Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 27 Ekki er félags- skapurinn góður Á meðfylgjandi tölfu má sjá að 127 ríki sem taflan nær til höfðu náð betri árangri við verðbólguna en við íslendingar og er þá ekki miðað við eitt ár heldur meðaltal áranna 1970 til 1976. 1. Chile .................................. 208,3% 2. Argentína ...............................100,6% 3. Uruguay................................. 65,9% 4. Laos .................................... 35,5% 5. Zaire ................................... 27,9% 6. Uganda................................... 27,7% 7. Norður-Yemen .......................... 27,1% 8. ísland 26,3% 9. Bangladesh 26,0% 10. ísrael 25,3% (Efstu lönd af lista yfir 135 ríki.) Helmild: The Economlst. Haukur Bjömssoil framkvæmdastjóri FÍI: Utlit fyrir langt fram= leiðslustopp í sumar Haukur Björnsson fram- kvæmdastjóri Félags ísl. iðn- rekenda sagði í viðtali við Viðskiptasíðuna að iðnfyrir- tæki væru nú byrjuð að stöðv- ast vegna hráefnisskorts og fyrirsjáanlegt að fleiri lok- uðu á næstunni. Einnig er rétt að benda á að ekki kemst allt í sama farið aftur um leið og farmanna- verkfalli lýkur. Það mun taka 2—4 vikur að fá hráefni til landsins eftir að skipin hefja siglingar. Vegna þess ástands sem skapast hefur, nýta all- mörg fyrirtæki nú einungis um helming afkastagetu sinnar. Fyrir utan þessi slæmu áhrif eiga nú mörg útflutningsfyrirtæki það á hættu að tapa mjög viðkvæm- um mörkuðum, sagði Haukur að lokum. Verðbólgan: ísland 87%, USA17% Ncyzluvöruverðlag í Bandaríkjunum hækkaði um 17% á árunum 1977 og 1978 eða að meðaltali um 8,5% á þessum árum. Á sama tímabili hækkaði almennt neyzluvöruverðlag hér á landi um 87% 1970-100 180 Danskur skipasmíðaiðnaður: Markaðshlutdeildin jókst þrátt fyrir 54% fækkun starfsmanna Á tfmabilinu 1. janúar 1975 til 1. apríl 1979 fækkaði starfsmönn- um helztu skipasmfðastöðva f Danmörku úr 19810 í 9150 manns. Þrátt fyrir þessa þróun, eða e.t.v. vegna hennar, juku Danir hlutdeild sfna á vestur- evrópska skipamarkaðinum úr 6,1% í 6,6% á þessu tfmabili. Er þetta ekki sízt athyglisvert fyrir þá staðreynd að í flestum löndum Vestur-Evrópu er skipa- smíðaiðnaðurinn ríkisstyrktur í dag, nema í Danmörku. Gunnlaugur Olafs- son — Kveðjuorð Fæddur 10. nóvember 1919 Dáinn 3. júní 1979 Gulli vinur minn er dáinn. Það tekur mann dálítinn tíma að átta sig á því þegar það ber svo brátt að, því þótt hann hafi átt við vanheilsu að stríða undanfarin ár, kom andlát hans okkur, sem til hans þekktu, á óvart. Atvikin höguðu því þannig, að ég var á sjúkrahúsi þegar útför hans var gerð, og gat ég því ekki fylgt honum síðasta spölinn. Kynni okkar voru allt frá því við lékum okkur saman smástrákar á Njálsgötunni, enda næstu ná- grannar, og tókst með okkur vinátta með mörg sameiginleg áhugamál, sem hélst fram á full- orðinsár. Og sú vinátta og kunn- ingsskapur hélst eftir að við báðir stofnuðum heimili, sem var um svipað leyti, og eigum við hjónin margar góðar minningar frá sam- verustundum okkar með Maggý og Gulla. Þegar fram liðu stundir tók brauðstritið meiri tíma, og langur vinnudagur hjá okkur báðum leiddi af sér að fundum okkar bar ekki eins oft saman og við hefðum kosið. Alltaf hittumst við samt öðru hvoru og rifjuðum upp gamla daga, strákapör á Njálsgötunni og ýmislegt fleira. Gulli var mörgum mannkostum búinn. Hann var heilsteyptur per- sónuleiki, sannur félagi og vinur. Áberandi í fari hans alla tíð var drenglyndi, ósérhlífni og þessi skemmtilega létta lund sem hreif slla Scis kynntust nönum. ug sannarlega var hann hrókur alls fagnaðar á gleðistund í vinahópi. Það hefir verið sagt, að sá sem er barngóður sé góður maður. Gulli var barngóður svo eftir var tekið. Á yngri árum stundaði hann íþróttir töluvert m.a. knattspyrnu með Knattspyrnufélaginu Fram og var alltaf mikill fylgismaður Fram. Þá skaraði hann fram úr í hlaupum og sundi. Sérstaklega var hann frábær sundmaður sem kom vel í ljós þegar hann var í Héraðs- skólanum á Laugarvatni. Keppti hann þar við marga góða sund- menn og sýndi það sig þá, að hann hefði náð langt að minnsta kosti í sundi ef hann hefði ekki orðið fyrir meiðslum í hné, sem varð til þess að hann varð að hætta íþróttaiðkunum. Var það skaði því hann hafði hið rétta keppnisskap, lagði sig allan fram og hlífði sér aldrei. Hann var alla tíð áhuga- maður um skák og tefldi mjög vel. Einnig var hann góður bridgespil- ari. Um það bera vott allir þeir verðlaunagripir sem hann hefir hlotið í spilakeppnum í bridge. Á tímabili stundaði Gulli laxveiðar töluvert. Naut hann þess mjög að vera úti í náttúrunni við góða laxveiðiá. Gulli var víðlesinn og margfróð- ur og hafði góðan smekk á bókum. Snemma bar á því hve íslensk ljóð voru honum hugleikin. Á yngri árum okkar keyptum við á tíma- bili eina ljóðabók á mánuði. Var hann fljótur að velja úr þau ljóð sem gripu hug hans og læra þau. Kunni hann mikið af ljóðum og stökum. í íslendingasögunum var hann og vel heima og vitnaði oft í þær. Nú þegar leiðir skilja er ég þakklátur fyrir að hafa átt vináttu hans. Hann skilur eftir sig djúp spor í hugum okkar sem þekktum hann. Hans létta lund og glaðværð gerði það að verkum að frá honum fór fólk glaðara en það kom. Við hjónin sendum þér, Maggý- mín, börnum ykkar, tengdabörn- um og barnabörnum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Friðþjófur Björnsson CITROÉN^ GLÆSILEIKI ÞÆGINDI - CITROÉNA ER ÁVALLT Á UNDAN Fáir bílar hata vakiö jafn mikla athygli og CITROEN CX, þegar hann leit dagsins Ijós. Þetta er lúxusbíll í sérflokki og gerður fyrir þá, sem gera mestar kröfur til aksturseiginleika, þæginda og fegurðar. CITROEN CX er fáanlegur í tveim gerðum, sem 5 manna fólksbíll eða stationbíll, sem hægt er að bæta í 3 aukasætum og er hann þá fyrir 8 manns. Talið við sölumenn okkar um verð og hina hagkvæmu greiðsluskilmála. Örfáum bílum óráðstafað, til afgreiðslu strax. G/obus? J LAGMULI 5. SIMI81555 !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.