Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986 31 Morgunblaðið/Bæring Cecilsson Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Grundarfirði Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins i hreppsnefnd Eyrarsveitar (Grundarfirði), sem náðu meirihluta í kosningunum um helgina, frá vinstri talið: Ámi Emilsson, Sigríður A. Þórðardóttir og Kristján Guðmundsson. erfitt að meta stöðu sína fyrir þess- ar kosningar vegna þess að undan- farin 24 ár hefðu þeir ætíð boðið fram með almennum borgurum. Sveinn kvað þó prófkjör það er þeir stóðu fyrir í febrúarmánuði hafa fyllt þá bjartsýni en þá tóku rúmlega 100 manns þátt í að raða mönnum niður á sjö efstu sæti list- ans en síðan hefði öll starfsemi flokksins tekið mikinn fjörkipp. Er hann var inntur eftir því hvort einhveijar meirihlutaviðræður væru famar af stað sagði hann að þeir Alþýðuflokksmenn hefðu þegar á sunnudaginn haft samband við mótframboðin fjögur og óskað eftir meirihiutaviðræðum við þau þar sem atvinnumálin yrðu sett í önd- vegi. Kristófer Þorleifsson, D-lista: Erf iður róð- ur stjórnar- flokkanna „ Við sjálfstæðismenn hér á Ólafsvík unum þessum niðurstöð- um nokkuð vel, við höfðum að vísu gert okkur vonir um að fá fleiri atkvæði, en niðurstöður kosninganna á öðrum stöðum á landinu sýna að við megum vel við una,“ sagði Kristófer Þor- leifsson, fyrsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins. Kristófer sagði að margt hefði gert meirihlutanum erfitt fyrir í þessum kosningum og tilgreindi hann í því sambandi að stjómar- flokkamir hefðu átt undir högg að sækja vegna efnahagsráðstafana sinna en einnig hefðu erfiðleikar í sveitarstjómarmálum almennt gert flokkum í meirihlutasamstarfi erfitt fýrir. Það hefði því ekki komið sér á óvart að sjá meirihluta víða á landinu í fallhættu. Kristófer gat þess hins vegar að lokum að Sjálfstæðismenn á Ólafs- vík myndu óhræddir ganga til meirihlutasamstarfs og væri ætlun- in í þeim efnum að leita eftir sam- starfi við Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn. Grundarfjörður: Sigríður Á. Þórðardóttir efsti maður D-listans: „Baráttan málefnaleg“ „Ég ÞAKKA úrslit kosninganna því, að mjög vel og skipulega var unnið hér. Baráttan var málefna- ieg og hefur greinilega náð til fólksins. Framboðið var mjög sterkt og þar fór saman reynt fólk og nýliðar. Ég held að fram- boðið hafi verið það traust, að fólk hafi gjarnan viljað styðja okkur til að endurheimta meiri- hluta okkar hér,“ sagði Sigríður Á. ÞÓrðardóttir, efsti maður á lista sjálfstæðismanna í Grundar- firði. „Við lögðum áherzlu á það í baráttunni að lagfæra skuldastöðu sveitarfélagsins og atvinnumál. Einnig að ljúka þeim framkvæmd- um, sem byijað hefur verið á; íþróttahúsi, frágangi eftir gatna- gerð og við höfnina. Við erum með þessu að endurheimta meirihlutann, sem við misstum 1982, og það gleður okkur mjög enda teljum við að það hafi sýnt sig að betur reyn- ist að hafa traustan og samstilltan meirihluta en samsuðu margra flokka eins og á síðasta kjörtímabili. Allt fólk, sem hér mun sitja í hreppsnefnd komandi kjörtímabil, er mjög gott og hæft hvar í flokki sem það er og ég vænti þess að samstarfið verði mjög gott. Brýn- asta verkefnið sem bíður er að endurskipuleggja rekstur sveitarfé- lagsins og ráða hæfan sveitarstjóra. Mig langar til að koma á framfæri þökkum til þeirra, sem með miklum baráttuvilja studdu okkur með ráð- um og dáð til að endurheimta meiri- hlutann, og sérstökum þökkum til meðframbjóðenda minna og kosn- ingastjóra, Páls Harðarsonar," sagði Sigríður A. Þórðardóttir. Stykkishólmur: ElLert Kristinsson, D-lista: „Meirihlutinn mjög traustur“ „ÞO VIÐ höfmn misst einn mann er meirihluti okkar mjög traust- ur enda áttum við 79 atkvæði upp í að ná fimmta manninum inn. í þessari kosningabaráttu var það ekki markmið hinna flokkanna að fella meirihlutann, heldur hamra á því að hann væri of stór,“ sagði Ellert Kristinsson, efsti maður á lista Sjálfstæðis- manna og óháðra í Stykkishólmi og oddviti hreppsnefndar þar. „Það kom ekki fram í kosninga- baráttunni, að andstæðingar okkar væru reiðubúnir til að taka við. Við urðum heldur ekki varir við annað fyrir kosningar en að málefnastaða okkar væri mjög sterk. Það getur vel verið að ýmsir stuðningsmenn okkar hafi verið of öruggir fyrir- fram og við því misst manninn. Þetta sýnir að menn verða að við- hafa fulla gát í þessum efnum. Við munum ráða áfram þann sveitartstjóra, sem hér hefur verið síðastliðin 12 ár. Það eru mörg verkefni framundan, sem taka þarf á, og ég vil bjóða alla nýja hrepps- nefndarmenn velkomna, óska þeim til hamingju með árangurinn og vona að samstarf okkar geti orðið gott. Þá vil ég koma á framfæri þökkum til stuðningsmanna okkar,“ sagði Ellert Kristinsson. ísafjörður: Ólafur Helgi Kjartans- son, D-lista: „Góð úrslit miðað við landsmeðaltal“ „Við sjálfstæðismenn á ísafirði erum nokkuð ánægðir með úrslit kosinganna, sérstaklega í ljósi þess hvernig þau urðu víðast hvar á landinu. Á meðan straum- urinn virðist liggja yfir til Al- þýðuflokksins þá jukum við fylgi okkar úr 39% í rúmlega 45% og getum því vel við unað,“ sagði Olafur Helgi Kjartansson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokks- ins. Ólafur bætti því við að sér sýnd- ist sem atkvæði Alþýðuflokksins hefðu nýst honum alveg til hins ýtrasta og bætt við sig manni en þó án þess að taka svo mikið frá öðrum framboðum, því bæði Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðubanda- lagið hefðu fengið sama atkvæða- magn og í síðustu kosningum. Aðspurður um hvort hann teldi að um einhveijar breytingar á meirihlutasamstarfi yrði að ræða sagði hann að sér þætti það frekar eðlilegt að um áframhaldandi sam- starf yrði að ræða meðal hinna flokkanna. „Það verður samt að teljast eðlilegt að flokkur sem er með yfir 45% atkvæða við kosning- ar hafí áhrif á bæjarmálin," sagði Ólafur og benti jafnframt á að í Keflavík hefðu atkvæði dreifst þannig að Alþýðuflokkurinn hefði fengið rúm 44% en náð inn fímm mönnum. Kristján K. Jónasson, A-lista: „Traustsyfir- lýsing við meirihlutann“ í kosningunum á ísafirði bættu Alþýðuflokksmenn við sig einum manni , hafa þijá í stað tveggja áður. Kristján K. Jónsson.efsti maður á A-listanum sagði að það sem stefnt hefði verið að fyrir kosningarnar hefði tekist og ekki væri annað hægt en að vera án- ægður með það. „Það sýndi sig í þessum kosning- um að fólkið hér á ísafirði er vel með á nótunum og gerir sér grein fyrir þeirri uppbyggingu sem hér hefur átt sér stað á undanfömum árum,“ sagði Kristján. “Það verður ekki annað sagt en að úrslit þessara kosninga séu traustsyfirlýsing við stefnu bæjarstjómarinnar. Hvað okkur Alþýðuflokksmönnum við- kemur þá varð um umtalsverða fylgisaukningu að ræða og segja má að við fáum helming þeirrar aukningar sem á kjörskrá varð.“ Kristján sagði að bæjarstjómar- meirihlutar hefðu vfðasthvar á landinu átt undir högg að sækja en eins og málin stæðu nú á ísafirði virtist honum ekkert geta hamlað því að meirihlutinn yrði nánast óbreyttur og sagði hann Alþýðu- flokksmenn ætla að ræða við full- trúa Framsóknar og Alþýðubanda- lagsins í dag. Bolungarvík: Ólafur Kristjánsson, D-lista: Tímabundið fylgi G-listans „ÞAÐ ER greinilegt að fólk sem vildi breytingar átti ekki annarra kosta völ en kjósa G-listann þvi hann var sá eini sem ekki átti aðild að meirihlutasamstarfi og því fremur áberandi fyrir vikið,“ sagði efsti maður D-listans, Ólaf- ur Kristjánsson. Kvað hann ágreining um bæjarmálefni hafa verið óveruleg, sér virtist sem margir hefðu einungis viljað breytingar breytinganna vegna. „Það er alveg ljóst að Alþýðu- bandalagið er ótvíræður sigurvegari þessara kosninga en ég tel að þessi fylgisaukning þeirra sé einungis tímabundin og vona ég að Bolvík- ingar eigi eftir að sjá að sér. Það er hins vegar ekki ljóst hvemig Alþýðubandalagið bregst við í þess- ari stöðu og óvfst hvemig þeir vilja mynda meirihluta. Þeim var boðin þátttaka í meirihlutamyndun á sfð- asta kjörtímabili með öllum hinum flokkunum, sem þeir afþökkuðu, og því er ekki heldur að vita hvemig þeir bregðast við nú,“ sagði Ólafur að lokum. Kristínn H. Gunnars- son, G-lista: „Meiri sigur en okkur óraði fyrir“ „VIÐ bjuggumst við að vinna mann en að sigur okkar yrði þetta mikill held ég að engan hafi órað fyrir,“ sagði efsti maður G-Iistans á Bolungarvík, Kristinn H. Gunnarsson. Hann benti á að einungis sjö atkvæði hefðu skilið að G-listann og D-listann og sá síðarnefndi náði þremur mönnum inn. Kristinn sagði að hann liti svo á að með þessum úrslitum væru kjós- endur að láta í ljósi óánægju sína með þann meirihluta sem starfaði síðasta kjörtímabil, en hann saman- stóð af fulltrúum Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og sameiginlegs lista jafnaðarmanna og óháðra. Hann sagði töluverðan ágreining um ýmis mál hafa risið upp fyrir kosningamar og greinilegt væri að það hefði haft sín áhrif. Aðspurður um hvort meirihluta- viðræður væm komnar á einhvem rekspöl svaraði hann þvf til að svo væri ekki, Alþýðubandalagið myndi halda fund með stuðningsmönnum sínum og taka tillit til meirihluta- vilja fundarmanna í þessu máli. Sauðárkrókur: Þorbjörn Árnason, D-lista: „Meirihlutavið- ræður A-lista D-lista og K-lista“ „Málefnastaða Sjálfstæðis- flokksins hér á Sauðárkróki var í þessum bæjarstjórnarkosning- um nokkuð góð og við erum sæmilega ánægðir með niður- stöður þeirra," sagði Þorbjörn Amason, efsti maður D-listans. „Við steftium að því að mynda meirihluta undir forystu Sjálfstæð- isflokksins og erum þegar komnir á skrið að ræða við Alþýðuflokkinn og óháða kjósendur og eins og staðan er núna bendir allt til að þessar meirihlutaviðræður geti orð- ið að samstarfi. I dag verða sfðan áframhaldandi viðræður þessara aðila eftir að leitað hefur verið samþykkis flokksfélaganna og stuðningsmanna listanna," sagði Þorbjöm. Siglufjörður: Björn Jónasson, D-lista: „Erum hissa á úrslitunum“ „ÞAÐ MÁ segja að sjálfstæðis- menn hér á Siglufirði séu fremur hissa á þessum úrslitum, Al- þýðuflokkurinn bætir við sig tveimur mönnum og fær þrjá menn kjöraa, en slíkt hefur ekki gerst hér i háa herrans tíð,“ sagði efsti maður D-listans á Siglufirði, Björn Jónasson. Bjöm sagði að sjálfstæðismenn hefðu sett markið hátt fyrir þessar Sjá ennfremur bls. 38,40 og41. Minnkandi kjörsókn Á kjörskrá við kosningarnar á laugardaginn voru 151.008 á öllu landinu. 124.360 greiddu atkvæði og var kjörsókn 82,35%, sem er minna en í undanförnum kosningum. í bæjar- og sveitarstjórnar- 86,5% 1978 og 87,0% árið 1982. kosningunum 1970 var kjörsókn I alþingiskosningunum 1983 var 89,1%, 1974 var hún 87,6%, kjörsókn 86,6%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.