Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 Rætt við hestamenn á leið til Lan Jóhann Gunnar Stefánsson var á leið á sitt fyrsta hestamannamót. HVARVETNA sem farið var í nágrenni Þingvalla í gœr mátti sjá flokka hestamanna á leið ríðandi til Landsmóts hestamanna í Skógarhólum. Menn komu að úr öllum áttum og á mótssvnðinu var risin myndarleg tjaldborg. Að sögn forráðamanna mótsins voru í gær komnir nær 5000 manns á mótssvæðið. „Við erum í hæsta máta ánægðir með mótið til Þessa,“ sagði Pótur Hjálmarsson, framkvæmdastjóri mótsins, „Veörið hefur verið alveg sérstakt t.d. sól og blíða í dag en Þó blásið hlýjum andblæ. Hrossin, sem keppa á mótinu eru greinilega mjög góð og pað er ekki hægt aö segja annað en hér ríki góð stemmning.** 14 ára og fer nú ríðandi á sitt fyrsta hestamannamót - Skammt frá Hrafnhólum hittum Fáksfélagar voru meöal peirra, sem voru á leið til mótsins ( gær. Þessi mynd var tekin af hluta Þeirra við hóp Fáksfélaga, sem voru á við Hrafnhóla. Tilheyrir dellunni að elta hestamannamót Magnús Jóhannsson á Hólum var sérlega glaöur yfir peim mörgu skeiðsprettum, sem hann hafði séð um daginn. Magnús Þór Einarsson sagði hestana verða bestu vinina. leið á Þingvöll. Þetta voru milli 50 og 60 manns en víða á leiöinni austur til Skógarhóla mátti sjá smærri hópa. Við tylltum okkur niður hjá einum af yngri kyn- slóöinni hjá Fáki, þegar hópurinn áði við Þverárkot. Hann sagöist heita Jóhann Gunnar Stefánsson og vera 14 ára úr Reykjavík. „Það eru eiginlega ekki nema 2 mánuðir frá því að ég byrjaöi fyrir alvöru í hestamennsku. Frænka mín, Lára, sem er jafngömul mér, bauð mér hest og ég keypti hann,“ sagði Jóhann. Við spurðum, hvort hann heföi áöur fariö ríöandi á hestamannamót? „Nei, þetta er fyrsta hesta- mannamótið, sem ég fer á. Ég fór austur á Þingvöll í gærkvöldi til aö tjalda og veit að þetta verður skemmtilegt mót, bara ef veörið fer ekki illa meö okkur. Hvers vegna byrjaðir þú í hestamennsku? „Ég veit ekki af hverju en hitt veit ég aö þetta er ofsalega gaman. Við krakkarnir förum mikið saman í útreiöartúra. Nei, pabbi og Eggert Bergsson (t.v.) og Ólefur Þorkelsson voru að koma ofan úr Borgarfirði. mamma eru ekki með hesta. Eg er sá eini í fjölskyldunni." Merarnar eiga eftir aö koma meira viö sögu en á fyrri mótum Næst tókum viö Magnús Þór Einarsson tali. Hann sagöist hafa verið í hestamennsku í Reykjavík samfleytt sl. 2’/» ár og nú í sumar væri hann með hesta sína á Felli í Mosfellssveit. Við spuröum, hvað þaö væri, sem drægi fólk aö hestamennsku umfram annað? „Það sem dregur fólk aðallega að hestamennsku er að þar finna menn félagsskap og bestu vinirnir eru hestarnir. Ef þú ert búinn að finna hest sem vin getur þú treyst því aö eiga vin svo lengi sem aldur beggja endist.“ Aðspurður um hvernig honum litist á Landsmótið í Skógarhólum, sagöi Magnús: „Mér líst alveg Ijómandi vel á mótið, og ef veörið verður eins og þaö er, þá getum viö vænst mikils árangurs hjá hrossunum en þaö má heldur ekki verða of heitt. Ég er hræddur um að það verði mikil spenna í stökkinu, sérstaklega 350 metrunum. Merarnar eiga eftir að koma meira viö sögu á þessu landsmóti en þeim fyrri. Nei, ég þori ekki aö spá hver þeirra sigri í 350 metrunum en ég veit aö þær veröa með fánann, þegar upp verður staðið.“ Margt af alveg úrtökuhrossum A mótssvæöinu í Skógarhólum fylgdist fjölmenni með dómum gæöinga í B-flokki, sem oftast eru nefndir klárhestar með tölti, en Framhald á bls. 19 Siguröur Sæmundsson hafði brugðið aér inn í Bolabás tii að Þjálfa Ljósfara, sem brátt átti að mæta til klárhestadóma. Yngri kynslóðin kemur ekki síst til með að setja svip sinn á petta landsmót hestamanna. Hér er lagt á bak og senn verður haldið úr áningarstað. Hér má sjá yfir hluta af mótssvæðinu í Skógarhólum en fjærst má sjá hluta af tjaldborg mótsgesta. Hópur fólks fylgdist í gær með dómum klárhesta f indælu veöri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.