Morgunblaðið - 04.10.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.1959, Blaðsíða 12
12 MOR'CT’ivnr 4 niÐ Sunnudagur 4. okt. 1959 'Clxg.: H.í. Arvakur Reykjavlls. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) • Bjarni Benediktsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías *Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýíingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480. Askrciftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. "V FRELSI TRYGGIR HAGKVÆM VIÐSKIPTI ISLENDINGAR bafa feng- ið nóg af uppbóta- og haftakerfinu. Almenning- ur sér, að þégar til lengdar lætur leiðir það til þess, að verðbólga eykst og framfarir stöðvast. Hjá þessu verður ekki kom- izt nema snúið verði við og stefnt í aðrn átt. Sjálfstæðismenn hafa nú vísað veginn fram á við. — Markmiðið er aukin framleiðsla og bætt lífskjör. Leiðarljósið er aukið frelsi og vaxandi þátttaka alls almennings í atvinnurekstri með eign sem allra flestra. Unnendur ófrelsisins eru þegar farnir að búa til grýlur til að hræða menn frá því að breýta um stefnu. — Þjóðviljinn seg- ir í gær, að nú sé opinskátt boð- að: „------að það þurfi að gera verzlunina frjálsa, með öðrum orðum, að ríkið hætti að gera heildarsamninga um vöruskipti við einstök lönd. Þessum aðgerð um er ætlað að eyðileggja alger- lega viðskipti íslendinga við sósí- alistisku löndin“. Þarna er fluttur'sami boðskap- ur og oft hefur heyrzt áður frá Einari Olgeirssyni. En fær pessi fullyrðing staðizt? í kosningastefnuskrá Sjálfstæð ismanna segir: „Leitað verði hagkvæmra markaða hvar sem þá er að finna og aflað aðkeyptra vara, þar sem hagstæðast er að kaupa þær“. Ef það er rétt hjá Einari Ol- geirssyni og Þjóðviljanum, að slíkar aðgerðir mundú eyði- léggja algerlega viðskipti íslend inga við sósíalistisku löndin, get- ur það ekki komið af öðru en því, að þau séu ekki samkeppnis- fær. Ef þar er hægt að fá hag- kvæmari markaði en annars stað ar og afla aðkeyptra vara með hagstæðari verði, leiðir einmitt af stefnu Sjálfstæðismanna að viðskiptin munu haldast. Einar Olgeirsson og Þjóðviljinn kveða þess vegna upp harðan dóm yfir þessum viðskiptum með fullyrð- ingunni um að aukið frjálsræði muni eyðileggja þau. Eitt af erindum Krúsjeffs vest- ur um haf var að hvetja Banda- ríkjaþjóðina til aukinna við- skipta við Rússa. Hann fór þar ekki fram á, að Bandaríkjastjórn setti höft á til að knýja þegna sína tii slíkra viðskipta, heldur hélt hann því fram, að hömlurn- ar, sem hún hefur á lagt, væru öllum til ills. Hitt vissi Krúsjeff full-vel, að vonlaust var fyrir hann að koma vestur um haf og heimt^ að Bandaríkjamenn settu upp allsherjar haftakerfi til þess að knýja fram viðskipti við Rúss- land. En e. t. v. ætla kommúnistar Islendingum annan hlut. Sam- kvsí?nt orðum Einars Olgeirsson- ar og Þjóðviljans geta íslending- ar ekki haldið viðskiptum sínum við Rússland, nema hafa hér hömlur á viðskiptum, minnkandi frelsi og aukin ríkisafskipti. Með því móti mundu þessi viðskipti áður en varir „þegjandi og hljóðalaust“ hafa lokað fyrir þjóðinni vegi frelsisins og teygt hana langleiðis í áttina austur fyrir járntjald. I stefnuskrá sósíalistaflokksins segir: „Flokkurinn vill auka hið við- skiptalega og menningarlega samband við Sovét-ríkin--------“ Ætlun kommúnista er sú, að halda íslendingum að þeim við- skiptum, sem knýi þá gegn vilja sínum frá frelsi ' ^ttina til kom- múnisma. Skýringar Einars Olgeirssonar og Þjóðviljans munu vekja marga til hugsunar um, að varn- aðarorð Sjálfstæðismanna eru sízt mælt að ófyrirsynju. — Með engu móti má lengur dragast að gjörbreytt verði um stefnu í efnahagsmálum. HANNES OG HJORTUR ItPPLJÓSTRUN Þjóðviljans um starfshætti Hannesar - Pálssonar ihnan hús- næðismálastjórnar, sem frá var greint í Morgunblaðinu í gær, staðfestir það, sem þráfald- lega hefur verið haldið fram hér í blaðinu um vinnuVrögð Fram- sóknar. Enginn skyldi ætla að þótt bréfritarinn tali um „myrk- fælni" sína í sambandi við eftir grenslan Hannesar, og segi „að ef eitthvað „lekur út“ varðandi þetta mál okkar, þá er það mér svo og þér, ekki til góðs“, þá sé þarna um að ræða einkasök Hannesar Pálssonar. Hannes hlýð ir fyrirskipunum annarra. Munurinn á Hannesi Pálssyni og Framsóknarbroddunum er sá, að Hannes er hreinskilinn mað- ur. Það lýsti sér strax í „Gulu bókinni“, sem hann og Sigurður Sigmundsson sömdu á sínum tíma Þar var greint frá fyrirætl- unum Framsóknarbroddanna, þó að þeir gugnuðu fyrir ofurþunga almenningsálitsins eftir að Morg- unblaðið hafði skýrt frá öllum þeién ráðagerðum. Úr því að Hannes Pálsson ger- ir sig beran að slíkum vinnu- brögðum, þar sem hann er í nefnd með fulltrúum þriggja annarra stjórnmálaflokka, þá má nærri geta, hvernig að er farið, þar sem Framsóknarbroddarn- ir eigast einir við. Morgunblaðið vék hinn 12. júlí í cumar að starfsháttum Hjartar Hjartar, forstjóra Skipadeildar S.Í.S., og sagði: „Engin nýung er, að forstjóri skipadeildar SÍS, Hjörtur Hjart- ar, kalli skipsmenn fyrir sig, að- vari þá og láti þá vita, að ekki sé ætlazt til þess að um borð í skip- um SÍS heyrðist aðrar skoðanir en þær, sem Framsókn henta“. Hjörtur Hjartar hefur ekki látið í sér heyra fyrr en s. 1. fimmtudag, að hann birti stór- orða yfirlýsingu í Tímanum. Hún er gefin til þess að leiða athygli frá því sem Morgunblaðið sagði. Ef hún er lesin, sést, að ekki er hnekkt stafkrók af frásögn Morg unblaðsins. Hitt er ljóst, að Hjörtur þessi er nú orðinn hræddur við eigin verk. Þess vegna reynir hann að sleppa sjálfur með því að bera sakir á aðra, að ástæðulausu. Sá áburður lýsir hræðslu hins seka manns. Vonandi verður hræðslan einnig til þess, að hann gæti bet- ur tungu sinnar, næst, þegar hann kallar. skipverja af SÍS- I skipunum fyrir sig. UTAN ÚR HEIMI J Corvair 1960 99 Lítill46 Chevrolet með „pojinu kökumótor44 — aftur í G E N E R A L Motors-verk- smiðjurnar í Bandaríkjunum kynntu í fyrradag hinar nýju Chevrolet-bifreiðir sín- ar — árgerð 1960. Kennir þar að sjálfsögðu ýmissa grasa, en stoltastir eru framleiðend- urnir af „litla“ bílnum, Chevrolet Corvair, sem kem- ur í tveim „útgáfum“ (stand- ard og deluxe 700) — 4 dyra vagnar. — Corvair-inn er sex manna bíll — eins og hinir stóru. í gær birtum við hér á síðunni mynd af hinum nýja „smábíl“ Fords, Fálkanum, og í dag sýnum við ykkur „bróð- ur“ hans, Corvair. — ÍK — Forráðamenn General Mot- ors segja, að þessi bíll sé árangur níu ára starfs og um- fangsmikilla rannsókn- ’ ar sem stefnt hafi verið að því að smíða tiltölulega ódýran bíl og lækka rekstrarkostnað- miklu lægri. Hann er einnig talsvert léttari, vegur rúm- lega 1,06 lestir. — Lengdin (mæld milli ,,stuðara“) er rúmlega 414 metri, hæðin um 1,30 m og breidd um 1,70 m. 1,68 m. — — Corvair hefir 80 hestafla, 6-cylindra vél, loftkælda. Hún er aftast í bifreiðinni, eins og t. d. í Volkswagen, og Corvair er ekki svo mjög frábrugðinn stóru bíiunum að byggingu. inn — en halda jafnframt flestum þægindum stóru bíl- anna. Ef hann er borinn sam- an við gamlan fyrirrennara, Chevrolet „standard“ frá 1936, sést að stærðin er næsta svip- uð, nema hvað Corvair-inn er flöt (,,pönnukökuvél“). Með því að nota aluminium hefir tekizt að gera vélina mun létt- ari en ella. Norska Stórþingið Hér er gerður samanburður á stærðarhlutföllum Chevrolet „standard“ 1936 og hins nýja Corvairs (punktalínurnar). sett ÓSLÓ, 2. okt. — Ólafur Noregs- konungur setti í dag hið nýkjörna Stórþing. í setningarræðu sinni sagði konungur m. a., að Norð- menn mundu styðja eftir megni tilraunir þær, sem nú væru gerð- ar til þess að koma á afvopnun og minnka spennuna í alþjóða- málum. Hann lagði áherzlu á þá skoðun stjórnarinnar, að þátttaka í Norð- ur-Atlantshafsbandalaginu væri „bezta tryggingin fyrir öryggi landsins". Lögreglan í London er um þessar mundir að gera tilraunir með nýtt tæki, sem mælir hávaða nákvæmlega. Nefnist það almennt „Dezzybell“. — Er ætlunin að beita tæki þessu til þess að klekkja á ökumönnum, sem fara með óþarflega miklum hávaða og látum í umferðinni. Þetta er Iítið tæki, sem hægt er að bera með sér hvert sem er, og eiga því lögreglumennirnir hægt með að koma ökuföntunum að óvörum með það. — Véldrifin farartæki nútímans eru ekki yfirleitt mjög hávaðasöm, ef þeim er ekið „skikkanlega" en reynslan sýnir þó að mörgum ökumönnum tekst að gera hinn mesta hávaða í umferðinni og valda öðrum vegfarendum þannig óþægindum. __Og nú ætlar Lundúnalögreglan sem sagt að hefja herferð gegn þessum „friðarspillum“. — Á myndinni sjást Iögreglumenn vera að prófa „Dezzybell".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.