Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 35
MQRGUNBLAÐIÐ LÁUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1989 35 Bók um lífið eftir dauðann ____Bækur___ Ævar R. Kvaran Grace Rosher: Að handan. Þýðing: Sveinn Víkingur. Útg.: Hörpuútgáfan, Akranesi. Þótt þessi bók sé meðal þeirra mörgu bóka, sem komu út núna á síðasta jólamarkaði, eru liðin 17 ár síðan séra Sveinn Víkingur þýddi hana, því hún kom fyrst út á íslensku 1968. Þetta er því önn- ur og ný útgáfa, en fyrri útgáfa hennar vakti talsverða athygli og umræðu. Það er skiljanlegt, því það er fyrir löngu sannað, að Is- lendingar eða yfirgnæfandi meiri- hluti þeirra, er sannfærður um það, að annað líf taki við að þessu loknu og því ekkert eðlilegra en fólk fysi að fá eitthvað að vita hvernig það kunni að einhvetju leyti að vera. Og með hveijum hætti er það þá? í eftirmála bókarinnar segir þýðandinn meðal annars: „Því verður ekki neitað, að sá heildar- boðskapur, sem bókin flytur um það líf, sem í vændum er handan við dauðann er harla fagur og bjartur. Og ég er á því, að hveijum manni sé það holt og bætandi að vermast við sólskin hans.“ Ég fagna því endurútgáfu þessarar bókar. Ekki síst þegar þess er minnst, að líf að þessu loknu er eitt af undirstöðum kristinnar trú- ar, þótt prestar kirkjunnar forðist eins og heitan eldinn að minnast á þessa kenningu í ræðum sínum, eins og þetta væri hin mesta villu- trú. Svo að segja einu prestamir sem fengist hafa til þess að minn- ast á þetta nýja líf, sem Kristur hét okkur, em þeir, sem hafa talið sig svokallaða spiritista. Þýðir það að það séu þá einu prestamir sem trúa þessu, eða hvað? Hvemig er hægt að boða kristna trú án trúar á líf að þessu liðnu er þeim sem þetta hripar ómögulegt að skilja. Þeir, sem hafa valið sér að verða prestar og lifa af því starfi, mættu því gjarnan lesa þessa bók og aðr- ar um þetta efni, og taka að íhuga af alvöru hvort þeir séu mótfallnir þessum mikilvæga hluta af krist- inni trú eða ekki. Hlutverk prests getur stundum verið mjög erfitt og vandasamt. Ekki síst sem huggara, t.d. þegar manneskjur em yfirbugaðar af sorg eftir látinn ástvin. Það stafar meðal annars af því, hve margir era ófróðir og illa undir þennan óhjákvæmilega atburð búnir, sök- um þess að fræðsla um lífið eftir dauðann er almennt vanrækt, eink- um af kirkjunni. Hvaða huggun getur við slíkar kringumstæður jafnast á við það, að geta fullyrt við hinn harmi lostna, að hann eigi eftir að hitta hinn látna aftur og það við miklu betri skilyrði en hér á jörð? En þessi bók er einmitt helguð þeim, sem harma látinn vin. Þeim sem vilja kynna sér hvað tekur við eftir dauðann er vitanlega hægt að benda á ótal bækur um þetta efni. En ein merkilegasta bókin um þetta efni kom einmitt út fyrir síðustu jól, en það var hin fræga bók snillingsins sænska Swedenborgs Himinn og hel, sem bókaútgáfa Örlygs gaf út og er nákvæmasta lýsing á lífinu eftir dauðann, sem nokkum tíma hefur komið á prenti. Sveinn Ólafsson þýddi þetta stórverk og auðgaði með því veralega merkilegar bók- menntir á íslensku. Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar. Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum eða jafnvel gangandi. Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors, Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni náttúmfegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað göngugarpa og náttúmunnendur. Cornwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn i dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier. Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu. Wales. Óvíða er að fmna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og í Wales. I grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við \ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í \ heiminum. Skotland. Skosku hálöndin hafa ámm saman dregið að ferðamenn, með hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni, eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt. FLUGLEIÐIR BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ vf pB wL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.