Morgunblaðið - 07.07.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐŒ), /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 7. JUU 1987
B 7
ÁFAMGI
I hópi þelrra bestu
Ólympíulið íslands er (hópi þeirra bestu i heiminum i dag. Myndin er
tekin í Prilep i síðustu viku, þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti í Júgó-
slavíumótinu.
í síðasta mánuði, en í Prilep og
Bitola í Júgóslavíu í síðustu viku,
sýndi Bogdan og sannaði að
hann veit hvað hann syngur
enda nýtur hann ómældrar virð-
ingar starfsbræðra sinna hjá
hinum toppliðunum. Undirbún-
ingurinn í júní miðaðist við
Júgóslavíumótið með Seoul í
fjarlægð og Bogdan gat verið
ánægður í mótslok.
Aldrei hefur ísland átt eins
sterkt, samæft og samhent
landslið í handknattleik og nú.
Metnaður strákanna er gífurleg-
ur — þeir hafa lagt mjög mikið
á sig og eru tilbúnir til að haida
því áfram. Að vonum gleðjast
þeir þegar vel gengur og að
mennirnir hafa vanið sig á að
láta utanaðkomandi þætti ekki
hafa áhrif á það sem skiptir
máli. Löng og erfið ferðalög,
matur og umhverfi spilla ekki
hugsuninni.
í stórmótum getur einn Ieikur
ráðið úrslitum um endanlega
röð. ísland getur á góðum degi
unnið hvaða landslið sem er, en
það getur einnig átt slæman dag
og tapað óvænt. Hópurinn sýndi
í Júgóslavíu að hugarfarið er
rétt — HSÍ, landsliðsnefnd,
landsliðið og Bogdan eru á réttri
leið.
Steinþór
Guðbjartsson
Ólympíulið íslands í handknattleik er í hópi bestu liða heims
Undirbúningur liðsins miðast fyrst og fremst við ÓL í Seoul
Einstakur hópur og þjálfari sem nýtur mikillar virðingar
ikilvægui og merkur
áfangi náðist í íslenskum
handknattleik í síðustu viku,
þegar ólympíulið íslands hafnaði
í þriðja sæti á Júgóslavíumótinu,
þar sem fimm af sterkustu
landsliðum heims
tóku þátt auk
þriggja annarra liða.
Áfangmn var mikil-
vægur vegna þess
að ólympíulið okkar
sannaði tilverurétt
sinn á meðal þeirra
bestu og merkur
fyrir þær sakir að
liðið sigraði heims-
og ólympíumeistara
Júgóslavíu í fyrsta
sinn á þeirra heima-
velli.
Þegar illa gengur í
landsleikjum er al-
menningur oft fljót-
ur að dæma,
leikmenn fá að
heyra það óþvegið,
þjálfarar, lan<lsliðs;
nefnd og stjórn HSÍ
sömuleiðis. Tónninn
er annar og betri
þegar árangur næst — sami
hópur er hafínn upp til skýja.
Bogdan Kowalczyk hefur haft
ótrúlega góð áhrif á íslenskan
handknattleik siðan hann hóf
að þjálfa hér á landi fyrir níu
árum og árangur landsliðsins
undir hans stjórn er frábær. En
það sem skiptir öllu máli núna
eru Ólympíuleikamir í Seoul á
næsta ári og fólk verður að
hafa það hugfast að undirbún-
ingur liðsins miðast allur við að
ná þar því besta út úr liðinu,
sem hægt er. Viðbúið er að á
skiptist skin og skúrir á næstu
fímmtán mánuðum og því verð-
ur að taka. Margir hökkuðu liðið
í sig eftir ófarimar gegn Dönum
sama skapi eru þeir óánægðir,
er dæmið gengur ekki upp. Fyr-
ir Júgóslavíumótið var landsliðs-
hópurinn raunsær og menn
sögðu að gott væri að ná fímmta
sæti. Þeir vissu að í keppni
Bogdan þakkar
Bogdan Kowalczyk er einn besti handknattleiks-
þjálfari heims. Hann var mjög ánægður með
árangur ólympíuliðs Islands á Júgóslavíumótinu
og þakkaði leikmönnum fyrir með handabandi. Á
myndinni er Bogdan með Karli Þráinssyni og í
baksýn er Geir Sveinsson.
þeirra bestu getur enginn verið
öruggur með sigur. Þeir sættu
sig engan veginn við tapleikinn
gegn Spáni og á fundi sama
kvöld var ástæðna leitað, and-
rúmsloftið hreinsað. Á þeirri
stundu voru leikmenn óánægðir
með að hafa misst af fyrsta eða
öðru sæti, en um leið ákveðnir
í að ná þriðja sætinu, þó á
brattann væri að sækja — til
þess þurfti sigur gegn bronsliði
Austur-Þýskalands frá HM í
Sviss.
Fögnuður ólympíuliðs íslands
var mikill í mótslok. Hópurinn
hafði fest sig í sessi á meðal
þeirra bestu. Aðstæður voru
ekki upp á það besta, en leik-
■ Erlingur Kristjánsson, hinn
snjalli varnarmaður 1. deildarliðs
KA í knattspymu, var rekinn af
velli á föstudaginn í leiknum gegn
Þór. Knötturinn var sendur fram
völlinn, á Kristján Kristjánsson
sem var á auðum sjó. En Erlingur
stöðvaði knöttinn með höndunum.
Gísli Guðmundsson, dómari, hik-
aði ekki við að sýna Erlingi rauða
spjaldið og voru margir á því að
Gísli hefði brugðist rétt við. I fyrra
voru fyrirmæli til dómara á þá leið
að refsing fyrir brot sem þetta
væri rautt spjald en nú mun svo
ekki vera lengur. Reglunum var
breytt í vor, að sögn dómara sem
Morgunblaðið ræddi við í gær. Sam-
kvæmt reglum frá FIFA [alþjóða
knattspyrnusambandinu] er hegn-
ing fyrir brot sú sama hvar sem
brotið er framið á vellinum, sagði
hann, en FIFA fór einmitt fram á
það í vetur að reglur allra landa
yrðu samræmdar. Refsing fyrir
brotið sem Erlingur framdi hefði
því átt að vera gult spjald, við
fyrsta brot, ekki rautt eins og þó
hefði verið rétt í fyrra.
■ Tomislav Ivic frá Júgóslavíu
hefur tekið við stjórninni hjá Porto,
portúgölsku Evrópubikarmeistur-
unum í knattspymu. Ivic, sem er
45 ára, þjálfaði ítalska liðið Avelino
á síðasta keppnistímabili, en hann
hefur þjálfað mörg evrópsk lið, þar
á meðal Ascoli og Anderlecht.
Hann gerði tveggja ára samning
við félagið, en Jorge, fyrrum
þjálfari liðsins, tók við Racing
París.
■ Halldór Einarsson, Henson,
stóð fyrir fjáröflunarleik í knatt-
spymu á 17. júní þar sem safnað
var fé til uppbyggingar íþróttaað-
stöðu á Litla Hrauni. Vel þótti til
takast, en leikurinn var ákveðinn
með stuttum fyrirvara og því tókst
ekki að fá erlendar stjörnur til leiks.
Ákveðið hefur verið að bæta um
betur á næsta ári — og hefur verið
skipuð þriggja manna nefnd til að
undirbúa þann leik af kostgæfni. í
henni em, auk Halldórs Einarsson-
ar, atvinnumennirnir Arnór
Guðjohnsen hjá Anderlecht í
Belgíu og Ásgeir Sigurvinsson hjá
Stuttgart í Vestur-Þýskalandi.
Stefnt er að því að leikurinn fari
aftur fram á þjóðhátíðardaginn en
ekki hefur verið ákveðið hvaða
málefni á að styrkja. Þeir Ásgeir
og Amór ætla að reyna að koma
með þekkta erlenda leikmenn með
sér til landsins.
■ Gordon Milne, fyrrum leik-
maður Liverpool og framkvæmda-
stjóri Coventry og Leicester
undirritaði þjálfarasamning við Be-
siktas í Tyrklandi um helgina og
stjórnaði fyrstu æfingunni í gær.
FOLK
Morgunblaöið/Skapti
Erlingur óheppinn
Erlingur Kristjánsson, miðvörður KA í knattspymu, var óheppinn að vera rek-
inn út af í leiknum gegn Þór á föstudaginn. Skv. knattspymulögunum er refsing
fyrir þetta brot ekki útafrekstur, að sögn dómara sem Morgunblaðið ræddi við
í gær. Hér er Erlingur í baráttunni f fyrra gegn einum leikmanna Skallagrims,
er bæði lið léku f 2. deildinni.
Tyrkimir höfðu áður reynt að fá
Don Howe, fyrrum framkvæmda-
stjóra Arsenal, en samningar
tókust ekki.
■ Francis Lee hefur fengið fuli
réttindi til að þjálfa keppnishesta í
Englandi. Lee er þekktastur sem
knattspyrnumaður með Manchest-
er City og enska landsliðinu, en
hann lék 27 landsleiki og hætti sem
atvinnumaður fyrir 11 árum. Fyrir
þremur árum fékk hann takmörkuð
réttindi, sem þjálfari keppnishesta,
en árangur hesta hans hefur verið
góður, 12 sigrar á síðasta keppn-
istímabili tala sínu máli.
■ Walter Zenga, markvörður
ítalska landsliðsins í knattspymu,
hefur fengið óskemmtilegar
símhringingar að undanförnu.
Samningur hans við Internaziona-
le Milan rennur út 30. júní á næsta
ári og hefur hann ekki náð sam-
komulagi við félagið um framleng-
ingu. Því kunna einhveijir
stuðningsmenn liðsins illa, þeir vilja
að hann verði áfram og hafa hringt
og hótað honum lífláti, ef svo verð-
ur ekki.
■ Glenn Hoddle, og Mark Hat-
ely, ensku landsliðsmennirnir í
knattspymu, léku um helgina sinn
fyrsta leik með liði Mónakó. Það
var vináttuleikur gegn júgóslav-
neska liðinu Hajduk Split. Leikurinn
fór fram í Mónakó og sigruðu
heimamenn 2:1. Það var Hoddle
sem skoraði fyrra markið strax á
sjöttu mínútu, og þótti hann leika
frábærlega í þessum fyrsta leik
fsínum með nýja liðinu. Hann
stjómaði leiknum á miðjunni, en var
svo skipt út af á 61. mínútu. Góð
frammistaða, en það þótti tíðindum
sæta í Englandi að aðeins 1.000
manns fylgdust með leiknum!
Arnór GuAjohnsen og Ásgelr Sigurvlnsson eru í nefnd ásamt Halldóri Einarssyni, til þess að skipuleggja ágóða-
leik í knattspymu á þjóðhátíðardaginn næsta ár.