Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 Skíðaráð Akureyrar: Hermannsmótið haldíð um helgina Skíðagöngumót í Kjarnaskógi SKÍÐARÁÐ Akureyrar heldur Hermannsmótið svokallaða um helgina i HliðarfjaUi. í kvöld kl. 21.00 verður fararstjórafundur, en á morgun hefst mótið sjálft. Stórsvigsbrautin verður opnuð til skoðunar kl. 10.30 og klukkutíma síðar verður svigbrautin opnuð. Jafnframt hefst fyrri ferð í stórs- vigi karla og kl. 12.30 fer kvenna- flokkurinn af stað í fyrri svigferð sína. Seinni umferð hefst síðan laust eftir hádegið eða kl. 13.15 í karlaflokki og kl. 13.45 í svigi kvenna. Á sunnudag verða það kven- mennimir sem keppa í stórsvigi og karlar í svigi á sama tíma. Verð- launaafhending og mótsslit fara fram við Skíðastaði kl. 15.00. Þá fara fram skíðagöngumót KA og Þórs um helgina í Kjamaskógi. KA-mótið verður á iaugardag og Þórsmótið á sunnudag og hefjast göngumar kl. 13.00 báða dagana. Keppt verður f tíu flokkum og eru vegalengdimar mismunandi eftir flokkum. Flokkur 8 ára og yngri gengur einn km, 9-10 ára 2 km, 11-12 ára 2,5 km, 13-14 ára 3,5 km., 15-16 ára 7 km., 17-19 ára 10,5 km, 20-34 ára 10,5 km, 35-44 ára 10,5 km, 45-54 ára 7 km og 55 ára og eldri ganga 3,5 km. Helgar-og viðskiptaferðir til Reykjavíkur Ótrúlega hagstætt verð Verðfrákr. 6.859,- Ferðaskrifstofa Akureyrar, Ráðhústorgi 3, sími 25000. Sigurður P. Sigmundsson, nýr framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar: Sigurður P. Sigmundsson ráðinn framkvæmdastjóri „GAUKURAKUREYRAR“ 1. flokks ma'tur á teríuverði EKTA PIZZUR OpiÖ um helgar frákl. 11.30-03.00 Virka daga rrákl. 11.30-01.00 Fiskmarkaður Norðurlands hf. heyri undir Iðnþróunarfélagið til reynslu STJÓRN Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Sigurð P. Sig- mundsson hagfræðing fram- kvæmdastjóra félagsins frá og með 1. febrúar nk. Sigurður var Rannsóknarlögreglan á Akureyri: Málum fjölgaði um 200 í fyrra frá því árinu áður FJÖLDI mála hjá rannsóknarlög- reglunni á Akureyri hefur vaxið ár frá ári frá því skráning þeirra hófst árið 1984. Þá komu 1.355 mál til rannsóknarlögreglunnar. Árið 1985 fór tala þeirra upp í 1.509 og í 1.596 árið 1986. í fyrra > fjölgaði málum um 200 frá árinu áður og komu ails 1.796 mál inn á borð rannsóknarlögreglu- manna. Tekist hefur að upplýsa 81,5% þeirra. Frá þvi að skráning hófst fyrir fjórum árum hefur málum því fjölgað um 441. Fjölgunin á nýliðnu ári hefur mest verið í árekstrum og umferð- arslysum eða 88 árekstrar og 26 umferðarslys. Skemmdarverkum fjölgaði um 56 frá árinu áður, ölv- unarakstursmálum um 24, vinnu- slysum um 18, málum sem flokkast undir „skemmdir og tjón“ um 23 og líkamsárásum um 13 talsins. Ragna Róbertsdóttir textíi- og skúlptúrlistamaður. Ragna Róbertsdóttir sýnir í Glugganum RAGNA Róbertsdóttir opnar sýningu i Glugganum galleríi i kvöld klukkan 21.00. Ragna fæddist í Reykjavík árið 1945. Hún útskrifaðist úr Myndlista- og handiðaskóla íslands 1970 og stundaði framhaldsnám við Konstfac i Stokkhólmi 1970 til 1971. Ragna hefur alla tíð fengist við textíl, í fyrstu á hefðbundinn hátt en nú í seinni tíð hefur hún getið sér gott orð fyrir nýstárlega skúlp- túra, segir í fréttatilkjmningu um sýninguna. Ragna hefur sýnt reglulega frá árinu 1975 bæði hér heima og erlendis. Hún var valinn borgarlistamaður Reykjavíkur- borgar árið 1987. Glugginn er til húsa við Gierár- götu 34 á Akureyri og stendur sýning Rögnu tii sunnudagsins 7. febrúar. Glugginn er opinn daglega frá kl. 14.00 til 18.00, en lokað er á mánudögum. Samdráttur varð mestur í tékka- svikum og kemur það til vegna ábyrgðar bankanna á tékkum upp að vissri upphæð, sem nú mun vera um 10.000 krónur, að sögn Daníels Snorrasonar lögreglufulltrúa. Á móti koma kærur frá bönkunum þar sem margir tékkar á sama reikningshafa eru sendir inn í einum pakka, sem þá er skráður sem eitt mál. Fækkun verður í flokknum „ýmisleg mál“, en hún kemur að mestu til af nákvæmari skráningu og jafnast að einhverju leyti út á hina ýmsu málaflokka. Auk þess sem málum hefur Qölgað, þá hefur umfang margra mála aukist til muna og á árinu komu upp mál er þörfnuðust mikillar rannsóknar, að sögn Daníels. 42 eldsvoðar komu til kasta rann- sóknarlögreglunnar, þar af voru sex þeirra meiriháttar brunar. Þann 10. maí brann hlaða á bænum Helga- stöðum, 22. júní brann verbúð í Sandgerðisbót og eyðilagðist í eld- inum, 5. ágúst kom upp eldur í þaki Fjórðungssjúkrahússins á Ak- ureyri, 2. nóvember brann fískverk- unarhús KEA í Grímsey til kaldra kola, 21. desember stórskemmdist íbúðarhús í Kringlumýri 4 á Akur- eyri og á jólanótt brunnu útihús á Tjömum í Saurbæjarhreppi. Daníel sagði að fyrst hefði farið að bera á fíkniefnum á Akureyri 1974 og allt til ársins 1983 hefði verið upplýst eitt og eitt fíkniefna- brot. Síðustu árin hefði þeim fjölgað lítillega. „Við teljum að hér á Akur- eyri séu fíkniefni til staðar, en álítum að þeirra sé neytt í lokuðum hópum. Þess vegna teljum við stöð- una í þeim málaflokki vera betri en á mörgum smærri stöðunum. Skýringuna teljum við vera að fínna í stöðugri atvinnu hér, en fíkniefni virðast loða heldur við smærri ver- tíðarstaðina," sagði Daníel. valinn úr hópi fimm umsækj- enda. Fráfarandi framkvæmda- stjóri er Ingi Bjömsson sem lét af störfum um áramót. Jafnframt var samþykkt frá sama tíma að félagið tæki að sér að hafa umsjón með rekstri Fisk- markaðs Norðurlands hf. í þijá mánuði, en að loknum þeim tíma yrði það fyrirkomulag endurskoðað. Samningur Iðnþróunarfélagsins og Fiskmarkaðsins verður með svipuðu sniði og samningar um rekstur á þeim fyrirtæk jum sem Iðnþróunar- félagið hefur haft umsjón með, til dæmis Fiskeldi Eyjaflæðar, segir í fréttatilkynningu frá Iðnþróunarfé- lagi EyjæQarðar. Sigurður var í upphafi ráðinn til að byggja starfsemina upp. Þar sem starfsemin er nú komin í fastar skorður er ekki talin þörf á fram- kvæmdastjóra f fullu starfí við óbreyttar aðstæður. Rekstur Fisk- markaðs Norðurlands hf. verður að öðru leyti með sama sniði. Stefnt verður áfram að því að styrkja og efla starfsemina, segir í fréttatil- kynningu frá Fiskmarkaði Norður- lands hf. Skrifstofan er opin daglega milli kl. 9.00 og 16.00. Uppboð fara fram milli kl. 12.00 og 15.00. 15. sýning föstudaginn 29. janúarkl. 20.30 16. sýning laugardaginn 30. janúarkl. 20.30. 17. sýning sunnudaginn 31. janúarkl. 16.00. IÁ MHDASALA 96-24073 laKFáAS AKUBEYRAR VtSA* ÞORRA- HLAÐBORÐ á hverjum degi JANUARTILBOÐ Tilboö sem bragö er aö Til þess að létta þunga nýja matarskattsins höfum við ákveðið að koma til móts við ykkur með glæsi- legu janúartilboði. 1_. Hamborgari m/frönskum kartöflum og gosglasi Örfáar 185,-kr. 2. Barnahamborgari m/frönskum kartöflum og gosglasi Litlar 135,- kr. 3. Grænmetispíta m/frönskum kartöflum og gos- glasi Aðeins 225,- kr. Vinsamlega biöjiö um tilboö til þess aö koma í veg fyrir misskilning. AKUREYRI SKIPAGÖTU 12, AKUREYRI Besti bitinn i bœnum aÖ sjálfsögöu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.