Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 SÖNGSKEMMTUN — eftir Jón M. Guðmundsson ólafur Magnússon frá Mosfelli tók sig til og hélt söngskemmtun með undirleik Jónasar Ingimund- arsonar píanóleikara sl. laugardag í Hlégarði í Mosfellssveit. Húsið var þétt skipað áheyrendum og var þeim félögum vel fagnað. Tilefni þessara tónleika var að Ólafur varð 75 ára að aldri sl. nýársdag og hann mun nú hafa sungið og leikið fyrir almenning í 50 ár samfleytt. Þetta hefir þó ávallt verið stundað í frístundum en Ólafur hefir haft fasta vinnu alla tíð og nú síðast sem húsvörður í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Söngskránni var skipt niður I þrennt en undirleikarinn Jónas Ingimundarson lék einleik á flygil milli þátta. Fyrstu fimm lögin voru eftir íslensk tónskáld, þá Árna Thorsteinsson, Jón Laxdal, Sigfús Halldórsson, Árna Björnsson og Björgvin Guðmundsson. Miðhlut- inn var eftir Söderberg og Meri- kantó ásamt nokkrum erlendum þjóðlögum. í aðalhléinu lék Jónas Idyl eftir Sveinbjörn Sveinbjörns- son og Vikivaka eftir sama höfund. Að lokum söng Ólafur Vor eftir Pétur Sigurðsson og fjögur lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Undirtektir áheyrenda voru mjög góðar og söng Ólafur nokkur aukalög og fagnandi faerðu ýmsir honum blóm og árnaðaróskir í lok tónleikanna. Þessir tónleikar voru gerðir af menningarmálanefnd Mosfellshrepps og það kom fram að þeir félagar hafa nú lokið við að gera hljómplötur þar sem Ólaf- ur syngur og Jónas leikur einleik á píanó. Voru plötur þessar til sölu á skemmtuninni. Útgáfu og dreif- ingu annaðist bókaforlagið Örn og Örlygur í Reykjavík, og eru plötur þessar komnar í verslanir. Það mun vera fátítt eða kannske einsdæmi hér á landi að maður á þessurn aldri haldi heila tónleika, með slíkum tilþrifum. Þeir sem til þekkja vita að það er hverjum manni veruleg þrekraun að syngja um tuttugu lög fyrir kröfuharða áheyrendur en hinn síungi Ólafur frá Mosfelli söng sig vel upp eins og best gerist og lauk tónleikunum með aukalögum og glæsibrag. Það kom fram sem er ef til vill næsta ótrúlegt að þetta er fyrsti heili sjálfstæði konsertinn sem Ólafur heldur á ævinni og kannske ekki seinna vænna en hann verður 76 ára aldri eftir rúman mánuð. Mörgum er um það kunnugt að Ólafur hefir starfað í kórum og komið fram bæði þar og víðar sem einsöngvari. Lengst af starfaði hann í Karlakór Reykjavíkur eða nær 40 ár og er ennþá vel virkur í öldungadeild kórsins. Þá hefur Ólafur starfað í leikhúsum og tekið þátt í uppfærslu á söngleikjum við góðan orðstír og það yrði alllangt mál að rekja það hér. Hinsvegar er hann eða var þekktastur fyrir hlutverk sem álfakóngur í þrett- ándagleði og áramótabrennum og kannske sá eini sanni jólasveinn á íslandi um langt árabil. RAM5KAR JOLAPEY5UR á frábæru verði! Vegna hagstæðra innHaupa getum við boðið þe55ar gullfallegu frönsHu peysur í þremur 5tærðum á ein5taHlega hagstæðu verði. Pær eru níðsterHar og þola þwott \ wenjulegum þvottavélum. Verð aðeins kr. 1.985.- Stærðir: Small - Medium - Large. ...ogsíóan falleg föt frá SERÞJOMU5TA V© LAMDSBYQGÐIMA: Wlö höfum símaþjónustu opna tll Hl. 21.00 á kwöldln þessa vlku fyrlr þá sem vllja panta í pÓ5tkröfu. Síminn er 91-11506. cllc SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42 Ólafur Magnússon Ólafur er nú hættur störfum og kominn heim í sveitina sína og dundar við ræktun að Viðirhóli og syngur nú með Karlakórnum í Mosfellssveit. Þar sem annars- staðar er hann vinsæll og virtur og mikil driffjöður í starfseminni. Við óskum Ólafi til hamingju með afmælið í fyrra og þökkum honum hans góða framlag til söng- starfsemi á liðnum áratugum sem raunar öll þjóðin hefir notið á undanförnum áratugum. Það er mikill fengur að fá rödd- ina hans óla inná plötu og að dómi ýmissa manna hefir hann kannske aldrei sungið betur en nú en um það er erfitt að dæma þar sem fátt mun vera til af upptökum frá fyrri tíð. Ólafur er hress og heilsugóður og virðist ekkert ætla að láta deig- an síga þótt hann sé nú nokkuð við aldur, eins og stundum er sagt um menn sem eru hálfáttræðir. Við þökkum skemmtunina og allan sönginn fyrr og seinna. Lifðu heill. J.M.G. Höíundur er frétUriUri Mbl. í Mosfeiissveit. mGÓLf^sott Sextán ára í sambúdeftir Eðvarð Ingólfsson er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Fimmtán ára á föstu. Fimmtán ára á föstu fékk fádæma góðar viðtökur í fyrra og seldist meir en nokkur barna- og unglingabók Sextán ára í sambúö gefur henni ekkert eftir. í sögunni eru miklar sviptingar en hún er skemmtileg og hlýleg og lætur engan ósnortinn. Þannig bækur vilja unglingarnir eiga og þær bækur er gaman að gefa þeim. Það er alveg pottþéttl^^^^gBJI ÆSKAN Laugavegi 56 Simi 1 73 36 Pottþétt unqlinaabók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.