Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 ■ „Þessi sýning er öðruvísi“ Rabbað við Steingrím Sigurðsson listmálara sem í dag opnar sína 51. sýningu í Ásmundarsal Vinur minn einn sagði mér í vik- unni að hann Steingrímur Sigurðs- son listmálari myndi opna sérdeilis skemmtilega málverkasýningu nú í vikulokin, svo mér datt í hug að heilsa upp á listamanninn; kanna hvað hæft væri í þessu með athygli- verðina eða skemmtilegheitin eða hvað hann nú sagði, og taka viðtal við Steingrím ef mér litist á. — Ekki vissi ég þó hvar hafa skyldi upp á hinum miðaldra bóhem; löngu fluttur frá Roðgúl, en sagður búa í grennd við Jón Múla, hvar sem það nú er. Mér datt því í hug að slá á þráðinn til Renate Heiðar á Laufásveginum, ef ske kynni að hún vissi eitthvað um Steingrím. — Og það stóð heima, Renate hafði fengið meira en nóg af listamann- inum síðustu daga, því 7. febrúar hafði hann komið með nær sjö tugi málverka, og heimtað ramma utan um allt helst í gær. Þessa stundina sagði hún hann hins vegar vera að keyra annan strákinn upp í Mos- fellssveit, síðan hefði hann ætlað að elda sér grásleppu, og koma síð- an og líta á innrömmunina. Það ætti að vera hægt að hitta hann þar um kvöldið. Nýtt líf í tvö ár og átta mánuöi Ég hafði rétt aðeins tíma til að Hta á málverkin og sannfærast um að rétt var að sýningin væri skemmtileg og vönduð, þegar son- ur Sigurðar skólameistara snarast inn úr dyrunum; mér sýndist hann glaðhlakkalegur yfir því að geta nú látið Ijós sitt skína um stund í blaði allra landsmanna. — Spurðu um hvað sem þú vilt, þú mátt spyrja um hvað sem er, segir hann og er óðamála, ég skal svara öllu, þú mátt vel koma með dálítið harðar spurningar! Ég skal segja þér það, að ég er svo ein- kennilega gerður, að mér finnst ég ekkert eldast, þó er ég 57 ára, og að halda mína fimmtugustu og fyrstu sýningu — heima og er- lendis — finnst ég ekkert eldast. Mér finnst lífið alveg dásamlegt, og mikils um vert að fá að lifa því. Ég hef að undanförnu unnið að því að gera sjálfan mig að betri manni, svona skítskárri mann- eskju, ég hef unnið að því eftir mjög góðu kerfi í tvör ár og átta mánuði. Þetta er mjög gott kerfi, á samt ekkert skylt við kerfisfræði eða þess háttar kerfi, þetta er bara leið sem ég hef valið mér til að bæta sjálfan mig. Ég er meira að segja farinn að fara í morgun- leikfimi daglega með henni ung- frúnni í útvarpinu, og svo er ég að takast á við bullworkertæki sem sonur minn á, og fékk að gjöf frá systur sinni. Þetta er allt annað líf núna, ég er afskaplega hamingjusamur, vinn mikið, finn hamingjuna með- al annars í gegnum vinnuna eins og Bragi í Eden sagði mér að hann gerði. Jæja, þú verður að spyrja, ætlarðu ekkert að spyrja? Tilbúinn aö verja þessi vinnubrögö Jú, það var nú ætlunin að spyrja aðeins, þó enn hefði ekki gefist færi á því. Best að vera dálítið leiðinlegur fyrst hann talaði svona mikið: Þú hefur oft verið gagn- rýndur fyrir að mála heldur hratt og flausturslega, þú málir í kapp við eitthvað sem aðrir vita ekki hvað er, og þess sjáist oft merki á sýningum þínum? Já, já, það er rétt, að ég hef ver- ið gagnrýndur lyrir það, og sjálfs- agt oft með réttu, ekki ætla ég að fara að neita því. En það er nú svona, að maður ræður því ekki alltaf hvernig hugmyndirnar koma, sumum finnst líka gaman að sjá skissur og uppdrætti að myndum sem menn gera, og mörg- um finnst meira gaman að snögg- um myndum en þeini sem legið hefur verið yfir, þetta er svo margbreytilegt. — Ég ætla annars ekki að fara að verja þetta, þessi gagnrýni er sjálfsagt réttmæt. — En þessi sýning er öðruvísi en margar aðrar síðari ár? Já, ég held það. Ég er búinn að leggja mikla vinnu í þetta, hef ag- að mig mikið, ég er mjög sáttur við þessa sýningu. Ég ætla ekki að gerast dómari í eigin sök, og fara að segja að þetta sé góð sýning, eða að einhver verk séu svo og svo góð. En ég hef unnið þetta þannig, að ég er tilbúinn til að verja þessi vinnubrögð, ég er sáttur við þessa sýningu, og mjög sáttur við mörg verkanna. Þessi sýning er öðruvísi en margar mínar fyrri. Mála til að tjá mig ... — Til hvers málarðu, málarðu til að lifa, eða lifirðu til að mála? Ég mála til að tjá mig, ég geri það. Á hinn bóginn þegar í harð- bakkann slær, þá þarf ég að lifa, ég er þeim örlögum seldur að þurfa að hafa í mig og á sem at- vinnumálari, það krefst margvís- legra fórna. Ég er atvinnumálari, reyni ekki að fela það, ég lifi af þessu. Samt veit ég aldrei hvernig ég á að verðleggja myndir, ég geri þetta rétt áður en sýningin opnar, þar þarf að huga að mörgu. Mér finnst ég hafa ríka ábyrgðar- tilfinningu í þessum efnum; margt fólk kaupir af mér á hverri sýn- ingu, það má ekki ofbjóða því, ég reyni að vera sanngjarn, ég held ég sé það. Á þessari sýningu eru 70 mynd- ir, olía, vatnslitir og pastel, ég er farinn að nota olíu talsvert aftur, margar myndanna hér eru olíu- myndir. Ég hef lagt hart að rnér undanfarna mánuði við að undir- búa þessa sýningu, og flest verkanna eru til sölu. Þó eru hér með myndir í einkaeign, banka- maður á eina, og annar aðra, en flestar eru til sölu. Þetta er að taka á sig góða mynd núna, hún Renate er alveg frábær við inn- römmunina, þetta er í fyrsta skipti sem ég læt sama aðila ramma inn heila sýningu fyrir mig. — Annars skilur fólk ekki hvernig við getum unnið saman, svona tilfinningamanneskjur bæði, en þetta gengur, hún segir mér að þegja ef hún ætlar að taka skorpu! Já, marga rammana velj- um við saman, en í mörgum tilvik- um hefur hún fengið einræðisvald, það hefur tekist ágætlega! Er einstaklingshyggjumaöur — En þú sjálfur, þú ert þá ekki einræðissinnaður um of? Nei, og þó, ég veit það ekki. Ég hef verið að temja mig mikið und- anfarið eins og ég sagði þér áðan, Brot á grundvallar- reglum mannúðarinnar Bandarískur sérfræðingur lýsir eitur- efnahernaði Rússa og bandamanna þeirra — Það er þýðingarmeira en nokkru sinni áður, að athygli heimsins sé beint að því alvar- lega máli, sem er fólgið í nokun efna- og eiturvopna nú í Afgan- istan, Laos og Kambódíu. Fólk er drepið, líður þjáningar og óbærilegar skelfingar. Þetta er ekki aðeins skýlaust brot á al- þjóðaiögum heldur jafnframt brot á mikilvægustu grundvall- arreglum mannúðarinnar. Þann- ig komst Stuart J.D. Schwartz- stein, starfsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins að orði í viðtali við Morgunblaðið í gær, en hann hefur sérstaklega kynnt sér útbreiðslu á eiturefnavopn- um og notkun þeirra í Asíu. — Eiturefnum er ekki bara beitt af Rússum í Afganistan, heldur er þess konar vopnum einnig beitt í verulegum mæli í Kambódíu og Laos, sagði Schwartzstein ennfremur. — Aðalaðferðin er að dreifa eitur- efnum úr lofti. Þannig fara Sovétmenn með „gula regnið" svokallaða. Óræk sönnun hefur fundizt yfir notkun þess í Afg- anistan, því að þar hefur fund- izt sovézk gasgríma, sem á var „gult regn“. Hún hefur því ver- ið notuð af sovézkum hermanni þar, sem sjálfur þurfti að verj- ast „gulu regni", er annað Stuart J.D. Schwartzstein hvort var dreift úr lofti af fé- lögum hans á það svæði, sem hann fór um, eða af honum sjálfum. Þá hafa líka fundizt einkenni eða merki um „gult regn“ á fólki, sem sýndi sterkar eitur- verkanir á þeim, sem orðið höfðu fyrir því. í Afganistan er mikið um neðanjarðaráveitu- kerfi, sem frelsissveitir Afgana leita mikið skjóls í undan inn- rásarliði Rússa, þegar þörf krefur. Það hefur hvað eftir annað gerzt, að Rússar hafa dælt „gulu regni“ eða öðru eiturgasi inn í neðanjarðar- áveitu, þar sem hermenn úr frelsissveitum höfðu leitað skjóls. Auk „gula regnsins" beita Rússar öðrum eiturefn- um í stríðinu við Afgani, þar á meðal taugagasi. Þessu er að sumu leyti eins farið í Laos og Kambódíu, en í síðarnefnda landinu eru það Víetnamar og í Laos eru það Pathet Lao, sem beita eitur-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.