Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 35 Stefán Júlíusson Pólitísk- ur farsi Ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson KOMIN er út skáldsagan Pólitískur farsi eftir Stefán Júlíusson. Þetta er þriója skáldsagan sem Stefán sendir frá sér á síóustu 4 árum og mega þ»r teljast sagnabálkur. Pólitískur farsi mun vera þrítugasta bók Stef- áns. Um hana segir svo á kápusíðu. „Skáldsagan Pólitískur farsi er einkum og aðallega saga stjórn- málamanns sem farinn er að fella af og komist hefur í meiri eða minni andstöðu við fyrri sam- herja. Skáldsagan er einnig saga tveggja skjólstæðinga hans og vina af yngri kynslóð sem ekki geta að öllu leyti fellt sig við skaplyndi hans og gerðir. Þar myndast togstreita og átök. Skáldsagan greinir jöfnum höndum frá lífi og starfi yngri mannanna tveggja, fjölskyldum þeirra, ástum og atferli. Nokkrar örstuttar stiklur úr stjórnmála- sögu síðustu áratuga tvinnast skáldsögunni til að finna lífs- hlaupi aðalpersónunnar stund og stað.“ Pólitískur farsi er 167 bls. Út- gefandi er Bókaútgáfan Björk. Bókin er unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Stofnað „Félag Álft- firðinga og Seyðfirðinga vestra“ ÁTTHAGAFÉLAG fyrrverandi íbúa Súöavíkurhrepps búsettra I Reykja- vík og á Suövesturlandi hefur verið stofnaö á tveimur stofnfundum, 21. júní og 22. september sl. Á fyrri fundinum voru um 50 manns og á þeim síðari um 90, segir í fréttatil- kynningu frá félaginu. Félagið heitir „Félag Álftfirð- inga og Seyðfirðinga vestra“ og er tilgangur þess eins og segir í lög- um þess „að endurnýja og efla kynni fólks úr þessu byggðarlagi“ og að stuðla að varðveislu fróð- leiks um sögu þess, svo og mynda af mönnum og mannvirkjum sem snerta þá sögu. Á báðum þessum fundum ríkti mikil ánægja með stofnun félags- ins og var margt roskið fólk sem hittist þar í fyrsta sinn frá því í bernsku eða æsku. í aðalstjórn voru kjörin: for- maður Guðrún Guðvarðardóttir, ritari Ásgrímur Albertsson, gjald- keri Guðmundur Gunnlaugsson. Varastjórn: varaformaður Árni Markússon, vararitari Guðmund- ur Guðni Guðmundsson, vara- gjaldkeri Svava Markúsdóttir. Félagar geta menn orðið hvar sem þeir búa á landinu og væri kærkomið stofnendum að þeir sem áhuga hafa á að vera með og ger- ast stofnfélagar snéru sér til ein- hvers af stjórnarmönnum. bónus eftir 5ám samfemm tjóntausan akstur Sjóvá vill verðlaunaþá ökumenn sem hafa ekið tjónlaust samfelit í 5 ár. Á 6 ári fá þeir 55% bónus af ábyrgðariðgjaldinu Eftir 10 ára tjónlausan akstur verður heildarbónusinn 65% á hverju iðgjaldsári svo framarlega sem ökumaður veldur ekki tjóni. Petta boð nœr einnig til þeirra sem hafa vátryggt hjá öðrum vátryggingarfélögum. Tjónlaus ár þar koma þeim til góða hjá okkur. SJÓVÁ TRYGGT ER VELTRYGGT Umboðsnicnn um allt land Áskriftarsíminn er 83033 Auglýsingastofan örkin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.