð innan kaupfélaga, sem eru sam- ansett af fólki úr öllum stjórn- málaflokkum, er mér auðvitað ekki áð skapi. Ég vildi að áróðurstæki Fram- sóknarflokksins, Tíminn og Dag- ur, sæju sig um hönd, áður en þau kljúfa kaupfélögin." Gegn ofurvaldt eins f lokks Annar merkisbóndi, Halldór á Leysingjastöðum, er ekki heldur myrkur í máli. Kann segir: „Varla mun sá íslendingur til, sem ekki viðurkennir sögulegt hlutverk samvinnufélaganna hér á land, framlag þeirra í verzl- unarmálum og nytjastörfum ýmiss konar. A sínum tíma voru þau snar þáttur í viðreisn þjóð- arinnar, eftir alda áþján og óár- an. Mun hlutur þeirra í þessu vart of metinn. En árin liðu og sönnuðu, ,,að völd spilla og mikil völd spilla ótakmarkað." Skynugir stjórnmálamenn sáu að vissasta leiðin til valda var að taka í sína þjónustu og styðj- ast við félagsmálahreyfingu, sem væri sprottin upp úr alþýðunni sjálfri. Og þetta tókst. Fram- sóknarflokkurinn lagði samvinnu hreyfinguna undir sig. Það var hennar ólán. Innan samvinnuhreyfingarinn- ar íslenzku er fólk af öllum stétt- um og með mjög mismunandi stjórnmálaskoðanir. Því er rík ástæða til að halda slíkum félags- skap utan við stjórnmál. Vandlega er þess gætt, að rétt- línumenn Framsóknar séu í hverri trúnaðarstöðu — — —. Hér er ekki verið að berjast gegn samvinnu heldur gegn ofurvaldi eins flokks yfir samvinnunni og tæplega verður þess langt að bíða að þeir, sem hafa önnur stefnumið í þjóðmálum en Fram- sókn, leiti nýrra leiða.“ Frumkvöðiill ^ flokkastefnunnar Hér hefur verið vitnað til um- mæla fyrrverandi forstjóra SÍS og nýlátins kaupfélagsstjóra á Húsavík annars vegar og hins vegar tveggja bænda, sem þekkja af eigin raun valdbeitingu Fram- sóknar í samvinnufélögunum, um hver hætta þeim er búin, „ef póli tíkin nær þar undirtökunum." Svo er að sjá sem einstaka menn, sem hafa látið leiða sig til misnotkunar þess valds, er þeir hafa fengið sem forstjórar sam- vinnufyrirtækja, hafi orðið slegnir ótta við þessar og aðrar aðvaranir. Yfirlýsing Hjartar Hjartar, sem hann birti nýlega í Timanum, sprettur bersýnilega af því, að hann uggir um sig, ef atferli hans að undanfömu verður lýðum ljóst. Færi betur að hann léti sér það að kenningu verða og tæki upp aðra hætti héðan í frá. Sjálfur höfuðpaur misnotkun- arinnar, Eysteinn Jónsson, lætur hins vegar svo sem hann muni halda uppteknum hætti. Hann hreykir Framsókn ekki aðeins sem hinum eina sanna talsmanni samvinnuhreyfingarinnar, heldur allra byggða landsins. í ræðu, sem hann hélt nýlega í Kefla- vík talaði hann.um Framsóknar- menn sem forsvara „byggðastefn- unnar á móti flokkastefnunni“. Starblindur einræðisvilji leggur Eysteini þessi orð í munn. Allir, sem hafa aðrar stjórnmálaskoð- anir en sjálfur hann, eru ekki einungis fjandmenn samvinnu- félaganna heldur íslenzkra byggða! Svo talar sá maður, sem hér á landi er haldinn mestu flokks- ofstæki. Akefð Framsóknar í að ná flokksyfirráðum hvarvetna hefur fært hættu yfir fleiri en samvinnufélögin. Óstjórn á vam- armálunum, sem nú blasir við öllum, en hefur þróazt árum sam an, á rætur sínar að rekja tii sömu meinsemdar. , Flokksgæðingar valda þjóðar- * skömm Á meðan samstarf Sjálfstæð- ismanna og Framsóknar hélzt um 1 Framh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.