Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 18
18 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1990 Tveir dag- ar á Gaza Ferðapistill læknis eftir Svein Rúnar Hauksson Ég komst hingað loks í dag frá Jerúsalem og Vesturbakkanum. Al- gert útgöngubann hafði ríkt í 8 daga. Við þær aðstæður getur það reynst dauðadómur að fara út úr húsi. Níu ára drengur, sem gafst upp á inniverunni og stalst út á sval- ir heima hjá sér, varð fyrir skoti ísraelsks hermanns. Aðkoman í Gaza-borg er hroða- leg, eins og víggirtar fangabúðir. Þetta hefur orðið sérstaklega áber- andi eftir að Intifadah hófst, upp- reisnin gegn hernáminu. Það fyrsta sem ég sá eftir að ég var sloppinn inn í gegnum varðstöð- ina við borgarmörkin, þar sem tugur hermanna með hríðskotabyssur leit- aði i bílum sem fóru út og inn úr borginni, voru enn fleiri hermenn með sjálfvirk skotvopn. Leigubíllinn með númer frá Betlehem komst klakklaust áleiðis. Við vorum komn- ir um kílómetra inn fyrir mörkin með tvo herflutningabíla á undan okkur, er þeir stönsuðu skyndilega og 10-20 hermenn með alvæpni stukku úr bílunum, hagræddu í skyndi á sér hlífðarhjálmunum og stukku síðan með byssurnar á lofti á eftir krakkahóp, sem forðaði sér inn í hliðargötu. Byssuskot, táragassprengjur og barsmíðar eru daglegt brauð fyrir íbúana á þessu fagra landsvæði sem breytt hefur verið í það sem líkist allshetjar fangabúðum. Og í raun er þetta ekkert annað en fangabúðir þá daga sem útgöngubann ríkir, eins og Jörgen Rosendal, forstöðumað- ur Ahli Arab Hospital, benti mér á í samtali sem ég átti við hann 31. maí. Að meðaltali hafa það verið um 200 dagar, dálítið mismunandi eftir stöðum, sem útgöngubann hefur ríkt í flóttamannabúðunum síðan Inti- fadah braust út 9. desember 1987. Rosendal, sem er hér á vegum danskra kirkjusamtaka, tók við starfí sínu í janúar 1988. Ahli- sjúkrahúsið er miiðsvæðis í Gaza- borg. Það er rekið af Biskupakirkj- unni í Jerúsalem og stjómarformað- ur er Samir Kafíty (biskup anglík- önsku kirkjunnar í Jerúsalem). Þetta GOTTLOFT skapar vellíðan eykur afköst 2ja og 3ja hraöa meö hliðarsnúningi loftviftur meö 5 þrepa hraóastilli /rOnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 er eina einkasjúkrahúsið á allri Gaza-ræmunni, hin eru öll á vegum ísraelsku hemámsyfírvaldanna og morandi í hermönnum. Palentínska fólkið á í raun ekki nema í þetta eina sjúkrahús að venda, þar sem það getur talið sig nokkurn veginn óhult. Fólkið hefur þess utan ekki efni á að leita til ísra- elsku stjórnarsjúkrahúsanna. Þar er því gert að greiða daggjöld að upp- hæð 10.500 kr. auk lyfjakostnaðar. Daglaun verkamanns eru um 1.200 kr. og þaðan af minna. Fjöldinn hefur því engin efni á öðm en að leita til Ahli-sjúkrahússins. Þar fær fólkið í flóttamannabúðunum og fómarlömb valdbeitingar ísraelska hemámsliðsins ókeypis þjónustu. Til er ísraelskt tryggingakerfi, en það kostar meðal fjölskyldu um 72.000 kr. á ári og á því hefur þetta fólk einfaldlega ekki efni. Ahli-sjúkrahúsið er engan veginn í stakk búið til að þjóna þeim 750 þúsundum Palestínumanná sem búa á þessu þéttbýlasta svæði jarðar, og þótt ekki væri nema flóttamanna- búðunum þar sem nærri hálf milljón manna heldur til. Það rúmar aðeins 75 sjúklinga og sem dæmi um álagið má nefna sunnudaginn svarta, 20. maí sl. Þá vom 163 menn fluttir slasaðir á Ahli-sjúkrahúsið á einum sólarhring. Þetta gerðist í kjölfar morðárásar hermanns á hóp verkamanna í Ris- hon La Tzion, en þar féllu 8, allir frá Gaza, og fleiri særðir. Viðbrögð syrgjenda á heimaslóðum verka- mannanna voru kæfð í blóði, fjórir til viðbótar vom myrtir og yfír þús- und særðir á Gaza-svæðinu einu á þessum svarta sunnudegi. Ástandið í heilbrigðismálum Pal- estínumanna hefur snarversnað frá því að Ísraelar hernámu landið 1967. Skýrslur sýna að þá vom 2,4 rúm fyrir hveija 1000 íbúa en eru nú aðeins 1,2. Þetta segir þó ekki alla söguna, raunar langt í frá, því að í skýrslum teljast rúmín vera 900 fyrir 750.000 íbúa, en eins og áður greinir er í raun, fyrir langflesta, aðeins um eitt sjúkrahús að ræða sem ræður yfir 75 rúmum. UNRWA, stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir palestínska flótta- menn, vinnur hér mikið starf við erfiðar aðstæður. UNRWA er með skóla og heilsugæslustöðvar í flótta- mannabúðunum og hefur samning við Ahli-sjúkrahúsið um að taka á móti sjúklingum frá þeim. Þetta fólk er allt án trygginga en fær fría þjón- ustu. Intifadah hefur kostað mörg mannslífin, en þeir sem lifa af, FLORIPANA Aðeins 100% hreinan Floridana safa í (------------------ ) umbúðum! Munið orðaleitína! Greinarhöfundur með dr. Fahti Arafat, forseta Palestínska Rauða hálfmánans, Elísabet hjúkrunarfor- s^jóra og læknum Palestínska sjúkrahússins í Kairó. meira og minna særðir, aðallega af skotsárum af ýmsum gerðum, bein- brotum og höfuðhöggum og einnig minni háttar áverkum, allt þetta fólk fær ókeypis þjónustu. Aðrir reyna að borga. Konur koma á sjúkrahúsið og fæða, fyrir það borga þær um 3.000 kr. ef þær staldra við minna en 12 klukkustundir. Venju- lega fara þær heim til fjölskyldunnar eftir 4 til 5 tíma. Fólksfjölgunin er ör, 34.000 á ári, og áéetlað að Palestínumenn í Gaza verði um milljón árið 2000. Það er skelfilegt að koma á sjúkrahúsið og horfast í augu við afleiðingar þeirrar grimmdar sem ísraelskir unglingar eru aldir upp við í hernum. Þeim líður ekki vel, þó þeir láti eins og þetta sé leikur einn, og hroki og valdbeiting sé þeirra stíll. Ég átti í gær, 30. maí, viðtal við Cedric Piralla, Svisslending sem er forstöðumaður Alþjóða Rauða kross- ins hér. Hann greindi mér frá þeim erfiðleikum sem Rauði krossinn á við að stríða í mannúðarstarfi sínu. Jafnvel Rauði krossinn er ekki óhult- ur fyrir hernum og öryggissveitun- um. Enn erfíðari er aðstaða Rauða hálfmánans, systursamtaka Rauða krossins. Af þeim fjölda forystu- manna þessara mannúðarsamtaka hef ég enn ekki hitt neinn sem hef- ur ekki setið að minnsta kosti hálft ár í fangelsi og fangabúðum. Flestir Hús hafa verið sprengd í Ioft upp. í þessu tilfelli var verið að refsa fjölskyldu fyrir þátttöku 15 ára drengs í Intifada. Hann er búinn að vera í fangelsi á fimmta mánuð án réttarhalda. Fjölskyldan hefst við í tjöldum hjá rústunum. upphafí Intifadah, í tvö og hálft ár. Já, þetta er hrikaleg mynd, and- styggileg upplifun. Á hinn bóginn er fólkið hér með eindæmum frið- sælt, hlýlegt og gestrisið. Ég endaði seinni daginn á heimsókn í flótta- mannabúðirnar við ströndina og fékk _að líta þar inn á venjuleg heim- ili. Ég fór þangað í fylgd Mo- hammed Kannita sem er formaður palestínska verkamannasambands- ins á Gaza-svæðinu. Ég hafði fyrr um daginn átt viðtal við hann um lífskjör verkafólks í Gaza sem ein- kennast fyrst og femst af gífurlegu atvinnuleysi sem er um 80%, eða aðeins 2 af hveijum 10 vinnufærra hafa atvinnu. Þrátt fyrir óskapleg þrengsli í flóttamannabúðunum, sem eru lítið annað en samsafn af hreys- um, engin skolpræsi og algjört að- stöðuleysi, þá fann ég þarna falleg heimiii og yndislegt fólk. Höfundur er læknir. Tvítugur piltur sem varð fyrir skotum hersins sunnudaginn svarta 20. maí 1990. hafa verið í Anzar 3, hinum hrylli- legu fangabúðum í Negev-eyðimörk- inni. Þó eru fangelsin jafnvel verri þar sem yfirheyrslur og pyntingar eiga sér stað í ríkum mæli. Cedric sagði ástandið undanfarnar vikur hafa verið mjög erfitt og 1.275 óbreyttir borgarar, einkum börn og unglingar, hefðu særst dagana 16.-21. (á 5 dögum). Af þessum særðust langflestir sunnudaginn 20. maí. Og vikuna áður en ég kom hing- að, 20.-27. maí, voru 1630 slasaðir. Samkvæmt upplýsingum Gaza- stofnunarinnar fyrir lög og rétt eru dauðsföll af völdum hersins frá upphafí Intifadah, 9. desember 1987 til 16. maí sl., 312, aðeins á Gaza- svæðinu. Áverkar af völdum byssu- skota tæp 7 þúsund manns, af völd- um gúmmíkúla (sem eru stálkúlur með gúmmíhulstri) 664, af völdum táragass 1280 og af völdum bar- smíða 7370. Alls eru þetta 16.555 slasaðir á Gaza-svæðinu. Hér má svo bæta því við að auk þeirra sem skráðir eru, eru mun fleiri sem ekki þora á sjúkrahús af ótta við herinn. Þessi ótti er skiljanlegur. Fram kom í viðtali mínu við forstöðumann Ahli- sjúkrahússins að herinn hefði mörg- um sinnum ráðist inn á sjúkrahúsið, bæði ráðist á lækna og annað starfs- fólk og jafnvel á rúmliggjandi sjúkl- inga. Þá hefðu þeir haft sjúklinga á brott af sjúkrahúsinu og gerðu iðu- lega kröfu til vitneskju um hveijir væru inniliggjandi og oftar en einu sinni hefði hann verið vakinn upp að nóttu til og krafinn slíkra upplýs- inga. Hús hafa verið eyðilögð, skólum lokað, útgöngubann að meðaltali um 200 dagar í flóttamannabúðunum. Moskum lokað, ávaxtatrén sem ein- att eru lífsafkoma fólksins, verið eyðilögð með jarðýtum. Eini háskól- inn í Gaza hefur verið lokaður frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.