Morgunblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977 Hér hefur ekki fallið snjóflóð, eins og virzt gæti í fljótu bragði, heldur eru þetta Niagara-fossarnir í Bandaríkj unum f klakaböndum. Björgunarsveitar- menn með fisksölu Akranesi, 15. feb. Sölustjórar Flugleiða á fundi á Húsavík llúsavfk 15. feb. I DAG lauk aö Hótel Húsavík tveggja daga fundi sölu- og svæðisstjóra Flugleiða h/f á svo- nefndu austursvæði, þ.e. Mið- Evrópu, og nokkurra yfirmanna félagsins í Reykjavik. Slíkir fund- ir eru haldnir á hverju ári, en þetta er í fyrsta sinn, sem sölu- og svæðisstjórar halda fund á ís- landi utan Reykjavíkur. Á fund- Akranes SOKNARPRESTURINN á Akra- nesi hefur föstumessu í kvöld kl. 8.30 í Akraneskirkju. inum var farið yfir árangur s.l. árs og framtíðarhorfur ræddar. Ymsir fundarmanna komu nú í fyrsta sinn til Norðurlands enda þótt þeir hafi oft heimsótt ísland. Fundarmenn róma mjög alla fyrirgreiðslu og aðstöðu á Hótel Húsavík, svo og bæinn sjálfan og umhverfið. Á Húsavík er nú all- mikill snjór og afbragðs skíða- færi.— Frfltarilari. Bíl stolið AÐFARARNÓTT fimmtudagsins 10. febrúar var blágrænni Cortinu, árgerð 1967, stolið frá Karlagötu 18 í Reykjavík. Bif- reiðin ber einkennisstafina R- 43343. Margsinnis hefur verið auglýst eftir bifreiðinni en án árangurs. Er það órk rannsóknar- lögreglunnar í Reykjavík, að þeir sem geti veitt upplýsingar um það hvar bifreiðin er nú niðurkómin, hafi strax samband við lögregluna. BJÖRGUNARSVEIT Slysavarna- félagsins á Akranesi efndi til torgsölu á fiski i soðið fyrir bæjar- búa s.l. sunnudag. Fisksalan var til fjáröflunar fyrir starfsemi deildarinnar. Útvegsmenn og skipshafnir 7 báta gáfu fiskinn til sölunnar, og auk þess keyptu Framhald af bls. 32. sama tima í fyrra en heldur lak- ara en um sama leyti árs 1975, enda hefði byggingariðnaðurinn þá búið að miklum lóðaúthlutun- um frá 1973 og 1974. Hins vegar taldi hann fyrirsjáanlegt að tölu- verður samdráttur yrði í bygging- ariðnaðinum þegar kæmi fram á þetta ár, því að svo óheppilega björgunarsveitarmenn saltfisk og fleiri tegundir soðningar til þess að auka fjölbreytnina. Sveitar- menn önnuðust sjálfir sölu á Heimaskagatorgi og voru búnir gulum stökkum, sem lífguðu upp á umhverfið. Salan gekk mjög vel og bæjarbúar voru ánægðir með viðskiptin. — júiius. vildi til að lóðaúthlutanir allra helztu bæjarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu hefðu verið í lág- marki undanfarið. Af þessari ástæðu kvaðst Víg- lundur vera viss um að eftirspurn eftir húsnæði ætti eftir að aukast mjög þegar liði á árið. Spáði Víg- lundur því að einhvern tíma á bilinu frá maí nk. og fram í okót- ber yrði sprenging í verðlagi á fasteignamarkaðinum, svo að leita þyrfti allt aftur til áranna 1971—72 til að finna hliðstæðu. —Aflinn í janúar Framhald af bls. 32. var í fyrra 12.385 lestir. Var báta- aflinn nú meiri á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Stykkis- hólms en i fyrra og sömuleiðis á Norðurlandi og Austfjörðum en minni á Vestfjörðum. Togaraafl- inn var 16.996 lestir s.l. mánudag en 19.965 lestir í janúar i fyrra. Loðnuaflinn í janúar var 120.105 lestir en 54. 831 lest sama mánuð í fyrra. Rækjuafli er heldur meiri en í fyrra, 861 lest á móti 815 lestum, en hörpudiskafli var all- miklu meiri, 377 lestir á móti 199 lestum. — Mun leita heimilda Framhald af bls. 32. kom milli tveggja þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Alberts Guðmundssonar, sem varði gerðir ráðherra, og Sverris Hermannssonar, »sem gagn- rýndi þær. Vitnaði Sverrir til dæmisögu um A1 Capone, sem óskað hefói þess á banabeði, að synir hans tveir kæmust í Sölu- nefnd varnarliðseigna á ís- landi. Albert Guðmundsson svaraði þvi til, að synirnir hefðu sjálfsagt hætt við Sölu- njfndina, ef þeir hefðu frétt um Framkvæmdastofnun ríkis- ins. (Þessar umræður eru nánar raktar á þingsíðu). — ISI fær 3ja milljóna . . . Framhald af bls. 32. vegum og hinna einstöku sérsam- banda innan ÍSl Morgunblaðið ræddi í gær- kvöldi við Gisla Halldórsson, for- seta ÍSÍ, um þessa aukafjárveit- ingu rikisstjórnarinnar. Gisli sagði: ,,Við erum að sjálfsögðu þakklátir fyrir þessa fjárveitingu, sem við höfum fengið. Eins og allir vita, er þessi fjárveiting til komin vegna velgengni hand- knattleikslandsliðs okkar. Pen- ingunum verður skipt milli sér- sambandanna, þannig að þau geti tekið þátt í alþjóðamótum með reisn, en væntanlega mun bróður- parturinn af fjárveitingunni rennatil hanknattleiksliðsins." — Atvinnu- ástandið — Danmörk Framhald af bls. 1. 1. marz n.k. en skv. því munu laun aðeins hækka um 2% á ári næstu 2 ár auk 4% dýrtiðarhækkunar á hvoru árinu. Það er ekki hægt að tala um að Venstre hafi tapað fylgi, því að fylgishrunið fækkaði þingmönnum flokksins úr 42 í 21. Þetta tap, sigur jafnaðarmanna og miðdemókrata, sem bættu við sig 8 þingsætum, úr 4, er það sem mesta athygli hefur vakið. Þegar 95% atkvæða höfðu verið talin skömmu eftir miðnætti lá ljóst fyrir, að „Ágústflokkarnir“, jafn- aðarmenn, róttækir, íhaldsmenn, miðdemókratar og Kristilegi þjóð- arflokkurinn höfðu fengið um 105 þingsæti af 179. Mjög mikil þátttaka var i kosn- ingunum þvert ofan í allar spár og neyttu um 90% kjósenda at- kvæðisréttar síns, en 88.7% 1975. Virðist Danir því hafa hrist af sér stjórnmálaleiðann, sem svo mikið hafði verið talað um. Hefur þetta greinilega haft sitt að segja fyrir jafnaðarmenn. Úrslitin eins og þau lágu fyrir á miðnætti voru á þessa leið. Jafnaðarmenn 65(53), Róttæki vinstriflokkurinn 6(13), Kristi- legi þjóðarflokkurinn 6(9), íhaldsflokkurinn 15(10), Réttar- sambandið 6(0). Sósíalíski þjóðarflokkurinn 7(9), Kommún- istar 7(7), Miðdemókratar 11(4), Vinstrisósíalistar 5(4), Framfara- flokkurinn 25(24) og Venstre 21(42). Til viðbótar við þessi 175 þingsæti bætast síðan 2 við frá Grænlandi og tvö frá Færeyjum, þannig að samtals eiga 179 þing- menn sæti í danska þinginu. Mogens Glistrup, formaður Framfaraflokksins, sagði er úr- slitin iágu fyrir, aó nú væri Fram- faraflokkurinn orðinn stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn í landinu og hann myndi vissulega taka hlutverk sitt alvarlega. Glistrup sagði að úrslitin væru sorgleg, þau myndu aðeins hafa í för með sér að draga Danmörk lengra niður í svaðið. Stjórnmálafréttaritarar telja að óhjákvæmilegt verði fyrir Poul Hartling, formann Venstre, að segja af sér eftir þessa miklu niðurlægingu, en hann fékkst ekki til að tala við fréttamenn eftir að úrslit voru kunn i nótt, Hins vegar sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði: „Ég óska Anker Jörgensen for- sætisráðherra til hamingju, ástæðan fyrir sigrinum er stemmningsalda Jörgensen í vil. Ég minni hins vegar jafnaðar- menn á að kaldur hversdags- leikinn tekur við nú að kosn- ingum loknurn." Stjórnmálafréttaritarar telja ólíklegt að Jörgensen muni taka ráðherra inn í stjórn sina frá stuðningsflokkunum alveg á næstunni, þar sem nú verði stjórnin að einbeita sér að því að koma Ágústsamkomulaginu í gegn og koma í veg fyrir alls- herjarverkfall og verkbann í landinu. Takist það er ekki ólik- legt að nýir menn verði teknir inn í stjórnina. Mið'VÍnstri Sósíaldemókratar Sós.þjóðarfl. Kommúnislar Vinstrisósfalistar Mið- hægri Vinstri Róttækir ihaldsmenn Miðdemókratar Kristilegir Réttarsamband Glistrup-hreyfingin Framfaraflokkur Þingsæti í Danmörku + Grænland 2, Færeyjar 2 1971 1973 1975 1977 70 46 53 65 17 11 9 7 0 6 7 7 0 0 4 5 87 63 73 84(+ll) 30 22 42 21 27 20 13 6 31 16 10 15 — 14 4 11 0 7 9 6 0 5 0 6 88 84 78 65(— 4) — 28 24 26 175 175 175 175 4 4 4 4 179 179 179 179 Landsliðið vann Slask 19:16 SÍÐASTI æfingaleikur hand- knattleikslandsliðsins og pólska liðsins Slask fór fram í Laugardalshðll í gærkvöldi og lauk leiknum með sigri lands- liðsins 19:16. Þetta var eini sigurleikur landsliðsins gegn Slask. Mörk íslands í leiknum gerðu Þorbergur Aðalsteinsson 6, Þorbjörn Guðmundsson 5, Björgvin Björgvinsson 3, Ágúst Svavarssen 2, Ólafur Einarsson 2 og Viggó Sigurðsson 1 mark. Klempel var markhæstur í liði Slask með 6 mörk. FRAM REYKJAVÍKUR- MEISTARI Á undan leik landsliðsins og Slask fór fram úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins í meistara- flokki kvenna. Til úrslita léku Fram og Valur og sigraði Fram 11:8. IPSWICH I EFSTA SÆTI I ENGLANDI Úrslit i ensku knattspyrn- unni í gærkvöldi: Deildarbikarkeppnin: Bolton — Everton 0:1 1. deild: Ipswieh — Norwich 5:0 Middlesbrough — Arsenal 3:0 2. deild: Charlton—Orient 2:0 Hull — Millwall 0:0 Luton — Blackburn 2:0 Oldham — Burnley 3:1 Notts County—Chelsea 2:1 Með sigri sínum yfir Bolton komst Everton í úrslit keppn- innar með samanlagða marka- tölu 2:1 og mætir annað hvort Aston Villa eða QPR á Wembley 12. marz. Sigurmark Everton skoraði Bob Latchford. Með sigri sínum i 1. deild komst Ipswich í efsta sætið. Trevor Whymark skoraði 3 mörk og Paul Mariner og John Wark sitt hvort markið. Nor- wich hafði óskað eftir frestun vegna þess að 14 af leikmönn- um liðsins eru meiddir. Frest- un var ekki veitt og til þess að hafa fullt lið varð Norwich að nota unga framherjann Kevin Reeves en hann missti föður sinn i gærmorgun og hafði ósk- að eindregið eftir því að þurfa ekki að leika. lt ' 6l i>¥ IU I I i li ( i I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.