Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 Hafrannsóknastofniui: Sjórinn umhverfis landið fremur kaldur HAFRANNSÓKNASKIPIN Árni Fridriks.son og Bjarni Sæmundsson könnuðu ástand sjávar á miðunum umhverfis land í janúar og febrúar í vetur. Mælingar skipanna voru nú nokkru umfangsminni en oft áður, en þær gefa þó upplýsingar um ástand sjávar á miðunum í stórum dráttum, segir meðal annars í fréttabréfi frá Hafrannsóknastofnun. Hér fara á eftir helztu niðurstöður leiðangranna: Sjórinn er fremur kaldur allt í kringum landið í vetur, bæði hlýi Nýtt hluta- félag um skip í stað Smyrils SÍÐASTLIÐINN fimmtu- dag var stofnað í Færeyjum almennt hlutafélag um kaup á sænsku ferjunni Gustav Vasa og mun hún taka við millilandasiglingu Smyrils í sumar. Ferjan er um helmingi stærri en Smyrill, tekur um 1.000 far- þega, þar af 850 í kojur og 250 bíla. Þegar hafa um 20.000 farþegar bókað sig, sem er meira en á sama tíma í fyrra og er reiknað með að farþegar alls verði um 60.000 í sumar. Óli Hamar, skipstjóri, sem kosinn var framkvæmdastjóri hlutafélagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að skipið kostaði um 250 milljónir ís- lenzkra króna og yrði afhent 21. apríl. Það myndi hefja sigl- ingar um mánaðamótin maí- júní og sigla sömu leið og Smyrill. Sagði hann skipið mjög vandað og aðstöðu til þjónustu miklum mun betri en var um borð í Smyrli. Gat hann þess meðal annars, að í veitingasölum skipsins gætu um 1.000 manns setið samtím- is, en bæði væri þar um að ræða teríu með sjálfsafgreiðslu og vandaðan veitingasal, þar sem þjónað væri til borðs. Smyrill hefði aðeins rúmað 500 farþega, þar af 180 í kojur og eingöngu hefði verið um sjálfs- afgreiðslu í veitingasal að ræða. Sagði hann, að fargjöld yi;ði sambærileg við fargjöldin með Smyrli og óttaðist hann ekki samkeppni frá íslending- um. Ljóst væri að nægilegt svigrúm væri fyrir tvö skip af þessu tagi. Það sem mestu máli skipti fyrir Færeyinga væri það, að nú gætu þeir ferðast með mjög góðu eigin skipi til nágrannalandanna, en áður hefðu Danir meðal annars haldið uppi ferðum milli land- anna með skipinu Winston Churchill, sem hefði verið mun betra skip en Smyrill. Vegna þessa meðal annars reiknaði hann með verulegri farþega- aukningu í sumar. Þá gat óli Hamar þess, að skipið væri ekki í eigu fær- eysku landstjórnarinnar, held- ur væri það hlutafélag fjöl- margra Færeyinga og óháð duttlungum stjórnvalda. En eins og kunnugt er hefur lengi verið áhugi í Færeyjum á því, að kaupa stærra skip en Smyr- il, en það hefur hingað til strandað í landstjórninni. Sagði hann, að skipinu hefði enn ekki verið gefið nafn, er hlutafélagið sjálft héti Smyril Line. Enn væri ekki gengið frá ráðningu skipstjóra og skip- verja, en sölusamningar yrðu formlega undirritaðir innan skamms og þá yrði ráðning hafin. sjórinn fyrir sunnan og vestan land og kaldi sjórinn fyrir norðan og austan land. Á Selvogsbanka er hitinn 5—6,5° sem er lægra en oftast sl. 10 ár. Út af Faxaflóa og Breiðafirði liggja engar mælingar fyrir, en mælingar fyrir Vest- fjörðum sýna hlýsjóinn með hita- stigi allt að 5°. Athuganir féllu niður út af Kögri vegna veðurs, en mælingar fyrir Norðurlandi sýna 0—1,5° sjávarhita, sem er kalt en þó ekki neitt einsdæmi fyrir árs- tímann. Sama er að segja um mið- in út af Austfjörðum, þar var sjávarhiti 1—2°. Kalda tungan djúpt út af Norð- austurlandi, þ.e. Austur- Islandsstraumur, teygir sig í vet- ur langt suður og austur í haf, en hitasigið sem er lægst +0,8°, bend- ir ekki til þess að hafís komi úr þeirri átt i vetur og vor. Hver framvindan verður síðar í vetur og í vor er ekki unnt að full- yrða neitt um. Samkvæmt reynslu má ætla að sjór veri áfram frem- ur svalur við landið, en inn- streymi hlýsjávar á norðurmið gæti þó ráðið í vor. Ekki virðist vera hætta á miklum hafís við landið ef dæma má eftir ástandi sjávar í kalda sjónum djúpt aust- ur með Norðurlandi. Morgunblaðið/ G. Berg Valt við lögreglustöðina á Akureyri Akureyri, 18. febrúar. LÖGREGLAN á Akureyri þurfti ekki að fara langt til að komast á vettvang þegar þungur malarflutningavatn valt hér á Akureyri í dag. Verið var að flytja ofaníburð á bílastæðið við lögreglustöðina, er vagninn valt. Ýmsar tilfæringar þurfti til að koma honum á réttan kjöl og var meðfylgjandi mynd tekin er verið var að ljúka því verki. Rækjukaupendur: Báðu um 10 milljónir til verðjöfnunar í FRAMHALDI ákvörðunar um nýtt verð á rækju í janúarmánuði, nýtt viðmiðunarverð og verðbil hjá Vcrðjöfnunarsjóði hafa staðið deil- ur milli rækjukaupenda og sjó- manna. Telja kaupendur, að verðið hafi verið ákveðið of hátt og verð- bilið hjá Verðjöfununarsjóði of mikið og telja með því, að gert sé ráð fyrir of mikilli greiðslu frá þeim í sjóðinn. Þá hafa þeir farið fram á, að sjóðurinn greiði það, sem upp á vantaði síðasta verðtímabil, en því hefur stjórn hans algjörlega hafnað. Ekki er heimild fyrir því í lögum sjóðsins, að verð sé bætt eftir á, en á síðasta verðtímabili tæmdist rækjudeild sjóðsins áður en jöfnun náðist. Sú upphæð, sem um hefur verið rætt í þessu sam- bandi nemur um 10 milljónum króna. Nú er reiknað með því, að fé fari að koma inn í deildina þar sem verð á rækju hefur hækkað erlendis. Rækjukaupendur fóru fram á að þær tekjur yrðu notað- ar til þess að borga það sem upp á vantaði í fyrra. Því hefur verið hafnað, enda ekki heimilt sam- kvæmt lögum sjóðsins. Þar er kveðið á um að fénu megi aðeins ráðstafa þegar þörf er á; það er þegar verð erlendis fer niður fyrir viðmiðunarverð. Að sögn sjávarútvegsráðherra eru því engar líkur á, að útvegað verði fé til að jafna þennan ágreining. Sérframboð í Vestfjarðakjördæmi: Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hafnar hugmyndum um DD-lista MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að borinn verði fram nema einn listi í nafni flokksins í Vestfjarðakjördæmi og eindregið skorað á Sigurlaugu Bjarnadóttur og aðra sjálfstæðismenn í kjördæminu að láta af hugmyndum um sérframborð og fylkja sér um Sjálf- stæðisflokkinn. Á fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var föstudaginn 18. febrúar, voru eftirfarandi tillögur samþykktar samhljóða: „Að gefnu tilefni tekur mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins fram að hún hefur þegar staðfest fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi og aðrir framboðslistar verða ekki bornir Finnur Einarsson fyrrum kennari og bóksali látinn FINNUR Einarsson, fyrrverandi kennari, bóksali og bókaútgefandi lézt í Reykjavík í gærmorgun, áttatíu og fjögurra ára að aldri. Finndur fæddist 6. september 1898 í Reykjavík og voru foreldrar hans hjónin Einar Finnsson járnsmiður og Vigdís Pétursdótt- ir. Finnur varð stúdent frá MR 1918, og lauk heimspekiprófi við Kaupmannahafnarháskóla ári síð- ar. Hann stundaði nám í stærð- fræði, eðlisfræði og efnafræði við Polyteknisk Læreanstalt í Kaup- mannahöfn og kenndi eftir það við MR, Kvennaskólann, Iðnskólann og verzlunarskólann. Finnur starfaði sem skrifari á Hagstofu íslands og síðar sem gjaldkeri hjá verzlun Garðars Gíslasonar. Finn- ur starfaði síðan um árabil sem bóksali og bókaútgefandi. Hann ritaði m.a. margar greinar í Morg- unblaðið um verzlunarmál. Eftirlifandi eiginkona Finr.s er Finnur Einarsson Guðrún Magnúsdóttir Einarson. Þau eignuðust tvö börn. fram í nafni Sjálfstæðisflokksins né merktir listabókstaf hans.“ Síðari samþykktin er á þessa leið: „Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skorar eindregið á Sigurlaugu Bjarnadóttur og aðra sjálfstæð- ismenn í Vestfjarðakjördæmi sem látið hafa í ljós áhuga á hugsan- legu sérframboði í komandi al- þingiskosningum að láta af þeirri ætlan sinni en fylkja sér í staðinn einhuga um sjálfstæðisstefnuna og framboðslista flokksins og stuðla að sem bestum árangri Sjálfstæðisflokksins í komandi al- þingiskosningum." Af þessu tilefni sneri Morgun- blaðið sér til Kjartans Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, og spurði hann hvort samþykktir þessar væru í samræmi við fyrri afgreiðslur svipaðra mála. Kjartan sagði: „Þessar samþykktir eru í fullu samræmi við fyrri afstöðu mið- stjórnar flokksins til mála af þessu tagi. Er þar skemmst að minnast ákvarðana miðstjórnar í nóvember 1979 vegna sérframboða L-lista í Suðurlandskjördæmi og S-lista í Norðurlandskjördæmi eystra." „Rétt er að taka sérstaklega fram,“ sagði framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins „að röksemd- ir þeirra er stóðu að S-listanum í Norðurlandskjördæmi eystra 1979 voru helstar þær, að kjördæmis- ráð flokksins þar ákvað að viðhafa ekki prófkjör við val manna á framboðslista flokksins. Mið- stjórnin hafnaði þessum röksemd- um og mótmælti að bornir yrðu fram fleiri en einn listi í nafni Sjálfstæðisflokksins í kjördæm- inu. Sigurlaug Bjarnadóttir átti þá sæti í miðstjórninni og studdi þessa ákvörðun hennar." ÁTVR Akranesi: Guöný Ársæls- dóttir útsölustjóri GUÐNÝ Ársælsdóttir, Akrancsi, hefur verid skipuó útsölustjóri Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkis- ins á Akranesi frá 1. marz næst- komandi aó telja. Alls voru umsækjendur um stöðuna 24 og nær allir frá Akra- nesi, 6 konur og 18 karlar. Stefnt er að því að áfengisútsalan á Þjóðvegi 11 verði opnuð um miðj- an marzmánuð, en húsnæðið þar hefur ÁTVR tekið á leigu til þriggja ára. Nú eru um 10 ár síð- an síðast var opnuð áfengisútsala og var það í Vestmannaeyjum. Kammersveitin meö tónleika ídag KAMMERSVEIT Reykjavíkur held- ur þriðju tónleika starfsársins í Bú- staðakirkju í dag, sunnudaginn 20. febrúar, kl. 17. Leikin verða verk eftir Wolf- gang Amadeus Mozart, föður hans, Leopold, og nokkra sam- tímamenn, Michael Haydn, K.D. von Dittersdorf og Antonio Sali- eri, sem Peter Schaffer hefur gert ódauðlegan í leikriti sínu „Ama- deus“, sem sýnt var í Þjóðleikhús- inu á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.