Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kristinn Pálsson og Kristín Þorfinnsdóttir á heimili sínu á Selfossi. Hveravellir: Nýtt veðurathugunar- fólk til starfa 1. ágúst Selfossi. VEÐURSTOFAN hefur gengið frá ráðningu nýs veðurathugunar- fólks á Hveravöllum sem taka mun til starfa 1. ágúst næstkomandi. Á Hveravöllum hefur verið rekin veðurathugunarstöð frá 1965 og hefur fólk verið við störf þar í eitt til fimm ár samfellt. Það eru hjónin Kristín Þorfinns- dóttir og Kristinn Pálsson frá Selfossi sem taka munu við starfinu á Hveravöllum 1. ágúst af þeim Sigurði Maríssyni og Kristínu Auði Jónsdóttur sem hafa starfað þar frá 1. ágúst 1986. „Við höfum oft talað um þetta þegar við höfum farið þarna um. Það er alltaf gaman og spennandi að reyna eitthvað nýtt og okkur líst bara vel á þetta," sögðu þau Krist- inn og Kristín um þetta væntanlega starf. Þau eru vön fjallaferðum og vist á fjöllum, hafa stundað vél- sleðaferðir og ferðalög um óbyggð- ir. Með þeim á Hveravelli fer hundur, sem þau eru í þann veginn að fá sér. Þeir sem vinna við veðurathug- anir á Hveravöllum gera þær á þriggja tíma fresti. Einnig annast þeir aðrar vísindalegar athuganir fyrir Veðurstofuna, gróðurmæling- ar, jarðskjálftamælingar, snjó- og ísingarathuganir. — Sig. Jóns. Finnskur gítarleikari í Norræna húsinu FJÓRÐU OG næstsíðustu tón- leikarnir í tónleikaröðinni Ungir norrænir einleikarar verða á sunnudagskvöld, 17. maí, kl. 20.30 í Norræna húsinu. Þá leik- ur finnski gítarleikarinn Timo Korhonen verk eftir Bach, Gin- astera, Moreno Torroba, L. Brouwer o.fl. Timo Korhonen er fæddur 1964. Hann bytjaði að læra á gítar níu ára gamall, en 1980 hóf hann nám við Sibeliusarakademíuna og út- skrifaðist þaðan 1986. Hann hefur einnig sótt tíma hjá mörgum þekkt- um gítarleikurum og má nefna O. Ghiglia, K. Ragossnig, J. Tomás, Hopkinson Smith, Leo Brouwer og H. Sehiff. Korhonen hlaut verðlaunin fyrir gítarleik í alþjóðlegri tónlistar- keppni í Miinchen 1982, yngstur allra keppenda, sem hafa tekið þátt í slíkri keppni. Árið 1986 hlaut hann þriðju verðlaun í alþjóðlegri gítarkeppni í Havana. Hann fékk auk þess sérstök verðlaun fyrir túlk- un sína á suður-amerískri tónlist og formaður dómnefndar, Leo Brouwer, verðlaunaði hann sérstak- lega. Timo Korhonen hefur haldið tónleika bæði í Finnlandi, annars staðar í Evrópu og í S-Ameríku. Gísli R. Marís- son formaður Bréfdúfna félags Reykjavíkur AÐALFUNDUR Bréfdúfnafé- lags Reykjavíkur var haldinn nýlega í veitingahúsinu Torfunni og var Gísli R. Marísson kosinn formaður. Aðrir voru kosnir: Stefán H. Jónsson ritari, Alexander Jóhannes- son gjaldkeri, Jón D. Hreinsson og Vilhelm Sigurjónsson meðstjóm- endur. Verðum að stöðva ofveiði á þorski - segir Siguijón Óskarsson, afla- kóngur vetrarvertíðarinnar SIGURJÓN Óskarsson og áhöfn hans á Þórunni Sveins- dóttur VE eru aflakóngar vetrarvertíðarinnar, sem lauk í gær, ekki aðeins í Eyjum, heldur yfir allt landið. Þeir drógu upp netin á fimmtudag og höfðu þá aflað um 1.479 tonna að verðmæti um 40 millj- ónir króna. Hásetahlutur úr aflanum er 800.000 til 900.000 krónur. Þetta er í 10. sinn, sem sem Sigurjón og áhöfn hans verða aflakóngar Eyjamanna. Siguijón segist ánægður með útkomuna, en úrvalsáhöfn hafi ráðið miklu um hana. Þó nokk- uð vel hefði gengið, taldi hann vissara að vara við ofveiði á þorski. Menn þyrftu bæði að passa smáfiskinn og hrygning- arfiskinn. Þeir Siguijón byijuðu vertíðina á snurvoð og fengu þá um 140 tonn af langlúru, sem landað var til vinnslu í Eyjum og flutt utan til Japans. Síðan hafa þeir verið á netum og fengið um 600 tonn af þorski, svipað af ufsa, um 150 af ýsu og minna af öðrum tegund- um. 1.140 tonnum var landað til vinnslu í Eyjum, en mismunurinn fór utan í gámum. Siguijón sagði í samtali við Morgunblaðið, að útkoman væri talsvert betri en í fyrra og stafaði það meðal annars af auknum yfír- borgunum í landi. Þeir á Þórunni hefðu sótt lengra austur en flestir Siguijón Óskarsson, skipstjóri og aflakóngur aðrir, upp undir 80 sjómílur. Þeir hefðu því verið mikið út af Klaustri, Skaftárósum, Skarðs- íjöruvita og vestur undir Hjör- leifshöfða og svo í útköntunum á 100 til 200 faðma dýpi. „Það hefur verið lítið af þorski á hrygningasvæðunum. Þó veiðin hafi verið þokkaleg, er það ljóst að minna af þorski gengur nú á þessar slóðir. Það er fyrst og fremst aukin tækni og betri veið- arfæri, sem halda veiðinni við. Við erum reyndar famir að þekkja miðin anzi vel líka og það hefur sitt að segja. Við tökum okkur stutt frí núna, en förum svo aftur á langlúruna á snurvoðinni og verðum að fram til hausts. Þá eru síldveiðar fyrirhugaðar, fáist sómasamlegt verð fyrir kvikindið. Þá er ennfremur í athugui. að lengja bátinn og endurnýja eitt- hvað í haust. Ég held að það sé ekki vafí á því, að við verðum að passa okkur á ofveiði og passa bæði smáfísk- inn og hrygningarfiskinn. Togar- amir eiga sinn hlut af ofveiðinni, en við á bátunum drepum líka talsvert af þorskinum á hrygning- arsvæðunum. Mér fínnst að Hafrannsóknastofnunin mætti fylgjast betur með framvindu mála á vertíðinni, en menn ættu líka að taka meira mark á físki- fræðingunum. Ef menn gera það ekki er eins gott að loka „búll- unni“ bara. Það er alltaf bætt 50.000 til 100.000 tonnum við tillögur þeirra um hámarks afla. Ef svo heldur áfram, hrynur veið- in og aflabresturinn kemur niður á allri þjóðinni. Það em of marg- ir, sem ekki virðast skilja þetta og meðal þeirra virðast vera of margir stjómmálamenn. Ég er hins vegar ánægður með frammi- stöðu Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, þó hann hefði hugsanlega mátt vera harð- ari á stundum," sagði Siguijón Óskarsson. Þómnn Sveinsdóttir VE 401 er í eigu feðganna Óskars Matt- híassonar og Siguijóns Óskars- sonar. Skipið er 128 tonn að stærð byggt í Garðabæ 1971 og var lengt 1974 og yfirbyggt 1979. Bókaklúbbur AB gefur út bókina Rauður stormur: Sögiisviðið ísland í þriðju heimsstyriöld Timo Korhonen gítarleikari. Síðustu tónleikamir í þessari tón- leikaröð verða föstudaginn 22. maí kl. 20.30 en þá leikur Sigrún Eð- valdsdóttir á fíðlu við undirleik Selmu Guðmundsdóttur á píanó. BÓKIN Rauður stormur, eftir Tom Clancy, er nú komin út hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélags- ins í þýðingu Ólafs B. Guðnason- ar. Þessi bók, sem hefur verið á lista yfir mest seldu bækur i Bandaríkjunum í 41 viku, segir frá þriðju heimsstynöldinni og gerist að hluta til á Islandi. í frétt frá Almenna bókafélaginu segir að kveikja atburðarásarinnar sé að öfgafullir múhameðstrúar- menn sprengi upp olíuhreinsistöð í Sovétríkjunum. Það veldur því að olíuskortur, sem áður hefur verið talsverður í Sovétríkjunum, verður nú afar tilfinnanlegur. Sovétmenn komast að þeirri niðurstöðu að þeir Burðarvirki Lystadúnshúss- ins að mestu óskemmt - segir Ásmundur J. Jóhannsson, tæknifræðingur „HÚSNÆÐI Lystadúns er alls ekki ónýtt, eins og haft var eftir Kristjáni Sigmundssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, í Morgun- blaðinu,“ sagði Ásmundur Slökkviliði Reykjavíkur, Ásmundur sagðist álíta að burð- arvirki hússins væri heilt þar sem það væri ekki úr strengjasteypu heldur steypt á hefðbundinn hátt. Hinsvegar þyrfti að skipta um útveggjaeiningar og þakplötur. Ás- mundur hefur bent á hættur strengjasteypuhúsa bæði í ræðu og riti, lendi þau í eldi, og hefur grein hans meðal annars verið notuð við kennslu slökkviliðsmanna. Líklegt er að einn til tveir þak- bitar hafi misst þol sitt og svokall- J. Jóhannsson, tæknifræðingur hjá meta hvort burðarvirki hússins hafi orðið fyrir það miklum skemmdum að ekki sé þorandi að nota það áfram. hafi ekki um neitt annað að velja en taka olíu með valdi úr lindum við Persaflóann. Til þess að það sé unnt verða þeir að byija á að lama NATO og grípa til stríðsáætlunar- innar Rauður stormor, þar sem ýmsum brögðum er beitt um leið og heruppbyggingu er flýtt eins og auðið er. Rauður stormur, eða Red Storm Rising og hún heitir á frummálinu, er önnur bók Tom Clancys. Fyrsta bók hans var The Hunt for the Red October sem fjallaði um leit að so- véskum kjamorkukafbát. Sú bók seldist í himinháum upplögum og hefur meðal annars verið 60 vikur á lista yfir mest seldu pappírskiljur í Bandaríkjunum. Rauður stormur er rúmlega 600 síður í stóru broti og kostar 988 í Bókaklúbbi Almenna bókafélags- ins. Bókin er unnin í Prentsmiðjunni Odda. aðar rifjaplötur séu ónýtar, sem eru úr strengjasteypu og bera uppi þak- plötumar, að sögn Asmundar. Hann sagði að hitastigið þyrfti að komast vel yfír 1.000 gráður svo að strengjasteypan léti undan og ylli skaða á styrktaijámunum, sem eru inni í bitunum. Áður en húsið er dæmt ónýtt, þarf byggingafulltrúinn í Reykjavík, með aðstoð Rannsóknar- stofnunnar byggingaiðnaðarins, að Starfsmaður fasteigna- sölu í gæsluvarðhald STARFSMAÐUR fasteignasölu í Reykjavík var á fimmtudaginn úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um auðgunarbrot í starfi. Rannsóknarlögregla ríkisins ósk- aði á miðvikudag eftir gæsluvarð- haldsúrskurðinum þar sem grunur lék á að maðurinn hefði ekki hreint mjöl í pokahominu. Rannsókn máls- ins er enn á frumstigi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.