Morgunblaðið - 07.07.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐiÐ, /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 7. JULÍ 1987
B 11
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD
Morgunblaðiö/Bjarni
Ég er stærstur!
Guðmundur Erlingsson markvörður Þróttar nœr hér með fingur-
gómunum til knattarins og þaó dugói til aó bægja hættunni frá
aó þessu slnni. Selfyssingar voru klaufar aó vinna ekki Þrótt í
leiknum á sunnudaginn.
ÍBÍ-ÍR 1:3
Einu sinni,
einu sinni enn
ÍSFIRÐINGAR töpuðu einu
sinni, einu sinni enn í 2. deild-
inni um helgina og nú á
heimavelli fyrir ÍR-ingum. Virð-
ist nu fátt geta bjargað liðinu
frá falli.
w
Isfirðingar hófu loikinn af miklum
krafti og skoruð strax á 10.
mínútu. Kristinn Kristjánsson tók
aukaspyrnu frá vinstri inn í teig
og á kollinn á Guð-
Frá FtúnariMá mundi Jóhnannssyni
Jónatanssyni sem skallaði nett í
á Isa/irði markið.
Adam var ekki lengi
í paradís. Aðeins tveimur mínútum
síðai- jöfnuðu IR-ingar. Þvaga
myndaðist fyrir framan ÍBÍ markið,
skotið vai' að marki, Heiðar varði
en missti boltann fyrir fætur Páls
Rafnssonar sem potaði honum í
netið og jafnaði.
Eftir þetta sóttu heimamenn mikið,
léku þokkalega og var allnokkuð
um færi, en þau voru ekki nýtt sem
skyldi.
í síðari hálfleiknum var annað uppi
á teningnum. ísfirðingar virtust
hafa kólnað niður og voru ekki svip-
ur hjá sjón. ÍR-ingar hins vegar
allir að færast í aukana. A 50.
mínútu komust þeir yfír. Þvaga var
í vítateig ÍBÍ og Halldór Halídórs-
son náði að skalla í gegnum klofið
á Heiðari markverði. Nokkuð óvænt
mark.
Stundarfjóðrungi síðar skoruðu
ÍR-ingar sitt þriðja rrjark. Heimir
Karlsson var á auðum sjó á vítateig
ÍBÍ og vippaði laglega yfir Heiðai-.
ísfirðingar reyndu aðeins að klóra
í bakkann á lokamínútunum og
fengu mjög gott færi en Örnólfur
Oddsson skaut í stöng. Leikurinn
var ekki vel leikinn en þó brá fyrir
skemmtilegu spili inn á milli. Sigur
ÍR var full stór miðað við gang
leiksins.
Maður leiksins: Páll Rafnsson, |R.
■ Úrslit/B 14
■ Staöan/B 14
Þróttur- Selfoss 5:2
Selfyssingar betri
en Þróttarar unnu
HANN var dálítið furðulegur
leikur Þróttar og Selfoss í 2.
deildinni á sunnudaginn. Sel-
fyssingar voru betri aðilinn
lengst af en engu að siður voru
það Þróttarar sem unnu auð-
veldlega! Já furðulegt, en svo
virðist sem Þróttur hafi einhver
tök á Selfyssingum á Val-
bjarnavelli því sama gerðist í
fyrra, Þróttur vann þó svo Sel-
fossliðið væri betra.
Sigfús Kársson skoraði fyrsta
markið á 19. mínútu, fékk
góða stungu inn fyrir hina slöku
vörn Selfyssinga, lék á markvörðin
■^■^■1 og skoraði örugg-
Skúli Unnar lega.
Sveinsson Jón Birgir Kristjáns-
skrifar son jafnaði fyrir
gestina skömmu
fyrir leikhlé. Heimir Bergsson gaf
þá góða scndingu fyrir markið og
Jón Birgir varð á undan varnar-
mönnum og markverði Þróttar og
skallaði í laglega í netið.
Kristján Svavarsson, sem nú lék á
nýjan leik með Þrótti, skoraði annað
mark Þróttar á 61. mín. Hann elti
saklausa sendingu inn í teiginn og
þegar Anton markvörður missti
boltann mjög klaufalega frá sér
þakkaði Kristján fyrir sig með
marki.
Theódór Jóhannsson skoraði þriðja
mark Þróttar með glæsilegum
skalla eftir hornspyrnu. Atli Helga-
son skoraði síðan úr vítaspyrnu sem
dæmd var eftir að Kristjáni hafði
vorið brugðið innan vítateigs.
Lúðvík Tómasson lagaði aðeins
stöðuna fyrir Selfoss. Hann var
augljóslega rangstæður en ekkert
var dæmt þrátt fyrir mótmæli
Þróttara. Síðasta mark leiksiní
skoraði Sigurður Hallvarðsson með
langskoti, en hann kom inná sem
varamaður í síðari hálfleik.
Það vantaði illilega þá Jón Gunnar
Bergs, sem var í leikbanni, og Pál
Guðmundsson í lið Selfoss að þessu
sinni. Liðið lék þó vel úti á velli en
tókst ekki að skora. Vömin var
mjög léleg og þetta var ekki góður
dagur hjá Antoni markverði.
Maður leiksins: Kristján Svavarsson, Þrótti.
■ Úrslit/B14
■ Staðan/B14
Einherji - Leiftur 2:1
Mikil barátfta
GÍFURLEGA mikil barátta var í
leik Einherja og Leifturs á
Vopnafirði á laugardaginn.
Bæði liðin ætluðu sér sigur,
rúmlega 200 áhorfendur sáu
skemmtilegan leik, stemmn-
ingin var góð og svo fór að
heimamenn unnu sanngjarnt
2:1.
Gústaf Omarsson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Leiftur á
12. mínútu. Mikil þvaga var við
mark Einheija, heimamönnum
tókst ekki að
FráBirni hreinsa og Gústaf
Björnssyni skoraði.
áVopnahrði Jafnræði var með
liðunum út hálfleik-
inn, leikmenn náðu ekki að skapa
sér marktækifæri, en á síðustu sek-
úndunum jafnaði Hkllgrímur
Guðmundsson. Leiftursmenn byrj-
uðu á miðjn og dómarinn flautaði
til hlés.
Baráttan hélt áfram í seinni hálf-
leik og á 62. mínútu skoraði Árni
Ólafsson eitt fallegasta mark, sem
sést hefur á Vopnafirði. Þungri
sókn Einheija lauk með því að bolt-
inn barst til Árna, sem var rétt
utan teigs, hann skaut að marki,
boltinn í slá og inn.
Eftir markið sóttu bæði liðin stíft,
Leiftursmenn sættu sig greinilega
ekki við að tapa og Einherji vildi
bæta við. Heimamenn voru öllu
ákveðnari í sínum aðgerðum, en
Þorvaldur Jónsson, markvörður
Leifturs, hreinlega lokaði markinu.
Hann var besti maður Leifturs, en '
Gústaf Ómarssun átti einnig góða
kafla.
Oft hefur verið einkennandi fyrir
Einheija að byija vel en gefa eftir
í lokin. Svo var samt ekki að þessu
sinni, en bestir í liðinu voru Árni
Ólafsson og Einar Bjöm Krist-
bergsson.
Maður leiksins: Árni Ólafsson.
■ Úrslit/B 14
■ Staðan/B 14
KS - UBK 2:1
IMaumt á Sigtfirðinga
SIGLFIRÐINGAR mjökuðu sér
upp töfluna í 2. deildinni um
heígina með því að vinna
Breiðabliksmenn í miklum bar-
áttuleik á Siglufirði.
að var fýrst og fremst barátta
og aftur barátta sem einkenndi
fyrstu mínútur leiksins. Bæði liðin
voru staðráðin í að krækja sér í
stig, þrjú frekar en
Frá Rögnvaldi eitt, og allir lögðu
Þórðarsyni sig fram til þess að
á Siglulirði ná því marki.
Guðmundur Guð-
mundsson kom Blikum yfir á 23.
mínútu. Boltinn barst inn í vítateig-
inn og var Guðmundur aðeins á
undan markverðinum og skallaði
að marki. Varnarmaður náði að
bjarga á marklínunni með því að
spyrna hátt í loft upp en Guðmund-
ur var fyrstur til og skallaði í tómt
markið.
Heimamenn sóttu það sem eftir var
fyrri hálfleiks undan norðan golunni
og fimm mínútum eftir að Guð-
mundur skoraði mark UBK jafnaði
Mark Duffield. Hann stökk hæst
allra í vítateignum eftir homspyrnu
og skallaði í markið.
Jónas Bjömsson skoraði síðan sig-
urmarkið tíu mínútum fyrir leikhlé
með því að ptjóna sig í gegnum
vömina og skora.
Breiðabliksmenn sóttu látlaust í
síðari hálfleik en heimamenn áttu
þó skyndisóknir inn á milli. Mörkin
urðu þó ekki fleiri en tveir fengu
að líta gula spjaldið hjá dómara
leiksins, þeir Sigurður Siguijónsson
,KS, og Ingvaldur Gústavsson, UBK.
Jón Þórir Jónsson var góður hjá
Blikum og Rögnvaldur Rögnvalds-
son einnig en hjá heimamönnum
var Mark Duffield bestur og Jónas
Björnsson átti einnig ágætan dag.
■ Úrslit/B 14
■ Staóan/B 14
Víkingur-IBV 3:3
Varamaðurinn hetja Víkings
Varamaðurinn Jón Bjarni Guð-
mundsson var hetja Víkings,
sem náði jafntefli gegn ÍBV í
leik liðanna í 2. deild á laugar-
dag. ÍBV hafði yfir 3:1 þegar
aðeins sjö mínútur voru til
leiksloka en Jón minnkaði mun-
inn og fiskaði síðan vítaspyrnu
sem Trausti Ómarsson skoraði
úr. Þegar á heildina er litið þá
var 3:3 jafnteflið sanngjarnt en
leikmenn ÍBV geta nagað sig í
handarbökin yfir lokamörkun-
um.
yjamenn voru mun ákveðnari í
byijun og náðu forystunni með
marki Elíasar Friðrikssonar úr víta-
spyrnu.
■■■■■■ í síðari hálfleik jafn-
Frosti aði Björn Bjartmarz
Eiðsson leikinn með góðu
sknfar skoti rétt innan víta-
teigs. Stuttu síðar
fengu Eyjamenn sína aðra víta-
spymu og Elías skoraði aftur af
öryggi. Vítaspyrnudómurinn og
mark Eyjamanna virtust hleypa illu
blóði í Víkinga sem misstu öll tök
á leiknum. Tómas Tómasson bætti
þriðja markinu við og flestir ætluðu
eftirleikinn auðveldan. Jón Bjami
og Trausti skomðu síðan báðir á
lokamínútunum eins og áður sagði.
Eyjamenn börðust lengst af mjög
vel og liðsheildin var aðall liðsins í
þessum leik. Þeir léku með sorgar-
bönd vegna fráfalls Eiríks Guðna-
sonar fyrrverandi formanns Týs.
Víkingar virðast vera að hægja á
sér eftir góða byijun og hafa ekki
verið sannfærandi í síðustu leikjum.
Dómgæslan var slök og allir víta-
spyrnudómarnir mjög umdeildir.
Maöur leiksins: Jón E. Guðmundsson,
Víkingi.