Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 19
oor TTXTJT k CTTT'TArTTTTTfMTa (11(1 A T«T/TTr>afW
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
Metsölublaðið Mannlíf komið út
Mannlíf er tímarit í takt við mannlífið heima og heiman
liiii:
S •
Þegar hann er yp|i 0«
Lúxusskattur ó hip3band
AfvopnunaTn^ng.
Barnsbur
Siöferöisbrestur í þjóð'
Margir láta sig dreyma um
'frægð og frama í draumaverk-
smiðjunni — kvikmyndaborginni
Hollywood. Sá íslendingur, sem
kemst næst því að hafa náð
raunverulegum árangri í starfi i
þessari miðstöð bandarískrar og
um leið alþjóðlegrar kvikmynda-
gerðar, er Sigurjón Sighvatsson.
Sigurjón, sem var kunnur tónlist-
armaður í íslensku popplífi um
árabil, er nú orðinn umsvifamik-
ill kvikmyndaframleiðandi !
Hollywood. Sveinbjörn I. Bald
vinsson, rithöfundur hefur tekið
fyrsta viðtal, sem Sigurjón veitir,
um leið sina frá Skipaskaga til
Hollywood og segir jafnframt frá
snöggsoöinni reynslu af kvik-
myndatöku.
Bill Wyman, einn liðsmanna ein-
hverrar vinslælustu og langlífustu
rokksveitar heims, The Rolling Ston-
es, lét svo ummæit fyrir skömmu
að' dagar hennar væru trúiega tald-
Ír Fyrrum eiginkona Wymans,
sænska stúlkan Astrid Lundström,
lifði um árabil í miðri heimsfrægð-
inni og „vellystingunum“ sem fylgir
The Rolling Stones og slapp naum-
lega lifandi frá þeim hildarleik. Hun
segir frá 16 árum með Rolling Ston-
es í opinskáu einkaviðtali við
Mannlíf.
Oft er talað um að karlmenn „yngi
upp hjá sér“ þ.e. taki saman við sér
yngri konur. En á jafnréttistímum fer
hið gagnstæða í vöxt. í hispurslaus-
um og skemmtilegum samtölum við
Mannlíf lýsa þrenn pör sambúð, þar
sem hann er yngri en hún, — Kjart-
an Ragnarsson og Guðrún As-
mundsdóttir, Þorvaldur Þorsteins-
son og Ingibjörg Björnsdóttir, og
Eiríkur Guðjónsson og Ingibjörg
Haraldsdóttir.
Móðurást er alkunn tilfinning;
minna er hins vegar rætt og rit-
að um þunglyndi, sem einatt
sækir á konur að loknum barns-
burði. í athyglisverðri grein er
fjallað um „barnsburöarblúsinn"
og tvær konur segja frá eigin
reynslu af honum.
Upp er komin erfiö staða í afvopnun
armálum i Evrópu og viðræðum
Bandaríkjamanna og Sovótmanna i
framhaldi af leiðtogafundi Reagans
og Gorbatsjovs í Reykjavík. Þessi
staða verður án efa til meðferðar a
utanrikisráðherrafundi Atlantshafs-
bandalagsins hór á íslandi nu i
júníbyrjun. Um hana sknfar Albert
Jónsson, fróttamaður og fræð.mað-
ur í alþjóðastjórnmálum.
framhaldi af afsögn Alberts Guð-
mundssonar, stofnun Borgara-
flokksins og úrslitum síðustu
alþingiskosninga hefur mikið verið
rætt um siðferðiskennd íslensku
þjóðarinnar og stjórnmálamanna
hennar. Stefán Ólafsson, dósent og
forstöðumaður Félagsvísindastofn-
unar Háskóla islands, reifar spurn-
ingar um siðferðisvitund íslendinga
í grein sem hann nefnir „Frá skatt-
framtali til þingmannatals".
Fréttir voru sagðar af þvi eftir páska,
að ferðalangar í snjóbíl hins lands-
kunna fjallamanns, Sveins Sigur-
bjamarsonar á Eskifirði, hefðu lent
í þeirri hremmingu að ramba á
barmi jökulsprungu í Vatnajökuls-
ferð yfir hátiðarnar. Mannlíf var
með í þessari svaðilför og segir frá
því í máli og myndum.
Hagsmunir einstæðra foreldra hafa
verið á oddinum í þjóðmálaumraeðu
síðustu ára. En hvað um hagsmuni
hjónafólks og sambúðarfólks?
Gleymdust þeir? Að þeirri niður-
stöðu kemst Sigurður Snævarr,
hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun,
í einkar forvitnilegri grein sem nefn-
ist Grafið undan homsteininum".
Mannlrf er að þessu slnnl 156 bls. að stærð.
Meðal fjölmargs annars efnis: Sagt er frá svokallaðri Alexandertækni, sem er kennsluaðferð í líkamshegðun
og ryður sér æ meira til rúms hérlendis sem erlendis; Inga Friðjónsdóttir, ung myndlistarkona sem stundar nám
í listljósmyndun í San Fransisco, en áður kunn af hönnun sinni á plötuumslögum rokkkóngsins Bubba Mort-
hens, þáverandi eiginmanns hennar, segir frá Ijósmynduninni, Bubba og Bandaríkunum í einlægu viðtali og
loks fylgir Mannlífi að þessu sinni sérstakur blaðauki um Fegurðarsamkeppni íslands, þar sem rætt er m.a. við
Hólmfríði Karlsdóttur og sagt frá ferli fegurðardrottinga okkar fyrr og síðar.
Frjáistframtak
Ármúla 18, sími 82300.