Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 49 Minning: Hálfdán H. Þorgeirs- son, bifvélavirki Fæddur 8. október 1922 Dáinn 21. janúar 1988 „Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund.“ (Höf. Vald. Briem.) í dag, föstudaginn 29. janúar, verður jarðsunginn frá Garðakirkju á Álftanesi mágur minn, Hálfdán Haukdal Þorgeirsson, bifvélavirki. Hálfdán fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 8. október árið 1922. Foreldrar hans voru hjónin María Bjamadóttir og Þorgeir Jónsson vélstjóri. María lést 19. apríl árið 1944 ung að árum en Þorgeir lést í nóvember 1974. Hálfdán var elst- ur fímm bræðra, en þeir eru: Jón, býr á Skagaströnd, Friðþjófur, býr í Hafnarfírði, Kristján, búsettur í Mosfellsbæ, og Styrmir í Reykjavík. Einnig átti Hálfdán eina hálfsystur frá seinna hjónabandi Þorgeirs og heitir hún Guðfínna og býr í Reykjavík. Hálfdán gerði bifvélavirkjun að æfístarfi sínu, og hlaut sveinsbréf í þeirri grein árið 1953, en hafði þó starfað lengi áður við bílavið- gerðir. Hálfdán var verkstjóri hjá Skoda- verkstæðinu í Reykjavík í mörg ár og var sérmenntaður í þeirri grein, Fæddur 12. marz 1914 Dáinn 18. janúar 1988 Okkur langar að minnast með örfáum orðum Sigurðar Guðmunds- sonar, föðurbróður okkar, sem andaðist aðfaranótt mánudagsins 18. janúar eftir stutta en erfíða sjúkdómslegu. Siggi frændi var sonur Guðmundar Einarssonar seglasaumara og konu hans, Helgu Guðmundsdóttur, sem bjuggu á Framnesvegi 1 í Reykjavík. Hann lærði ungur húsgagnasmíði hjá Helga Helgasyni og síðar Davíð Grímssyni og vann við smíðar alla tíð síðan. Fyrst vann hann hjá Kristjáni Siggeirssyni í allmörg ár og síðar mörg ár á eigin vegum, aðallega við smíðar á handriðum, og loks hjá Árbæjarsafni við end- ursmíði gamalla húsa. Árið 1944 kvæntist hann eftirlif- andi konu sinni, Guðfínnu Jóns- dóttur. Þau voru alla tíð mjög samhent hjón og bjuggu í farsælu hjónabandi, fyrst á Bergstaðastræti 39 og síðar í Bakkagerði 9. Okkur systkinunum var Siggi sérlega mikill frændi, þar sem hann fylgdist nákvæmlega með okkur bróðurbömum sínum, sem værum við hans eigin. Honum og Guðfínnu varð ekki bama auðið og nutum við því sérlega mikils atlætis. Lengi framan af ferðaðist hann allra sinna ferða á reiðhjóli og minnumst við eldri bræðumir þess hvað Siggi átti auðvelt með að kenna stuttum stúf að stíga stór hjól, listina að hjóla undir stöng. Seinna er við hófum búskap varð frændi gjaman fyrstur á staðinn til aðstoðar, hvort sem þörf var á handtaki smiðsins eða góðu og hagkvæmu ráði. Nokk- uð þótti honum við djarftæk á stundum eða ætla okkur of mikið, og brýndi þá fyrir okkur hóf og ráðdeildarsemi. Þá nutu böm okkar ekki síður atlætis þeirra hjóna. Frændi var mikill verkmaður og hugurinn við verkið slíkur, að alltaf fannst honum að hraðar hefði getað unnist og betur. Fátt gladdi hann meira en falleg fjöl, en illa unnið kák var honum til skapraunar. Greiðasemi hans var.rómuð og nutu fór meðal annars tvær ferðir til Tékkóslóvakíu á námskeið hjá Skoda-verksmiðjunum. Síðastliðin 25 ár rak hann sitt eigið verkstæði á Dalshrauni 1 í Hafnarfírði. Fyrir réttu ári varð hann að hætta störfum vegna sjúk- dóms þess er síðar leiddi til dauða hans langt um aldur fram. Leiðir okkar Hálfdáns lágu fyrst saman er hann kvæntist systur minni, Ein- öru Guðbjörgu, hinn 16. október 1943, og hefur sá vinskapur haldist æ síðan. Það er margs að minnast á svo langri leið, sem ekki verður rakið hér nema að litlu leyti. Þau Hálfdán og Eyja, en svo var Einara jafnan kölluð, bjuggu lengstan sinn búskap í Köldukinn 18 í Hafnarfírði, en þar byggðu þau sér einbýlishús árið 1955. Fyrir um það bil 10 árum missti Eyja heils- una og síðustu 5 árin hefur hún dvalið á Sólvangi í Hafnarfírði. Fyrir ári seldi Hálfdán hús sitt í Köldukinn og keypti sér íbúð á Sléttahrauni 27, og bjó þar til dauðadags. Þeim hjónum varð ekki bama auðið, en örlögin höguðu því þannig að þau hjón urðu fósturfor- eldrar þriggja bama minna um árabil, og skal það nú þakkað af heilum hug. Einnig ólu þau upp systurson okkar Eyju frá unga aldri. Hálfdán og Eyja vom mjög bamelsk og reyndust fósturbömum sínum sem bestu foreldrar. hennar fleiri en hans nánustu. Að loknum starfsferli hjá Árbæj- arsafni hóf hann að bæta og breyta á heimili þeirra hjóna og má þar líta handverkin, tvísnúna stiga og fleira fágæti. Það er því leitt að eftirlaunaárin skyldu ekki verða fleiri svo vel sem þau nutu þeirra. Við og fjölskyldur okkar sendum Guðfinnu okkar innilegustu samúð- arkveðjur við fráfall þessa góða drengs. Guðmundur, Þorsteinn, Haraldur og Ásta Helga. Fædd 21. mai 1920 Dáin 22. janúar 1988 í dag kveðjum við ástkæra ömmu okkar, Helgu Helgadóttur, en hún lést eftir löng og erfið veikindi á Vífilsstaðaspítala þann 22. janúar sl. Amma okkar fæddist 21. maí 1920 að Hvarfi í Víðidal, dóttir hjónanna Helga Bjömssonar og Hansínu Guðmundsdóttur. Amma giftist afa okkar, Á.rna Hálfdán var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann hafði yndi af. ferðalögum og ferðuðust þau hjón mikið um landið. Sérstaklega naut Hálfdán ferða um hálendið, og voru þær ófáar ferðimar sem lágu upp að Hyítárvatni með vinum, og skal þeirra ferða lengi minnst. Hálfdán bar ekki sín veikindi á torg, það var ekki að hans skapi. Þó vitað væri að hann ætti við alvar- legan sjúkdóm að stríða, bjóst maður ekki við að svo skammt væri eftir. Varla leið sá dagur eftir að Hálfdán hætti störfum að hann liti ekki inn á verkstæðið til mín rabba um daginn og veginn og vita hvemig gengi. Nú er þessum heim- sóknum lokið og mikill er söknuður- inn um kæran vin. Ég vil fyrir hönd sjúkrar systur minnar þakka Hálfdáni öll árin og ekki síst þessi síðustu ár, hvað hann var natinn við að heimsækja hana daglega og hlúa að henni á alla lund, það sýnir best hans innri mann. Hálfdán lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 21. janúar sl. eftir stutta legu. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka vini mínum og mági góðan vinskap gegnum árin. Þau verða seint fullþökkuð. Ég og fjölskylda mín biðjum hon- um blessunar Guðs. Benedikt Bjömsson I dag verður til moldar borinn Hálfdán H. Þorgeirsson. Danni, eins og við kölluðum Hálfdán, var kvæntur föðursystur okkar, Éinöm G. Bjömsdóttur, sem dvelur á Sól- vangi í Hafnarfírði. Á heimili þeirra hjóna í Köldukinn 18 ólumst við systkinin upp og áttum þar ömggan samastað ffá því við vomm böm og allt til þess er við stofnuðum heimili sjálf. Frá þeim tíma eigum við margar góðar minningar, sem við munum alltaf geyma. Danna verður best lýst sem góðum og greiðviknum manni. Hann hafði ánægju af ferðalögum og þá helst fjallaferðum. Hann rak bílaverk- stæði í Hafnarfírði til loka árs 1986, en þá hætti hann rekstrinum vegna sjúkdóms seni gerði honum ekki kleift að starfa lengur. Við viljum að lokum þakka honum allt og biðj- um Guð að blessa hann. „í hring í kringum allt og ekld neitt ókunnur máttur knýr oss hraðar, hraðar. Og enginn spyr, hvort ljúft sé eða leitt Löng er vor ferð. Vér nemum aldrei staðar." (Höf. Steinn Steinar.) Hvíli hann í friði. Ella, Björn og Guðbjörg. Bjömssyni, bryta frá Vestmanna- eyjum, 4. nóvember 1951. Hann lést 5. maí 1982. Þau bjuggu lengst af á Melabraut 6, Seltjamamesi. Þau eignuðust eina dóttur, Sigrúnu Hönnu, móður okkar. Áður átti hún einn son, Björgvin Bjama Magnús- son. Það er margs að minnast og í hugum okkar er söknuðurinn sár nú þegar við kveðjum ömmu. Hún tók alltaf mikinn þátt í uppeldi okk- ar. Hún var einstaklega dugleg við Minning: Sigurður Guðmunds- son, trésmiður HildurHelga Helga dóttir—Minning Lovísa Halldórs- dóttir — Minning í dag verður jarðsungin frú Lovísa Halldórsdóttir er bjó á Berg- staðastræti 71 í Reykjavík. Þegar slík sómakona er kvödd reynist erf- itt að minnast hennar sem skyldi, því af svo mörgu er að taka að dygði í heila bók. Það var gæfa þess er þetta ritar að hafa notið þeirra einstöku hamingju að eiga hana fyrir tengdamóður, slíkt var sérstök reynsla, því með sínu ljúfa viðmóti og fögru brosi tók hún á móti mér sem týndum syni og vildi frá fyrstu stundu gera allt gera til að leiðbeina ungum hjónum fyrstu sporin. Sér við hlið hafði hún þann mann er hún mat mest allra, en varð að sjá af fyrir nokkmm árum — eigin- mann sinn, Þórð Hjörleifsson, skipstjóra. Það var mikill missir fyrir hana því þeirra samband var einstakt, en þá sýndi hún okkur styrk sinn á margan hátt. í hugan- um rifjast upp minningin um unga konu, sem varð að taka á sig þá miklu ábyrgð, sem fólst í því að ala upp 5 böm í löngum fjarvistum síns unga maka, er sinnti sjónum og sótti stíft. Með þessu öllu hugsaði hún líka um rúmfasta móður sína í mörg ár, ásamt því að verða að bæta við sig umönnun eiginmanns- ins um 1 árs skeið, er hann slasaðist mjög mikið við störf á sjónum. Þá reyndist eins og síðar að Lovísa tvíefldist og sameiginlega sigruðust þau hjónin á erfiðleikunum og er tímar liðu áttu eftir að koma æ betur í ljós hæfíleikar hennar, sem heimili þeirra bar glöggt vitni, ein- stök snyrtimennska, fagurt hand- bragð í útsaumi og smekkvísi í hvivetna, listakokkur var hún einn- ig-. Árið 1981 fórum við hjónin í ferðalag til Ítalíu ásamt Lovísu, þá kynntist ég henni á annan hátt við nýjar aðstæður, áhugi hennar og kraftur var hreint ótrúlegur, miðað við aldur, og ég gleymi því aldrei, þegar við fórum tvö saman til Flor- ens, til þess að skoða þá fögru borg, Iistmuni og söfn hennar. Það var heitt þann dag svo ég var hálf hik- andi við framkvæmdina og minntist eitthvað á það hvort við ættum ekki að fresta förinni. Nei, það var nú ekki aldeilis hennar meining, svo í ferðina fórum við og þá varð ég vitni að þvi að yngra fólkið gafst upp við skoðun margra listasafn- anna, en Lovísa blés vart úr nös. Listfengi hennar kom skýrt fram í þessari ferð og naut hún hennar mjög — svo að oft minntist hún á „ferðina okkar" — eins og hún sagði síðar meir. Það er sárt að verða að sjá á eftir annarri eins sómakonu og Lovísu, en svona er gangur lífsins og nú hafa þau blessuð hjónin sam- einast á ný hjá Guði, hjónin, sem við elskuðum öll og áttum svo margt að þakka. Ég vil nota þetta tækifæri og votta ykkur, Guðríður, Sigríður og Ólafur, eftirlifandi systkinum henn- ar, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Einstök samheldni var með þeim systkinum, og leið vart sá dagur að systumar hefðu ekki sam- band sín í iliillum. Bömum Lovísu, þeim Hrafnhjldi, Hjördísi, Andreu, Hjörleifí og Ásdisi, er þó missirinn mestur, en minningin um merka móður varir og mun hjálpa ykkur í sorginni, og eins og Grímur Thomsen kvað: Dijúpa mun drottins úr hendi döggin, sem huggar, þó göfuga gleymist ei kvendið grafar í skugga, mild verði minningartárin, mýlg'a þau sárin. Megin góður Guð stjrrkja ykkur í sorginni, blessuð sé minning móð- ur ykkar. ísleifur Bergsteinsson Amma okkar, Lovísa Halldórs- dóttir, fædd 13. nóvember 1908 andaðist á Borgarspítalanum þann 22. þ.m. Þegar við fréttum þetta kom það okkur mjög á óvart, þó svo að við vitum vel að öll eigum við eftir að deyja. Amma giftist 16. október 1928 Þórði Georg Hjörleifssyni sem lést 1979. Amma og afí bjuggu á Berg- staðastræti 71 og litum við á heimili þeirra sem nokkurs konar ættaróð- al. Við minnumst nú allra ánægju- legra stunda sem við höfum átt á „Bestó" eins og við kölluðum það. Amma Lovísa var lágvaxin en mjög fríð kona, hún hafði jmdi af öllu sem fallegt var, enda sést það best á því hvemig hún hlúði að heimili sínu með allskonar útsaumi. Amma var mikil hannyrðakona og saknaði hún þess mikið hin síðari ár að geta ekki saumað út, enda var sjón- in farin að dofna og þótti henni það miður. Amma var mjög áhugasöm um hag okkar bamabamanna, og lagði hún mikla áherslu á að við nýttum okkur þau tækifæri sem við eigum til að menntast. Því amma sagði svo oft að hún vildi að hún hefði haft sömu tækifæri og við til að ganga menntaveginn. Það var ekki í anda ömmu að um hana yrði skrifað langt mál, þess vegna viljum við nú kveðja ömmu Lovísu og þakka henni sam- fylgdina. Hennar er sárt saknað og mun minningin um hana lifa. Böm- um ömmu vottum við innilega samúð. Þórunn Lovísa ísleifsdóttir Þórður Georg Hjörleifsson Þórdís Hjörleifsdóttir að fara með okkur í ökuferðir út úr bænum, ferðir sem okkur eru minnisstæðar og við höfðum alltaf mikla ánægju af. Amma keyrði sjálf bíl þar til sl. sumar að hún lagðist inn á spítala. Alltaf var jafn hlýlegt að koma til ömmu, og alltaf átti hún eitthvað gott að stinga að okkur. Amma var mikil hannyrðakona og ber heimili hennar þess merki. Gestrisin var hún með eindæmum. Að lokum viljum við þakka ömmu samfylgdina. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem.) Hildur Helga, Jón Þór og Ámý Björg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.