Morgunblaðið - 02.12.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
19
Orrustuskipin urðu Þjóð-
verjum gagnslítil í stríðinu
- segir Burkard von Mullenheim-Rechberg barón
sem var undirforingi í fallbyssuturni á Bismarck
Bismarck sem var rúm 50.000 tonn að stærð og með allt að 32
sm þykka brynvörn á skipssíðunum. Stærstu fallbyssurnar höfðu
38 sm hlaupvídd og drógu liðlega 36 km.
VORIÐ 1941 var voldugasta orrustuskipi Þjóðverja, Bismarck,
sökkt vestur af Frakklandi skömmu eftir að það hafði ráðið
niðurlögnm H.M.S. Hoods, stærsta orrustuskips Breta, suðvest-
ur af íslandi. Bresk herskip og flugvélar ieituðu Bismarck á
höfunum suður og vestur af íslandi dögum saman áður en úr-
slit réðust í þessu bióðuga einvígi milli flota rílqanna. Hér á
landi er staddur Burkard von Miillenheim-Rechberg barón,
æðsti foringinn úr hópi 105 manna sem komust af þegar Bi-
smarck hneig helsært í hafið með um 2.000 manns innanborðs.
Hann flytur fyrirlestur um skipið í Lögbergi, húsi lagadeildar
Háskólans, í dag, laugardag, kl. 15 en baróninn hefúr ritað
bókina Orrustuskipið Bismarck sem nú er komin út í íslenskri
þýðingu.
Aðspurður um gagnið sem
stríðsrekstur Þjóðverja hafði af
orrustuskipunum segir Miillen-
heim-Rechberg það hafa verið
lítið í reynd; smíði þeirra hafi
verið sérstakt keppikefli Raeders
flotaforingja, yfirmanns flotans.
Hann hafi í þessum efnum fylgt
stefnu Tirpitz er skipulagði flota-
veldi þýska keisardæmisins fyrir
heimsstyijöldina fyrri.
Múllenheim-Rechberg segir
Bjarna heitinn Benediktsson for-
sætisráðherra hafa sagt sér að
drunurnar frá orrustunni milli
Bismarcks og Hoods hafi heyrst
alla léið til Reykjavíkur. Nokkr-
um dögum eftir áfallið tókst
Morgunblaðiö/Emilía
Burkard von Mullenheim-Rech-
berg barón
Bretum að ráða niðurlögum Bi-
smarcks en leiðangur skipsins
hefur löngum þótt afar dra-
matískur og m.a. verið kvik-
myndaður. Fyrir skömmu tókst
bandarískum vísindamönnum að
nota fjarstýrð köfunartæki til að
ná myndum af flakinu þar sem
það liggur á réttum kili á meira
en 4.000 m dýpi.
„Báðir aðilargerðu mistök sem
eru augljós eftir á,“ segir barón-
inn. „Ekki hafði verið gert ráð
fyrir að Bismarck tæki olíu í
Björgvin á útleiðinni þar sem
ekki var gert ráð fyrir að þurfa
að sigla norðan við ísland. Þetta
reyndist afdrifaríkt síðar þegar
eldsneytisskortur olli erfiðleikum
á örlagastundu. Af einhveijum
ástæðum hélt Lútjens flotafor-
ingi, æðsti maður leiðangursins,
að Bretar vissu allan tímann hvar
skipið var og gætti því ekki fjar-
skiptaleyndar. í reynd „týndu“
Bretar því um hríð.
Spurt hefur verið hvers vegna
stýri skipsins, sem Bretum tókst
að eyðileggja, var ekki einfald-
lega sprengt í tætlur og skipinu
síðan stýrt með skrúfunum. Þetta
var vandiega íhugað eins og ótelj-
andi aðrar lausnir en var talið
of hættulegt, hefði getað sökkt
skipinu.“
Skipveijar voru flestir um tíu
árum yngri en Múllenheim-
Rechberg, um tvítugt. Hann seg-
ist í rauninni ekki hafa þekkt
persónulega nema fáa úr áhöfn-
inni þar sem fyrsti og eini leið-
angur Bismarck stóð aðeins í níu
daga og flestir vom bundnir
megnið af tímanum á vaktstöðv-
um sínum.
Hafiiarg örður:
Sjálfstæð-
isflokkurinn
með prófkjör
um helgina
Sjálfstæðisflokkurinn verður
með prófkjör í Hafiiarfirði um
þessa helgi fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar á næsta ári.
Kjörstaður er Sjálfstæðishúsið á
Strandgötu 29 í Hafnarfirði og
hægt verður að kjósa frá klukk-
an 10-19 í dag, laugardag, og á
morgun, sunnudag. I fi-amboði
eru 28 manns. Kosningarétt
hafa allir, sem eru 18 ára eða
eldri og eiga lögheimili í Hafii-
arfirði, svo og flokksbundnir
sjálfstæðismenn, sem eru 16 ára
eða eldri og eiga lögheimili í
Hafiiarfirði.
Sjálfstæðisflokkurinn var með
prófkjör í Hafnarfirði fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar árið 1978 en
uppstillingu fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar árin 1982 og 1986.
Þessi eru í framboði í prófkjör-
inu um helgina: Jóhann G. Berg-
þórsson forstjóri, Hafsteinn Þórð-
arson verksmiðjustjóri, Jóhann
Guðmundsson verkstjóri, Valgerð-
ur Sigurðardóttir fiskverkandi,
Guðjón Tómasson ráðgjafi, Valur
Blomsterberg atvinnurekandi,
Hulda G. Sigurðardóttir yfirkenn-
ari, Oddur Helgi Oddsson hús-
asmíðameistari, Sigurður Þorvarð-
arson byggingafræðingur, Magn-
ús Jón Kjartansson hljómlistar-
maður, Tryggvi Þór Jónsson raf-
verktaki, Hermann Þórðarson
flugumferðarstjóri, Rannveig Sig-
urðardóttir verslunarmaður, Krist-
inn A. Jóhannesson markaðsstjóri,
Ellert Borgar Þorvaldsson skóla-
stjóri, Ása María Valdimarsdóttir
deildarstjóri, Mjöll Flosadóttir við-
skiptafræðingur, Erlingur Kristj-
ánsson rafeindavirki, Birna Katrín
Ragnarsdóttir húsgagnabólstrari,
Sigurður Þ. Ragnarsson háskóla-
nemi, Hjördís Guðbjörnsdóttir
skólastjóri, Hjálmar Ingimundar-
son húsasmíðameistari, Þorgils
Óttar Mathiesen viðskiptafræðing-
ur, Trausti Hólm Jónasson raf-
virki, Helga Ragnheiður Stefáns-
dóttir húsmóðir, Magnús Gunnars-
son fulltrúi, Stefania S. Víglunds-
dóttir húsmóðir og Ásdís G. Konr-
áðs verkstjóri.
Seljum allra síðustu bílana af Suzuki Swift
árgerð 1989, á einstöku verði og kjórum.
lán til allt að 30 mánaða og þú
byrjar að greiða á næsta ári.
VERÐ SÉRTILBOÐ
SUZUKISWIFTGA-1000, 3dyra, 5gíra 624.000,- 563.000,-
SUZUKISWIFT GL-1000, 3 dyra, 5 gíra 666.000,- 605.000,-
SUZUKISWIFTGL-1000, 3dyra, sjálfskiptur 729.000,- 669.000,-
SUZUKISWIFT GL-1000, 5 dyra, 5 gíra 699.000,- 639.000,-
Suzuki Swift traustur og sparneytinn bíll.
$ SUZUKI
—--------------
SVEINN EGILSSON • HÚSI FRAMTÍÐAR"
FAXAFENI 10 ■ SÍMI 689622 OG 685100