Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983 5 Fyrstu kammertón- leikar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í dag í DAG miðvikudaginn 11. maí efnir Sinfóníuhljómsveit fslands til sinna fyrstu Kammertónleika. Á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni þess, sagði Sigurður Björnsson frkv.stj. hljómsveitarinnar að þessi gerð tónlistar hefði löngum orðið útundan sökum þess hve um- svifamikil hún er en Sinfóníuhljóm- sveitin hefði nú í hyggju að bæta úr því og auk þessara tónleika taka til flutnings fjögur viðamikil kammer- tónverk á næsta starfsári. Sendiherra- skipti hjá Svíum Sendiherra Svíþjóðar á íslandi, frú Ethel Wiklund, mun innan skamms láta af störfum hér á landi og hefur sænska ríkisstjórnin út- nefnt Gunnar-Axel Dahlström nýjan sendiherra. Hann mun koma hingað til lands fljótlega ásamt Britt eigin- konu sinni, segir í frétt frá sænska sendiráðinu í Reykjavík. Gunnar-Axel Dahlström er fæddur 11. marz 1922 og hóf störf í sænsku utanríkisþjónustunni 1952. Gunnar-Axel hefur m.a. starfað í sænskum sendiráðum í Varsjá, Búdapest, Berlín, Bangkok, Pret- óríu og frá 1981 hefur hann gegnt störfum aðalræðismanns Svía í Marseille. Tónleikarnir verða haldnir í Gamla Bíói kl. 20.30 og mun strengjasveit hljómsveitarinnar 33 hljóðfæraleikarar alls leika, undir stjórn marks Reedmans. Verkin sem leikin verða eru Di- vertimento eftir Mozart, Serenaða fyrir strengjasveit eftir Dvorak, Konsert í D-dúr eftir Stravinski og Introduction og Allegro eftir Elgar. Mark Reedman hefur starfað við Sinfóníuhljómsveit íslands í fimm ár. Hann hefur auk þess kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og verið stjórnandi strengjasveitar hans, sem m.a. hlaut í fyrra undir hans stjórn þriðju verðlaun á al- þjóðlegu kammertónlistarmóti í Júgóslavíu. Fjórir af hans nemendum þær Auður Hafsteinsdóttir, Gréta Guðnadóttir, Guðrún Þórarinsdótt- ir og Bryndís Gylfadóttir munu taka þátt í hljómleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar á miðvikudag og leika einleik í verki Elgars. Borgin eignast Engey og land í Selási: Skuldauppgjör borg- ar og ríkis samþykkt í borgarráði í gær BORGARRAÐ samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að taka tilboði ríkisins um uppgjör skulda ríkissjóðs við borgarsjóð vegna bygginga sjúkra- stofnana, en í því felst að borgin tekur Engey og land í Selási upp í hluta af skuldinni, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Davíð Oddssyni borg- arstjóra í Reykjavík, í gær. Stjórnandinn, Mark Reedman. Skuldin nemur samtals 25,185 milljónum og eru landsvæðin met- in á samtals 7,5 milljónir. Mismun- urinn, 17,685 milljónir, greiðist með fjórum jöfnum afborgunum, hin fyrsta fyrir árslok þessa árs, en síðan 15. apríl árin 1984, 1985 og 1986, samtals krónur 4,425 milljón- ir króna í hvort skipti nema 1986, en þá greiðast 4,410 milljónir. Er þessi upphæð verðtryggð, en vaxta- laus. „Ég tel að þessi samningur sé mjög viðunandi eftir öllum atvik- um,“ sagði Davíð Oddsson. „Samn- ingsumleitanir um skuldir ríkis- sjóðs vegna sjúkrastofnana borgar- innar hafa staðið lengi og borgin hefur óskað eftir því að fá allar sínar kröfur verðbættar, en því hefur ríkið hafnað. Ég er sann- færður um að lengra en við náðum þarna verði ekki komist og það sé kostur bæði fyrir ríki og borg að slá striki yfir þessar skuldir, þó aðrar séu enn óuppgerðar," sagði Davíð. „Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að borgin eignist Engey, sem er við bæjardyr Reykjavíkur. Borgin leit- aði eftir kaupum á Engey árið 1958, en það tilboð sem borginni var gert þá var fimm sinnum hærra en það tilboð sem nú er samkomulag um, ef reiknað er til núvirðis,“ sagði Davíð Oddsson. sj(!mem-laiidsmerin 15%afeláttur í Vl'ítiðtlllOK M cru Ethel Wiklund, sem nú lætur af störfum sendiherra á íslandi, hef- ur gegnt því starfi frá 1978. Hún mun nú hverfa til eftir- litsstarfa innan sænsku utanríkis- þjónustunnar. Vesturland: Þakkir til stuðn- ingsmanna Sjálf- stæðisflokksins VIÐ undirrituð, sem skipuðum fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Vest- urlandskjördæmi í Alþingiskosning- unum 23. apríl sl., þökkum af alhug öllum þcim, sem studdu okkur í kosningabaráttunni og unnu að stór- sigri D-listans. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 2.725 atkvæði og bætti við sig á fimmta hundrað atkvæða frá haustkosningum 1979. ER þetta langhæsta atkvæðatala, sem flokkurinn hefur náð á Vestur- landi síðan kjördæmabreytingin var gerð 1959. Slíkur árangur næst ekki nema með góðri sam- vinnu, einbeittum áhuga og fram- taki margra manna. Ósk okkar og von er sú, að þessi sigur megi verða Vesturlandi til heilla og landi og þjóð til farsældar. I maí 1983. Friðjón Þórðarson, Valdimar Indriðason, Sturla Böðvarsson, Davíð Pétursson, Bjarni Helgason, Kristjana R. Ágústsdóttir, Björn Arason, Guðrún L. Víkingsdóttir, Kristófer Þorleifsson, Ingiberg J. Hannesson. INNLENT vofddæói vctiarins Kjgótilhliðar Auðvitað fylgir því viss söknuður - þau hafa jú hlýft við frosti, kulda og sjó- gusum vetrarins. En ekki klæðist maður þeim á balli, leikhúsi eða notalegum veitingastað. Hvað þá á „veiðum í landi“. Þessvegna býður TORGIÐ og HERRA- RÍKIN þér í tilefni tímamótanna, 15% afslátt af hinum glæsilegu SIR jakka- fötum, SIR - gallinn við hæfi í landi, gallinn, sem gefur „veiðivon". gefur „veiðivon'*. Ausuirstneti K) u Snorrabraut. Gtæstiœ Harrraborg-Köpavogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.