Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 Sambandið vill kaupa Utvegsbankann Ætluiiin að Samvmnubankinn og Utvegsbankinn sameinist Útvegsbankinn er með um 90% útlána í Vestmannaeyjum SAMBANDIÐ og þrjú fyrirtækja þess lögðu í gær fram til- boð í 67% hlutafjár Útvegsbanka íslands hf. Fréttin um tilboðið kom mörgum á óvart eins og sjá má á viðtölum við ýmsa aðila í bankakerfinu og útgerð. Kaupin snerta mörg byggðalög, en fá eins mikið og Vestmannaeyjar, þar sem Útvegsbankinn er með um 90% heildarútlána. Á blaðamannafundi sem forustu- menn Sambandsins héldu í gær kom fram að auk SÍS standa að tilboðinu þijú fynrtækja þess, þ.e. Samvinnu- sjóður íslands hf., Jötunn hf. og Dráttarvélar hf. SÍS og tvö fyrr- nefndu fyrirtækin munu eignast 20% hlutaQár en Dráttarvélar 7%, ef Jon Sigurðsson, viðskiptaráð- herra gengur að tilboðinu. Hann mun kynna tilboðið á ríkisstjómar- fundi næstkomandi þriðjudag og taka ákvörðun í næstu viku. Ástæða þess að SÍS, Samvinnu- sjóður og Jötunn kaupa ekki meira en 20% hvert í Útvegsbankanum er sú að í lögum bankans segir að enginn megi fara með meira en 20% atkvæða á aðalfundi. Dráttarvélar kaupa síðan 7% til þess að ná 67% en það tryggir tilskilinn meirihluta fyrir að sameinast Samvinnubank- anum, eins og Valur Amþórsson, stjómarformaður SÍS, sagði að stefnt væri að. Ef Útvegsbankinn og Samvinnu- bankinn sameinast þá verður nýi bankinn þriðji stærsti banki lands- ins. í lok maí námu innlán í þeim fyrmefnda 5.410 milljónum króna og í þeim síðamefnda 3.971 millj- ón. Hlutdeild þeirra í innlánum viðskiptabankanna var 19,3%. Landsbankinn var með 41% innlána og Búnaðarbankinn 20,6%. Sameig- inlega er hlutur Útvegsbanka og Samvinnubanka í útlánum tæplega 18%, Landsbanka tæplega 45% og Búnaðarbanka rúmlega 19%. Það er hins vegar eindreginn vilji sambandsmanna að Alþýðubankinn taki þátt í sameiningu bankanna tveggja og ef af því yrði verður nýi bankinn annar stærsti bankinn. Allt er þetta að því gefnu að hvorki verði inn- eða útstreymi úr bankan- um. Nokkrir bankamenn sem talað var við sögðu hins vegar að búast mætti við því að einhveijir við- skiptavinir Útvegsbankans myndu skipta um banka, þar sem þeir gætu ekki átt viðskipti við banka í meirihlutaeigu SÍS. Þá var einnig bent á að þrýstingur, sérstaklega á Landsbankann, um að opna útibú í Vestmannaeyjum mjmdi aukast ef af umræddum kaupum yrði. Verulegnr munur Eins og fram hefur komið í fréttum hafa aðilar í sjávarútvegi unnið að því að safna hlutafjárlof- orðum í Útvegsbankann og tilboð Sambandsins kom þeim í opna skjöldu._ Guðjón B. Olafsson, for- stjóri SÍS telur hins vegar mikinn mun á hugsanlegum kaupum þessara aðila og tilboði Sam- bandsins og sagði: „Það er veru- legur munur á því hvort slíkir aðilar sameinast um að kaupa hlut í bankanum, eða eins og í því tilfelli, sem hér um ræðir, að það sé annar banki sem samein- ast Útvegsbankanum. Það er verið að gera meiriháttar átak í því að stokka upp bankakerfið og fækka bönkum og búa til stærri og hag- kvæmari einingar." Á blaðamannafundinum kom fram að Sambandið hyggst selja hluta af hlutabréfunum eftir að endurskipulagningu er lokið til innlendra eða erlendra aðila. Þess má geta að erlendir bankar hafa, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins sýnt nokkum áhuga á hlutabréfakaupum. Valur Am- þórsson sagði að eftir sem áður myndi Sambandið halda meiri- hluta í nýja bankanum. En hvað réð ákvörðun stjómar Sambandsins að gera tilboð í Út- vegsbankann? Guðjón B. Ólafsson sagði þegar hann var um það spurður að afkoma Samvinnu- bankans, góð eða slæm hafði ekkert með þessa ákvörðun að gera. Hann benti á að rekstur bankans stæði traustum fótum: „Hér er fyrst og fremst um það að ræða að menn hafa séð mögu- leika á því að ná verulegri hagkvæmni í bankakerfínu. Hann benti á að eigið fé bankans væri rúmlega 350 milljónir króna. Sam- vinnubankinn tapaði um 8,4 milljónum króna á síðasta ári vegna afskrifta vegna gjaldþrots Kaupfélags Svalbarðseyrar. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins var um 28 milljón króna tap á rekstri bankans fyrstu fjóra mánuði ársins. Það skal þó tekið fram að rekstur allra bankanna gekk illa þessa mánuði. Landsbankinn er stærsti við- skiptabanki Sambandsins og Guðjón B. Ólafsson sagði að eng- in áform væru uppi um að hætta þeim viðskiptum. Valur Amþórs- son sagði: „Við vonum að við munum eiga jafngóð viðskipti við Landsbankann í framtíðinni sem hingað til. Þau viðskipti hafa ver- ið góð fyrir báða aðila.“ Það er hins vegar ljóst að hugsanleg kaup á Útvegsbankanum geta haft áhrif á viðskiptin, en af því munu Landsbankamenn hafa áhyggjur. Útboð ríkisins á hlutafé Út- vegsbankans gerir ráð fyrir því að hlutafé sé staðgreitt ef ekki er keypt fyrir meira en 100 þús- Morgunblaðið/Júlíus Forustumenn Sambandsins tilkynntu eftir hádegi í gær að það og þijú fyrirtækja þeirra hafi lagt fram tilboð í 67% hlutafjár Útvegsbanka íslands. Myndin er tekin á blaðamannafundi sem haldinn var af því tilefni. Hermann Sveinbjörnsson, blaðafulltrúi, Valur Arnþórsson, stjórnarformaður og Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS. und krónur. Þeir sem kaupa fyrir meira en 100 þúsund en minna en eina millljón geta fengið 95% lánað til þriggja ára. Aðilar sem kaupa hlutafé fyrir 1 milljón eða meira fengið 95% lánað til allt að 5 ára. Eftirstöðvamar em bundn- ar lánskjaravísitölu og bera meðalvexti verðtryggðra skulda- bréfalána innlánsstofnana. Gert er ráð fyrir að greitt sé á hálfsárs fresti fyrst 30. apríl 1988. Þeir sem kaupa hlutafé yfir 10 milljón- ir króna geta óskað eftir öðrum samningum um greiðslu, eins og Sambandið hefur óskað eftir við viðskiptaráðherra. Þannig hefur Fiskveiðasjóður fengið 7 ár til að greiða hlutafé sitt. Ríkissjóður tók lán hjá Seðlabankanum til sjö ára til að leggja fram hlutafé í Útvegs- bankann. Það er því ólíklegt að 1 til að greiða allt hlutaféð ef af Sambandið fái lengri frest en það 1 kaupum verður. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ: Meirihlutaeign eins aðila áhyggjuefni „BANKINN verður að einka- banka með þessum hætti, en ég harma það að ekki skyldi hafa Matthías Bjarnason fyrrum viðskiptaráðherra: Myndi hafna þessu tilboði „VÆRI ég viðskiptaráðherra núna, hafnaði ég tilboði Sam- bandsins í Útvegsbankann, þar eð ég tel það andstætt lögunum tun Útvegsbankann að einn aðili eigi meirihluta hlutafjár í hon- um,“ sagði Matthías Bjamason, viðskiptaráðherra í stjóm Steingríms Hermannssonar. „Gildir þar einu hvort það er Sambandið eða einhveijir aðrir sem eiga í hlut.“ Matthías gat þess, að þegar hann hefði gegnt starfí viðskiptaráðherra hefðu tveir aðilar, annar erlendur, hinn íslenskur, leitað til hans og spurt hvort möguleiki væri á því að þeir eignuðust meirihluta í bank- anum. Því sagðist Matthías hafa hafnað, þar eð ætlunin væri í lögun- um um bankann að almenningi væri gefínn kostur á að kaupa hlutafé í bankanum, en ekki væri ætlunin að einn aðili kæmist í stöðu yfírdrottnara. „Ef einhveijum er um að kenna, hvemig komið er í málefnum Út- vegsbankans, er það stórhöfðingj- um einkarekstrarins," sagði Matthías Bjamason, fyrrum við- skiptaráðherra. „Ég harma hvað atvinnurekendur í fiskiðnaði em lengi að hugsa, því þeir virðast vera búnir að missa tækifærið." tekist víðtækara samstarf um kaup á hlutabréfum Útvegs- bankans og að ekki skyldu koma saman fleiri hagsmunir," sagði Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra út- vegsmanna í samtali við Morgun- blaðið í tilefni af tilboði Sambandsins í Útvegsbankans. „Þetta eru greinilega kraftmiklir menn, sem geta tekið ákvarðanir," sagði Kristján. Hann kvað útvegs- menn hafa verið að skoða málefni bankans undanfarið; ekki vegna viðskiptalegra hagsmuna, þar eð útvegsmenn ættu mest sín viðskipti við Landsbanka íslands. „Það var augljós stefnumörkun af hálfu síðustu ríkisstjómar að málefni bankans lentu ekki í hönd- um eins aðila, sést það best af því að einum aðila er ekki heimilt að kaupa hlutabréf í bankanum fyrir 50 milljónir, nema með samþykki ráðherra. Ef af kaupunum verður, verður meirihlutaeign bankans í höndum Sambandsins, Fiskveiði- sjóður með 20% en aðrir aðilar mun minna.“ Kristján sagði að lokum að reynslan yrði bara að leiða í ljós hvort þetta væri heppilegt fyrir- komulag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.