Morgunblaðið - 05.12.1985, Síða 30

Morgunblaðið - 05.12.1985, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 International Hotel and Tourism Training Institutes Ltd. VERÐLAUNUÐ FRAMTÍÐARSTÖRF HVAR SEM ER í HEIMINUM! Nám í hótelrekstri í Sviss Kennd er list Svisslendinga á sviöi gestrisni ásamt háþróuöum bandarískum aöferðum í hótelrekstri. Námið tekur 3 ár og er skólinn opinn öllum þeim sem hafa lokiö 12 skólaárum. Kennsla fer fram á ensku. Næsta skólaár hefst mánudaginn 17. febrúar 1986. Kennsluhóteliö er staösett í Weggis, einum fegursta feröa- mannastaö Svisslendinga á bökkum Lucern. Hittið fulltrúa okkar Mr. Marco Monteforte á Hótel Borg, Pósthússtræti 11, Reykjavík, sími 11440, laugardaginn 7. des. frá kl. 10.00—18.00 og sunnudaginn 8. des. á sama tíma. IHTTI International Hotel and Tourism Training Institute Ltd. P.O. Box 95,4006 Basel/Switzerland, sími: 61-42 30 94. Til sölu árgerö 1985, sjálfskiptur, 4ra gíra, blágrár. Staö- greiösluverö kr. 1.780.000. Hægt er aö greiða allt andviröi eöa hluta þess með veðskuldabréfum til all að fimm ára. Upplýsingar í síma 28527 eftir kl. 19.00. jíGolfverslun /\ John Drummond Gjöfina handa golfaranum fáiö þiö hjá okkur! Stórkostlegt úrval af kylfum, pokum, kerrum, skóm og fatnaði í öllum verð- flokkum. Munið líka gjafakortin vinsœlu. í desember er opið frá kl. 16:00 til 20:00 mánudaga til föstudaga og frá kl. 10:30 til 16:00 á laugardögum. Látið atvinnumanninn velja með ykkur gjöfina. jTGolfverslun /I John Drummond Golfskálanum Grafarholti Sími:82815 Heima:40189 Bruckner kemur til himna Sinfónía englabarnanna Um Te Deum Bruckners — eftir Kolbein Þorleifsson Sá merkisatburður mun eiga sér stað í Háskólabíói í kvöld að Sin- fóníuhljómsveit fslands og Söng- sveitin Fílharmonía munu frum- flytja níundu sinfóníu Bruckners undir stjórn gríska hljómsveitar- stjórans Karolosar Trikolidis. Sinfónían verður flutt ásamt loka- kaflanum Te Deum, eins og lengi hefur tíðkast. Sinfónían er frá hendi tónskáldsins, sem var mikill trúmaður á rómverks-kaþólska vísu, heimspekileg og guðfræðileg úttekt á lífi hans, jafnframt því að vera aldarspegll tónlistarsögu- legra tímamóta, þar sem tónskáld- ið sér að gamli tíminn er að hverfa og eitthvað nýtt er að verða til. Tónskáldinu tókst aldrei að full- gera lokaþátt sinfóníunnar, sem af því hefur hlotið nafnið „ófull- gerða sinfónían". En sakir efnis sinfóníunnar hefur Te Deum ætíð verið haft sem lokakafli verksins, og það er við hæfi, því að þá endar sinfónían á himnum hjá Guði, eins og Bruckner sjálfur hefði viljað láta ævisögu sína enda. Sú tilvilj- un, að grískur hljómsveitarstjóri verður stjórnandi á hljómleikun- um, kveikir vonir um að takast muni að ná hughrifum hinnar gömlu kristnu dulspeki, sem verkið er allt gagntekið af. Því að sinfónían er eins og sagan um englabörnin eftir Sigurbjörn Sveinsson: Dæmisaga um göngu mannsins til Paradísar, þar sem maðurinn berst við óvininn í öllum sínum myndum, svo sem illan úti- legumann sem er tákn dauðans, og líka við mannlega veikleika, en í öllum hrakförum mannsins vaka engilbörnin yfir honum, og að lokum, þegar landinu bak við móð- una miklu er náð, „þá svífa í loftinu skínandi bjartir englar með himn- eskum hörpuslætti og söng“. Á þetta minna englamyndir Thor- valdsens í kórlofti dómkirkjunnar okkar, og myndir meistara Kjar- vals úr álfheimum eða mynd- skreyting hans við söguna um engilbörnin (1910). Á gamalli klippimynd sést Bruckner leiddur af engilbarni inn í tónlistarhöll himnaríkis, þar sem helstu tónmeistarar fortíðarinnar taka á móti honum og gamli Bach býður organistann Bruckner vel- kominn með inngöngustefi á orgel- ið. En í loftinu eru meðlimir í sinfóníuhljómsveit og kór himna- ríkis á hraðri ferð á æfingu á Te „Engu að síður er þessi leikræna saga um stór- menni kirkjunnar hæfileg umgerð um þann söng, sem einn getur talist „þjóðsöngur kristins lýðs“.“ Deum. Mahler hafði víst sagt, að Te Deum Bruckners væri skrifað fyrir englaraddir. Trúmaðurinn Bruckner hafði nefnilega notið tónlistarmenntun- ar sinnar í glæsilegu Ágústínus- ar-klaustri í grennd við þorpið sitt, og nefndist klaustrið Sánkti Flór- íans-klaustur. Þar var hann líka organisti um tíma og kom þar oft síðar. Ennþá geyma menn fram- hlið orgelsins sem Bruckner lék á og sótti til hugmyndir í meistara- verk sín. Þarna hefur hann líka tileinkað sér söguna sem munkar höfðu í þúsund ár sagt um „Lof- söng Ambrósíusar" sem ætíð var sunginn i lok óttusöngsins efri. Þessa sögu þýddi Runólfur Sig- mundsson ábóti í Ágústínusar- klaustrinu í Veri 1264—1306. „Svo bar að á einum hátíðardegi að Ágústínus var viðstaddur pré- dikan hins heilaga Ambrósíus biskups, sem móðir hans beðið hafði, þá er biskup greindi um almennilega trú og braut saman fagurlega hið forna og hið nýja lögmál. En við hans prédikan vitj- ar kraftur og miskunn Heilags anda hjarta Ágústíní. Ambrósíus sér og skilur, að hans varð vitjað af Guði, verður hann mjög feginn og lofar Guð með þessum orðum: Te Deum laudamus, te dominum confitemur. Ágústinus svaraði: Te aeternum patrem omnis terra veneratur. Svo andstefnast þeir við með versaskipti allan þennan lof- söng til lykta, sem hann er síðan sunginn í heilagri kristni." Fræðimenn hafa á síðari öldum komist að þvi, að saga þessi um víxlsöng þeirra Ambrósíusar og Ágústínusar hafa ekki átt sér stað í raunveruleikanum, enda eru áreiðanlegar heimildir til um ævi þessara manna, jafnvel frá hendi þeirra sjálfra, sem ekki minnast einu orði á atburðinn. Engu að síður er þessi leikræna saga um stórmenni kristninnar hæfileg umgerð um þann söng, sem einn getur talist „þjóðsöngur kristins lýðs“. Textinn er að stofni til ætt- aður úr Austurlöndum frá því á þriðju öld, og halda flestir fræði- menn að Níketas biskup í Remes- íana (Bela Palanka í Júgóslavíu) hafi sett textann saman í núver- andi mynd sinni. Hann var sam- tímamaður Ambrósíusar og Agústínusar. í Te Deum Bruckners er mikið um austurlenska dulúð fornkirkj- unnar. Eins og í Requiem Verdis erum við staddir á Alþingi himna- konungsins. Margir fegurstu kafl- ar Passíusálma Hallgríms Féturs- sonar eru byggðir á þessari lík- ingu, t.d. „Son guðs ertu með sanni" og „Víst ertu Jesú kóngur klár“. I Te Deum hefja allar stéttir himnaríkis upp raust sína á Al- þingi himnarans og lofa hinn þrí- eina Guð með sífellt meiri stig- anda, þar til bumbur eru barðar og gullna hliðið lýkst upp á gátt og allir fá að líta dómara himins og jarðar. Hinir frelsuðu þegnar konungsins koma fyrir dóm hans og biðja hann um að hjálpa sér og veita sér eilífa dýrð með honum. Þetta minnir á séra Hallgrím í alþekktum sálmi um dómþing himnanna. Lýðurinn biður guð að annast um sig og óðul sín. Þjón guðs biður Herra sinn i auðmýkt að varðveita sig án syndar á þess- um degi, eins og munkarnir biðja í hverjum óttusöng. Þegnarnir vonast eftir miskunn Drottins síns. Og í lokaorðum verksins (sem frá hendi Bruckners er tónsett í fúgustíl) lýsir Bruckner yfir al- gjöru trausti á Drottinn sinn, að hann muni ekki láta lýð sinn tor- tímast um eilfíð. Þetta lokastef, sem lýsir hinni góðu heimvon við strönd fyrir- heitna landsins, varð Bruckner líka að yrkisefni í 7. sinfóníu sinni. Þannig var eins og hann hefði frá barnæsku borið í brjósti sér sitt Liljulag úr Ágústínusar-klaustr- inu. Og Liljulag Ágústínusar- munksins bróður Eysteins var mér kennt í skóla, að allir vildu kveðið hafa. Ég hefi reynt að raula Lilju við Te Deum Bruckners, og það hefur fallið vel saman. Kannske er þetta hvort tveggja sömu ættar. Höfundur er fyrrverandi sóknar- prestur og fræðimaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.