Morgunblaðið - 23.10.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
5
Sjónvarp kl. IS:
Stundin okkar
STUNDIN okkar er að venju
á dagskrá í dag kl. 18. í þætt-
inum í dag les Geirlaug
Þorvaldsdóttir ævintýrið
Dimmalimm, sem Guðmund-
ur Thorsteinsson mynd-
skreytti. Herdís Egilsdóttir
kennir okkur að föndra, börn
úr Bjarkarási sýna lát-
bragðsleik, Krókpókó verður
á sínum stað og Smjattpatt-
arnir einnig. Að lokum kem-
ur gestur í heimsókn í Stund-
ina okkar, en gesturinn er
lítil apabrúða.
Sjónvarp kl. 21:
Wagner —
5. þáttur
Þættirnir um Wagner eru
nú hálfnaðir. Fimmti
þáttur af þeim 10, sem
framleiddir voru, verður á
skjánum í kvöld milli kl.
21 og 21.50. Það er Rich-
ard Burton sem er í hlut-
verki Wagners.
rædu á kirkjudegi Bessastaðasókn-
ar.
Kirkjudagur
BessastaÖasóknar
HINN árlegi kirkjudagur Bessa-
staðasóknar er í dag, sunnudag, og
hefst með helgisamkomu í Bessa-
staðakirkju kl. 14. Formaður sókn-
arnefndar, Bjarni Guðmundsson,
flytur ávarp og Haraldur Bessason,
prófessor við Manitoba-háskóla,
flytur ræðu sem hann nefnir „I
fjarska við Bessastaði'*.
Álftaneskórinn syngur við at-
höfnina undir stjórn John
Speights, söngvara og mun hann
einnig syngja einsöng. Sóknar-
presturinn séra Bragi Friðriksson,
prófastur, annast altarisþjónustu.
Að lokinni kirkjuathöfn verða
kaffiveitingar seldar í Álftanes-
skóla á vegum Kvenfélags Bessa-
staðahrepps til ágóða fyrir líknar-
sjóð byggðarinnar.
(KrélUtilkynning.)
Hafnarfjöröur:
Kaffidagur
Fríkirkju-
safnaðarins
ÁRLEGUR kaffidagur Fríkirkju-
safnaðarins í Hafnarfirði verður
haldinn í dag, sunnudag, f Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði. Hefur
kaffidagurinn verið árlegur viðburð-
ur sl. 70 ár.
Kvenfélagskonur sjá um kaffi-
veitingar og hefjast þær strax að
lokinni messu. Ágóða kaffidagsins
verður að vanda varið til að bæta
aðbúnað kirkjunnar, en við Fri-
kirkjuna í Hafnarfirði hefur ný-
lega verið byggt útskot fyrir
snyrtingu, viðtalsherbergi og
geymslur.
Úr frétutilkynninpi.
^^Vskriftar-
síminn er 83033
Í KANARÍSÓL MCDARNARTLLJOI
Þetta er engin draumsýn. Svona gengur lífið fyrir sig á Barbacan Sol,
gististaðnum einstaká sem Arnarflug býður farþegum sínum. Þar er allt
á einum stað, - nýjar og fallegar íbúðir eða smáhýsi, tvaer frábærar
sundlaugar með öllu, golf- og tennisvellir, verslunarmiðstöð, veitinga-
staðir, barir, spilasalir og fleira - allt er fyrsta flokks. Stórkostlegur
gististaður sem íslenskir Kanaríeyjafarar hafa lengi óskað sér, en fá nú
fyrst að njóta. (slenskur fararstjóri.
GISHNGIN
GERIR GÆTLMIJMNN
Þú vaknar að morgni og eftir hressandi steypibað og morgunverð
skellirðu þér út í sólina á sundlaugarbarminum. Færð þér svalandi
sundsprett annað slagið og undir hádegið tekurðu léttan tennisleik með
ferðafélögunum. Eftir Ijúffengan hádegisverð á sundlaugarbarnum
hallarðu sólstólnum þínum aftur og lætur þér líða vel í sólskininu.
Seinnipartinn röltirðu svo kannski í verslunarmiðstöðina, eða ferð hring
á golfvellinum, eða kíkir í spennandi bók og slakar á fyrir stórsteikina
á veitingastaðnum. Og eftir kvöldverðinn . . . í fjörið á næturklúbbnum,
eða rólegheit heima í glæsilegri íbúðinni...
( góðum sólarferðum gerir gistingin gæfumuninn.
Viðburðarík Amsterdamdvöl í kaupbæti.
VCRD tQÁ KR.22.6ft6 (miðað við 4 í 3 herb. íbúð).
Brottför: Alla þriðjudaga. 10, 17 og 24 daga ferðir.
Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á lúxushótelinu
Pulitzer í Amsterdam og íbúðagisting á Kanaríeyjum ásamt íslenskri
fararstjórn.
Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs eða ferðaskrifstofanria og fáið litmyndabækling
með ítarlegum upplýsingum.