Morgunblaðið - 26.05.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989
11
Gissur biskup
og siðaskiptin
Börn Tryggva Þórhallssonar gefa út
ritgerð hans frá 1917
Hollustuvemd ríkisins:
Sala
vanmerktra
vörutegunda
stöðvuð
Út er komin bók sem hefur að
geyma ritgerð Tryggva Þórhalls-
sonar í samkeppnisprófi sem fór
fram á sumri 1917 um kennaraemb-
ætti við Háskóla íslands. Tilefni
þess var, að er Jón Helgason varð
biskup í desember 1916, að Þór-
halli Bjamasyni látnum, losnaði
dósentsembætti við guðfræðideild
Háskólans. Er bók þessi gefin út
af bömum höfundar (hann lést árið
1935) í tilefni af aldarafmæli hans
hinn 9. febrúar 1989. í formála
hennar er gerð nánari grein fyrir
aðdraganda og tilhögun þessa sam-
keppnisprófs og fleiru í því sam-
bandi.
Fimm manna dómnefnd sam-
keppnisprófsins ákvað að þátttak-
endur í því skyldu semja kirkjusögu-
lega ritgerð um þetta efni: „Að-
dragandi og upptök siðaskipt-
anna hér á Islandi, afstaða Giss-
urar biskups Einarssonar til kat-
ólsku biskupanna Ogmundar og
Jóns Arasonar annars vegar og
konungsvaldsins hins vegar, og
viðgangur hins nýja siðar á dög-
um Gissurar biskups." Hér var
um að ræða aðalverkefni sam-
keppnisprófsins og skyldu umsækj-
endur um stöðuna hafa 90 daga til
að leysa það af hendi.
Tveir sóttu um embættið auk
Tryggva Þórhallssonar, þeir Ás-
mundur Guðmundssonar prestur í
Stykkishólmi, síðar biskup, og
Magnús Jónsson prestur á ísafirði,
síðar alþingismaður og ráðherra.
Hann fékk embættið samkvæmt
niðurstöðu dómnefndar um að hann
væri hæfastur umsækjenda til að
gegna því. í úrskurði hennar var
tekið fram, að ritgerð Tryggva
bæri vott um „einkar góða sagnrit-
arahæfileika“.
Börn Tryggva Þórhallssonar
vildu minnast föður síns á aldaraf-
mæli hans á eftirminnilegan hátt,
og ákváðu þau að vel athuguðu
máli að gera það með því að gefa
út þessa ritgerð hans frá 1917. Hún
hafði varðveist vel, lá fyrir heil og
ósködduð og ekkert verið birt beint
úr henni. Auk þess hafði dómnefnd
samkeppnisprófsins tjáð sig mjög
jákvætt um hana sem fyrr segir.
Bókin er 16 + 278 bls. auk 57
síðna með myndum tengdum efni
hennar. Tilvísanir til heimilda og
athugasemda eru ekki færri en
1.570, þar af um 1.300 í íslenskt
fornbréfasafn. Gegnir furðu að
mögulegt hafi verið að semja svo
viðamikið ritverk á ekki lengri tíma
en 90 dögum. í formála bókarinnar
er gallað allítarlega um þetta atriði.
I samræmi við orðalag dóm-
nefndar á verkefninu er fysta siða-
skiptamanninum á íslandi, síra Jóni
Einarssyni í Odda, helgaður I. kafli
ritgerðarinnar, og frásögn hennar
Tryggvi Þórhallsson
lýkur af sömu ástæðu við dauða
Gissurar árið 1548. í ritgerðinni er
því lítið fjallað um síðasta skeið
siðaskiptaátakanna — efni hennar
eftir inngang og I. kafla snýst ein-
vörðungu um Gissur Einarsson og
er jafnframt ævisaga hans.
Til þess að gefa einhveija hug-
mynd um efnisskipun bókarinnar
fara hér á eftir kaflaheitin í henni:
Síra Jón Einarsson í Odda. Siða-
skiptamennirnir í Skálholti og að-
gerðir Ögmundar biskups. Bessa-
staðamenn. Gissur Einarsson verð-
ur biskup í Skálholti. Fyrsta bisk-
upsár Gissurar Einarssonar. Gissur
Einarsson og Ögmmundur Pálsson.
Alþingi árið 1541. Gissur Einarsson
og Jón Arason. Gissur Einarsson
og konungsvaldið. Viðgangur hins
nýja siðar á dögum Gissurar bisk-
ups Einarsson. Niðurlagsorð. —
Áftanmáls eru svo 4 fylgiskjöl, hið
fyrsta þeirra ættartala Gissurar
biskups. Þar eru og nafna-, mynda-
og heimildaskrár.
Starfið við að búa bókina til
prentunar var að mestu unnið af
bömum höfundar og mökum þeirra.
Að sjálfsögðu varð ekki komist hjá
því að leita út fyrir fjölskylduna um
leiðbeiningar og upplýsingar hjá
sérfróðum mönnum.
Jafnframt því að vera almenn
siðaskiptasaga að því er snertir
þátt Gissurar Einarssonar í henni
er þessi bók mjög einbeitt vamarrit
fyrir hann bæði sem mann og þjóð-
arleiðtoga á_ einhverju afdrifarík-
asta tímabili íslandsögunnar. Legg-
ur höfundur megináherslu á að
færa sem fyllst rök fyrir því, að þau
hörðu ámælisorð, sem Gissur hafði
fengið á sig í ritum um siðaskiptin
og hjá almenningi, ættu ekki við
rök að styðjast, þ.e. gæti ekki sam-
rýmst fyrirliggjandi heimildum,
væm þær rétt lesnar. Hvað varðar
svert mannorð Gissurar var hér
einkum um það að ræða, að hann
hefði bréflega fullvissað Ögmund
biskup velgerðamann sinn um að
honum væri engin hætta búin af
hendi Huitfeldts, sendimanns kon-
ungs, í því skyni að koma betur
fram áformi sínu um að láta hand-
taka Ögmund. Niðurstaða ítarlegr-
ar könnunar höfundar á málavöxt-
um er sú, að enginn fótur sé fyrir
þessari ásökun. — Gagnrýni á hend-
ur Gissuri um að hann væri hallur
undir konungsvaldið afsannar höf-
undur meðal annars með því að
gera grein fyrir nánu samstarfi
hans við Jón Arason um að hamla
gegn þeim áformum konungsvalds-
ins að sölsa undir sig sem mest af
kirkju- og klaustureignum í lq'ölfar
siðaskiptannaj og að skerða fom
landsréttindi Islendinga.
Sögufélag, Garðarstræti 13b,
Reylqavík (opið kl. 13-17, sími
14620), annast dreifingu bókarinn-
ar.
(Fréttatilkynning)
HOLLUSTUVERND ríkisins
mun gera ráðstafanir til þess að
sala vanmerktra vörutegunda
verði stöðvuð innan tíðar, en það
á við um allar neysluvörur. Hefiir
stofnunin óskað eftir því við Fé-
lag íslenskra iðnrekenda að það
kanni hvernig staða mála er hjá
islenskum framleiðendum varð-
andi merkingar á umbúðum, og
veiti stofiiuninni upplýsingar fyr-
ir 1. júní næstkomandi um hvaða
vörur uppfylla ekki ákvæði
reglugerðar um umbúðamerk-
ingar. Jafiiframt er óskað eftir
upplýsingum um ástæður þess
að vörur eru vanmerktar og hve-
nær fyrirtæki geti uppfyllt
ákvæði gildandi reglugerða.
í fréttatilkynningu frá Hollustu-
vernd ríkisins kemur fram að
nokkrum íslenskum fyrirtælqum
hefur verið veitt undanþága vegna
umbúðamerkinga, en stofnuninni
sé kunnugt um að önnur fyrirtæki
séu með sambærilegar vörur á
rnarkaði, án þess að umbúðir séu
rétt merktar, og án þess að sótt
hafí verið um undanþágur til leið-
réttinga á merkingum.
Hollustuvernd hefur upplýst að
innihald aukaefna í innfluttu
smjörlíki, sem stofnunin hefur skoð-
að, sé í samræmi við reglugerðará-
kvæði um aukaefni í matvælum og
öðrum neysluvörum. Stofnunin hef-
ur hins vegar gert athugasemdir
við merkingar á umbúðum smjörlík-
isins.
Tillaga til þings-
ályktunar:
Landgræðslu-
átak á sand-
fokssvæðum
Uppblástur stöðv-
aður fyrir aldamót
SJÖ þingmenn úr öllum þing-
flokkum lögðu fram á nýliðnu
Alþingi tillögu til þingsályktun-
ar um landbúnaðarráðherra
ætti að hlutast til um áætlun til
að stöðva eyðingu jarðvegs og
gróðurs. Sérstök áherzla skyldi
lögð á sandfokssvæðin og miða
áætlunina við það að stöðva
uppblástur á þeim svæðum fyrir
aldamót. Tillagan kom ekki á
dagskrá.
Fyrsti flutningsmaður var Egill
Jónsson og í- greinargerð segir að
með nýjum landgræðslujurtum,
fræræktarstöðinni í Gunnarsholti
og aðstöðu til að dreifa árlaega
um 5000 tonnum af áburði úr flug-
vélum hafi skilyrðin við að takast
á við eyðingaröflun batnað veru-
lega.
Þá segir að samdráttur í land-
búnaði og minnkandi áburðarkaup
hafi valdið erfiðleikum í rekstri
Aburðarverksmiðju ríkisins. „I ljós
hefur komið“, segir þar, „að hag-
kvæmt væri að framleiða nokkurt
magn áburðar með lægra verði til
Landsgræðslu ríkisins. Ef þessi
áform kæmust í framkvæmd
myndi það verða til mikils stuðn-
ings við landgræðslustarfið og
auka hagkvæm ni í rekstri áburð-
arverksmiðjunnar“.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
ab-mjólk
styrkir stöðu
þíns innri
manns!
Lestu textann á umbúð-
unum og sjáðu hvað
stendur á bak við a og b.
ab-mjólk er kalk- og prótein-
rík eins og aðrar mjólkur-
afurðir og kjörin sem
morgunverður eða skyndi-
máltíð, í hádegi eða að
kvöldi, þá ýmist með
blöndu af korni og
ávöxtum eða ávaxtasafa.
ab-mjólk -
morgunverður
sem stendur
með þér!
•• ? + 11 a | i