Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 13
b MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 13 þróun hverfanna við breytta lifnað- arhætti. Á þeim tíma sem elstu hverfin hafi verið í mótun hafi orð- ið miklar breytingar á atvinnulífi, fjölskyldumynstri, bílaeign og inn- kaupavenjum svo fátt eitt sé nefnt. Arkitektamir settu sér það mark- mið að endurbætur á hverfunum auðveldi fjölskyldum af öllum stærðum að fínna húsnæði og þjón- ustu við hæfí. Stefnt er að því að minnka umferð bifreiða og draga úr starfsemi sem stuðlað geti að aukningu hennar. Gert er ráð fyrir að fjölga bílastæðum og bæta að- stöðu gangandi vegfarenda með breikkun gangstíga og torgum. Arkitektamir vilja varðveita fjöl- breytileika byggðarinnar og undir- strika sérkenni hennar betur. Ekki á að leggja nýjar götur, né breikka þær sem fyrir em og nýtingarhlut- fall, sem er stærð bygginga á hverri lóð, á ekki að auka. Austurbær - spannar meira en 150 ára sögu Höfundar afmarka borgarhverfí frá Snorrabraut í austri að Fríkirkjuvegi í vestri, Skúlagötu í norðri að Hringbraut í suðri og nefna Austurbæ. Á þessu svæði er fjölbreytt byggð. Þar bjuggu rúm- lega 6.600 manns árið 1985 og fimmtungur þeirra eldri en 67 ára. „íbúðarhúsnæði er ákaflega mis- munandi að gæðum. Þarna eru íbúðir í hæsta gæðaflokki, en einn- ig húsnæði sem æskilegast væri að enginn þyrfti að búa í og allt þar á milli“ segir í greinargerð með tillögunni. I yfírliti um byggingarsögu hverfisins er komist að þeirri niður- stöðu að einkenni gamla Austur- bæjarins séu stök hús, mörg vegleg og varanleg auk einstakra „rand- byggðra“ húsa svo sem Verka- mannabústaðanna við Hringbraut. Inn á milli má fínna stærri mann- virki sem flest hýsa opinberar stofnanir. í vestanverðri og sunnanverðri Skólavörðuhæðinni segja arkitekt- amir byggðina „sjálfgróna". Auki það myndrænt og umverfíslegt gildi hennar þótt víða sé þörf á breyting- um svo húsin uppfylli kröfur nútímans. Arkitektarnir telja eðli- legast að þróun svæðisins taki mið af fortíð og nútíð. Breytingar séu í samræmi við þarfir og efnahag íbúa. Skammtímasjónarmiðum sé varpað fyrir róða en skilmálar og aðgerðir miðist við að varðveita byggðarmynstrið. Arkitektamir gera tiUögu að breytingum á Óðinstorgi og næsta nágrenni þess. Gert er ráð fyrir að Spítalastig yrði lokað ofan Óðins- götu og torgið stækkað sem því nemur. Þá yrði torgið hækkað til jafns við Týsgötu og undir þvi gerð bílageymsla með aðkomu frá Óðins- götu. Þetta gæti orðið ákjósanlegur staður fyrir útimarkað, eða útivist- arsvæði fyrir íbúa nágrennisins að mati höfunda. Einnig er varpað fram þeirri hugmynd að rífa múrana kringum Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. í stað fangelsis- garðsins yrði gert torg á hominu við Grettisgötu og bekkjum komið fyrir á sólríkasta skika þess. í hverfinu em þijú listasöfn, sundhöll og Borgarbókasafn. Höf- undar benda á að húsnæði til samkomuhalds á svæðinu sé nær eingöngu í eigu einkaaðila eða fé- lagasamtaka, ef frá er talin Hallgrímskirkja. Þar er því ekki hverfísbundin félagsmiðstöð. Lagt er til að kannað verði hvort hús- næði Ölgerðarinnar við Njálsgötu geti nýst til unglingastarfs. Enn- fremur er varpað fram þeirri hugmynd að leggja fangageymslur við Skólavörðustíg niður en koma þar á fót menningarmiðstöð. Norðurmýri.Rauðarár- holt - Umferðarvandi Undir þetta svæði heyrir byggðin austan Snorrabrautar, í Norður- mýri, og kringum Hlemm að Lönguhlíð í austri og Borgartúni í suðri. í greinargerðinni segir að TOMMABORGARINN KOSTAR 87 KRÓNUR ! Fréttir TT af verðstríði á skyndibitamarkaðnum hafa vakið mikla athygli. Sam- kvæmt heimildum lögreglunn- ar var umferð út úr borginni t.d. miklu minni nú um helg- ina 8. og 9. ágúst en helgina þar á undan. Málsmetandi menn, bæði í umferðarráði og framleiðsluráði landbúnaðar- ins, eru á einu máli um að hin stórkostlega verðlækkun á Tomma hamborgurum sé ein helsta skýringin á þessu. Dr. Hagbarður Eiríksson hag- fræðingur sagði i samtali við blaðamann að ljóst væri að þessi efnahagsaðgerð Tomma hamborgara hefði þegar spar- að stórfé fyrir þjóðarbúið, þó ekki væri nema í minni bensín- eyðslu, minna sliti á bifreið- um, hjólbörðum og marg- hrjáðu vegakerfi. T. mam&ía. p i pa m . m m 1 n fi 1M1 M m WWfk ' n m ffís fm P* » x \i/ /'/\ vN DR. HAGBARÐUR „Já það er rétt það fór allt í steik eftir að fréttin um verð- hrun á hamborgurum birtist í Tomma Tíðindum á laugar- daginn,“ sagði Gissur i Tomma Hamborgurum þegar TT hafði samband við hann seinni partinn í gær. Gissur sagðist hafa ætlað að fara í merkilega bátsferð niður Hvítá á laugardaginn en orðið að hætta við. Hann, fjölskyld- an og allir sem vettlingi gátu valdið hjá Tomma hamborg- urum stóðu alla helgina og framleiddu hamborgara og höfðu vart undan. Hann sagði þó að það væri langt frá þvi að þau væru að gefast upp. „Við stöndum við það að selja Tomma borgarann á aðeins 87 krónur allt til 5. september, svo fremi að nokkurt nauta- kjöt verði þá eftir í landinu.“ Frétt Tomma Tíðinda hefur greinilega náð til fólksins. Tomma hamborgarar fást á Grensásvegi 7, Hólmaseli 4, Laugavegi 26, Lækjartorgi og Reykjavikurvegi 68 Hafnar- firði. ppBI Vinningshafi býður fjölskyldunni með sér í þriggja vikna Sólarlandaferð Samhliða hinni einstöku verð- lækkun á hamborgurum efna Tomma hamborgarar og ferðaskrifstofan Polaris til getraunar meðal gcsta Tomma staða 14 ára og yngri. Get- raunin verður í gangi fram til 4. september nk. og eru verð- launin óvenju glæsileg: Vinn- ingshafi fær að bjóða nánustu fjölskyldu sinni með sér i þriggja vikna ferð til Sólar- landa á vegum ferðaskrifstof- unnar Polaris. Úrslit í getraun- inni verða tilkynnt á sérstakri útihátíð sem haldin verður á Lækjartorgi föstudaginn 4. september. t. SPRINGA? Kenningin að hjöðnun á ein- um stað leiti fram einhvers staðar annars staðar, sem Dr. Hagbarður Eiriksson hag- fræðingur setti fram í Tomma Tiðindum 8. ágúst sl., hefur vakið alþjóðaathygli. Hið annars virta tímarit, The Economist, ræðst heiftarlega á hana í nýjasta tölublaði og segir þetta aðeins enn eitt dæmi þess að á íslandi gangi allir hagfræðingar af göflun- um. Austur í Moskvu hefur kenningin orðið tilefni mikilla umræðna. Ökonomikoff, einn helsti efnahagssérfræð- ingur, framkvæmdanefndar miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins, sagði t.a.m. í grein sem birtist í gær í Prövdu, að kenning Dr. Hag- barðar væri í aðalatriðum alveg rétt, t.d. myndi verð- lækkun á hamborgurum í Moskvu lengja mjög biðraðir þar í borg. Hann taldi þvi ekki rétt að beita þessari kenningu í bráð innan hins sósialíska hag- kerfis. íslenskir hagfræðingar sem TT leitaði til vildu ekki tjá sig um kenningu Dr. Hagbarðs. Það virðist sem svo oft áður að frægðin verði að koma að ut- an. „Ég er alveg að springa, “ sagði Dr. Hagbarður þegar TT spurði hann um þetta, „þvi að ég er búinn að sýna það í verki að kenning mín stenst. Þetta er ekki lengur kenning — þetta er lögmál!“ Dr. Hagbarður sagðist vilja þakka Tomma borgurum alveg sérstaklega fyrir að honum hafi tekist að sýna fram á tilvist Hagbarðs- lögmálsins: „Ef ekki hefði ver- ið þetta lága verð á Tomma hamborgurum og ef þeir væru ekki svona undurgóðir hefði mér aldrei tekist ætlunarverk mitt.“ Samkvæmt nýjustu fréttum utan úr heimi er Dr. Hagbarður nú mjög orðaður við Nóbelsverðlaunin i hag- fræði í ár. T. mfdas
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.