Morgunblaðið - 24.09.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985
25
Kristinn Sigmundsson
Katrín Sigurrtardóttir
Elísabet F. Eiríksdóttir
Sigríftur Ella Magnúsdóttir
Robert W. Becker og Viðar Gunnarsson.
fyrr. Það er því merkilegt hversu
Sveini Einarssyni tekst að sam-
hæfa vel í leik og atferli svo stór-
an hóp lítt reyndra óperusöngv-
ara. Elísabet F. Eiríksdóttir syng-
ur viðamikið hlutverk og þrátt
fyrir skort á leiktækni tekst henni
að skapa sannfærandi mynd af
istöðulausri og ráðalítilli konu.
Þar sem mest reyndi á í söng, eins
og í öðrum þætti og þegar hún
krýpur manni sínum í upphafi
þriðja þáttar, var söngur hennar
mjög góður. Kristján Jóhannsson
er sá maður sýningarinnar sem
hefur verulega reynslu á sviði en
auk þess syngur hann hreint út
sagt stórkostlega. Kristinn Sig-
mundsson syngur Renato. Hann
var ekki í sem bestu formi á sýn-
ingunni og kom það helst fram þar
sem reyndi á tónhæðina. Aftur á
móti var leikur hans nokkuð góður
en í skapgerð Renatos eiga að búa
saman tryggðin og vináttan, sem
síðar snúast upp í hatur og hefnd-
arþorsta.
Þessu skilar Kristinn á sann-
færandi máta. Spákonur gegna
oftlega mikilvægu hlutverki í
óperum og hér er hún lykilmann-
eskja. Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngur Ulricu og gerir það glæsi-
lega. Katrin Sigurðardóttir var
mjög góð sem Oscar. Leikur henn-
ar var frísklegur og þar sem hún
fékk tækifæri til að láta rödd sína
hljóma var hún frábær, sérstak-
lega á grímudansleiknum á móti
Renato. Skúrkarnir í leiknum, sem
þó eru frá hendi höfundar mein-
leysisgrey, þeir Ribbing og Horn,
voru sungnir af Robert W. Becker
og Viðari Gunnarssyni og voru
þeir mjög góðir, bæði í leik og
söng. Þrjár nýjar raddir koma
fram í smáhlutverkum, bræðurnir
Guðbjörn og Gunnar Guðbjörns-
synir, sem trúlega eiga eftir að
láta meira í sér heyra á óperusvið-
inu, og Björn Björnsson, félagi í
Þjóðleikhúskórnum, er söng Silv-
ano ágætlega. Atriðið með Silvano
er frá hendi Verdis sérlega veikt
og jafnvel óþarft innskot, nema þá
helst til að leggja áherslu á al-
þýðuvinsældir og aiþýðlega fram-
komu konungsins. Dansar á
grímuballinu voru uppfærðir af
Islenska dansflokknum undir
stjórn Ingibjargar Björnsdóttur
og féllu þeir ágætlega saman við
samhliða atburðarás, einkum voru
menúettdansarnir skemmtileg
svipmynd. Hljómsveitin var í sínu
besta formi og átti ekki lítinn þátt
í heilstæðri og góðri sýningu. Allir
sem hlut áttu að þessari sýningu
hafa unnið vel og ekki á nokkurn
hallað þó sagt sé að Kristján Jó-
hannsson hafi borið sýninguna
uppi með ótrúlega glæsilegum
söng og Iíflegum leik, og er í raun
óþarfi að taka nokkuð sérstaklega
fram, annað en að slíkur söngvari
á sannarlega einnig erindi upp á
stærra svið en litla sviðið okkar í
Þjóðleikhúsinu.
Snyrti- og
tískunámskeiö
sótAyy & Stendhal
Húðsnyrting
Förðun
Hárhirðing
Líkamshirðing
llmvatnsnotkun
Fataval
Framkoma
Sólnotkun
Litaval
Stjórnandi: Heiöar Jónsson
Sérstök stutt námskeiö (1 kvöld),
annars 3 kvöld
Kvenfélög, starfshópar, kvennaklúbbar.
Sérstök námskeið fyrir veröandi sýningarfólk.
Sérstök frúarnámskeiö.
Prófskírteini.
Upplýsingar og bók-
anir í síma 686334 kl.
8—16 virka daga.
Kennslustaður
GASA
Dugguvogi 2,
2. hæö. Inngangur
ofanverðu viö húsið.
aö
DIILUX
fráOSRAM
Dulux 5w 82 mm
m—i Dulux 7w 112 mm
m -i Dulux 9w 144 mm
=) Dulux 11w 212 mm
Dulux frá Osram fer eins og Ijósið um
allan heim, vekur athygli fyrir góða hönn-
un, sexfalda endingu miðað við venju-
lega peru og 80% lægri lýsingarkostnað.
Dulux perurnar eru 5w, 7w, 9w og 11w en
það samsvarar 25w, 40w, 60wog 75 w
miðað við venjulegar perur.
■ JÓHANN 0LAFSS0N & C0. HF.
| 43 Sundaborg 13 - 104Reykjavík - Sími8 2644
Þjónusta í öllum helstu raftækjaverslunum