Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 100 manns missa vinnu á Reyðarfirði — vegna sjómannaverkfallsins Rejivfirði, 26. febrúar. BUAST má við að um 100 manns missi atvinnuna hér á Reyðarfirði ef verkfall sjómanna dregst á langinn. Það er nær helmingur vinnandi fólks á staðnum. Hjá saltfiskverkun GSR eru verkefni nú á þrotum en þar hafa unnið á milli 20 og 30 manns. Hjá frystihúsi Kaupfélags Héraðsbúa lýkur vinnu um helgina og á morg- un verður 40 konum þar sagt upp kauptryggingu. Sjö karlar munu vinna áfram við lagfæringar og annað sem til fellur. Austursíld hf. verður með verkefni fram í Tveir togar- ar seldu ytra TOGARINN Arinbjörn RE seldi í Bremerhaven í V-Þýskalandi í gærmorgun 176,7 tonn, mest karfa, fyrir 5.845.700 krónur. Meðalverð fyrir kílóið var 33,07 krónur. Guðfinna Steinsdóttir ÁR seldi í Grimsby á mánudaginn 50 tonn fyrir 1.844.100 krónur. Uppistaðan í aflanum var þorskur og meðal- verð fyrir hvert kíló 36,90 krónur. í næstu viku munu fjórir togar- ar selja afla sinn í útlöndum og tveir í vikunni þar á eftir, skv. upplýsingum Jóhönnu Hauksdótt- ur hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. næstu viku. Þar eru tólf manns á launaskrá en tíu þeirra missa vinnu ef verkfall sjómanna dregst á langinn. Fyrir áramót var búið að bræða hjá Síldarverksmiðju ríkisins 17.026 tonn af loðnu. Eftir ára- mótin hafa borist á land 10.845 tonn. Enn eru óbrædd 3.500 tonn og ef allt gengur vel lýkur bræðslu 8. eða 9. mars. Um 30 manns eru á launaskrá hjá Síldarverksmiðj- unni. Ekki er vitað enn hve margir missa vinnu þar eftir að loðnu- bræðslu lýkur. Um helmingur þess loðnumjöls, sem framleiddur hef- ur verið í vetur, hefur verið seldur úr landi. Togarinn Snæfugl kom úr síð- ustu veiðiferð sinni miðvikudag- inn 20. febrúar með 89 tonn af fiski, þar af 20 tonn af þorski og 60 tonn af grálúðu, sem unnin er hjá frystihúsi Kaupfélags Héraðsbúa. Fólk hér hefur ekki enn jafnað sig peningalega eftir verkföllin í haust og er kvíðið vegna þeirrar stöðu, sem nú er komin upp. Góða veðrið, sem verið hefur hér hvern dag að undanförnu, er huggun harmi gegn og flýtir fyrir vetrin- um. — Gréta Tíu embættismenn utan að skoða Volkswagen TÍU embættismenn héldu í gær- morgun utan til Þýskalands til að skoóa Volkswagen-verksmiðjurnar í boði Heklu h.f., sem hefur umboð fyrir Volkswagen á íslandi. Tilgang- ur ferðarinnar er að kynna sér lög- reglubíla af ýmsum gerðum og stærðum. Hópurinn mun væntanleg- ur heim aftur fyrir helgi. Í sendinefndinni eru tveir starfsmenn dómsmálaráðuneytis- ins, þrír frá embætti lögreglu- stjórans í Reykjavík, einn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins, tveir frá Innkaupastofnun ríkisins og tveir úr svokallaðri bíla- og véla- nefnd, sem starfar undir Innkaupastofnun og Fjárlaga- og hagsýslustofnun fjármálaráðu- neytisins. „Þessi ferð er skattborgurum að kostnaðarlausu," sagði Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, er Mbl. leitaði fregna af ferðinni. Hann sagðist ekki sjá að nokkuð athuga- vert væri við ferðalagið, væntan- lega væri tilefni þess — af hálfu verksmiðjanna ytra — fyrirhuguð bifreiðakaup íslenska rikisins, trúlega væru Þjóðverjarnir of seinir ef þeir hefðu hugsað sér að hafa áhrif á val íslensku embætt- ismannanna. Þorsteinn sagðist telja að það gæti verið gott fyrir þá embættismenn, sem ættu að taka ákvörðun um bifreiðakaup ríkisins, að hafa nasasjón af því sem boðið er upp á á þeim mark- aði. Sjávarútvegs- ráðuneytið: 30 umsókn- ir um rækju- veiðileyfi UM 30 umsóknir um rækjuveiðileyfi liggja fyrir í sjávarútvegsráðuneyt- inu að sögn Jóns Arnalds ráðuneyt- isstjóra. Umsóknirnar verða ekki af- greiddar fyrr en fyrir liggur álit fiskifræðinga um leyfilegt aflamagn á úthafsveiðum á næsta ári. Meðal umsóknanna eru umsókn frá eigendum sláturhússins á Patreksfirði, en þeir hyggjast breyta sláturhúsinu í rækju- vinnslustöð. Þá er önnur umsókn frá fyrirtækinu Vatneyri á sama stað. Að sögn Jóns eru hinar um- sóknirnar alls staðar af landinu. Norðurlandaþing sett í Reykjavík á mánudag: Hátt í 6 hundruð erlendir gestir ÞRÍTUGASTA og þriðja þing Norðurlandaráðs verður sett í Reykjavík næstkomandi mánudag, 4. mars, á hádegi og mun það standa til föstudagsins 8. mars. I tengslum við þingið verða rúmlega 700 manns, 150 þingfulltrúar og ráðherrar verða hér á landi og væntanlegir eru nálægt því 200 blaðamenn. Forsætisráðherrar allra Norðurlandanna koma hingað og utanríkisráðherrar nema Danmerkur. Samtals munu erlendir gestir verða hátt á sjötta hundrað. ræðu, sem og Nordsat sjón- Aðalmál þingsins verður sam- eiginlegt átak Norðurlandanna til að auka hagvöxt og atvinnu, en auk þess má gera ráð fyrir að skipulagsmál verði mikið til um- sem og varpshnötturinn. Þinghald fer fram í Þjóðleik- húsinu, en fundir í tengslum við það í Borgartúni 6. Morgunbl&dið/Bj arni Samningafundur í deilu kennara í Hinu íslenska kennarafélagi og fjármálaráðuneytisins var í gær. Á myndinni sjást samningamenn rikisins og kennara í upphafi fundar. Kennaradeilan: „Útilokað að samið verði fyrir föstudag" — segir formaður samninganefndar ríkisins „Höldum fast við okkar kröfugerð“ — segir formaður HÍK „AF ÞESSUM fundi eru engar stórfréttir. Samninganefnd ríkisins ítrekaði þá afstöðu sína að kröfugerð okkar væri ekki samningsgrundvöllur,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður Hins íslenska kennarafélags, þegar hann var inntur frétta af samningafundi, sera haldinn var í gær. Kristján sagði, að samninga- menn ríkisins hefði boðist til að semja við kennarana um sam- svarandi hækkanir og semdist um við önnur félög í launamála- ráði BHM. „Það kom einnig fram í máli samninganefndarmanna, að þeir væru fúsir til að taka tillit til rýrnunar á kjörum kennara miðað við aðrar stéttir, en það var ekki útskýrt nánar hvað í því fælist. Loks var okkur tjáð að fullt tillit yrði tekið til niðurstöðu endurmatsnefndar, sem nú starf- ar á vegum menntamálaráðu- neytisins," sagði Kristján. Indriði H. Þorláksson, formað- ur samninganefndar ríkisins sagði að nefndin hefði ekki lagt fram nein tilboð á fundinum. „Við lögðum hins vegar fram ýmsar tæknilegar upplýsingar varðandi skiptingu í starfsaldurshópa vegna breytinga á launaflokka- kerfinu," sagði Indriði. „Við gerð- um auk þess grein fyrir viðhorf- um okkar til samningamálanna, þ.e. að við gætum ekki lagt fram nein ákveðin tilboð á þessu stigi, þar sem heildarkröfur annarra BHM-félaga eru ekki ljósar. Við viljum semja við HÍK í samræmi við önnur félög háskólamennt- aðra manna. Að auki viljum við taka tillit til þeirra atriða, sem kennarar leggja sérstaka áherslu á, þ.e. þeirra fullyrðingar um að þeir hafi á síðustu árum dregist verulega aftur úr öðrum háskóla- menntuðum mönnum og einnig viljum við taka tillit til niður- stöðu nefndar þeirrar, sem nú vinnur að endurmati á störfum kennara." Indriði sagði, að engar líkur væru á því að búið væri að semja við kennara fyrir föstudag. „1. mars er enginn lokadagur fyrir samningana. Eins og áður hefur komið fram er tæknilega og efn- islega ekki hægt að binda sig við þann dag.“ Kristján Thorlacius sagði ÞORGRlMUR Daníelsson afhenti síðastliðinn þriðjudag Ragnhildi Helgadóttur, menntamálaráðherra, áskorun frá 445 nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna uppsagna framhaldsskólakennara. Áskorunin var svohljóðandi: „Við undirritaðir nemendur í Menntaskólanum á Akureyri hörmum þá þróun sem orðið hef- ur í Iaunamálum kennara undan- kennara hafa óskað eftir því að samninganefnd ríkisins talaði skýrar um hugmyndir sínar á næsta samningafundi, sem hald- inn verður á morgun. „Við höld- um fund með þeim félagsmönn- um okkar, sem sagt hafa upp störfum, eftir þann samninga- fund,“ sagði Kristján. „Ef samn- inganefndin talar ekki skýrar, þá held ég að það gæti reynst erfitt að fá félagsmenn okkar til að hlusta á svona óákveðið tal. Við höldum fast við okkar kröfugerð á meðan við fáum ekkert á móti,“ sagði Kristján að lokum. farinn áratug. Sem nemendur krefjumst við þess að samnings- aðilar reyni í alvöru að ná samn- ingum hið allra fyrsta, til þess að létta af þeirri óþolandi óvissu, sem við nú þurfum að poia.“ Undirskriftasöfnunin fór fram þriðjudaginn 19. febrúar og skrif- uðu undir eins og áður segir 445 nemendur, en í skólanum eru um 600 nemendur. Nemendur MA skora á kenn- ara og stjórnvöld að ná samningum Morgunblaðið/Bjarni Skólameistar- ar þinga í Reykjavík ARLEGUR fundur samráðsnefndar menntaskólastigsins stóð í gær og í fyrradag. í nefndinni eiga sæti skólastjórar allra skóla, sem út- skrifa stúdenta, auk fuiltrúa menntamálaráðuneytisms. Meðal mála til umræðu voru uppsagnir kennara, en engin ákveðin niður- staða fékkst í því máli. Á myndinni sjást nokkrir skólameistaranna ræða saman yfir grískum mat á veitingastað- num Zorba eftir stranga fundars- etu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.