Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 Tækniskólinn í Álaborg: Unnt að gera lostætar pylsur úr fiskúrgangi í TKkniskólanum í Álaborg á hefur þegar snúið sér til borgar- „f Norður-Jótlandi einu saman Norður—jótlandi hefur verið vfirvalda f Álahorir na vakið at- hont nm 9H—'ÍO tnnniim af í Tækniskólanum t Álaborg á Norður—Jótlandi hefur verið fundin upp byltingarkennd Uekni, sem gerir kleift að framleiða úr- valsvöru úr fiskúrgangi, að því er fram kom í danska blaðinu Aktu- elt nýlega. Uppskrift skólans er einföld: í stað þess að henda fiskúrgangi, eru gerðar úr honum pylsur, sem eru herramannsmatur. í skólanum hefur verið fundin upp aðferð til að nota þann hluta fisksins, sem verður afgangs og notast ekki í fiskiðnaðinum. Er þar um að ræða fisk, sem verður eftir á beinunum, þegar flakað er. Snasl þetta verður að úrvals- vöru, þegar tækniskólafólkið hefur farið höndum um það og búið til úr því fjölmargar gerðir af pylsum, sem þykja lostæti sem álegg. Forstöðumaður tækniskólans hefur þegar snúið sér til borgar- yfirvalda í Álaborg og vakið at- hygli þeirra á þeim atvinnutæki- færum, sem þessi nýja aðferð býður upp á. Borgarstjórinn í Skagen, Erik Thomsen, er mjög uppveðraður vegna þessa. Hann segir aðferð tækniskólans mjög áhugaverða, auk þess sem aldrei sé of mikið gert til að skapa atvinnulausu fólki vinnu. Um 2000 manns eru atvinnulausir í Skagen. Tomsen borgarstjóri segir einnig að ekki sé hætta á, að þessi framleiðsla keppi við þann fiskiðnað sem fyrir er, þar sem slík starfsemi sé enn sem komið er hvergi til staðar. Það var slátur- og pylsugerð- armeistarinn Jörgen Gaaei, sem starfar hjá tækniskólanum í Álaborg, sem fann upp þessa að- ferð og hefur unnið að fullkomn- un hennar síðastliðin 8—10 ár. Norður-Jótlandi einu saman er hent um 25—30 tonnum af fiski dag hvern," segir Jörgen Gaaei í viðtali við Aktuelt. „Fjöldi atvinnutækifæranna fer svo eftir því, hversu mikið hrá- efnið verður unnið. Því verð- mætari sem varan er sem fram- leiða á, því fleiri atvinnutæki- færi skapast í kringum vinnsl- una.“ Danir eru eitthvað hikandi við að notfæra sér þessa nýju tækni. En það sama verður ekki sagt um Grænlendinga. Þeir hafa þegar tileinkað sér hana og ætla að hefja framleiðslu eins fljótt og auðið er. Nuka Knudsen, 26 ára gamall kjötiðnaðarmaður frá Nuuk í Grænlandi, hefur verið í Ála- borg, að tilhlutan heimastjórn- arinnar, og lært vinnubrögðin. Nú er hann kominn heim og mun kenna löndum sínum það sem Upphafsmaður nýju tækninnar, Jörgen Gaaei, ræðir hér við einn nemenda sinna, Nuka Knudsen frá Grænlandi. hann lærði í Danmörku. I Græn- landi er daglega hent miklu af fiskúrgangi. „Heimastjórnin er mjög áfjáð í að nýta þessa nýju tækni," seg- ir Nuka Knudsen. „Ástæðan er m.a. sú, að það er svo ódýrt að hefja framleiðslu af þessu tæi og t.d. þarf ekki mikinn vélakost. Það er áreiðanlega markmiðið að gera þetta að iðnaði á Græn- landi." Rokkhópur gefur ágóða af Afríku- hljómleikum London, 26. febrúar. AF. BREZKI rokkhópurinn UB40 hefur gefið eitt hundrað þúsund sterl- ingspund, eða allan ágóða af hljóm- leikum í Afríkulöndum upp á síð- kastið til styrktar fátækum og heimilislausum í Zimbabwe, að því er framkvæmdastjóri UB40 skýrir frá í dag. Hann sagði að hópurinn hefði ekki ætlað að skýra frá gjöfinni, en brezkar fréttastofur hefðu fengið óljósar fregnir af ákvörð- un hópsins. Robert Mugabe, for- sætisráðherra Zimbabwe, veitti gjöfinni viðtöku eftir að hljóm- leikaförinni lauk fyrir nokkru. Genscher lætur af flokks formennsku Saarbrtirken, 26. febrúar. AP. HANS-DIETRICH Genscher utanríkisráðherra hefur látið af formennsku í Frjálsa demókrataflokknum (FDP) eftir 11 ára starf til þess að reyna að stuðla að einingu í flokknum og Martin Bangemann efnahagsmálaráðherra er tekinn við af honum. Bangemann var kjörinn eftir- maður Genschers á flokksþingi FDP í Saarbrúcken með 89 af hundraði atkvæða. Genscher samþykkti fyrir níu mánuðum að láta af formennsku til þess að auka möguleika á ein- ingu í flokknum, sem hefur misst 10% skráðra flokksmanna og einnig glatað verulegum stuðningi meðal almennings á undanförnum tveimur árum. Minnkandi gengi flokksins hef- ur valdið áhyggjum um stöðu samsteypustjórnarinnar i Bonn. Samkvæmt síðustu skoðanakönn- unum fengi FDP innan við fimm af hundraði atkvæða, ef kosið væri nú, og þar með fengi hann engan þingmann kjörinn. Genscher kvaðst vona að hann gæti haldið áfram að styrkja flokkinn, þótt hann yrði ekki leng- ur leiðtogi hans. Deilurnar í flokknum hófust þegar Genscher tók þá ákvörðun að hætta samstarfi við sósíal- demókrata og mynda samsteypu- stjórn með kristilegum demó- krötum 1982. Staða FDP hefur einnig veikzt mikið vegna Flick-málsins, sem einn af leiðtogum flokksins, Otto Lambsdorff fyrrverandi efna- hagsráðherra, flæktist í. Leiðtogar flokksins vona að nýr formaður geti stuðlað að því að flokkurinn endurheimti vinsældir sínar. En ýmsir eru efins um að Bangemann sé vandanum vaxinn. Genscher Nauðlenti á örsmárri kóraleyju Aucklmnd, Njj»-.Sjál»ndi, 26. rebrúar. AP. VÉL af gerðinni IX -10 frá franska flugfélaginu UTA og með 200 far- þega um borð nauðlenti á lítilli kór- aleyju norður af Tahiti í morgun, eftir að tilkynnt hafði verið um talstöð að sprengja væri í vélinni. Flugstjórinn lenti á flugbraut á Rangiroa-eyju sem er um 300 km fyrir norðan Tahiti. Eyjan er nánast langt og mjótt kóralrif með lóni í miðju og ekki er vitað til að aðrar en litlar vélar hafi lent þar. Lendingin tókst vel og farþegar og farangur voru síðan selflutt til Papeete. Vélin var í áætlunarflugi frá Los Angeles til Auckland á Nýja-Sjálandi með millilendingu á Tahiti. Fjórir ráðherrar féllu í Pakistan gorenje ^^SKANDINAVIEN * Gæða ísskápar Gorenje HDS 201K rúmar 260 lítra. Þar af er 185 litra kælir og 65 lítra djúpfrystir. Sjálfvirk affrysting. Hæð 138 cm, breidd 60 cm, dýpt 60 cm. Verð aðeins kr. 15.865,- stgr. Sami gæðaflokkur og ísskápar í mun hærri verðflokkum. Gtóðir afborgunarskilmáJar, - látið ekki happ úr hendi sleppa. Þetta er ekki bara draumur - þetta er blákaldur veruleikinn. Gunnar Ásgeirsson hf. Söðurlandsbraut 16 Simi 91352ÚÖ Zia leysir ríkisstjórnina frá störfum bdamabad. 26. febfúar. AP. Mohammed Zia Ul-haq hershöfð- ingi leysti upp ríkisstjórn sína í dag í kjölfar þess að fjórir ráðherranna náðu ekki kjöri í þingkosningum í Pakistan í gær, hinum fyrstu þar í landi í 8 ár. Enda þótt talningu atkvæða sé ekki að fullu lokið þá eru úrslitin áfall fyrir herstjórn Zia. Lét hann handtaka hundruð stjórn- arandstæöinga áður en kjördag- ur rann upp. Hafði hann og lýst yfir því að þingkosningarnar væru fyrsta skrefið í afnámi herlaga í Pakistan. Kosið var um 217 þingsæti, en völd þingsins eru óljós þar sem Zia tekur allar ákvarðanir sem máli skipta. Ráðherrarnir, sem ekki hlutu kosningu, voru varn- armálaráðherrann, Alhaj Mir Ali Ahmed Khan Talpur, at- vinnumálaráðherrann, menning- armálaráðherrann og upplýs- ingamálaráðherrann. Einnig féllu tveir ráðuneytisstjórar, annar þeirra ráðgjafi Zia í við- skiptamálum. Áf hálfu stjórnarandstöðunn- ar var því haldið fram að a.m.k. 2.000 stjórnarandstæðingum hefði verið varpað í fangelsi fyrir kosningarnar, en hið opinbera segir þá hafa verið 369 talsins. Kosningaþátttaka var mjög mikil þótt tölur um kjörsókn liggi ekki fyrir. Zia hafði sagst verða ánægður með 40% kjör- sókn, en ljóst er að hún var enn meiri. Talsmaður stjórnarinnar reyndi að gera lítið úr ósigri ráðherranna og láusn stjórnar- innar. Hann sagði að ákveðið hefði verið fyrir kosningar að ráðherrar, sem færu fram, yrðu sjálfkrafa settir til hliðar eftir kosningar, án tillits til úrslita kosninganna. Götumynd frá Rawalpindi í Pakistan á kosningadegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.