Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 19 — Oþurrkar? Framhald af bls. 32 son veðurfræðingur trúa á hina gömlu hjátrú um veðurfar, sem er tengd hundadögum. Hélt hann að trúin væri upphaflega tengd gangi stjörnunnar Síríusar sem oft er nefnd hundastjarna, en á hundadög- um fer stjarnan hæst á braut sinni. „Líkur eru fyrir litlum veðurbreytingum næstu daga. Veður mun haldast bjart sunnanlands og það verður sæmilega hlýtt," sagði Páll síðan — Lúðvík vill... Framhald af bls. 3. arflokkurinn lýst því yfir að hann vilji kanna möguleika á slíkri stjórnarmyndun eftir að Alþýðubandalagið hafi haft for- ystu um viðræður við Framsókn. Ástæðan fyrir því, að forset- inn hafi falið Benedikt Gröndal að gera þessa tilraun hljóti að vera sú að formaður Sjálfstæð- isflokksins, Geir Hallgrímsson hafi bent á Benedikt sérstaklega í þessu skyni, þar sem hann hafi ekki reyst sér til að reyna stjórnarmyndun né haft umboð til þess frá flokki sínum. Ekki hafi verið talið rétt að fela formanni næststærsta flokksins Lúðvik Jósefssyni tilraun til stjórnarmyndunar þar sem Geir hafi bent á Benedikt í sinn stað. I Þjóðviljanum er þess getið að Alþýðubandalagið hafi verið reiðubúið að reyna sjálft mynd- 'un vinstri stjórnar og að Alþýðubandalagið hafi ekki bent á Benedikt Gröndal til að hefja stjórnarmyndunartilraun- ir, þar sem hann hafi lýst takmörkuðum áhuga á þátttöku í slíkri ríkisstjórn. Forystugrein Þjóðviljans er mjög á sömu lund, en í niðurlagi hennar segir orðrétt: „Eitt er að gera tilraun til myndunar vinstri stjórnar og annað er að ná samstöðu um þau málefni sem ein geta verið grundvöllur slíks stjórnarsamstarfs. Hins vegar er Alþýðubandalagið reiðubúið til að takast á hendur forystu um slíka tilraun." — Vance vítir Young... Framhald af bls. 1 las blaðamönnum þar sem hann er nú staddur á fundi á vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf, sagð- ist hann vera ákafur stuðnings- maður almennra mannréttinda og frelsis. Hinn orðskái sendiherra lét i dag einnig frá sér fara umbúða- lausar yfirlýsingar út af morðun- um á hvítu trúboðunum í Rhódesíu nýlega og lét að því liggja að Ian Smith, forsætisráðherra landsins, kynni sjálfur að bera ábyrgðina á þeim. Komu ásakanir þessar einn- ig fram í viðtalinu við franska blaðið „Le Matin". „Hafi þetta verið skipulagðar aðfarir að trúboðum... geta þær aðeins átt upptök sín í herbúðum Smiths" sagði hann. Þessi ummæli Andrew Youngs hafa valdið harkalegum viðbrögð- um í Rhódesíu og buðu þarlend yfirvöld sendiherranum í dag að koma á vettvang með hóp lagasér- fræðinga og kanna staðreyndir málsins á eigin spýtur. — Lögreglan trylltist... Framhald af bls. 1 lögreglunnar hlýddu mér ekki. Ég gaf þeim enga skipun um að fara inn í bæinn.“ Mótmælaaðgerðir þjóðernis- sinna hafa breiðzt út eins og eldur í sinu í Baskahéruðunum og óeirðalögreglan á fullt í fangi með að ráða við ástandið. Alvarlegast er ástandið í Bilbao og San Sebastian. I Bilbao króaði lögregla mót- mælafólk af í gamla hverfinu og skaut gúmmíkúlum til þess að það kæmist ekki úr kvínni. Mót- iiiÆieiiuui uvtuuui i uureiuum ug kveiktu í götuvígjum. í San Sebastian breiddust átök út um alla borgina þegar 5.000 manns kom frá útför 19 ára gamals Baska úr skæruliðasam- tökunum ETA sem var skotinn til bana þegar árás var gerð á lögreglúbúðir. Rodolfo Martin Villa fór í snögga ferð til Baskahéraðanna og sagði: „Ástandið er kvíðvænlegt bæði með hliðsjón af lögum og reglu og stjórnmálasviðinu." Hann hélt þegar í stað til fundar við Adolfo Suarez forsætisráðherra þegar hann kom aftur til Madrid. — Sjálfhelda í Líbanon Framhald af bls. 12 mæöi af hálfu beggja aðila í síöustu átökum vegna hiks forsetans við að segja af sér. Kristni hægrileiötoginn Camille Chamoun fordæmir Sarkis í opnu bréfi í dag, kallar hann uppgjafasinna og skorar á hann aö segja opinskátt frá því sem fyrir honum vaki í stað þess að leyna þjóöina fyrirætlunum sínum. Óháöa blaöiö An Nahar haföi jafnframt eftir sýrlenzkum embættis- mönnum að Sarkis yröi fljótt aö gera upp viö sig hvort hann ætlaöi aö segja af sér eöa ekki. Utvarpsstöð falangista sagöi aö ótryggur friöur ríkti í kristnu hverfun- um í austurhluta Beirút í dag en nokkrir hefðu særzt af byssukúlum leyniskyttna sem hafa veriö athafna- samir síðan aöalátökin hættu á fimmtudag. — Tilheyrir dellunni... Framhald af bls. 14. dómar þeirra hófust kt. 13 og stóöu fram aö kvöldmat. Auk þessa fóru í gær fram dómar kynbótahryssa og kl. 15 í gær voru þau hross, sem seld veröa á söluuppboöinu síödegis á laugar- dag, kynnt. Eins og getið var hér að framan töldu forráðamenn mótsins aö í gær væru komin um 5000 manns á svæðiö og víst er aö áhorfendasvæðið var þéttsetiö þar sem gæðingarnir voru dæmd- ir. Og margir höfðu setiö þar alveg frá hádegi og fram undir kvöldmat en veöur var hið besta. Ofan til í áhorfendaskaranum komum viö auga á Magnús Jóhannsson ráösmann á Hólum í Hjaltadal en Magnús sat einmitt þann hest, sem sigraði í flokki klárhesta meö tölti á landsmótinu á Vindheimamelum 1974, Gamm frá Hofstöðum. Viö spurðum Magnús, hvort hann teldi þá klárhesta, sem hér væru sýndir, betri eöa lakari en þá, sem sýndir voru á mótinu 1974? „Mér líst alveg Ijómandi á þá og bæöi meöal þeirra og í öðrum flokkum er margt af alveg úrtöku- hrossum. Ég verö aö segja aö nokkrir klárhestanna eru miklu betri en t.d. Gammur var 1974 og einkunnir þessara hesta hljóta aö sýna þaö svart á hvítu. Ástæöan fyrir þessu er kannski ekki endi- lega betri hestar heldur er þjálfun þeirra mun meiri og betri. Og þaö er ekki laust viö aö manni hlýni öllum innra viö að sjá marga jafn góöa skeiðspretti og ég hef séö hjá kynbótahryssunum í dag,“ sagði Magnús og benti okkur yfir völlinn, þar sem ein hryssan flenglá á skeiði. íslandsmetin eiga eftir að fjúka 6 mótinu Fyrir neöan Hofmannaflöt voru tveir Borgfiröingar aö koma til mótsins um Uxahryggi. Þetta voru þeir Eggert Bergsson frá Laugar- ási í Hvítársíðu og Ólafur Þorkels- son úr Þverárhlíöinni. Þeir sögöust hafa lagt upp í gær og gist á bæ í Borgarfirði í nótt en í dag heöu þeir veriö á ferö í rúma fjóra tíma. „Maöur er meö þessa dellu og þaö tilheyrir víst að elta þessi mót,“ sagöi Eggert og Ólafur bætti við: „Þau eru nú yfirleitt heldur ekki leiðinleg hestamannamótin. Þetta veröur gott mót og ég tala nú ekki um ef þessi veöurblíöa verður alla mótsdagana. Hrossin eru alltaf í framför og ég er sannfæröur um aö það eigi mörg íslandsmet eftir aó fjúka á þessu móti.“ -t.g. - A gagnvegum Framhald af bls. 9. efni í annað bréf og miklu lengra. Eins og þú veizt ríða húsum hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum nokkrir ungir sperrileggir, sem aldrei hafa migið í saltan sjó, og þora ekki inn fyrir Elliðaár eða suður fyrir Kópavogslæk. Þeir hafa ekki nennt að kynna sér landsbyggðarstefnuna, sem Sig- urður frá Vigur og fleiri garpar Sjálfstæðisflokksins hófu til vegs á sjötta og sjöunda áratugnum. Loks þegar þeirri stefnu er gefið afl með fjármagni, sem hófst að marki undir forystu Bjarna Bene- diktssonar 1965 með stofnun Atvinnujöfnunarsjóðsins, þá taka þessi ungmenni út úr sér túttuna og væna þingmenn um glæpastarf- semi og halda því fram að þeir útdeili skattpeningum almennings að eigin geðþótta. Hvenær ætli þeir hefji aðförina að fjárveitinganefnd Alþingis og rægi af henni vald hennar undir ákæru um að hún útdeili fé almennings að eigin geðþótta? Vertu svo kaert kvödd og fyrir- gefðu flýtisskrifið og feginn vildi ég eiga þig að á Alþingi eftir næstu kosningar. Grund. Skutulsfirði 9. dag júlí-mánaðar 1978 Sverrir Hermannsson. — Minning Sigurður Framhald af bls. 22. og betur hve mikil ítök Hólmurinn og umhverfið áttu í honum. Við ræddum margt saman og hann fór ekkert dult með að vistaskiptin væru honum kærkomin og til- hlökkun. Fölskvalaus trú hans á betri tíð í ríki frelsara síns sem hann hafði þjónað svo lengi lýsti ásjónu hins virðulega öldungs og nú hefir honum orðið að ósk sinni. Ég minnist sr. Sigutðar með einlægu þakklæti. Hann var mér og fjölskyldu minni hlýr samferða- maður og sálusorgari. Vann mörg preststörf fyrir okkur af sinni alúð og hátíðleika. Þessi kveðja mín til góðs samferðamanns er þökk fyrir samfylgd liðins tíma frá mér og mínum. Það var lán okkar að eiga samfylgd hans. Guð blessi hann á nýjum vegum og minningu um góðan dreng. Árni Helgason — Snorri Jónsson... Framhald af bls. 32 var strax og það barst lagt inn á gjaldeyrisreikning í Lands- banda íslands og er geymt þar í v-þýzkum mörkum, samanlagt að upphæð 29.450,92 þýzk mörk. Að lokum skal á það bent, að fjarstæða er að leita að því fé hjá Alþýðusambandi Islands, sem ráðamenn Alþýðuflokksins virðast ekki geta gert grein fyrir, eftir því sem Morgunblað- ið segir." I sambandi við þessa athuga- semd Snorra Jónssonar vill Morgunblaðið aðeins taka fram að það hefur ekki ruglað neinu saman. í frétt blaðsins segir í gær: „Morgunblaðið spurði Snorra, hvort það væri mögu- leiki, að Alþýðusambandið hefði fengið þessa peninga vegna misskilnings, þar sem Alþýðu- samböndin og jafnaðarmanna- flokkarnir væru svo miklu ná- tengdari á hinum Norðurlönd- unum en hérlendis. Það kvaðst Snorri ekki telja, peningarnir frá Finnum hefðu verið sendir á nafn, fyrir þá hefði verið kvittað og fyrir þá þakkað. Jafnframt hefði verið tilkynnt um það áður, að þessir peningar myndu koma. Snorri kvað það hafa verið ákvörðun stjórnar sam- bandsins í Finnlandi, að af- henda þessa peninga til Alþýðu- sambandsins." Síðar segir í fréttinni, haft eftir Snorra: „Ég fullyrði," sagði Snorri, „að það eru engir peningar í geymslu hjá Alþýðusambandinu, sem ætlaðir voru alþýðuflokknum." Kvöldvaka í Frí- kirkjunni í í KVÖLD kl. 22 gangast félögin Kristileg skólasamtök og Kristi- legt stúdentafélag fyrir kvöld- vöku í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á vöku þessari verður fjallað um spurninguna Hver er tilgangur lífsins og leitast við að svara henni á þennan hátti Jesús Kristur er svarið. Sigurður Árni Þórðarson guð- fræðinemi mun fjalla um efnið í stuttri ræðu auk þess sem fleiri taka til máls með tali og söng. Fimm manna leikhópur túlkar í þætti ýmis sjónarmið og lífsstefn- ur og endar þátturinn á því að varpað verður fram nokkrum atriðum úr kenningu Jesú Krists. KSS og KSF hafa áður staðið fyrir sameiginlegum fundum og kvöldvökum af þessu tagi, en félögin starfa meðal framhalds- skólanema og stúdenta að því að útbreiða áhrif kristindómsins. Hafa félögin einnig haft mikið samstarf við systurfélög á Norður- löndum varðandi þátttöku í mót- um og hefur m.a. verið haldið hér á landi norrænt kristilegt stúdentamót í tvö skipti og stefnt er að því að halda hérlendis svonefnt norrænt kristilegt skóla- mót árið 1980. Gæðavara á góðu verði Girmi rafmagnstækin létta þér heimilisstörfin. ★ Girmi eldhústæki ★ Girmi heimilistæki ★ Girmi snyrtitæki RAFIDJAN / RAFTORG Aðalumboð Kirkjustræti 8, s.: 19294 — 26660 Girmi raftækin fást í öllum helstu raftækjaverslunum landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.