Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 39 Jón Eiríksson skip stjóri — Minning Jón Eiríksson skipstjóri andað- ist í sjúkrahúsi hér í borg hinn 30. desember sl. á nítugasta aldursári. Vil ég mega kveðja hann með fá- einum minningarorðum þó nokkuð sé liðið síðan hann var lagður til hinstu hvílu. Jón Eiríksson var fæddur 20. júlí 1893 í Tungu í Örlygshöfn við Patreksfjörð. Hann var kominn af bændafólki í báðar ættir. Snemma beindist hugur Jóns að sjónum og sjómennsku og 12 ára gamall ýtti hann úr vör í fyrsta sinn. Fyrst réri hann á opnum bátum frá Kollsvík og Látradal við Pat- reksfjörð en fór brátt á fiskikútt- era sem Pétur A. Ólafsson gerði út frá Geirseyri við Patreksfjörð. Fljótlega reyndi hann margs kon- ar störf, ýmist á fiskiskipum eða flutningaskipum og lauk far- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík árið 1914. Tveim árum síðar lauk hann einnig far- mannaprófi í Danmörku. Þegar Eimskipafélagið eignað- ist Es. Lagarfoss, árið 1917, réðst Jón á skipið sem 2. stýrimaður og varð brátt 1. stýrimaður á skipinu. Var það upphafið að löngum starfsferli hans hjá Eimskipafé- laginu. Hann var í siglingum hjá félaginu óslitið til ársins 1959, er hann lét af starfi sökum aldurs. Átti hann þá 42ja ára starfsaldur að baki hjá félaginu, þar af 29 ár í stöðu skipstjóra. I maí 1941 féll honum og skips- höfn hans á Es. Brúarfossi sú gæfa í skaut að bjarga 33 breskum skipbrotsmönnum suðvestur af Grænlandi og í september 1942, 41 manni af bresku skipi á Atlants- hafi. Hafði báðum þessum skipum verið sökkt af kafbátum. Jón Eiríksson var einn af stofn- endum skipstjórafélags íslands árið 1936 og var formaður félags- ins í rösk 13 ár. Vann hann ötul- lega að málefnum stéttar sinnar og átti drjúgan þátt í góðum og farsælum framgangi lífeyrismála þeirra. Kvæntur var Jón Herþrúði Hermannsdóttur Wendel. Slitu þau samvistum. Síðari kona hans var Guðbjört Einarsdóttir. Hún er látin fyrir nokkrum árum. Var þeim tveggja barna auðið. Alls urðu börn Jóns fimm að tölu. Með Jóni Eiríkssyni hverfur há- aldraður heiðursmaður eftir langt og litríkt dagsverk. Hann var í senn traustur og „stefnufastur" skipstjórnarmaður og athafna- samur á sviði félagsmála. Þraut- seigur og úrræðagóður, greindur og ritfær í betra lagi. Má þar minnast bókarinnar „Rabbað við Lagga", sem Jón lauk við að rita hálfníræður að aldri. Segir hann þar frá mörgum eftirminnilegum atburðum og æviminningum sín- um. Hann ritaði einnig bókina „Skipstjórar og skip“, sem út kom árjð 1971. Er það gagnmerkt heimildarrit með stuttum æviá- gripum skipstjóra á íslenskum kaupskipum og varðskipum og skrá um skip þeirra. Við starfsmenn Eimskips mun- um áratugina frá blómaskeiði Jóns Eiríkssonar. Við Htum til baka nú þegar hann er horfinn. Á tjaldi minninganna eftirlætur þessi eftirtektarverði starfsfélagi margar skýrar myndir sem vert er að taka eftir. Hann vakti okkur oft til umhugsunar um athyglis- verða hluti, bjó yfir gagngerðri þekkingu á sviði farmennsku og siglinga, og miðlaði öðrum af nægtabrunni sínum í ræðu og riti. Þekki ég til manna sem á unga aldri nutu einarðlegrar stjórnar Jóns, og eru honum þakklátir fyrir það holla vegarnesti sem hann gaf þeim og reynst hefur farsælt í störfum þeirra. Sjálfur kynntist ég mannkostum hans. Við áttum um skeið náin samskipti vegna starfa hjá Eimskipafélaginu. Þar leyndu sér ekki hæfileikar hans, þegar takast þurfti á við þau vandasömu störf sem oft biðu skipstjórans enda ávann hann sér virðingu og traust. Blessuð sé minning Jóns Ei- ríkssonar, skipstjóra. Sveinn Ólafsson. L LANDSVIRKJUN Grjótmulnings- og flokkunarsamstæóa til sölu Landsvirkjun áformar aö selja, ef viöunandi tilboö berast, grjótmulnings- og flokkunarsamstæðu sem fyrst var sett upp viö Búrfell áriö 1966. Síöar var hún flutt aö Sigöldu þar sem hún var síðast í rekstri sumariö 1981. Lýsing: Samstæðan er í járn- og timburklæddu stálgrindarhúsi, grunnflötur 4x15 m, hæö 15 m. Unnt er aö mylja grjót í 5 mismunandi stærö- arflokka. Afköst, um 60 tonn á klukkustund, Vélbúnaður, aöallega frá Swedala-Arbrá. Rafbúnaður, tegund ASEA. Helstur hlutir samstæöunnar eru: 2 matarar. 3 mulningsvélar. 2 tvöföld hristisigti. 1 tvöfalt þvottasigti. I sandþvottavél (spiral classifier). II færibönd, ýmsar stæröir. 4 geymsluhólf, stærö samals 75 m3 Væntanlegum bjóöendum veröur gefinn kostur á aö taka þátt í skoðunarferð aö Sigöldu þar sem sam- stæöan er nú. Þátttöku þarf aö tilkynna eigi síðar en 25 þ.m. Nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn Sveinbjörnsson, byggingardeild Landsvirkjunar, Grensásvegi 13, Reykjavík, sími 83058. Víðmælum sparnaði! ódýraökuferðinhefst íAmsterdam Áætlunarflugið til Amsterdam og sérsamn- ingar við InterRent færa þér meistaralega hagstætt heildarverð fyrir flug og bíl. Ferðin yfir hafið tekur aðeins þrjár klukkustundir og á flugvellinum býður þín nýr eða nýlegur bílaleigubíH í toppstandi, tilbúinn í ótak- markaðan akstur án nokkurs kílómetragjalds. Stórborgin Amsterdam - eina sanna Evrópu- hjartað - er kjörinn upphafspunkturökuferðar um Evrópu. Borgin er lífleg og miðsvæðis og þú ekur síðan áhyggjulaus til annarra landa því alls staðar er InterRent þjónusta skammt undan og þú að sjálfsögðu tn/ggður í bak og fyrir gagnvart öllum mögulegum og ómögu- legum óhöppum. Leitið til söluskrifstofunnar eöa feröaskrifstofa. Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, sími 64477

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.