Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 „Pass“ með tónleika í Zafarí HLJÓMSVEmN Fass heldur tón- leika í skemmtistaðnum Zafarí í kvöld, fimmtudagskvöld. __ Hljóm- sveitina skipa Þórhallur Árnason, bassi, Birgir Halldórsson, gítar og söngur, og Karl Tómasson, tromm- ur. Vegna óviðráðanlegra orsaka falla niður tónleikar hljómsveitar- innar í Félagsstofnun stúdenta ann- að kvöld. Þeir félagar verða aftur með uppákomur á Hótel Borg 13. og 14. desember. (Úr rrétutilkjniiingu) Skáldsaga eftir Victoriu Holt TÍMI veiðimánans heitir skáldsaga eftir Victoriu Holt, sem Bókaút- gáfan Hildur hefur gefið út í þýð- ingu Skúla Jenssonar. I bókarkynningu útgefandans segir m.a. að söguhetjan, Cordelia Grant, verði fyrir undarlegri reynslu í svissneskum skógi ásamt vinstúlkum sínum. „Það var á tíma Veiðimánans sem sagt var að hefði sérstaka þýðingu og laglegi maður- inn sem stúlkurnar rákust á, virt- ist dularfull vera, sprottin úr þjóð- sögum og sögnum." Söguhetjan snýr heim til Eng- lands og þar fer fortíðin að vera „hættulega samofin nútíðinni" og spennan vex á tíma Miðsumars- mánans. Bókin er 223 blaðsíður, prentuð hjá Prentberg hf. Kvennadeild Rauða kross íslands Jólafundur fimmtudaginn 5. desember í Átthagasal Hótels Sögu. MætingíHáteigskirkjukl. 18.30. Hugvekja. Séra Arngrímur Jónsson. Ekiö aö Hótel Sögu kl. 19. Matur, Sigurður Jónsson leikur fyrir matargesti. Félagsvist. Félagskonur tilkynniö þátttöku á skrifstofunni, Öldugötu 4, miövikudaginn 4. des. frá kl. 09.00- 16.00 í síma 28222. Mætiö vel. TÓNABÍÓ Sími 31182 Frumsýnir Týndir íorustu II (Missing in Action II — The Beginning) Þeir sannfærðust um aö þetta væri víti á jörðu... Jafnvel lífinu væri fórnandi til að hætta á að sleppa... Hrottafengin og ofsaspennandi, ný, amerísk mynd í litum — Myndin er nr. 2 úr myndaflokknum „Týndir í orustu“. Aðalhlutverk: Chuck Norris. Leikstjóri: Lance Hool. Sýnd kl. 5,7,9og 11. Bönnuö innan 16 ára. ísl. texti. MorgunblaðiS/RAX Jón Páll keppti í trukkatogi við sjö manna stjórn Hjálparsveitar skáta og hlaut stjórnin titilinn „sterkasta stjórn í heimi“, enda var trukkur sá er Jón Páll dró hálfu tonni þyngri en sá er stjórnin dró. Hjálparsveit skáta í Reykjavík: Hélt kyimingardag í tilefni vígslu húss félagsins á Snorrabraut 62 Morgunblaðið/Magnús Ólafsaon Linda Björnsdóttir, félagi f Hjálparsveit skáta, afhjúpaði skjöldinn sem Landssamband hjálparsveitar skáta gaf Reykjavíkurdeiidinni, en Linda hefur sýnt mikinn dugnað í starfí Hjálparsveitar skáta undanfarin ár. HÚS Hjálparsveitar skáta í Reykja- vík við Snorrabraut 62 var formlega vígt og tekið í notkun sl. sunnudag 1. desember, en hjáiparsveitin hefur notað húsið sl. þrjú ár undir starf- semi sína. Dómprófastur, ólafur Skúlason, vígði húsið og afhjúpaður var skjöldur, sem er utan á bygging- unni, þar sem á er merki hjálpar- sveitarinnar auk áletrunar sem segir til um vígsludag hússins. Skjöldurinn er gjöf Landssam- bands hjálparsveitar skáta. Síðan var almenningi boðið að skoða húsið og kynnt var starfsemi hjálparsveitarinnar. „Okkur fannst vel við hæfi að bjóða al- menningi, sem styrkt hefur starf- semina dyggilcga með fiugelda- kaupum á undanförnum árum, til kynningar á því starfi sem við vinnum," sagði Eggert Lárusson félagi í hjálparsveitinni. Sveitin á nú þrjá nýja fólks- og sjúkraflutningabíla og tvo snjó- bíla, annan nýjan og hinn 50 ára gamlan. Settir voru upp básar með útbúnaði hjálparsveitarinnar og sett var upp sjúkratjald með öllum búnaði. Sýnd var björgun við erfið- ar aðstæður og myndbanda- og skuggamyndasýningar voru í gangi fyrir gesti. Þá kom Jón Páll og keppti í trukkatogi við sjö manna stjórn hjálparsveitarinnar. Stjórnin sigraði og hlaut þar með titilinn „sterkasta stjórn í heimi". Notaðir voru tveir af öflugustu torfærutrukkum landsins af gerð- inni Benz Unimoc, annar frá hjálp- arsveitinni og hinn frá Slysa- varnafélaginu á Akranesi. Þá kepptu stjórnin og Jón Páli í reip- togi á móti u.þ.b. 100 krökkum og sigruðu krakkarnir í þeirri viður- eign. Amarflug: Veruleg aukning á flutningum félagsins VERULEG aukning varð á flutning- um Arnarflugs í millilandaflugi í nóvembermánui sl., bæöi hvað varð- ar farþegaflutninga og vöruflutn- inga. Fluttir voru samtals 1.775 far- þegar borið saman við 1.340 farþega á sama tíma í fyrra. Hlutfallsieg aukning milli ára er því um 33%. Hvað vöruflutningana áhrærir þá voru flutt samtals liðlega 91 tonn, borið saman við liðlega 62 tonn á sama tíma í fyrra. Þar er hlutfallsleg aukning tæplega 47%. Jöfn og þétt stígandi hefur verið í aukningu flutninga á árinu, en sl. tvo mánuði hefur síðan orðið mikið stökk, því í október sl. voru fluttir samtals 1.583 farþegar, borið saman við 1.099 farþega á sama tíma í fyrra. Hlutfallsleg aukning milli ára er því um 44%. Sömu sögu er í raun að segja af vöruflutningum félagsins, því í október sl. voru flutt samtals 105,4 tonn, borið saman við 70,1 tonn á sama tíma í fyrra. Þar er hlut- fallsleg aukning milli ára um 50%. Um desembermánuð er það að segja, að fyrirséð er veruleg aukn- ing þriðja mánuðinn í röð. fbyrjun mánaðarins höfðu bókast fleiri farþegar, en fluttir voru allan mánuðinn á síðasta ári. Þá bendir allt til verulegrar aukningar á vöruflutningum í desembermán- uði. Þegar litið verður á árið í heild er ljóst, að um talsverða aukningu verður að ræða hjá félaginu, bæði farþegaflutningum og vöruflutn- ingum. (FrétUtilkynninx) Jólabækur frá Sjúkrahússins Stykkbhólmi 2. desember. ÞAÐ LÍÐUR að jólum. Þess sér merki víða. Menn búa sig til að taka á móti þeim eins og áður. Jóla- pósturinn er þegar farinn að berast. Hér í Stykkishólmi er það prent- smiðjan hjá systrunum á sjúkra- húsinu sem er í fullum gangi við að prenta jólabækurnar. Það er árvist. Þær gefa út bæði fyrir börn og fullorðna myndskreyttar bækur með kristilegu ívafi og svo hafa þær í anddyri, sem veit inn að kapellunni, sett upp góðar hillur þar sem bækurnar eru auglýstar og man ég ekki eftir jafn miklu úrvali og fyrir þessi jól. Þá gefur reglan út blaðið sitt „Merki kross- ins“ og var 4. tbl. þess að koma í Prentsmiðju í Stykkishólmi umferð um þessa helgi. Þar eru málefni kaþólskra og trúarinnar rædd og ýmis viðhorf dagsins í dag. Ritstjóri er Torfi Óiafsson en ritið er prentað í prentsmiðjunni hér. Er þetta vel frá gengið blað. Þá eru í prentun jólakort, en prent- smiðjan hefir fyrir hver jól prent- að jólakort, margvísleg og selt bæjarbúum og öðrum velunnurum. Eins og svo oft hefir verið minnst á er starfsemi systranna hér óborganleg fyrir okkur og þá sem þangað leita. Þrír læknar eru starfandi hér og nær læknishérað- ið einnig til Grundarfjarðar. óli Guðmundsson er yfirlæknir sjúkrahússins. — Árni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.