Morgunblaðið - 22.09.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1976
Afstaða
kommúnista
og sósíalista
til NATO
Gjorbreyting er að
verða á viðhorfum komm-
únista og sóstalisto F V-
Evrópu til Atlantshafs
bandalagsins. Þar hafa
ítalskir kommúnistar riðið
á vaðið eins og kunnugt
er. Eins og Ragnar Arn-
alds, formaður Alþýðu-
bandalagsins, sagði í at-
hyglisverðri blaðagrein sl.
sunnudag: „Þeir hafa
jaínvel gengið svo langt
að falla frá andstöðu sinni
við aðild ítalíu að Atlants-
hafsbandalaginu og sætt
sig fyrst um sinn við
bandarískar herstöðvar á
Italíu" Berlinguer, for-
maður ítlalska kommún-
istaflokksins, sagði í við-
tali við heimskunnan
blaðamann fyrr í sumar,
að ein ástæðan fyrir þess-
ari stefnubreytingu væri
sú, að ítalskir kommúnist-
ar óttuðust skyndiinnrás
Sovétríkjanna í
Júgóslavíu, þegar Tító
væri horfinn af sjónarsvið-
inu og að þá væri öryggi
ítalíu ógnað. M.ö.o., for-
maður ítalskra kommún-
ista telur, að Atlantshafs-
bandalagið sé bezta vörn
ítala gegn útþenslustefnu
Sovétríkjanna í Evrópu.
Ragnar Arnalds segir
einnig í blaðagrein sinni,
að innrás Sovétríkjánna
og annarra Varsjárbanda -
lagsríkja i Tékkóslóvakíu
1968 hafi haft mikil áhrif
á viðhorf kommúnista á
ítalíu. Þá upplýsir formað-
ur Alþýðubandalagsins
ennfremur, að spænskir
kommúnistar hafi svipaða
afstöðu og hinir ítölsku
skoðanabræður þeirra og
að ef vinstri fylkingin í
Frakklandi, þar sem
kommúnistar eru að sjálf-
sögðu sterkasta aflið,
fengi kosinn forseta eða
næði meirihluta á franska
þinginu yrði Frakkland
áfram f Atlantshafsbanda-
laginu. Ekki þarf heldur
að rifja upp afstöðu kín-
verskra kommúnista til
Atlantshafsbandalagsins.
Þeir hafa eindregið hvatt
til eflingar þess til varnar
gegn heimsvaldastefnu
Sovétríkjanna.
Þessi þróun hlýtur að
verða kommúnistum og
sósíalistum f Alþýðu
bandalaginu mikið um-
hugsunarefni. Þeir hafa f
raun dæmt sig til einangr-
unar f íslenzkum stjórn-
málum f þrjá áratugi
vegna þjónkunar við
hagsmuni Moskvu. Og
viðbrögð málsvara komm-
únista að undanförnu,
þegar vakin hefur verið
athygli á þessum breyttu
viðhorfum hjá kommún-
istum á ítalíu og víðar,
hafa ekki bent til þess. að
til væru f Alþýðubanda-
laginu öfl, sem væru
reiðubúin til þess að taka
upp breytta stefnu í sam-
bandi við aðild íslands að
Atlantshafsbandalaginu
og varnarsamninginn við
Bandaríkin. Þvert á móti
hafa viðbrögðin verið á
þann veg, að ætla mætti,
að Moskvuþjónkunin
hefði fremur aukizt en
minnkað að undanförnu.
Nýr tónn
En nu bregður svo viS,
aS þaS kveður við nýjan
tón úr röSum Alþýðu
bandalagsins Og engum,
sem til þekkir, kemur á
óvart, þótt sú tóntegund
komi frá Ragnari Arnalds.
Hvorki hann né ýmsir
samstarfsmenn hans (
hópi landsbyggSarþing-
manna Alþýðubandalags
ins hafa nokkru sinni til-
heyrt hinum harða
Moskvukjarna, sem hefur
i fjóra áratugi ráðið ferS-
inni i Kommúnistaflokki
islands. siSan Sósialista-
flokknum og loks AlþýSu-
bandalaginu. i blaðagrein
þeirri sem hér hefur veriS
gerð aS umtalsefni, undir-
strikar formaSur AlþýSu-
bandalagsins þá stað
reynd. að flokkurinn hafi
tvisvar sinnum í raun fall-
izt á aðild íslands að At-
lantshafsbandalaginu
með þvi að taka þátt (
tveimur rikisstjórnum án
þess að gera kröfuna um
úrsögn úr Atlantshafs
bandalaginu að úrslitaat-
riði. Og Ragnar Arnalds
segir ennfremur: „Að
sjálfsögðu munu sósialist-
ar taka fullan þátt i ríkis-
stjómum viðkomandi
landa þrátt fyrir áfram-
haldandi Natoaðild. þeg-
ar svo ber undir." Þessi
ummæli verða ekki skilin
á annan veg en þann, að
hvort sem Alþýðubanda
lagsmönnum tekst að
koma sér saman um
breytta afstöSu til At-
lantshafsbandalagsins
eða ekki þurfi sérsjónar-
mið þeirra i þessum efn-
um ekki lengur að valda
einangrun þeirra á vett-
vangi stjómmálanna eða
koma i veg fyrir samstarf
þeirra við aðra flokka,
sem styðja aðild fslands
að Atlantshafsbandalag-
inu og varnarsamninginn
við Bandarikin. Og for-
maður Alþýðubandalags-
ins hnykkir á þessum um-
mælum er hann segir (
grein sinni: „Þátttaka
kommúnista og vinstri
sósialista með hægri
flokkum i fjölmörgum rik-
isstjómum i Vestur-
Evrópu fyrst eftir heims-
styrjöldina siðari var ekki
siður söguleg málamiðlun
en sú, sem nú er boðuð á
ítaliu. Ein fyrsta stjómin
af þessu tagi var nýsköp-
unarstjórnin hér á Íslandi
með þátttöku Sósialista-
flokks, Alþýðu- og Sjálf-
stæðisflokks. Þetta var
áður en kalda striðið hélt
innreið sina. En nú þegar
þvi hefur að mestu slotað
má búast við. að þess
háttar samvinna geti
komizt á dagskrá. þar sem
sérstakar óvenjulegar að-
stæður eru fyrir hendi."
það er leikur
að læra...
VÉLRITUN Á abc 2002 SKÓLARITVÉLINA
abc
7
ORÐSENDING
frá Iðnlánasjóði
í framhaldi af þeirri endurskoðum á útlánakjör-
um fjárfestingarlánasjóða sem átt hefur sér stað
að undanförnu, hefur verið ákveðið að lánakjör
á útlánum Iðnlánasjóðs séu þessi:
Byggingalán:
Vextir 1 1,5% p.a., auk 50% af hækkun bygg-
ingarvísitölu á lánstímanum.
Vélalán:
Vextir 14% p.a., auk 15% af hækkun bygg-
ingarvísitölu á lánstímanum.
Ofangreind útlánakjör ná til allra þeirra lána
sem afgreidd eru eftir 15. september 1976,
annarra en þeirra, þar sem lánsskjöl hafa þegar
verið útbúin og afhent.
Rétt er að benda á það að breyting þessi nær
ekki til eldri lána.
Reykjavík, 16. september 1976.
IÐNLÁNASJÓÐUR
í baksturinn
FYRSTA FLOKKS
HEILHVEITI
FÆST í NÆSTU BÚÐ