Morgunblaðið - 08.05.1971, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAl 1971
31
íslandsmót í
borðtennis
Keppt verður í 7 flokkum
FYRSTA íslandsmeistaramótið í
borðtennis fer fram í Laugar-
dalshöllinni nú um helgina. Þar
verður keppt í aðalsalnum, þar
sem komið verður fyrir fjórtán
borðtennisborðum, þannig að
keppnin getur grengið greiðlega
fyrir sig. Kemur það sér líka
betur, þar sem mikill f jöldi kepp
enda er í mótinu, fiestir þó í
einliðaleik karla, en þar eru
skráðir 38 til leiks. Varð þar að
hafa undankeppni í þremur rifH-
um, og var keppt í tveimur
þeirra í gærkvöldi, en í morg-
un átti svo að fara fram keppn-
in í þriðja riðlinum. Komast
fjórir efstu úr hverjum riðli í
úrslitakeppnina.
Dagskrá mótsins að öðru leyti
Halldór Guðbjörnsson
náði ágætum árangri
er i stórum dráttum á þessa
leið:
Laugardagur 8. maí:
KL 9.30 tvlliðaleikur unglinga
(úrslit).
Kl. 14.00 tvíliðaleikur karla
(úr9iit).
Ki. 14.00 tviliðaleikur kvenna
(úrslit).
Sunnudagur 9. maí:
Kl. 9.30 einliðaleikur unglinga
(úrslit).
*C1. 9.30 tvenndarkeppni (úr-
slit).
Kl. 14.00 einiliðaleikur karla
(úrslit).
Kl. 14.00 einliðaleikur kvenna
(úrslit).
Keppendur í mótinu verða frá
sex félögum: Borðtennisfélaginu
Eminum, Reykjavik, KR, Ár-
manni. ÍBK, lA og Gróttu.
í öllum flokkunum verður
keppt um veglega farandbikara,
sem gefnir hafa verið til móts-
ins. í einliðaleik karla er keppt
um Dunlop-bikarinn, sem Aust-
urbakki h.f. gaf, i tviliðaleik
karla um Philips-bikarinn, gef-
inn af Heimi'listækjum h.f., í ein
liðaleik kvenna um Ronson-bik-
arinn. gefinn af I. Guðmundsson
og Co. f einiiðaleik unglinga um
Vikar gefinn af G. Heflgason og
Meisted, í tvUiðaleik unglinga
um Stíga-bikarinn, gefinn af Her
luf Clausen, jr., og í tvenndar-
keppni um bikar gefinn af Heild
verzluninni Heklu h.f.
Þessi mynd var tekin í Reykjav íkurniötinu í borðtennis, en í því
og í Ísliuidsmótinu. Borðtennis er tiitöluiega ung íþróttagrein
vinsældum að fagna.
var mikill keppe.ndafjöldi, eins
hérlendis, en á mjög vaxandi
SJÖNVARPS LEIKURIN
Der by - WB A
S J ÓN V ARPSLEIKURINN í
dag verður milli tveggja þekktra
liða: Derby Coutnty og West
Bromwieh Albion, en leikur
þessi var merkilegur fyrir þær
sakir að í honum lék hinn frægi
knattspymugarpur, Dave Mac
Kay sinn siðasta léik með Derby,
en hann hafði þá skömmu áður
verið seldur til Swindon. Mae
Kraftalyftinga-
meistaramót
— í dag í KR-húsinu
FYRSTA Meistaramót íslands
í kraftalyftingum mun fara
fram nk. laugardag 8. maí. —
Keppnin fer fram í KR-húsinu
og mun hún hefjast kl. 14,00.
Alls eru 21 af beztu lyftinga
mönnum landsins skráðir til
keppni í 6 þyngdarflokkum, en
auk þess mun Japaninn Kenchi
Take Fuse, sem nú býr og starf
Byrjunin lofar góðu
Halldór hljóp á 9:04,5 mín.
FVRTA op'nbera frjálsiþrótta
mót keppnisársins utanhúss, fór
fram á Melavellinum sl. fimmtu
dagskvöld. Var það svokallað
„Fimmtudagsmót FÍRR“, en
nokkur slik mót verða haldin
í snmar.
Á mótinu á fimmtudaginn var
keppt í fjórnm greinum karta,
en kvennakeppnin féll niður,
þar sem allar frjálsíþróttakon-
urnar voru önnum kafnar við
próflestur.
Athyglisverður árangur náð-
ist ! keppninni, einkum þó
hlauriPgreinu*’,um tveimur, 200
met* hlaupi og 3000 metra
hlau- og þátttakendafjöldinn í
þes?- greinum var til muna
me.,i en venjulegt er, 12 í 200
metra hlaupinu og 8 á 3000 m
lOÍnu. I báðum þessum
greinum náðist ágætur árangur
ef miðað er við árstíma, sér-
staklega þó í 3000 metra hlaup
inu, en þar sigraði Halldór Guð
björnsson á 9:04,5 mín., sem
hendir til þess að hann muni ná
góðum afrekum í sumar. Sama
má segja um hina piltana, —
þeir eru hver öðrum efnilegri
hlauparar sem vafalaust eiga
eftir að láta mikið að sér kveða
í sumar. í 3000 metra hlaupinu
setti Raignar Sigurjónisson, UBK,
nýtt sveinamet.
Helztu úrslit í mótinu urðu
þessi:
200 metra hlaup sek.
Bjarni Stéfánsson, KR 22,7
Vilm. Vilhjálmsson, KR 23,2
Lárus Guðmundss., USAH 23,5
Marinó Einarsson, HSK 23,7
3000 metra hlaup mín.
Halldór Guðbjörnsson, KR 9:04,5
Ágúst Ásgeirsson, ÍR 9:26,3
Ragnar Sigurjónss., UBK 9:26,9
Einar Óskarsson, UBK 9:38,7
Gunnar Snorrason, UBK 9:43,5
Níels Nielsson, KR 9:54,0
Vidar Toreid, Noregi 10:24,0
Steinþór Jóhanness, UBK 10:38,5
Kúluvarp metr.
Guðm. Hermannsson, KR 16,90
Hreinn Halldórsson, HSS 14,85
Grétar Guðmundsson, KR 12,67
í keppninni kastaði Guðni
Halldórsson, HSÞ, drengjakúlu
13,62 metra og Óskar Jakobsson
IR, kastaði sveinakúlu 15,84 m.
Kay, sem er einn af elztu leik-
mönnunum í ensku knattspyrn-
unni á að baki einstæðan og
óvenjulegan ferrl, þar sem hann
hefur þótt sýna framfarir með
hverju árinu sem liður og þyk-
ir sneggri og ákveðnari knatt-
spyrnumaður en flestir þeir sem
yngri eru.
Derby County var stofnað ár-
ið 1884 og hefur á ýmsu gengið
í sögu þess. Árið 1969 vann lið-
ið sig upp í 1. deild og strax ár-
ið eftir náði það fjórða sæti í
deildinni, og í vetur hefur það
hvað eftir annað sýnt mjög góða
leiki. Búningur liðsins er hvít
blússa, svartar buxur og svart-
ir sokkar með hvítri rönd.
West Bromwich Albion var
stofnað 1897, og starfaði það
sem áhugamannalið í sex ár.
Gengi liðsins hefur verið nokk-
uð stöðugt, og talar það sínu
máli að síðan 1949 hefur það
jafnan verið i 1. deild. Einu sinni
hefur liðið orðið Englandsmeist1
ari, árið 1920. Búningur þess er
blá og hvítröndóttar skyrtur, og
hvitir sokkar.
Leikmenn liðanna, þeir er við
sjáum á sjónvarpsskermiruiin í
dag eru þessir:
ar á Seyðisfirði, keppa í fjaður
vigt sem gestur.
Vegna fjölda skráðra kepp-
enda verður að hafa keppnina
tvískipta. Kl. 14,00 hefst keppn
in með keppni í léttari flokkun
um, fjaður- létt- og millivigt,
en kl. 15,30 mun svo keppnin
hefjast í þyngri flokkunum.
Lyftingamenn okkar hafa æft
mjög vel fyrir þetta 1. meistara
mót í kraftalyftingum og er bú
izt við mjög góðum árangri og
að mörg ný met muni verða
sett og nokkur met bætt stór-
lega. ______ _______
Jafntefli
1 ÚRSLITALEIK hollenzku bik-
arkeppninnar, sem fram fór í
fyrrakvöld, gerðu Ajax og Sparta,
Rotterdam jafntefli 2-2 eftir
framlengdan leik. Kowalik skor
aði bæði mörk Sparta, en Gru-
yff gerði bæði mörk Ajax.
Sparta hafði yfir 1-0 í hálfleik.
65.000 áhorfendur fylgdust með
leiknum.
Ársþing ÍBH
ÁRSÞING fþróttabandalags Hafn
arfjarðar hefst n.k. miðvikudag,
12. maí kl. 20.30 í veitingahús-
inu Skiphól. Síðari þingdagur-
inn verður svo 17. maí, og hefst
þrngfundur þá kl. 20.30 á sama
stað.
DERBV:
C. Boulton
J. Riohardson
J. Robson
A. Durban
R. McFarland
D. MacKay
MacGovern
Gemill
J. O’Hare
K. Hector
A. Hin ton
W.B.A.:
J. Cumbers
R. Wilsan
A. Merrick
L. Cantello
J. Wile
J. Kaye
C. Suggett
A. Brown
J. Astle
A. Hartford
McVite
KR- Víkingur
EINN leikur fer fram í Reykja-
vikurmótinu í knattspymu í dag
og mætast þá KR og Víkingur.
Leikurinn fer fram á Melavell-
inum og hefst kl. 15.00. Leikir
þessara liða hafa verið mjög
skemmtöegir undanfarin ár, og
er þess að vænta að svo verði
einnig nú. Þess má geta að
leikurinn er á getraunaseðlinum,
og spáðu sérfræðingar daghlað-
anna, allir jafntefli i leiknum.
Verða tilslakanir á
áhugamannareglum?
* *
Sambandsráðsfundur ISI í dag
— Róðraríþrótt
Framhald af hls. 30.
um að reyna að ganga frá hin-
um í sumar.
Æfingar byrja hjá deildinni
n.k. þriðjudag og verða fram-
vegis á þriðjudögum og fimmtu
dögum frá kl. 20.30 til 22.00.
Æft er í Nauthólsvíkinni, en þar
á Ármann bátaskýli. Þangað
geta þeir sem áhuga hafa á
íþróttinni komið á æfingartim-
um, og gengið í félagsskapinn,
því Valdimar sagði, að enn væru
of fáir sem æfingarnar stund-
uðu.
t DAG hefst í Reykjavík
fundur, sem vera kann að
marki nokkur tímamót í
sögu íslenzkra íþrótta. Er
það Sambandsráðsfundur tSl,
hinn 39. í röðinni, og á hon-
um verða m. a. teknar til urn-
ræðu áhugamannareglur ÍSt.
A íþróttaþingi í fyrra var
kosin nefnd til þess að endur-
skoða þessar regjur og gera
tillögur, og mun hún nú skila
áliti. Er húizt við hörðum
umræðum um þetta mál, sem
Iieftir verið mjög í brenni-
depli að undanfömu. Segja
margir, að íslendingar séu
nær einu áhugamennimir í
íþróttum, og m. a. þess vegna
sé samkeppnisaðstaða okkar
svo veik sem raun ber vitni.
Verður ákaflega fróðiegt að
sjá hvað út úr þessuni fundi
kemur, en alla vega má búast
við að einhverjar tilslakanir
verði gerðar.
Samhandsráðsfundur ISf,
sem er næstvaldamesta sam-
koma íþróttahreyfingarinnar,
á eftir íþróttaþingi, er.jafnan
haldinn þau ár sem það er
ekki haldiö. Á fundinum eiga
sæti formenn sérsamband-
anna, einn fulltrúi fyrir hvért
kjördæmi á landinu og fram-
kvæmdastjóm ÍSt.
Mörg fleiri mál ern á dag-
skrá þingsins, og má þar
nefna að flnttar verða skýrsl-
ur framkvæmdastjómar tSt
og sérsambandanna, skipting
fer fram á styrkjum og
skatttekjum. Fjallað verðttr
um slysatryggingamál íþrótta
manna og félags- og fræðslu-
málanántskeið ÍSt. Þá nttinti
verða lagðar fyrir þingið
nokkrar tillögur, m. a. um
stærð íþróttasala.