Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 21 Útgerðarfélög verða kraf- in um að fylgja samningum Frá fundi farmanna í Sjómannafélagi Reykjavíkur í gærkvöldi. (Ljósm. Emilía). Farmenn í Sjómannafélagi Reykjavíkur: Mótmæla afskiptum stjórn- valda af kjarasamningum Á FUNDI í stjórn og samninga- nefnd Sjómannafélags Reykja- víkur í gærmorgun var eftirfar- andi samþykkt: „Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur og samninganefnd mótmælir harðlega bráðabirgða- lögum ríkisstjórnarinnar um stöðvun verkfalls á farskipum. Jafnframt lýsir stjórnin yfir furðu sinni á einróma stuðningi ríkis- stjórnarflokkanna við þessa að- gerð þrátt fyrir fyrri yfirlýsinga og baráttumál er þeir komust í þá aðstöðu að geta sett slík lög. Vegna þessarar lagasetningar Ilötn. 19. júní. FJÁRHAGSÁÆTLUN fyrir Hafnarhrepp hefur verið lögð fram og eru heildartekjur áætlað- ar 400 milljónir króna. Helstu tekjuliðir eru útsvör, aðstöðugjöld og fasteignaskattur 320 milljónir en helstu gjaldaliðir eru verklegar framkvæmdir 173 milljónir, ýmis vill stjórn félagsins og samninga- nefnd taka fram eftirfarandi: Strax og ljóst var að Vinnuveit- endasamband íslands myndi hrekja Sjómannafélag Reykja- víkur til verkfallsaðgerða með ótímabæru verkbanni sínu á undirmenn farskipa, sem hvorki höfðu boðað til verkfalls né lagt fram kröfur um breytingar á kjarasamningum, gerði stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur sér grein fyrir því, að til lagasetn- ingar kynni að koma vegna yfir- standandi verkfalls yfirmanna og samstöðu vinnuveitenda og ríkis- lögboðin gjöld 40 milljónir, heii- brigðis-, félags- og menntamál 40 milljónir, kostnaður við sveitar- stjórn 29 milljónir og ýmis útgjöld 65 milljónir. Tekjur og gjöid hafn- arsjóðs eru áætlaðar 76 milljónir og vatnsveitu hreppsins 58 milljónir. — Gunnar. stjórnar í launastefnumálum. Þá strax lýsti stjórn félagsins því yfir að hún myndi aldrei mæla með öðru en slíkum lögum sem öðrum yrði hlýtt. Það gerir stjórn og samninga- nefnd Sjómannafélagsins einnig nú þrátt fyrir bann ríkisstjórnar- innar og stuðningsflokka hennar við löglega boðuðu verkfalli. Deilu félagsins við útgerðar- menn er þó ekki lokið. Nú þegar verður sú krafa gerð á útgerðirnar að lögbundnum sam- ningum verði hlýtt af þeirra hendi ekki síður. Því verður sú krafa gerð á hendur Eimskipafélags Islands að það fylgi landslögum og tryggi að þau séu ekki brotin á trúnaðarmönnum félagsins. Öll útgerðarfélögin verða krafin um að fylgja lögboðnum samning- um við mannaráðningar, for- gangsrétt í skipsrúm og fjölda undirmanna í áhöfn auk vinnu- tímaskyldu. Bendir stjórn og samninganefnd Sjómannafélags Reykjavíkur t.d. á að hásetar eru ekki skyldir til að vinna yfirvinnu við losun og lest- un í erlendri höfn þegar.sjóvökur eru ekki staðnar. Vegna ákvörðunar yfirmanna um að neita að vinna yfirvinnu á heimahafnarsvæði lýsir stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur því yfir að félagsmenn þess munu ekki vinna þennan tíma og á þessu svæði við skipsstörf nema ábyrgur yfirmaður skipsins sé til staðar við vinnustjórn." EFTIRFARANDI samþykkt var gerð á fundi farmanna í Sjómanna- félagi Reykjavíkur í gærkvöldi: „Fundur farmanna í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur haldinn í Lindarbæ 20.06.79 samþykkir að taka undir harðorð mótmæli stjórnar- og samn- inganefndar Sjómannafélags Reykjavíkur vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar og stuðnings- flokka hennar um áframhaldandi afskipti þeirra af kjarasamningum launþega og vinnuveitenda. Fundurinn mótmælir harðlega að ríkisstjórnin verði við kröfum lang- stærsta, best búna og ríkasta skipa- félagsins um stórhækkun farm- gjalda á sama tíma og þeir telja sjálfsagt að neita farmönnum um iaunabætur til að bera hluta þeirrar stórvaxandi kaupmáttarrýrnunar sem allir finna fyrir. Ef ríkisstjórnin verður við þessari ósk er um vísvitandi verðbólguað- gerð að ræða sem hún verður þá að bera fulla ábyrgð á. Fundurinn felur stjórn og starfs- mönnum sínum að vinna ítarlega skýrslu um laun, vinnutíma, fjar- vistir, álag, ábvrgð, naúðsyn verk- kunnáttu, auk slysahættu í starfi og flokkunar tryggingarfélaga á þeirri áhættu. Skal skýrsla þessi send kjaradómi þeim sem skipaður verður samkvæmt bráðabirgðarlögum og sömu aðilar jafnframt vera reiðu- búnir til að flytja mál farmanna munnlega við dómendur svo sem 1. gr. laganna segir. Þá samþykkir fundurinn að þegar dómsniðurstaða liggur fyrir þann 31. ágúst skuli stjórn og starfsmenn senda hana ásamt efnislegu mati sínu á niðurstöðunni til félags- manna. Þetta ásamt viljayfirlýsingu félagsntanna um uppsögn á úrskurði kjaradóms skal liggja fyrir eigi siðar en 30. nóv. n.k. eða þegar lög þessi leyfa uppsögn." Boðsmót TR: Róbert sigurvegari BOÐSMÓTI Taflfélags Reykjavíkur i skák lauk í gærkvöldi. Þátttakend- ur voru um 40 talsins og var þeim skipt í tvo riðla. Þegar ólokið var síðustu umferðinni hafði Róbert Harðarson TR þegar tryggt sér sigur, hafði unnið allar sínar skákir, 6 að tölu. Róbert er núverandi unglingameistari íslands í skák. Fjárhagsáætlun lögð fram á Höfn Eru þeir að fá 'ann -> ■ ■ Hoplaxar? Ónafngreindur og reiður stang- veiðimaður setti sig í samband við þáttinn í gær og sagði farir sínar ekki sléttar. Hann var nýkominn úr Miðfjarðará, en til þessa hafa borist góðar fréttir af veiði þar og hún sögð betri en annars staðar gerist. Samkvæmt þeim tölum sem birst hafa hefur veiðin verið betri en á sama tíma í fyrra og er áin þá sú eina á landinu sem getur af því státað á þessu kalda vori. Viðmælandi þáttarins hafði hins vegar aðra sögu að segja, en hann sagði mjög stóra prósentu af laxin- um, sem á land hefur komið, vera hoplax, eða niðurgöngulax sem leitar til sjávar eftir veturinn. Hann sagði, að lítið sæist af göngulaxi í ánni, hins vegar lædd- ust ýmsar helstu veiðiklærnar með veggjum með veiði sína. Sem dæmi sagði hann einn veiðistað hafa gefið 12 laxa á skömmum tíma, alla á spón. Nokkru síðar hefði hann komið á viðkomandi stað og þá hefði þar ekkert sést nema hoplax og hefði hann dregið einn á land til að sannfæra sjálfan sig. Fleiri hoplaxa dró viðmælandi þáttarins, en sá lítið af göngufiski og sagði hann heimamenn ekkert vilja um þetta ræða. Það hefur frést, að óvenjumikið hafi verið af hoplaxi á ferðinni í byrjun veiðitíma víða um land, t.d. í Elliðaánum og Laxá í Aðaldal. Venjulega eru fiskar þessir farnir til sjávar áður en veiðitíminn hefst, en einhverra hluta vegna eru þeir víða seinna á ferðinni en áður. Þokkalegt í Laxá í Leirársveit Veiði hófst í Laxá í Leirársveit þann 15. þessa mánaðar og í gær voru komnir 18 laxar á land, 6 í gær, 4 á mánudag, einn á sunnu- dag, 2 á laugardaginn og 5 fyrsta daginn. Áin hefur verið skollituð og vatnsmikil, en töluvert hefur sést af laxi undir Laxfossi, en lítið þar fyrir ofan. Þetta hefur til þessa verið mjög vænn lax, frá 7 pundum og upp í 15 pund. PARTNER ER VÖRUMERKI FYRIR VANDAÐAN OG ÞÆGILEGAN FATNAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.