Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 36 TUJTiT'" Æ' Islensk frímerki seld erlendis fyrir 18.620 þúsundir króna 1983 HEILDARSALA á íslenskum frí- merkjum á árinu 1983 nam 18.620 þúsundum króna og var það aukning um 94% frá árinu áður. Erlendir áskrifendur að ísienskum frímerkj- um eru um 11 þúsund. Þessar upp- lýsingar komu fram í svari sam- gönguráðherra, Matthíasar Bjarna- sonar, við fyrirspurn Guðrúnar llelgadóttur um sölu frímerkja er- lendis, á fundi sameinaðs þings síð- astliðinn þriðjudag. Tekjur Pósts og síma af sölu frí- merkja til annarra landa voru 1980 3.743 þúsund krónur, 1981 6.254 þúsund krónur (hækkun um 87% frá fyrra ári), 1982 9.584 þús- und krónur (hækkun um 53% frá fyrra ári). Að markaðsmálum er þannig staðið að upplýsingabréf er sent föstum viðskiptavinum, tímarit- um um frímerki og fleirum. Á þessu ári er gert ráð fyrir að tekið verði þátt í 11 sýningum á erlendri grund, en á siðasta ári voru þær 8, og síðustu tvö árin þar á undan var tekið þátt í 13 sýning- um bæði árin. Guðrún Helgadóttir, Alþýðu- bandalagi, lagði áherslu á að frí- merkjasala væri arðvænleg at- vinnugrein, og benti á að Færey- ingar fluttu út frímerki að verð- mæti 90 milljónir króna á árunum 1980—81, en á sama tíma fluttu íslendingar út frímerki fyrir 30 milljónir króna. Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks SjálfsUeðisflokksins, ræðir við fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson. Tekjur ríkissjóðs af sölu- skatti gætu tvöfaldast EF undanþágur frá söluskatti yrðu felldar niður af öllum vör- um og þjónustu, nema af endur- söluvörum og útflutningsvörum, yrði tekjuauki ríkissjóðs um 8 milljarðar króna. Þetta kom fram í svari fjár- málaráðherra, Alberts Guð- mundssonar, við fyrirspurn Jóns Baldvins Hannibalssonar, Al- þýðuflokki, um tekjutap ríkis- sjóðs vegna undanþágu frá sölu- skatti. í svari sínu tók ráðherra fram að hér væri frekar um fræðilegar tölur að ræða, en miðað við fyrrgreindar forsendur gæti söluskattsstigið lækkað um næstum helming, og orðið 12% ef halda ætti tekjum ríkissjóðs af söluskatti óbreyttum frá því sem nú er. Hins vegar benti fjármála- ráðherra, Albert Guðmundsson, á að allt það sem nú er undan- þegið söluskatti, svo sem heilsu- gæsla og önnur opinber þjónusta, myndi hækka, þar sem söluskatt- ur legðist einnig á það. Skattsvik rannsökuð VERIÐ er að vinna að aðgerðum gegn skattsvikum og hefur nefnd til að rannsaka skattsvik verið skipuð. Þetta kom fram í svari fjármála- ráðherra við fyrirspurn frá Jó- hönnu Sigurðardóttur, Alþýðu- flokki, um skattsvik. í ræðu sinni gagnrýndi Jó- hanna Sigurðardóttir að skatta- eftirlit skuli nær eingöngu bein- ast að launafólki og benti jafn- framt á að líklegt sé að skatt- svik nemi um 10—11% af þjóð- artekjum. Sami þingmaður beindi einnig fyrirspurn til dómsmálaráð- herra, Jóns Helgasonar, um að- gerðir gegn ólöglegum innflutn- ingi ávana- og fíkniefna, en í svari ráðherra kom fram að starfshópur hefur þetta mál til umfjöllunar. Dómsmálaráð- herra svaraði einnig fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðardóttur um sérdeild við Sakadóm Reykja- víkur, en við undirbúning fjár- laga var því hafnað að veif.a fjármagn til að ráða einn mann við sérdeildina, sem á að rann- saka skattsvik. Sömuleiðis var því hafnað að veita peninga til að ráða fimm nýja menn til rannsóknarlögreglunnar til að vinna að rannsókn skattsvika- mála. Kjarasamningur ASÍ og VSÍ Kjarasamningur Alþýðusambands íslands, landssambanda og einstakra aöildarfélaga og Vinnuveitendasambands ís- lands f.h. aðildarfélaga þess og einstakra meðlima, Meistara- sambands byggingamanna f.h. aðildarfélaga þess og ein- stakra meðlima svo og Reykjavíkurborgar sem samþykktur var í gær, er birtur í heild sinni hér á eftir: „1. grein Allir samningar ofangreindra aðila framlengjast til 31. desem- ber 1985 með þeim breytingum, sem í samningi þessum felast. Gildistími bónussamninga i fiskvinnu og saumaskap, sem unn- ið er eftir við gildistöku samnings þess, framlengist með sömu breyt- ingum til 1. janúar 1985. Bónus- samningarnir eru uppsegjanlegir frá þeim tíma með þeim fyrirvara, sem tilgreindur er í samningun- um. 2. grein Á samningstímabilinu verða breytingar launa og annarra samningsbundinna greiðslna sem hér segir: I. Við gildistöku samnings breyt- ast kaupliðir samninga sem hér segir: 1. Broti því sem er i launastiga kjarasamnings ASÍ og VSÍ milli 14. og 15. launaflokks verði eytt þannig, að eftirleiðis verði 2,4% milli allra flokka og byrjunarlaun 11. launaflokks verði kr. 10.818 m.v. ágúst laun. 2. Samhliða breytingu skv. 1. tölu- lið skulu starfsheiti 9. og 10. launaflokks flytjast i 11. launa- flokk, starfsheiti 11. launa- flokks flytjast í 12. launaflokk, starfsheiti 12. launaflokks flytjist í 13. launaflokk og starfsheiti 13. launaflokks flytjist í 14. launaflokk. Framangreind kerfisbreyting skal engin áhrif hafa á samn- ingsbundnar greiðslur, og grunntölur afkastahvetjandi launakerfa (premíutaxta, bón- ustaxta, akkorðstaxta), sem með einhverjum hætti miðast við starfsheiti í 9. — 13. launa- flokki, sbr. þó 6. tl. Sama gildir um kauptaxta einstakra starfs- hópa eða starfsmanna, sem hærri eru en hinir nýju flokkar eftir breytingu þessa. Fram- angreind laun og greiðslur skulu frá gildistöku samnings þessa taka sömu hlutfallslegu breytingum og grunnlaun/- starfsheiti 14. launaflokks. 3. Við gildistöku samningsins komi til nýtt starfsaldursþrep, þannig að eftir sjö ára samfellt starf í starfsgrein, þar af tvö síðustu árin hjá viðkomandi vinnuveitanda þar sem slík ákvæði eru nú um sex ára þrep- ið, verði laun 15% hærri en byrjunarlaun viðkomandi launaflokks. Sex ára starfsaldursþrep kjarnasamningsins samræmist og verði 12,5% hjá öllum starfshópum sem það hafa. 4. Við gildistöku flytjist ennfrem- ur öll starfsheiti upp um einn launaflokk, þannig að starfs- heiti úr 11. launaflokki (núver- andi 9. og 10. launaflokkur) flytjist í 12. launaflokk o.s.frv., 31. launaflokkur verði 32. launaflokkur. 5. Eftir áorðnar breytingar skv. 1.—4. tölulið hækka allir kaup- taxtar, lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu og grunntölur afkastahvetjandi launakerfa (sbr. þó 6. tl.) um 9,0% frá því sem var á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 1984 og verða því byrjunarlaun 12. launaflokks kr. 12.075 frá gildistökudegi að telja. Lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu verða kr. 14.075. 6. Reiknitala bónusvinnu í fisk- vinnu og saumaskap skal frá gildistöku samnings þessa vera kr. 67.00 en hækki 1. janúar 1985 í kr. 70.00, 1. mars í kr. 72.00 og 1. maí í kr. 74.00. Frá gildistöku samnings þessa skal reiknitala tímamældrar ákvæðisvinnu við ræstingu fyrir tímabilið kl. 08:00—21:00 mánudaga til og með föstudegi vera kr. 115,67 pr. mælda klst. Fyrir tímabilið kl. 21:00—08:00 svo og laugardaga og sunnu- daga skal greiða 20% álag á reiknitöluna. Reiknitala þessi taki síðan sömu breytingum hlutfallslega og grunnlaun/- starfsheiti 14. launaflokks. Öll önnur ákvæðisvinna, skv. bónus-, akkorðs- eða premiu- töxtum taki sömu hlutfallslegu breytingum og grunnlaun/- starfsheiti 14. launaflokks. II. Desember 1984 1. Þeim starfsmönnum sem taka laun skv. ákvæðum um lág- markstekjur fyrir fylla dag- vinnu (kr. 14.075 frá gildistöku samningsins) skal greiða auka- lega sérstaka launauppbót, kr. 1.500 við fyrstu útborgun í des- ember 1984 fyrir vinnu hjá hlutaðeigandi fyrirtæki síðustu 4 vikur fyrir útborgun. Greiðsla þessi verði hlutfallsleg sé hluti þessa tíma unninn eða sé um hlutastarf að ræða. III. 1. janúar 1985 1. Hinn 1. janúar 1985 verða laun eftir 1 ár að byrjunarlaunum í öllum launaflokkum og um- samnin starfsaldursálög reikn- ast á þann grunn. 2. Jafnframt flytjist öll starfs- heiti upp um einn launaflokk þannig að starfsheiti úr 12. launaflokk flytjist í 13. launa- flokk o.s.frv., 32. launaflokkur verði 33. launaflokkur. IV. 1. mars 1985 1. 1. mars 1985 flytjist öll starfs- heiti upp um einn launaflokk þannig að starfsheiti i 13. launaflokki flytjist í 14. launa- flokk o.s.frv., 33. launaflokkur verði 34. launaflokkur. 2. Þeim starfsmönnum sem taka laun skv. ákvæðum um lág- markstekjur fyrir fulla dag- vinnu (kr. 14.075) skal greiða aukalega sérstaka launauppbót, kr. 1.000 við fyrstu útborgun í mars 1985 fyrir vinnu hjá hlut- aðeigandi fyrirtæki síðustu 4 vikur fyrir útborgun. Greiðsla þessi verði hlutfallslega sé hluti þessa tíma unninn eða sé um hlutastarf að ræða. V. 1. maí 1985 1. Hinn 1. maí 1985 flytjist öll starfsheiti upp um einn launa- flokk, þannig að starfsheiti í 14. launafíokki flytjist í 15. laun- aflokk o.s.frv., 34. launaflokkur verði 35. launaflokkur. 2. Þeim starfsmönnum sem taka laun skv. ákvæðum um lág- markstekjur fyrir fulla dag- vinnu (kr. 14.075) skal greiða aukalega sérstaka launauppbót, kr. 500.00 við fyrstu útborgun í maí 1985 fyrir vinnu hjá hlut- aðeigandi fyrirtæki síðustu 4 vikur fyrir útborgun. Greiðsla þessi verði hlutfallsleg sé hluti þessa tíma unninn eða sé um hlutastarf að ræða. VI. laun og samningsbundnar greiðslur starfshópa, sem ekki taka laun miðað við samræmt launaflokka- og starfsaldurkerfi kjarnasamnings ASÍ og VSÍ taki sömu hlutfallslegu breytingum á samningstímanum og grunn- laun/starfsheiti 14. launaflokks, sbr. þó ákvæði 1—3 um nýtt starfsaldursþrep. 3. grein Samningsaðilar skulu á samn- ingstímabilinu vinna að endur- skoðun gildandi launakerfis og leita í sameiningu leiða, er tryggt geti eðiilegt samræmi í launum einstakra stétta og starfshópa. Athugun þessi skal höfð til hlið- sjónar í viðræðum aðila í lok samningstímabilsins eða eftir því sem um kann að semjast í samn- ingstímabilinu. 4. grein Á samningstímabilinu munu samningsaðilar beita sér fyrir að- gerðum, sem til þess eru fallnar að auka framleiðni og verðmæta- sköpun á öllum sviðum íslensks atvinnulífs. Einn þáttur þessa er endurskoðun afkastahvetjandi launakerfa. Launakerfin verði at- huguð og tryggt, að þau leiði til aukinnar framleiðni og gefi eðli- legt endurgjald fyrir vinnufram- lag. 5. grein Alþýðusamband íslands c Vinnuveitendasambands íslan! skipi hvort um sig tvo menn ; nefnd, er fylgist með framvim og þróun efnahags-, kjara- og at- vinnumála á samningstimanum. Skal nefndin m.a. undirbúa við- ræður aðila skv. 6. gr. samnings þessa og hefja störf þegar í stað. 6. grein Samningur þessi gildir frá und- irskriftardegi enda hafi samn- ingsaðilum borist tilkynning um samþykki fyrir 26. nóvember nk. Heimilt er Vinnuveitendasam- bandinu að beina tilkynningu hér um til Alþýðusambandsins og ein- stökum verkalýðsfélögum til VSÍ. Hafi tilkynning ekki borist innan umrædds frests öðlast samningur- inn fyrst gildi frá og með sam- þykktardegi viðkomandi verka- lýðsfélags. Þetta gildir einnig um þau verkalýðsfélög, sem ekki hafa sagt launaliðum samninga laus- um. Samningur þessi gildir til 31. desember 1985 og er uppsegjanleg- ur miðað við þann dag af hálfu beggja aðila með eins mánaðar fyrirvara. Sé honum ekki sagt upp framlengist hann um þrjá mánuði í senn með sama uppsagnarfresti. Fyrir apríllok 1985 skulu full- trúar Alþýðusambands tslands og Vinnuveitendasambands íslands hefja viðræður um mögulega framlengingu þessa samnings. Nái Alþýðusamband íslands og Vinnuveitendasamband ekki sam- komulagi samkvæmt framan- skráðu fyrir 25. júní 1985 verður launaliður samningsins laus frá og með 1. september 1985 án sér- stakrar uppsagnar. Reykjavík, 6. nóvember 1984. F.h. Alþýðusambands íslands v. landssambanda og aðilarfélaga með fyrirvara Ásmundur Stefánsson Björn Þórhallsson Guðmundur Þ. Jónsson Guðmundur J. Guðmundsson Karl Steinar Guðjónsson Herluf Clausen F.h. Vinnuveitendasambands ís- íands með fyrirvara um samþ. 'ramkvæmdastjórnar Páll Sigurjónsson Víglundur Þorsteinsson Magnús Gunnarsson Haraldur Sveinsson Ágúst Hafberg Guðjón Tómasson Brynjólfur Bjarnason Árni Brynjólfsson Sigurður E. Haraldsson F.h. Meistarasambands bygg- ingamanna með fyrirvara Gunnar S. Björnsson F.h. Reykjavíkurborgar með fyrir- vara um samþykki borgarráðs Jón K. Kristinsson"
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.