Morgunblaðið - 23.10.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
7
HLJG\ EKJA
eftir
• •
sr. Hannes Orn Blandon
Hann Janne var gjörbreyttur
maður, þegar ég hitti hann eftir
nokkurra ára aðskilnað. Hann,
sem alltaf var svo kátur og glað-
ur, tæplega sjötugt unglamb,
sem hljóp upp um fjöll og firn-
indi og las blóm og sveppi í fögr-
um skógum dalanna í Svíþjóð á
milli þess er hann sat tímunum
saman og hlýddi á verk gömlu
meistaranna, hann sat nú á stól í
garði sínum og hafðist ekki að.
„Ég er farinn að tapa heyrn,"
sagði hann, „ég nýt ekki lengur
tónlistarinnar." „Og hefur þú
tekið eftir því,“ mælti hann eftir
svolitla stund, „að það er sama
hvenær kveikt er á sjónvarpi eða
útvarpi, alltaf er verið að segja
frá stríði eða hörmungum ein-
hvers staðar í veröldinni, alls
staðar ríkir vesöld og volæði, ég
sé ekkert nema eymd í kringum
mig.“ Sólin var að hníga til viðar
er við kvöddumst, en honum var
það huggun, að nokkurra geisla
hennar hafði hann notið í lífi
sínu.
Við spyrjum vart annað en
hernaðar- og ófriðartíðindi í
fjölmiðlum. Blöð flytja á forsíð-
um sínum lítt annað en æsifrétt-
ir til að ganga í augun á vænt-
anlegum kaupendum. Þó grunar
mig, að íslenskir fjölmiðlar
flestir séu ögn skárri en margir
útlendir hvað þetta varðar.
Ég bjó suður í Þýskalandi,
þegar síðasta þorskastríð
„braust út“ eins og það hét á
máli þarlendra. Þá birtist þessi
flennifyrirsögn í víðlesnasta
blaði þeirra, Bilðzeitung: íslend-
ingar hafa tvöfaldað herskipa-
flota sinn. Flugflotinn aukinn
um 100%. Neðar mátti lesa ör-
smáu letri: Nú eiga þeir fjögur
varðskip og eina flugvél. Við gát-
um ekki annað en brosað að
þessu íslendingarnir.
Við spyrjum hernaðar- og
ófriðartíðindi víða. Nú er framið
þjóðarmorð í Afganistan, sem og
í Víetnam forðum, úlfúð og
flokkadrættir í Líbanon. íranir
og írakar hafa ekki setið á sárs
höfði í mörg ár og þar magnast
ófriður enn. Við spyrjum verk-
föll, mótmælagöngur, atvinnu-
leysi og hungursneyð. Fréttir
þess efnis birtast okkur í fjöl-
miðlum dag eftir dag. Saman-
borið við þetta virðist kreppan á
íslandi lítilræði eitt, vandamál,
sem leysa mætti með sanngirni
og réttlæti.
Hvaða áhrif hefur þessi
fréttaflutningur á fólk? Er ekk-
Ófriðar-
tíðindi
ert annað um að vera í veröld-
inni? Við heyrum um árásir á
aldrað fólk á götum borgarinnar,
það er barið og rænt, skilið eftir
í blóði sínu. Ef til vill nást árás-
armennirnir og þeir eru dregnir
fyrir dóm, kannski finnast þeir
ekki og fórnarlambið örkumlað
fyrir lífstíð. Þetta er ægilegt,
hörmulegt. En Guði sé lof að
þetta er ekki hversdagslegur
viðburður.
Sárasjaldan er hinna „mis-
kunnsömu samverja" getið fyrir
góðverk sín. Fyrir nokkru las ég
í Velvakanda, að mig minnir, um
mann, sem auglýsti eftir þremur
ungum mönnum, er lagt höfðu á
sig heilmikið erfiði við að að-
stoða hann við bíl hans að næt-
urlagi, jafnvel næturlangt, og nú
langaði hann til að komast að
því hverjir þeir væru til að tjá
þeim þakklæti sitt. Þetta var
ekki „frétt" á sama hátt og hefðu
þeir, í stað þess að hjálpa hon-
um, dregið hann út úr bíl sínum,
barið og rænt eða stolið bílnum.
Það hefði talist til tíðinda.
Vissulega er margt illt í henni
veröld. Heiminum hefur verið
líkt við risastórt gróðurhús, þar
sem lítið vex annað en illgresi en
innan um reynir eitt og eitt
gullfallegt blóm að teygja sig í
átt til sólarinnar, reynir að
spjara sig þrátt fyrir allt.
Hvers vegna hið illa? Væri
ekki miklu nær að segja: Hvers
vegna kærleikur? Þannig spyr
sænski guðfræðingurinn Gustaf
Wingren í bók sinni, Ég trúi
(Credo).
Er ekki dásamlegt, að þrátt
fyrir allt skuli vera kærleikur,
ást, umburðarlyndi, fórnfýsi í
heimi miskunnarleysis, haturs,
ofsókna og pyntinga? Er ekki
dásamlegt, að þrátt fyrir allt
megi ungt fólk elskast og njótast
og geta af sér börn, þrátt fyrir
þá staðreynd að fimmtán millj-
ónir barna deyi áriega úr hungri.
Guð gefi okkur þá þá blessun,
styrk og kjark, að sjá þau börn í
okkar börnum og leggjum okkar
af mörkum til að leggja þeim lið
er nú líða skort. Það er skylda
okkar og ábyrgð.
Þér munuð spyrja hernað og
ófriðartíðindi. Gætið þess að
skelfast ekki. Þetta á að verða,
en endirinn er ekki þar með
kominn, segir í Matteusar-
guðspjalli 24:6. Þjóð mun rísa
gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá
verður hungur og landskjálfti á
ýmsum stöðum ... Og vegna
þess, að lögleysi magnast mun
kærleikur flestra kólna. En sá
sem er staðfastur allt til enda
mun hólpinn verða. Guð gefi að
við sjáum að okkur áður en það
er um seinan.
í Guðs friði.
Sr. Hannes Örn Blandon er prestur
á Ólafsfírði.
Tilboö óskast í þetta 120 fm vatnsklædda timburhús
í því ástandi sem þaö er til brottflutnings af Reykja-
víkurflugvelli. Tilboö sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „T — 0502“ fyrir föstudaginn 28. október.
^\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
ENDIRINN
SKOÐA“
Valdir þú rétta ávöxtunarleið fyrir 12 mánuðum
síðan?
Taflan hér að neðan gefur þér hugsanlega svar
við því.
Ávöxtunarleiö: Penmga- eign 1. okt. 1982 Peninga- eign 1. okt. 1983 Ávöxtun i% siðustu 12mán.
Verðtryggð veðskuldabréf 100.000 203.490 103%
Spariskírteini Ríkissjóðs 100.000 195.390 95%
Verðtr. sparisj.reikn. 6 mán. 100.000 190.300 90%
Verðtr. sparisj.reikn. 3 mán 100.000 188.420 88%
Alm. sparisjóðsreikn. 100.000 141.140 41%
GENGI VERÐBREFA
23. október 1983:
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJODS:
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1. flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
1982 1. flokkur
1982 2. flokkur
1983 1. flokkur
Sölug.ngi
pr. kr. 100.-
16.173,14
14.277,51
12.372,31
10.486,47
7.420,87
6.802,22
4.695,03
3.866,97
2.913,81
2.761,13
2.196,00
2.027,53
1.700,96
1.381,33
1.086,66
915,87
707,82
578,84
455,09
390,90
290,25
263,78
197,13
152,95
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKULDABRÉF
3,7—5,5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERDTRYGGO
Sölugengi m.v. nafnvexti
og 1 afborgun é ári. 12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 37%
1 ár 75 77 78 80 81 87
2 ár 61 62 64 66 68 78
3 ár 51 53 55 57 59 72
4 ár 44 46 48 50 52 67
5 ár 39 41 43 45 47 63
Sölugengi Nafn- Ávöxtun
m.v. vaxtir umfram
2 afb./ári (HLV) varötr.
1 ár 95,34 2% 8,75%
2 ár 92,30 2% 8,88%
3 ár 90,12 2%% 9,00%
4 ár 87,43 2'/2% 9,12%
5 ár 85,94 3% 9,25%
6 ár 83,56 3% 9,37%
7 ár 81,22 3% 9,50%
8 ár 78,96 3% 9,62%
9 ár 76,75 3% 9,75%
10 ár 74,62 3% 9,87%
11 ár 72,54 3% 10,00%
12 ár 70.55 3% 10,12%
13 ár 68,60 3% 10,25%
14 ár 66,75 3% 10,37%
15 ár 64,97 3% 10,49%
16 ár 63,22 3% 10,62%
17 ár 61,57 3% 10,74%
18 ár 59,94 3% 10,87%
19 ár 58,42 3% 10,99%
20 ár 56,92 3% 11,12%
VERÐTRYGGÐ
H APPDRÆTTISLAN _...
RÍKISSJÓÐS soiugongi pr. kr. 100.-
D — 1974 4.346,76
E — 1974 3.077,05
F — 1974 3.077,05
G — 1975 2.039,70
H — 1976 1.847,77
I — 1976 1.478,54
J - 1977 1.308,04
1.fl. — 1981 281,65
Ofanskráð gengi er m.a. 5% ávöxt-
un p.á. umfram verötryggingu auk
vinningsvonar. Happdrættisbréfin
eru gefin út á handhafa.
Verðbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu 12 101 Reykjavik
lónaóarbankahúsinu Simi 28566