Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 41
:,:^ORG,yNBLA:ÐIÐ,^^ypA(3yRr3rJÍ!N|,l?B6 mig við þá tilhögun þar sem ég kom inn í flokkinn árið 1982 eftir að hafa verið í Alþýðubandalaginu og tók þá sæti í Sjálfstæðisflokknum samkvæmt uppstillingu. Því taldi ég nú nauðsynlegt að vita hvort ég hefði stuðning á meðal almennra kjósenda flokksins." Hrafnkell sagði sig úr Alþýðu- bandalaginu 1980 þar sem honum féll ekki við starfsaðferðir þess í orku- og iðnaðarmálum og kjara- málum. „Ég var svo bamalegur að ætlast til þess að saman færu orð og efndir hjá því ágæta fólki. Ég er trúlega afskaplega erfítt fyrir- bæri í flokksstarfi að því leyti að mér hættir til að hafa eigin skoðanir á hlutunum og fylgja þeim eftir." Meirihlutinn stendur nú á Eski- firði eftir kosningamar, en ég held að það sé nokkuð ljóst hvað kjósend- ur vilja. Á grundvelli úrslitanna höfum við óskað eftir viðræðum við Alþýðuflokk og Alþýðubandalag um meirihlutamyndun en ef forysta flokkanna ætlar að virða að vettugi kosningaúrslit, eins og gert var 1982 þegar Sjálfstæðisflokkurinn vann hér mjög afgerándi kosninga- sigur, þá verður vilji kjósenda snið- genginn," sagði Hrafnkell. Skúli Sigurðsson, D-lista: „Fólk hefur trú á Hrafnkeli“ „VIÐ sjálfstæðismenn á Eskifirði erum óhressir með útkomuna gagnvart okkur,“ sagði Skúli Sigurðsson, efsti maður á D-lista þar í bæ, en Sjálfstæðismenn fengu einn mann kosinn og misstu þar með tvo frá þvi í síð- ustu kosningum. „Því er ekki að neita að Hrafn- kell Jónsson er sigurvegari kosning- anna og út af fyrir sig sundraði hann okkar hópi með því að ganga úr okkar bandalagi en er þó flokks- bundinn sjálfstæðismaður ennþá. Honum fylgdu síðan margir úr okkar röðum — við höfum tapað með þessu brambolti hans milli 30 og 40 atkvæðum. Við reiknuðum alltaf með því að tapa einum manni vegna þess að þegar hann kom inn í Sjálfstæðisflokkinn fyrst árið 1982 úr Alþýðubandalaginu, þá kom hann með ákveðið fylgi með sér. Þessar kosningar eru e.t.v. tíma- mótakosningar gagnvart listunum, sem hér bjóða fram, en • við sem skipum efstu sæti listanna, erum allir nýir og enginn hefur setið í bæjarstjórmnni áður. Hrafnkell er hinsvegar vél kynntur hér á Eski- firði og fólk hefur trú á honum. Hrafnkell hefur verið í þessari bæjarpólitík undanfarin átta ár og notar ákveðna aðferð í baráttunni. Hann lætur það spyrjast út að hann sé óviss um að hann komist inn í bæjarstjóm og þess vegna hefur fólk e.t.v. flykkst um hann til að koma honum örugglega inn en ekki kannski hugsað sér að láta hann hafa svona mörg atkvæði eins og raun bar vitni,“ sagði Skúli. Skúli sagði að Hrafnkell hefði borið það fyrir sig að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði ekki viljað prófkjör á sínum tíma. „Aðdragandinn að sérframboði Hrafnkels er raunar miklu lengri. Hrafnkell fór fram á það að stungið yrði upp á sér í kjörstjóm fyrir hönd fiokksins löngu áður en farið var að ræða um hvort við ætiuðum að hafa próf- kjör eða uppstillingu. Þegar síðan búið var að stilla listanum upp og Hrafnkell var þar efstur, hætti hann við allt saman og tveimur dögum síðar var hann búinn að mynda flokk. Hann hefur greinilega verið búinn að undirbúa þetta sérframboð sitt og aldrei ætlað sér að vinna neitt með okkur og þegar hann svo lýsti áhuga sínum á að komast í kjörstjóm, gaf það auga leið að hann hafði aldrei ætlað sér að vera í okkar framboði," sagði Skúli. _______Hveragerðl:_________ Hafsteinn Kristinsson, D-lista: „Slæm reynsla af vinstri mönnum „Sjálfstæðimenn. fengu fyrst meirihluta í Hveragerði 1954, töpuðu honum 1962 til vinstri- manna. Sá meirihluti sprakk innan tveggja ára. Meirihlutan- um er síðan tapað aftur 1978, en þá sprakk sá vinstri aftur innan tveggja vikna. Hvergerð- ingar hafa því slæma reynslu af vinstri meirihluta og sýndu það á laugardag að þeir vilja heldur traustan meirihluta sjálfstæðis- manna," sagði Hafsteinn Krist- insson, efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokksins í Hveragerði og fyrrverandi oddviti hans í hreppsnefnd. „Málefnastaða okkar var góð. Það hefur verið uppgangur í Hvera- gerði á undanfömum ámm. Við stóðum við nær öll atriði úr stefnu- skrá okkar. Það var gott fólk, sem var með mér á lista, sem hefur haft víðtæka reynslu í stjómun og störfum að félagsmálum og stjóm- un fyrirtækja. En á móti okkur var sameinaður vinstri flokkurinn, sem samanstóð af hópi manna án reynslu af sveitarstjómarstörfum. Það kom í ljós í málflutningi þeirra, að veigamikill ágreiningur var meðal þeirra gagnvart atvinnuupp- byggingu hér í Hveragerði. Til dæmis með nýtingu háhitáns uppi í Ölfusdal. Uppbygging er mikil í Hvera- gerði og við teljum að stórir hlutir séu að gerast í ferðamálum og atvinnumálum. Því heyrðum við anzi mikið þær raddir, að ekki væri rétt að skipta um meirihluta á þessu viðkvæma stigi. Bærinn stæði eiginlega á töluverðum tíma- mótum og mikil nauðsyn væri að hluti þess, fólks, sem hefði starfað við þetta áður, héldi því áfram að minnsta kosti næstu fjögur árin. Við tvö efstu á D-listanum höfum verið í hreppsnefnd áður, en allir aðrir frambjóðendur hafa ekki setið í hreppsneftid áður. Fólk hefur með þessu verið að sýna að það kýs fremur tryggan og samhentan meirihluta, en sundraðan," sagði Hafsteinn Kristinsson. IMeskaupstaður; Kristinn V. Jóhanns- son, G-lista: „Höldum meiri- hlutanum sem við höfum haft í 40 ár“ „VIÐ erum að vonum ánægðir með úrslit kosninganna enda með annaðhvert atkvæði í bæn- um, eða því sem næst — 49,7% — svo við höldum þessum meiri- hluta sem við erum búnir að hafa í 40 ár,“ sagði Kristinn V. Jóhannsson, efsti maður á G-list- anum í Neskaupstað. „Við höfum oftast haft fimm menn inni, en þó höfum við tvisvar haft þá sex, 1950 og 1974. Reyndar vorum við núna nær þvi að fá sjötta manninn inn heldur en að missa þann fimmta. Við töpuðum sex atkvæðum frá því í síðustu bæjar- stjómarkosningum og það skýrist fyrst og fremst með því að nú kom fram á sjónarsviðið nýr listi — H-listi — sem gefur sig út í þessum kosningum sem ríkisstjómarand- stæðing og má því segja að þeir rói að hluta til á okkar miðum. Á þeim lista vom þó nokkur nöfn sem höfðu verið á lista kratanna þegar þeir buðu hér fram, en þeir hafa ekki boðið fram síðan 1974. Þá var á listanum ungt fólk, sem lítið sem ekkert hafði komið nálægt pólitík áður. Ég býst við að það vopn sem þeir beittu mest var að þama væri á ferðinni nýtt afl með ungu fólki. Þeir töldu okkur á G-listanum því vera eldri og staðnaðri og ættu ekki með okkur samleið. Greinilega hafa þeir fengið atkvæði út á það og tel ég að atkvæðaijöldi H-Iistans hafí verið meiri en reiknað var með í upphafi." Haldinn verður fyrsti bæjar- stjómarfundur eftir kosningar á Neskaupstað nk. þriðjudag þar sem gengið verður frá ráðningu bæjar- stjóra og kosningu í nefndir. Krist- inn sagði að bæjarstjórinn yrði örugglega sá sami og verið hefði undanfarin ár, Ásgeir Magnússon. „Ég held að óhætt sé að fullyrða að það sem veldur því að Alþýðu- bandalagið hefur meirihlutanum svona lengi er að hér er t.d. öflugt atvinnulíf, að vísu með þeirri ein- hæfni sem einkennir sjávarbyggðir. Það er félagslegt öryggi á Neskaup- stað t.d. borga ellilífeyrisþegar ekki Útsvar og í menntamálum höfum við náð góðum árangri," sagði Kristinn. Frimann Sveinsson, D-lista: „Erum ánægðir með að halda okkar mönnum“ „VIÐ héldum okkar mönnum og erum ánægðir með það,“ sagði Frímann Sveinsson, efsti maður D-listans i Neskaupstað. „Við jukum m.a.s. við okkur fylgi á meðan bæði Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur töpuðu fylgi þannig að segja má að við séum hálfgerðir sigurvegarar kosn- inganna héma.“ Frímann sagði að Alþýðubanda- lagið hefði haldið meirihlutanum í bæjarstjóm þó það væri með innan við 50% fylgi. „Við, B- eða H-listi hefðum ekki þurft að ná nema einum manni frá Alþýðubandalag- inu svo að það missti meirihlutann, en við erum ánægðir þrátt fyrir að þetta næðist ekki að þessu sinni. Ég veit ekki hvort hægt er að segja að fólk á Neskaupstað almennt sé ánægt með stjóm bæjarins þegar litið er á úrslitatölumar," sagði Frímann. 0*1 K.S. Reddington Píanótónleikar á Kjarvalsstöðum HINN 4. júní heldur bandariski píanó leikarinn Karol Sue Redd- ington tónleika í vestursal Kjar- valsstaða. Karol Sue Reddington stundaði nám i píanóleik undir handleiðslu Soulima Sravinsky við University of Illinois þar sem hún lauk einleikaraprófi. Fram- haldsnám stundaði hún við In- diana University í Bloomington handleiðslu Alfonso Montecino og Marion HaU auk framhalds- náms í MUnchen þar sem Rafal - de Silva var leiðbeinandi hennar. Karol Sue Reddington hefur verið kennari við ríkisháskólann í In- diana, Rose Hulman Institute of Technology Depaw University. Á efnisskrá tónleikanna em verk eftir Mozart, Beethoven, Rachmaninoff og Chopin. Tónleikamir eru sem áður segir í vestursal Kjarvalsstaða og heQast kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis. Spuni sýnir í Stúdenta- leikhúsinu Leikfélagið Spuni frá Lúxemborg verður með Ieiksýningu í Stúdenta- leikhúsinu 3. og 4. júní kl. 20.30. Sýnt verður leikritið Kammermús- ík, undir leikstjóm Andrésar Sigur- vinssonar. GENGIS- SKRANING Nr. 100 — 2 júní 1986 Kr. Kr. Toll- Ein.Kl.09.15 Kaup Sala gengi Dollari 41,800 41,920 41,380 SLpund 61^87 61,463 62,134 Kan.dollari 30,122 30,208 29,991 Dönskkr. 4,8275 43413 4,89196 Norsk kr. 5,3103 5,3255 5,3863 Ssnskkr. 5,6338 5,6500 5,7111 Fi.mark 7,7796 7,8020 7,9022 Fr.franki 5,6081 5,6242 5,7133 Belg. franki 0,8752 03777 0,8912 Sv.franki 21,5021 21,5638 22,0083 HolL gyllini 15,8772 15,9228 16,1735 y-þ.mark 173556 17,9069 18,1930 iLlíra 0,02608 0,02616 0,02655 Austurr.sch. 2,5413 2,5486 2,5887 PorLescudo 03706 03713 03731 Sp. peseti 03800 03808 03861 J*P-yen 033710 033778 034522 Irsktpund 54377 54,433 55,321 SDR(SérsL 47,4977 47,6348 47,7133 Wterkurog L/ hagkvæmur auglýsingamiðill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.