Morgunblaðið - 27.04.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.04.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1986 47 | raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Auglýsing um aðalskoð- un bifreiða í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu 1986 Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar 1986 sem hér segir: 1. Eftirtalin ökutæki, sem skráð eru 1985 eða fyrr: a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutn- inga. b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða fleiri. c. Leigubifreiðir til mannflutninga. d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni án ökumanns. e. Kennslubifreiðir. f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreið- ir. g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira en 1500 kg að leyfðri heildarþyngd. 2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar eru nýjar og í fyrsta sinn 1983 eða fyrr. Skoðun fer fram að Iðavöllum 4, Keflavík, milli kl. 8.00-12.00 og 13.00-16.00 alla virka daga nema laugardaga. 2. maí Ökutæki Nr. Ö-5101 5. maí Okutæki 6. maí Ökutæki 7. maí Ökutæki 9. maí Ökutæki 12. maíökutæki 13. maíÖkutæki 14. maíÖkutæki 15. maí Ökutæki 16. maíÖkutæki 23. maí Ökutæki 26. maí Ökutæki 27. mai Ökutæki 28. mai Ökutæki 29. maí Ökutæki 30. maí Ökutæki Nr. 0-5251 Nr. Ö-5401 Nr. Ö-5551 Nr. Ö-5701 Nr. Ö-5851 Nr. Ö-6001 Nr. Ö-6151 Nr. Ö-6301 Nr. Ö-6451 Nr. Ö-6601 Nr. Ö-6751 Nr. Ö-6901 Nr. Ö-7051 Nr. Ö-7201 Nr. Ö-7351 Nr. 0-5250 Nr. Ö-5400 Nr. Ö 5550 Nr. Ö-5700 Nr. Ö-5850 Nr. Ö-6000 Nr. Ö-6150 Nr. Ö-6300 Nr. Ö-6450 Nr. 0-6600 Nr. Ö-6750 Nr. Ö-6900 Nr. Ö-7050 Nr. Ö-7200 Nr. Ö-7350 Nr. Ö-7500 Aðalskoðun bifreiða í Grindavík fer fram dagana 20.-22. maí nk. kl. 08.30-12.00 og 13.00-16.00 við lögreglustöðina að Víkur- braut 42, Grindavík, og fellur aðalskoðun niður í Keflavík þessa sömu daga. Á sama stað og tíma fer fram aðalskoðun annarra skráningarskyldra ökutækja s.s. bif- hjóla og á auglýsing þessi einnig við um umráðamenn þeirra. Við skoðun skulu ökumenn bifreiða leggja fram fullgild ökuskírteini. Framvísa skal og kvittun fyrir greiðslu bifreiðagjalda og vottorði fyrir gildri ábyrgðartryggingu. í skráningarskírteini bifreiðarinnar skal vera áritun um að aðalljós hennar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1985. Vanræki einhver að færa bifreið sína til skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Lögreglustjórinn íKeflavík, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu, Jón Eysteinsson. Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 31. maí 1986 rennur út þriðjudaginn 6. maí nk. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag kl. 15.00 til 16.00 og kl. 23.00 til 24.00 í fundarsal Borgarstjórnar Reykjavíkur að Skúlatúni 2, 5. hæð. 25. apríl 1986. Yfirkjörstjórn Reykjavikur, Guðmundur Vignir Jósefsson. Helgi V. Jónsson. Guðríður Þorsteinsdóttir. Auglýsing frá Úreldingarsjóði í nýsamþykktum lögum á Alþingi um skipta- verðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarút- vegsins er ákveðið að starfsemi Úreldingar- sjóðs fiskiskipa Ijúki 14. maí 1986. Stjórn sjóðsins hefur því ákveðið að auglýsa eftir umsóknum úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 8. maí 1986. Stjórn sjóðsins mun fyrir 14. maí 1986 taka ákvörðun um styrkveitingar á grundvelli þeirra reglna sem nú gilda um sjóðinn og þeirra umsókna sem berast til stjórnar sjóðsins fyrir 8. maí 1986. Það skip sem hlýtur styrk til úreldingar, skal fyrir 20. júlí 1986, tekið varanlega úr rekstri sam- kvæmt reglum sjóðsins. Með umsókn skal fylgja veðbókarvottorð, ársreikningur seinasta árs og yfirlit yfir skuldastöðu. Umsóknir um styrki úr sjóðnum skal senda Samábyrgð íslands á fiskiskipum, Lágmúla 9,108 Reykjavík. Úreldingarsjóður fiskiskipa. Lyfjatækniskóli íslands Auglýsing um inntöku nema Lyfjatækninám er þriggja ára nám. Umsækj- andi um skólavist skal hafa lokið tveggja ára námi íframhaldsskóla (fjölbrautaskóla). Umsækjendur, sem lokið hafa prófi tveggja ára heilsugæslubrautar framhaldsskóla eða hliðstæðu eða frekara námi að mati skóla- stjórnar, skulu að öðru jöfnu sitja fyrir um skólavist. Skólastjórn er heimilt að meta starfsreynslu umsækjanda og er einnig heim- ilt að takmarka fjölda þeirra nema, sem teknir eru í skólann hverju sinni. Vísað er til Reglugerðar um Lyfjatæknaskóla íslands, nr. 196/1983, um námsgreinar og námsskipan. Einnig eru allar upplýsingar veittar í skólan- um f. h. alla virka daga. Umsóknarfrestur er til 8. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans. Umsókn skal fylgja eftirfarandi: 1. Staðfest afrit af prófskírteini. 2. Heilbrigðisvottorð á eyðublaði sem skól- inn lætur í té. 3. Sakavottorð. 4. Meðmæli skóla og/eða vinnuveitenda. Umsóknir skal senda til: Lyfjatækniskóla íslands, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík. Skólastjóri. Orðsending til íbúa Selás- og Árbæjarhverfis frá framfarafélagi hverfanna (FSÁ) Laugardaginn 10. maí nk. gengst Framfara- félag Seláss- og Árbæjarhverfis fyrir hinum árlega almenna hreinsunardegi í hverfunum í samvinnu við Hreinsunardeild Reykjavíkur- borgar. Þá er minnt á sameiginlegt fegrunar- átak allra borgarbúa vikuna 9.-15. júní nk. Nánar auglýst síðar. Stjórnin. Auglýsing um verð á grásleppuhrognum Skv. framreiknuðum grunni á verði upp úr sjó 1985 er verð grásleppuhrogna á þessari vertíð upp úr sjó kr. 93,10 pr. kg. I þessu verði er kostnaðarhlutdeild og stofnfjársjóðs tillag innifalið. Samtök grásleppuhrogna- framleiðenda. Áskorun til greiðenda fasteignagjalda í Hafnarfirði Hér með er skorað á þá sem eigi hafa lokið greiðslu 1. og 2. hluta fasteignagjalda ársins 1986 sem féllu í gjalddaga 15. janúar og 15. mars sl., að gera full skil nú þegar. Vakin er á því athygli að vangreiðsla á einum hluta gjaldanna veldur því að gjöldin falla þá öll í gjalddaga. Oskað verður nauðungaruppboðs á fasteign- um þeirra sem eigi hafa lokið greiðslu gjald- anna innan 30 daga frá birtingu áskorunnar þessarar, skv. heimild í lögum nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengis lögtaks. Hafnarfirði 25. apríl. Gjaldheimtan í Hafnarfirði. Aðalf undur félags Snæfellinga og Hnappdæla verður haldinn sunnudaginn 4. maí nk. kl. 17.30 í Sóknarsalnum Skipholti 50A. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Bifreiðastjórafélagið Slipnir heldurfélagsfund þriðjudaginn 29. apríl 1986 kl. 20.00. Fundarstaður: Hótel Esja. Fundarefni: Staða í samningum. Daníel Óskarsson formaður. Fyrirlestrar um fiskeldi og kynbætur Sunnudaginn 27. apríl kl. 16.00 verða fluttir fyrirlestrar um fiskeldi og kynbótamál í sal A á 2. hæð í nýju álmu Bændahallarinnar. 1. Dr. Harald Gröntvedt, prófessor frá Ási í Noregi, fjallar um notkun á erfðatækni í kynbótum búfjár og eldisfiska. 2. Sivert Gröntvedt, formaður sölusamtaka norskra fiskeldisfyrirtækja, og dr. Harald Skjervold greina frá þróun fiskeldis í Noregi með tilliti til líffræðilegra þátta og markaðsmála. Fundurinn er öllum opin. Búnaðarfélag íslands, Veiðimálastofnun og Rann- sóknastofnun landbúnaðarins. BLÓÐGJAFAFÉLAG ÍSLANDS Frá Blóðgjafafélagi íslands Fimmtándi fræðslufundur félagsins verður haldinn mánudaginn 28. apríl kl. 21.00 í kennslusal Rauða kross íslands að Nóatúni 21, Reykjavík. Dagskrá: 1. Rannsóknir á alnæmismótefnum ís- lenskra blóðgjafa, Björg Rafnar læknir flyturstutterindi. 2. Um rannsóknaráætlun Blóðbankans, Ólafur Jensson læknir, Alfreð Árnason erfðafræðingur og Ástríður Pálsdóttir lífefnafræðingurflytja stutt erindi. 3. Önnurmál. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.