Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.08.1965, Blaðsíða 10
10 MORGUN»i **>ID i Fostudagur 13. ágúst 1965 TJPP frá Patreksfirði, suður yf- ir Skersfjall, er eina leiðin til Rauðasands, því að hann er kvíaður af milli Skorar og Látrabjargs. Og þegar ekið er fram á fjallsbrúnina fyrir ofan Bjarngötudal stanzar maður bílinn ósjálfrátt og segir við sjálfan sig: A virkilega að fara hér niður? Já, hér á að fara niður, hér er engin leið önnur. Og vitan- lega reynist þetta ekki eins ægilegt og það virðist við fyrstu sýn. Héðan verður manni star- Eyðibýli á Rauðatsandi út með svo miklu kvensilfri, að Ragnheiður dóttir hans sagði, að verið hefði nóg á 13 konur. (Espólín). Þótt minnst af auði Eggerts Hannessonar hafði verið afrakst ur af Saurbæ hlunnindum hans og hjáleigum, hefur Bær alltaf verið mikið stórbýli, enda þótt nú sæki í sama horf með hann eins og fleiri höfuðból, sem erfitt er að nytja með breytt- um atvinnuháttum og tilflutn- ingi fólks á landinu. KIRKJA hefur ætíð verið I Saurbæ, annexía frá Sauðlauks dal, eins og í Breiðuvík. Var messað heima á Staðnum ann- anhvern helgidag, en hina dag- ana á annexíunum til skiptis. — Mjög er núverandi Saur- bæjarkirkja farin að láta á sjá, enda sjálfsagt komin til ára sinna. Er hlaðið að henni grjóti og fest niður með vírstrengjum svo ekki taki af grunni í stór- viðrum. — Prestslaust er nú I Sauðlauksdal, síðan sr. Grím- ur Grímsson fór, og er kallinu þjónað af sr. Tómasi Guð- mundssyni á Patreksfirði. t prestakallinu eru nú búsettir um 150 manns. Komið ú Rauðasaitd sýnt yfir þessa einkennilegu, afskekktu sveit. Þótt fæstir hafi þar komið, kannast flestir við hana, af orðspori, þótt ekki væri annað en bæjarnafnið Sjöundá. Samt hefur jörðin ver ið í eyði meira en 4 áratugi. — Jafnvel inn í hvíta birtu þessa sólheita júlídags, finnst manni leggja einhverja kalda skugga af harmsögu Bjarna og Stein- unnar. En sleppum því. Sú saga hef- ur svo oft verið rifjuð upp, að það er eins og þar geti hver étið eftir öðrum, án þess að fá sig nokkurn tímann fullsaddan. Fyrstu kynningu af Rauða- byggðin sé afskekkt, þá er þar þó mjög fagurt, einkum útsjón- in yfir Breiðafjörð." Sá sem nam Rauðasand hét Ármóður hinn rauði, eins og segir í Landnámu. En það er ekki kunnugt, hvaða líkindi það eru, sem mæla með því, að hann dragi frekar nafn af við- urnefni landnámsmannsins en hinum rauða lit sínum, eins og Þ. Th. telur. Þegar maður er kominn nið- ur og farinn að virða fyrir sér þessa sérkennilegu sveit, er það ekki sízt, hvað hér er mikið gras, sem athygli vekur. Það er Breiðuvíkurkirkja sandi er vel lýst hjá Þorvaldi Thoroddsen: „Þegar maður lít- ur af fjallsbrúninni yfir þetta byggðarlag, sem er lukt hömr- um á þrjá vegu, og sér rauð- gulan sandinn, hvíta brimrák- ina Og dimmbláan fjörðinn fyrir framan, þá mætti ætla, að sandurinn hefði fengið nafn af lit sínum, en þó heitir hann líklega fremur eftir hinum fyrsta iandnámsmanni. Rauði- sandur hefur myndazt í boga- dregnu viki milli Skorar og Látrabjargs. Bergið er snar- bratt fyrir ofan, en byggða land ið marflöt mjó ræma fyrir neð an. Straumurinn út með Barða- strönd ber með sér aur og skelja sand, og hefur hann smátt og smátt safnast í vikið í 1flé fyrir utan Skorina, og þannig er Rauðisandur til orðinn. Þó að allt vaðandi 1 grasi, hnéháu grasi. Það fer ekki hjá því, að gam- all sveitamaður, sem staðið hef- ur við slátt á snöggu mýrlendi, fyllist undrun yfir þeirri ger- breytingu tímanna, ef allt þetta mikla gras á að fara í sinu. — Nú er öld önnur en þegar þeir Rauðasandsbændur, ójafnaðar- maðurinn Hólmgöngu-Ljótur og Þorbjörn gamli á Eyri, deildu um veitiengi það, er þeir áttu báðir og var hið mesta „ger- semi“ eins og segir í Hávarðar- sögu-ísfirðings. Nú eru það næsta fáir, sem nota sér hinar loðnu slægjur Rauðásands. I þessari forðum blómlegu sveit eru nú aðeins 5 býli í byggð, og ekki öll líkleg til að verða það til frambúðar. Hér eru þó sann- arlega vænlegir lífsbjargar- möguleikar, ekki síðri en víða annars staðar á landinu. Héðan er flutt mjólk til hins vaxandi þéttbýlis á Vatneyri við Pat- reksfjörð, þar sem nú eru orðn- ir hátt í þúsund íbúar. Vissu- lega eru þeir flutningar mikl- um örðugleikum háðir. Fjallið verður illfært á vetrum þegar snjóa gerir og svellbunkar hrannast upp á vegum í kröpp- um beygjum og snarbröttum sneiðingum. Þá er ekki árenni- legt að aka þennan veg. Ekki vildi ég vera þar mjólkurpóst- ur. En hvaða ráð eru þá til að nýta landgæði þessarar kosta- sveitar? Hvernig væri fyrir Patreksfirðinga að stofna hluta- félag um kúabú suður á Sandi, bæði til mjólkur- og kjötfram- leiðslu? Það yrði að byggja fjós yfir mjólkurkýrnar á Pat- reksfirði til að geta haft þær þar heima yfir vetrartímann, en holdanautin og örmur geldneyti gætu gengið á hinum grasgefnu sléttum Sandsins og séð fyrir sér sjálf að einhverju eða öllu leyti. Svona gæti maður hugsað sér þetta. Það er sko ekki vandi að búa þegar það er bara gert á pappírnum. Já, það er svo auðvelit að útmála hve það er huggulegt og gróða- og heilsuvænlegt að búa í sveitinni. Þá er hægt að sýna ágóða á hverjum grip.- Hætt er við að dráttur verði á framkvæmdum í þessum efn- um. Hinir dugmiklu, rötfisknu Patreksfirðingar hgfa öðru að sinna heldur en snúast kringum ær og kýr, svo að góðgresið á Rauðasandi má víst verða að sinu þeirra vegna þetta árið. Hér ríkir kyrrð morgunsins ein. Og manni finnst þögnin vera hávær, eftir að búið er að drepa á bílnum. En það hefur ekki ætíð verið svona friðsælt á Rauðasandi, enda var þá meira um mannaferðir og eftir meiru að slægjast á Sandinum en nú mun þykja. A 16. öld bjó um sinn í Saur- bæ á Rauðasandi, einn voldug- asti maður Islands. Eggert hirð stjóri Hannesson, dóttursonur Bjarnar í ögri, „atkvæðamikill fjáraflamaður", þótti um flest líkjast afa sínum, héraðsríkur, kappsamur, og þó hygginn og ekki jafnan vandur á leiðir að Eins og fyrr segir stefnir nú til auðnar á Rauðasandi, því þar eru aðeins 5 jarðir í byggð og fátt fólk á bæjum. En hitt þarf samt ekki að efa, að ein- hvern tima í framtíðinni mun aftur blómgast byggð í þessari fögru, sérkennilegu, kostamiklu sveit vestan Skorar. Enn í dag er þar að vísu oft „Þrútið loft og þungur sjór“. En Sauðlauksdalur marki sínu. Hafði hann um tíma meiri lén í konungsþjón- ustu en nokkur maður annar. Gat því naumast hjá því farið að honum safnaðist mikill auð ur. Þessum mesta ríkismanni landsins gerðu enskir víkingar heimsókn árið 1579. Var á skipi með þeim fálkafangari einn, er óvild hafði á Eggert Hannes- syni segir Espolín. Þeir rændu í Bæ öllu því er þeir komust yfir, tóku Eggert, fluttu hann út í skip og héldu honum í mánuð. Var hann síðan leystur hins vegar munu sjálfsagt marg ir Rauðsendingar taka undir með sr. Þorvaldi í Sauðlauks- dal, er hann kvaddi Sandinn með þessu erindi: Undir himins bláum boga, Bjargið, Sandinn, fjörðinn voga, sé ég glitra í sólarloga. Sveitin vestur lengst í sjá, þú ert fríð á brún og brá. Ýmsir litir augun soga að sér fast og hugann toga Stakkafells af steindri gljá. G. Br. Bær á Rauðasaudi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.