Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÖVEMBER 1973 Þýtur í skóginum Eftir Kenneth Graheme 4. kafli Froskur „Eins og málið horfir við frá mínum sjónarhóli“ sagði yfirdómarinn glaðlega, „þá eru engin önnur vandkvæði varðandi þetta mál en þau að neita þess- um óforbetranlega óþokka og ökuníðingi, sem þarna situr fyrir framan okkur á sakabekknum, nógu harða refsingu. Við skulum sjá: hann er sekur fund- inn um að hafa í fyrsta lagi stolið dýrri bifreið, í öðru lagi að aka þannig, að öðrum vegfarendum stóð beint hætta af og í þriðja lagi að sýna löggæzlumönnum sveitarinnar grófa ófyrirleitni. Segiðokkur, skrifari, hverjar eru þyngstu refsingar, sem hægt er að beita fyrir hvert þessara brota? Fanginn hefur ekkert sér til málsbóta eins og allir vita.“ Skrifarinn klc'raði sér á nefinu með pennastöng- inni. „Sumir,“ sagði hann, „mundu telja bílstuldinn alvarlegasta brotið og það mun rétt vera. En ósvífni gagnvart lögregluyfirvöldum ber að refsa hvað harðast. Ætla mætti að áætla tólf mánaða fangelsi fyrir stuldinn. Það er mildur dómur. Þriggja ára fangelsi yfir ógætilegan akstur. Það er líka mildur dómur. Og fimmtán ár fyrir ósvífnina, því hún var mikil, skilst mér, þótt ekki sé leggjandi trúnað á nema tíunda hluta þess, sem heyrzt hefur hér í réttarsalnum. Nú, séu þessar tölur lagðar saman verða þetta nítján ár samtals... “ „Ágætt,“ sagði yfirdómarinn. „.. eðlilegast er þá líklega að færa töluna upp í tuttugu, svo öllu sé óhætt,“ bætti skrifarinn við. ©PIB CBPINNBCIH © Aevv-^-73 7&£R- I dýra- garðinum Hérna er garðyrk.jumaður- inn f dýragarðinum að vökva blömin. Eitt dýranna aðstoðar hann. Geturðu séð hvaða dýr það er? Strikaðu milli punkt- anna frá tölunni 1 og upp úr og þá teiknarðu dýrið um leið. „Hrafn, frændi minn, vill biðja Helgu, dóttur þinnar, og er þér kunnug ætt hans og auður fjár og menning góð, frænda afli mikill og vina.“ Þorsteinn svar- ar: „Hún er áður heitkona Gunnlaugs, og vil ég halda öll mál við hann, þau sem mælt voru.“ Skapti mælti: „Eru nú eigi liðnir þrfr vetur, er til voru nefndir með yður?“ „Já,“ sagði Þorsteinn, „en eigi er sumarið liðið, og má hann enn til koma f sumar." Skapti svarar: „En ef hann kemur eigi til sumar- langt. hverja von skulum vér þá eiga þess máls?“ Þorsteinn svarar: „Hér munum vér koma annað sumar, og má þá sjá, hvað ráðlegast þykir, en ekki tjáir nú þetta að tala lengur að sinni.“ Og við það skildu þeir, og riðu menn heim af þingi. Ekki fór þetta tal leynt, að Hrafn bað Helgu. Eigi kom Gunnlaugur út að sumri. Og annað sumar á alþingi fluttu þeir Skapti bónorðið ákaflega, kváðu þá Þorstein lausan allra mála við Gunnlaug. Þorsteinn svarar:„Ég áfáar dæturfyrir að sjá, og vildi ég gjama, að eng- um manni yrðu þær að rógi; nú vil ég finna fyrst Illuga svarta," og svo gerði hann. Og er þeir fundust, þá mælti Þorsteinn: „Þykir þér ég laus allra mála við Gunnlaug, son þinn?“ Illugi mælti: „Svo er vfst,“ segir hann, „ef þú vilt; kann ég hér nú fátt til að leggja, er ég veit eigi gjörla efni sonar míns, Gunnlaugs." Þorsteinn gekk þá til Skapta, og keyptu þeir svo, að brúðlaup skyldi vera að vetr- arnáttum að Borg, ef þeir Gunnlaugur kæmu eigi út á þvf sumri, en Þorsteinn laus allra mála við Hrafn, ef Gunnlaugur Uæmi til og vitjaði ráðsins. Eft- ir bað riðu menn heim af þing- inu o p frestaðist tilkoma Gunniaugs, en Helga hugði lllt til ráða. X. kapftuli. Nú er það segja frá Gunn- laugi, að hann fór af Svíþjóðu það sumar til Englands, e. Hrafn fór til íslands, og þá góð- ar gjafir af Olafi konungi að skilnaði þeirra. Aðalráður kon- ungur tók viðGunnlaugi allvel, og var hann með honum um veturinn með góðri sæmd. 1 þennan tfma réð fyrir Daj»f- mörku Knútur hinn ríki Sveinsson og hafði nýtekið við föðurleifð sinni og heitaðist jafnan að herja til Englands, fyrir þvf að Sveinn konungur, faðir hans, hafði unnið mikið rfki á Englandi, áður hann and- aðist vestur þar. Og f þann tfma var mikill her danskra manna vestur þar, ég var sá höfðingi fyrir, er Hemingur hét, sonur Strút-Haralds jarls og bróðir Sigvalda jarls, og hélt hann það rfki undir Knút konung, er Sveinn konungur hafði áður unnið. Um vorið bað Gunnlaug- ur konunginn sér orlofs til brottferðar. Hann svarar: „Eigi sæmir þér nú að fara frá mér, til slfks ófriðar sem nú horfir hér í Englandi, þar sem þú ert minn hirðmaður." Gunnlaugur svarar: „Þér skuluð ráða, minn herra, og gef mér orlof að sumri til brottferðar, ef Danir koma eigi.“ Konungur svarar: „Sjáum við þá.“ Nú Ieið það sumar og veturinn eftir, og komu Danir eigi. Og eftir mitt sumar fékk Gunnlaugur orlof til brottferðar af konungi, og fór Gunnlaugur þaðan austur til Norcgs og fann Eirfk jarl f Þrándheimi, á Hlöðum, og tók jarl honum þá vel og bauð hon- um þá með sér að vera. Gunn- laugur þakkar honum boðið og ffleöinofgunluiffinu — Ef þetta væri f fyrsta sinn, sem þetta hefði skeð, gæti ég fyrirgefið þér. En nákvæmlega sömu mistök hentu þig árið 1949... — Sæl elskan. Ég hitti dular- fulla, gamla konu hérna úti á götunni, og hún sagðist geta gert mig ósýnilega, ef ég gæfi henni ekki 100 krónur. — Allt f lagi, þú settir kaffi- baunirnar f mölkúlupokann. Svona smá óhöpp geta hent hvern sem er. En reyndu nú að muna, hvar þú settir möl- kúlurnar. — Bölvaða teppi — komdu strax hérna niður aftur. — Ilertu nú upp hugann, Hilmar. IVIundu að þú hefur stúdentspróf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.