Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 Alþýðubandalagsmenn á Norðurlandi vestra mæta ekki á miðstjómarfundinn: Skilaboð um að ekki berí að flýta laiulsíundi - segir Ragnar Arnalds Fulltrúar Norðurlands vestra í miðstjórn Alþýðubandalagsins ætla ekki að sækja miðstjórnarfundinn, sem boðað hefur verið til á Egilsstöð- um 29. júni. Þetta var ákveðið á fúndi kjördæmisstjórnar flokksins. Að sögn Ragnars Arnalds, þingmanns Alþýðubandalagsins í kjördæm- inu, er með þessu verið að senda skilaboð um að ekki beri að taka ákvörðun um að flýta landsfundi flokksins. Rætt er um að lagt verði til á miðstjórnarfúndinum að landsfúndur verði haldinn í janúar, þar sem andstæðingar Ólafs Ragnars Grímssonar, flokksformanns, vilji gera atlögu að honum. „í þessari ályktun er engin afstaða tekin til þess, hvenær eigi að halda landsfund," sagði Ragnar Arnalds. „Það er fyrst og fremst lögð á það áherzla að ótímabært sé að ákveða tímasetningu landsfundar nú. Það þurfi að ræða þetta mál í grunnein- ingum flokksins og undirbúa það vandlega." Hann sagði að illdeilur í Alþýðu- bandalaginu hefðu einkum verið bundnar við Reykjavíkursvæðið, en þekktust til dæmis ekki á Norður- landi vestra. „Við erum mjög ósátt við hvað stríðandi öfl innan flokksins beita mikilli hörku í viðskiptum sínum,“ sagði Ragnar. Hann sagði kjördæmisstjómarmenn hafa haft á tilfinningunni að miðstjómarfundur- inn á Egilsstöðum myndi fara í slag um landsfundinn. „Þeir vildu með þessu leggja áherzlu á að öllum ákvörðunum um tímasetningu lands- fundar verði frestað um sinn. Við vomm þeirrar skoðunar að þessi við- brögð myndu minnka mjög líkurnar á því að taka slíkar ákvarðanir," sagði Ragnar. — Vonizt þið til að fá fleiri kjör- dæmisstjórnir í lið með ykkur? „Ég er sannfærður um að það verða engaf ákvarðanir teknar um landsfund í bráð, og þessi samþykkt mun hjálpa til þess,“ sagði Ragnar. Hann sagðist vilja bæta því við að það væri sízt meiri málefnaágrein- ingur í Alþýðubandalaginu en öðmm flokkum. „Alþýðubandalagsmenn eiga tvímælalaust samleið innbyrðis, og ekki með öðmm flokkum. Núna skiptir mestu máli að menn séu ein- huga um að standa saman í næstu kosningum,“ sagði hann. Aðalfundur Alþýðubandalags Vestur-Skaftafellssýslu hefur einnig sent frá sér ályktun, þar sem and- mælt er hugmyndum um að flýta landsfundi. Fundarmenn telja að slíkt muni aðeins auka á flokkadrættina innan Alþýðubandalagsins. VEÐUR / DAG kl. 12.00 HeimlkJ: Veöurttofa ístands (Bysgt é veðofspá W. 16.151 gaer) VEÐURHORFUR í DAG, 21. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Norður af Jan Mayen er hæðarhryggur en 1.000 mb. lægð skammt norður af írlandi þokast norðvestur. Um 400 km suður af Vestmannaeyjum er 995 mb. lægð á hægri hreyfingu vestur og síðar suðvestur. SPÁ: Austan- og norðaustanátt, víðast kaidi en ef til vill stinningst- inningskaidi á stöku stað. Dálítil súld á Austurlandi og á annesjum norðanlands, en smáskúrir við suðurströndina. í öðrum landshlutum verður yfirleitt þurrt. Á Vestur- og Suðvesturlandi verður víða létt- skýjað, þó Ifklega síðdegisskúrir á stöku stað. Hiti 8-16 stig, hlýj- ast suðvestanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðan- og norðaustan- átt. Dálítíl rigning eða súld og fremur svalt norðaniands og aust- an. Mun hlýrra sunnanlands og vestan, bjart veður að mestu en ef til vili síðdegisskúrir. TAKN: Heiðskírt Léttskýjaö Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * # * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus \J Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða » , ’ Súld OO Mistur _J- Skafrenningur [7 Þrumuveður *ÍBFT m > 1/FfíllR V ina ItM UCtM kl, 12:00 # gær að ísl, tíma hltf veóur Akureyri 11 skýjað Reykjavik 15 skýjað Bergen UrvUinU! 15 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 rígning Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Ostó 21 hélfskýjað Stokkhólmur 18 skýjað Þórshöfn 11 þokaígrennd Algarve vantar Amsterdam vantar Barcelona 24 mistur Berlln 26 hálfskýjað Chloago 17 þokumóöa Feneyjar 26 heiðskírt Frankfurt rigning Qlasgow 15 skiírásíð. klsL Hamborg llii' rigning LaePalmas 24 léttskýjað London 20 skýjeð LosAngetes 16 þokumóða Lúxemborg 16 rign.ósfð.klst. Madrid 26 hálfskýjað Mataga 30 skýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal vantar NewYork vanter Orlando vantar París 18 skýjað Róm 28 heiðskírt Vín 26 •éttskýjað Washington 20 mistur Winnipeg 15 skúr 1 Kristnesið við bryggju á Neskaupstað. Morgunbiaðið/Ágúst Biöndai Á fískibáti fi"á Fær- ej/jum á fermingarmót Þetta er árstími fermingarmótanna á Neskaupstað. Ekki færri en fimm slík mót hafa verið haldin undanfarið. Fæst fermingarbamanna eru búsett hér heima eða lauslega áætlað um þriðjungur þeirra. Hin em dreifð um landið og hluti býr erlendis. Fólk er mismunandi áhugasamt um að sækja slík mót þótt ávallt sé það mikill meiri- hluti sem mætir. Nú á dögunum var haldið mót bama sem fermdust 1955. Einn þátttakenda, Konráð Auðunsson sem býr í Færeyjum, var greini- lega ákveðinn í því að mæta, því hann kom siglandi á báti sfnum, Kristnesi, sem er 20 lesta fiskibát- ur. Konráð var um 33 klst. á leið- inni. Segja má því að sumir leggi meira á sig en aðrir til að láta sig ekki vanta í hópinn. _ - Ágúst Konráð Auðunsson Suður-Afríkusamtökin: Opinberrar rannsóknar krafist á innfhitningi Suður-Afríkusamtökin hafa sent ríkissaksóknara bréf þar sein óskað er eftir opinberri rannsókn á innflutningi á niðursoðnum ávöxt- um frá Suður-Aríku. Þrátt fyrir að tvö ár séu liðin frá gildistöku laga um bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku og Namibiu fást þessar vörur enn í verslunum í Reykjavík. í bréfi Suður-Afríkusamtakanna til ríkissaksóknara segir að með lögum nr. 67, frá 20. maí 1988 um bann gegn viðskiptum við Suður- Afríku og Namibíu, sé óheimilt að flytja vörur frá þessum löndum til landsins. Lögin hafi þegar tekið gildi en í bráðabirgðaákvæði þeirra segði að þeim yrði ekki beitt gegn innflutningi eða útflutningi sem ætti sér stað fyrir 1. janúar 1989 enda hefði verið samið um slík við- skipti fyrir gildistöku laganna. Bent er á að þrátt fyrir að tvö ár séu liðin frá gildistöku þessara laga megi enn sjá ávaxtadósir merktar Suður-Afríku í hillum verslana. Þá segir í bréfinu að dós af Gold Reef perum frá Suður-Afríku hafi verið keypt í Blómavali í Reykjavík 12. maí. Sama dag hafi blandaðir ávextir frá Suður-Afríku verið keyptir í Miklagarði og blandaðir ávextir og perur í Kaupstað í Mjódd. Þessu til staðfestingar fylgja bréf- inu staðgreiðslunótur frá ofnatöld- um v^rslunum. Að lokum segir að þar sem svo langur tími sé liðinn frá því að innflutningsbannið frá Suður-Aríku tók gildi þyki samtök- unum ástæða til að óska eftir opin- berri rannsókn á.tilvikum þessum. Undir bréfið skrifa fyrir hönd Suður-Afríkusamtakanna, Sunna Snæland.formaður samtakanna og Gylfi Páll Hersir. Alþýðusamband Islands er aðili að Suður-Afríkusamtökunum og ætlar lögfræðingur þess, Lára V. Júlíusdóttir, að fylgjast með fram- gangi málsins. Laxá í Þingeyjasýslu: Einn 23 punda á mánudag og annar 24 punda í gær DALVÍKINGAR hafa mokað upp stórlöxum úr því svæði Laxár í Þingeyjarsýslu sem tilheyrir Hrauni í Aðaldal. 24 punda leg- inn hængur veiddist í gærmorgun og annar 23 punda á mánu- dag, að sögn Hólmgríms Kjartanssonar á Hrauni og hafa þá 8 Sskar veiðst á svæðinu, 5 þeirra 12-16 punda. Stangveiðiklúbbur- inn Elfúr á Dalvík hefúr svæðið á leigu. Báðir stórlaxarnir veiddust við „Þetta voru mjög fallegir fiskar,“ Hraunstíflu og tók sá minni, sem sagði Hólmgrímur. Hann sagði var 102 sentimetra langur, svart- veiðina fara mun betur af stað en an tóbý hjá Rúnari Þorleifssyni í fyrra og taldi að um þetta leyti en hinn stærri, sem var 100 senti- hefði þá aðeins verið kominn einn metra langur, rækjuflugu nr. 14 fiskur að landi. hjá Hjálmari Randverssyni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.