Morgunblaðið - 23.10.1983, Qupperneq 1
80 SIÐUR
fglttaitlritafrtfr
243. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Karabísku ríkin funda
um íhlutun á Grenada
Strandhögg
indíána í
Nicaragua
Managua, San Salvador og Guatemalaborg,
22. október. AP.
RÓSTUSAMT HEFUR verið í El
Salvador og Nicaragua, þar sem
skæruliðahreyfingar freista þess að
kollvarpa stjórnvöldum.
f hafnarborginni Porto Cabezaz
í Nicaragua gerði skæruliðahreyf-
ing miskito-, suma- og rama-
indíána strandhögg í gær. Komu
skæruliðarnir brunandi inn í
höfnina á hraðbát og skutu úr
vélbyssum að skipi sem verið var
að afferma. Einn maður féll og tíu
særðust, þar á meðal 10 ára
stúlkubarn og 16 mánaða gamalt
barn.
Skæruliðamiðstöð fyrrgreindra
indíánaflokka er í Honduras, en
þjóðflokkarnir búa á Kyrra-
hafsströnd Nicaragua. Talsmaður
stjórnar sandinista sagði í gær að
indíánarnir yrðu að svara fyrir
árásina. Þeir eru mjög afskekktir
frá öðrum landshlutum og vilja
slíta sambandi við Nicaragua.
f E1 Salvador réðust 400 skæru-
liðar á almannavarnamiðstöð í
borginni Santo Domingo og felldu
tvo starfsmenn og særðu sex til
viðbótar. Erindið virtist vera að
ræna vistum, en uppskeran var
rýr eftir því sem borgarbúar
sögðu, átta rifflar, einn skotfæra-
pakki, eitt vindlingakarton og
eitthvað af matvælum.
Oscar Humberto Meja hershöfð-
ingi og yfirmaður herstjórnarinn-
ar í Guatemala gerði í gær óvænta
breytingu á stjórnarliði sínu. Setti
hann af yfirmann hersins, Hector
Mario Lopez Fuentes, en skipaði í
hans stað hliðhollari mann, Rud-
olpho Lobos Zamora. Háttsettur
embættismaður í Guatemala, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði í gær að klofningur hefði
verið kominn upp meðal herfor-
ingja, nokkrir þeirra hefðu viljað
setja Meja af. Var Fuentes þar
fremstur í flokki að sögn umrædds
embættismanns.
Fjölmenn
mótmæli
Bonn og London, 22. október. AP.
BÚIST var við hundruða þús-
unda manns til Bonn í V-Þýska-
landi til þess að mótmæla fyrir-
hugaðri staðsetningu meðal-
drægra kjarnorkuflauga NATO
í Vestur-Evrópu. Þá hugðust
mótmælendur reyna að mynda
110 kflómetra langa keðju á
milli Neu-Ulm og Stuttgart.
Töldu þeir, að 115.000 manns
þyrfti til að mynda keðjuna.
Frá Lundúnum bárust þær
fregnir um hádegisbilið, að
ganga kjarnorkumótmælenda
í London hefði þegar hafist,
en ekki lágu neinar upplýs-
ingar fyrir um fjölda þátttak-
enda í göngunni. Skipuleggj-
endur kjarnorkumótmælenda
í V-Evrópu telja, að um 1,7
milljónir manna taki þátt í
aðgerðum um helgina.
Rhdgrtown, Barbados, 22. oktiber. AP.
LEIÐTOGAR ríkja í Karabíska
hafinu íhuguðu í morgun sameig-
inlega íhlutun í málefni eyríkisins
Grenada á sama tíma og banda-
rísk herskip sigldu rólega í átt að
eynni.
Herstjórn, með Hudson Aust-
in í broddi fylkingar, fer nú með
völd á eynni í kjölfar morðsins á
Maurice Bishop, forsætisráð-
herra, fyrr í vikunni og hinir
110.000 íbúar hennar eru nánast
í stofufangelsi.
Austin upplýsti í gær, að 17
manns, auk Bishop, hefðu látið
lífið í „átökum" um völdin á
eynni. Þá lét hann jafnframt í
það skína, að efnt kynni að
verða til kosninga innan
skamms.
Kúbumenn fordæmdu seint í
gærkvöld aðferðir hersins á
Grenada og morðið á Bishop. í
opinberri yfirlýsingu frá Fidel
Castro var þess krafist, að mál-
ið yrði rannsakað og „hinum
seku hegnt á viðeigandi hátt“.
Þessi yfirlýsing Kúbumanna
þykir eiga að undirstrika enn
frekar hin góðu tengsl á milli
þeirra og Bishop.
Að sögn bandaríska varnar-
málaráðuneytisins er flugmóð-
urskipið Independence á leið til
Grenada og mun halda þar
kyrru fyrir og verða til taks ef
flytja þarf einhverja banda-
ríska íbúa eyjarinnar á brott.
Eugenia Charles, forsætis-
ráðherra Dóminíska lýðveldis-
ins, sagði í gærkvöld, að loka-
ákvörðun um aðgerðir yrði tek-
in á fundi ríkja Karabíska hafs-
ins, sem haldinn verður á Trini-
dad í kvöld. Eyríkin búa yfir
takmörkuðum herafla, en hafa
enn ekki farið fram á stuðning
Bandar íkj astj ór nar.
Herstjórnin á Grenada hefur
tekið vel í þær hugmyndir, að
rannsóknarnefnd skipuð Banda-
ríkjamönnum, Bretum og Kan-
adamönnum verði send til eyj-
arinnar til þess að kanna
ástandið.
Tók pípuna sína
fram yfir flugfarið
Fargo, Nordur-DakoU, 22. október. AP.
STÍFNI farþega nokkurs um borð í farþegaflugvél á leið frá Seattle í
Washington til Washington DC varð honum dýrkeypt. Hann neitaði
að drepa í pípu sinni og það varð til þess að flugmaðurinn lenti vélinni
á litlum flugvelli og varpaði manninum frá borði.
Farþeginn, Walter Meserve, maðurinn sér lítið fyrir og
46 ára gamall, virti að vettugi
ítrekaðar beiðnir flugáhafnar-
innar að drepa í pípu sinni og
var bent á að samkvæmt regl-
um væri einungis leyft að
reykja vindlinga í ákveðnum
hluta vélarinnar. Þegar Mes-
erve þráaðist við, gerði flug-
lenti vélinni fyrirvaralaust á
smáflugvelli við Fargo, af-
skekktan smábæ í Norður-
Dakota, og „affermdi einstakl-
inginn", eins og talsmaður
flugfélagsins sagði í fréttatil-
kynningu.
Sjálfskapaðir erfiðleikar
Meserves voru samt ekki úr
sögunni. Hann leitaði til
tveggja annarra flugfélaga
sem hafa skrifstofur í Fargo,
en hvorug vildi selja honum
farmiða vegna „háloftafram-
komu“ hans eins og talsmaður-
inn komst að orði. Varð úr að
Meserve varð að ferðast með
rútu 330 km leið til Minneapol-
is í Minnesota, þar komst hann
loks um borð í flugvél.