Morgunblaðið - 24.01.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1973, Blaðsíða 15
15» MORGÚNBLAÐÍÉ), MIÐVÍKÚDAGUÉ. 24. JANÚAR 1973 HAMFARIRNAR I VESTMANNAEYJUM og þarf ekki mikið hugiftynda flug til að ímynda sér, hví- lík skelfing hefði brotizt út. ef fólkið hefði séð fram á að það væri innikróað og kæm- ist hvergi. — Einhvem veginn datt okk ur fljótlega í hug að opna útvarpið, segir Trausfi. — Þaðan tóku fljötlega að berast tilkynningar frá Al- maimavömum. í>ær róuðu mann mikið. Við vorum ekki ein, allir vildu hjálpa okk- ur og það var verið að gera allt, sem í mannlegu valdi stóð til að koma okkur til hjálpar. Aðspurð um, hvort þau færu aftur heim, játuðu þau því mjög afdráttarlaixst. Við erum mjög þreytt, sagði Elsa. — Þetta var mikil eldraun og kannski finnur maður það bezt eftir á. En ég vil minnast á frábært starf Almannavama, sú stofnun hefur svo ekki verður um villzt sannað notagildi sitt í þessum hörmungum. — Við vitum ekki hvað við eigum að vera bjartsýn og búast við því að icomast fljótt heim, sögðu þau. — Jarð- fræðingar eru jafnvel á því, að kaupstaðurinn geti slopp- ið. En maður veit aldrei. En skrítið var að sigla frá Eyj- um í nótt. Við sáum þar myndast nýtt Iandslag, nýjar hæðír og hólar höfðu hrann- azt upp; sýnin tii eldanna var stórkostleg og ógleyman- leg. Þau fjögur eru öll borin og barnfædd í Vestmannaeyj um. •— Við förum heim um leið og kólnar, sögðu þau í kór. — En auðvitað höfum við áhyggjur af því, hvort við komumst heim. En þama er allt okkar. Þarna er okk- ar líf. Ef við getuni ekki far- ið’ heim höfum við verið slit- in upp með rótum á mjög sársaukafullan og miskunnar lausan hátt. Þarna voru og þrjú börn þeirra, þau Árni Sigurðsson, sjö ára, Trausti Traustason, sjö ára og María Traustadótt ir, tólf ára. Bömin virtust áhyggju laus og hýr og létu biðina ekki á sig fá, dunduðu við að kríta á töfluna og gæla við kött Trausta, Mjallhvíti, sem drengurinn hafði ekki getað hugsað sér að skilja eftir. Þeir Árnl og Trausti voru í náttfötunum sinum innan undir útiflíkum, og þeim hafði tekizt að taka með sér dálitið af klæðnaði að heim- an. Á töfluna höfðu börn- int teiknað myndir, svo sem af spúandi fjalli og brenn- andi hestum, en Trausti sagði um leið og hann útskýrði myndirnar, að nokkrir hest- ar hefðu brunnið í námunda við gosstaðinn. Bömin sögðust hafa orðið eilitið hrædd, þegar þau voru vakin um nöttina, og ekki þorað að horfa of mik- ið á eidgasið er út kom. —. Það var svo mikill háv- aði og stundum spýttust litl- ir steinar framan í mig, sum ir í augun, svo ég var bara fegin að komast í burtu — sagði Maria alvarlega. Trausti harmaði það mik- ið,; að þau systkinin hefðu orðið að skilja hamstr- ana sína eftir heima, og gull- fiskinn hennar Maríu. — En við ætlum að flýta okk- ur heim til að huga að þeim — sagði Trausti. A meðan við töluðum við börnin, kum starfsmaður Sigurjónssonar og fað'r Adoífs Sigurjón Eiríksson. Fjölskjlda Adolfs Rauða krossinn inn og til- kynnti fjölskyldum bam- anna, að tekizt hefði að út- vega þeim samastað í borg- inni. Við þá frétt urðu allir glaðir, en Trausti spurði ef- ins á svip, hvorí hann mætti örugglega hafa hana Mjall- hvíti með. Honum var sam- stundis sagt, að hún væri vel komin, og þá fyrst gladdist hann með hinum. Borgarsjúkrahúsið Á Borgai-spitalann voru fluttir sautján þeirra sjúkl- inga, sem lágu á sjúkrahús- inu i Vestmannaeyjum. Við hittum dr. Friðrik Einarsson, yfirlækni að máli og hann sagði læknana mótfallna því, að blaðamenn ræddu við sjúklingana að svo stöddu, enda væru flestir aldraðir og margir í talsverðu uppnámi. Dr. Friðrik sagði, að það hefði ekki verið þægilegt fyr ir sjúkrahúsið að taka fyrir- varalaust á móti 17 manns, þar sem einnig væri neyðar- vakt á spitalanum þessa vik- una. Hins vegar hefði þetta blessazt og myndi gera það og þeir sjúklingar yrðu send ir heim, sem forsvaranlegt væri, ef nauðsynlegt yrði að taka á móti fleirum. Alltaf gætu komið einhver eftirköst hjá fölkinu, og því væri bezt að vera við öllu búinn. Dr. Friðrik máttum við svo ekki tefja lerigur, þar sem hann sat einmitt á fundi varðandi þetta mál meðal lækna og yf irmanna sjúkrahússins. Stýrimannaskólinn Fyrir utan Stýrimanna- skólann var líf og fjör og þar hafði nýlega rennt í hlað rúta frá Guðtmundi Jónassyni og von var á ann- arri. Um sjö hundruð manns að minnsta kosti höfðu þá koinið í skólann. Guðrún skólana og ekið fólkinu end urgjaldslauist, nemendur Stýri mannaskólans hafa þá ekki síður lagt fratn • sinn hlut, þeir annast þarna um framreiðslu á smurðu brauði, kökum og kaffi og ávöxtum, •lón Árnason, skólastjóri Arbæjarskóla og Bagnar Guð- niundsson yfirkennari. Sveinsdóttir, hjúkrunarkona, sagði að margir hefðu boðið fram aðstoð sína, vildu skjóta skjólshúsi yfir Vestmannaey inga, sem ættu hér ekki ást- vini, bílstjórar af bilastöðv- um hefðu skipt sér niður á eins og hver viil og auk þess hafa þeir, sem ráða yfir bíl- um, verið tii taks að aka fólki. Hjónin Pétur Guðjónsson og Lilja Sigfúsdóttir voru nýkomin til bæjarins og dessy og Trausti, Sigurður og Elsa. höfðu ásamt ýmsuim ættingj- um dvalið um stund hjá bróð ur Lilju í Þorlákshöfn, að sjó ferðinni frá Eyjum lokinni. Hjá þeim var Sigurður Jóels son, sjómaður, sem sagði að fjölskylda sín væri komin á undan sér. Það kemur í ijós að þau Pétur og Lilja búa i Kirkju bæ n, eða í 150—200 metra fjarlægð frá eldstöðvunum. — Ég vaknaði við drunur, segir Lilja. — Fyrst hélt ég þær kæmu frá flugvél. Siðan sá ég eldsbjarma og blossa og fór að aögæta þetta nánar og þá sá ég eldsúlurnar teygj ast tugi metra upp í loft Mínar fyrstu hugsanir voru hvað eiginlega væri að gerast. Og segi þetta við Pét- ur. En Pétur lætur aldrei neitt á sig bíta og segir hinn ■ rólegasti — O, ætli þeir séu ekki bara að brenna sinu þarna. — En ég kteddi mig nú, heldur Lilja áfram og drun- urnar voru sífellt að áger- ast og við urðum svo hrædd, að við vöktum hitt föTkið i húsinu og hlupum síðan nið- ur á lögreglustöð. Þá hefur klukkan verið um hálf þrjú. Þá voru þeir að kalla upp Almannavarnir, varðskip og hvaðeina. Ég var ólýsanlega hrædd, ég skamimast min ekki fyrir að játa það. Ég vinn á spitalanum og fór þangað, en þurfti ekki að aðstoða og því fórum við niður á bryggju og fengum far með „Amari“ til Þorlákshafnar. Það má geta nærri, hvernig okkur varð við, þegar við heyrð- um þær fréttir, að Kirkjubæt I væri farinn undir hraunið. Við lofuðum guð fyrir, þeg- ar það reyndist ekki rétt. — Maður verður að tifa í von- inni, segir Pétur. — Og ég læt ekkert á. mi.g fá. Ég. er bjártsýnn á, að við komumst heirn aftur. En það er sár til hugsun, að þá verði kofinn e.t.v. farinn undir hraunlð, með öllu sem í honum er. Kannski maður reyni að grafa hann undan .. .-. . en það gæti nú orðið hart und. ir hendi. Þau hjónin verða hjá dö.fct ur sinni i Kópavogi, en Pét- ur tök fram að hann færi affl . ur við fyrsta tækifærí./— En auðvitað getum við ékki lok að augunum fyrir því, að ef myndast hryggur þárna, eða ég tala nú ekki uim ef ffer að gjósa á fleiri stöðum, þá get- ur allt gerzt. — Það hefur oft verið hnýtt í Almannavamir, se.gÍT Sigurður. En þær brugðu skjótt við í nótt. Þetta gekk allt undra fljótt fyrir sig og allir, sem að stóðu eiga þakk ir skilið fyrir. Og svo þessi mikla hlýja, sem mætir okk- ur í höfuðstaðnum er mikils virði og ógleymanleg. Systir Lii.ju, Marta bætir við; — í gærkvölidi háttuðum við róleg. Þetta var eins og hver annar dagur og ekkert benti til að neitt væri i að- sigi. Nú erum við — sólar- hring síðar, — eins og flótta fólkið sem við eruim að sjá í sjónvarpi og blöðum, og allt- af hefur maður talið þetta svo fjarlægt og nánast að það komi manni ekki við. Einmitt þess vegna kunnum við alveg sérstaklega vel að meta ailan þann vináttuvott og hjálpfýsi sem okkur hef- ur verið sýnd í þessum raun Árbæjarskóli 1 Árbæjarskóla voru nem- endur að hjálpa til við að stafla dýnum í vörubíla. Það Framhald af bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.