Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990 KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN A ITALIU „Gott fyrir framgang knattspymunnar að Bo Johansson landsliðs- þjálfari Islands fánýliðáfram íí - segir BoJohansson, landsliðsþjálfari Islands BO Johansson, landsliðsþjálfari íslands í knattspyrnu, fann til með löndum sínum eftirtapið gegn Kosta Ríka í gærkvöldi, en gladdist að sama skapi fyrir hönd knattspyrnunnar í heiminum. „Hér í Svíþjóð von- uðu allir og trúðu að Svíar færu í 16 liða úrslit, en enn einu sinni sannaðist að allt getur gerst í fótbolta. Það er líka af hinu góða og það ánægjulegasta við úrslitin á HM hingað til er að þjóðir, sem almennt hafa ekki verið viðurkenndar sem knattspyrnuþjóðir, skjóta öðrum þekktari ref fyrir rass. Það er gott fyrir f ramgang knattspyrnunar að fá ný lið áfram í 16 liða úrslit og jaf nvel lengra." Landsliðsþjálfarinn, sem er á leiðinni til Ítalíu til að fylgjast þar með keppninni til loka, sagði að Ítalía og Vestur-Þýskaland hefðu leikið einna best til þessa. „Mörg iið hafa leik- ið vel, en Ítalía og Vestur-Þýskaland hafa leikið einna best og ég vona að við fáum að sjá þau í úrslita- leiknum." alvarleg áhrif í Svíþjóð. „Fyrir það _ . ___fyrsta gerðu Svíar ráð fyrir að Sviar „spru g komast áfram, en nú missa þeir Steinþór Guöbjartsson skrifar Varnarleikur á óvart Svíar hafa undanfarin átta ár spiiað 3-5-2 leikaðferð, en breyttu í 4-4-2 í gærkvöldi. „Breytingin tókst vel og Svíar voru með bolt- ann á vallarhelmingi mótheijanna í 60 mínútur, en hitinn var mikill, þeir voru orðnir þreyttir og tókst ekki að halda fengnum hlut. Þeir breyttu aftur í 4-4-2, en aftasta línan var flöt, eins og hún er gjarn- an hér í Svíþjóð og þeir áttu í erfið- leikum vinstra megin í vörninni. Hins vegar fengu Svíar ótal tæki- færi til að gera fleiri mörk fyrr í leiknum, en þeir voru of bráðir í sókninni og sendingar fyrir markið komu of seint.“ Bo sagði að að úrslitin hefðu af 50 til 100 milljónum íslenskra króna, sem liðin í 16 liða úrslitum geta gert ráð fyrir að fá. I annan stað minnkar áhugi á fótboltanum til muna, sem þýðir aukið tekju- tap, sem aftur kemur niður á fót- boltanum í framtíðinni. Því var þetta hræðilegt áfall fyrir sænska knattspyrnu, en er þessum „stóru“ víti til varnaðar. Breiddin er sífellt að aukast og „stærri" knatt- spyrnuþjóðirnar" verða að fara að viðurkenna þróunina, sem hefur átt sér stað í öllum heimsálfum. Kosta Ríka er með mjög gott lið og það hefur verið reynt að segja Svíum það, en aðvaranirnar voru ekki teknar til greina.“ Bo tók við íslenska landsliðinu í vetur og gerði strax breytingar á Ieikaðferð liðsins, lætur það leika 4-4-2 þar sem fríveiji (libero) er fyrir aftan þijá varnaiTnenn, í staðinn fyrir 3-5-2 eins og uppstill- ingin var áður. Hann segist vera ánægður að sjá hve mörg lið á HM leiki með fríveija í leikað- ferðinni 4-4-2, en varnarleikurinn að öðru leyti hafi oftar en ekki komið sér á óvart hingað til. „Það eru ekki mörg lið, sem veijast framarlega, heldur' bakka leikmennirnir aftur á eigin vallar- helming, bíða þar eftir mótheijun- um, treysta á að ná boltanum og reyna síðan skyndisóknir. Með þessu móti fá lið tíma til að byggja upp sóknarleikinn, sem er óvenju- legt og kemur á óvart." Afríkuliðin sterk Að margra mati hefur Kamerún komið allra liða mest á óvart. Bo er ekki sammála. „Þeir, sem fylgj- ast vel með alþjóða knattspyrnu, vita að knattspyrnan í Afríku hef- ur tekið miklum framförum og landsliðin þar verða æ sterkari. Flestir eiga erfitt með að viður- kenna þessa staðreynd og reyna að horfa framhjá henni, en það verður ekki lengur gert. Talað er um fátækt og peningaleysi í Afríku, en það gleymist að þar eru líka til peningar, sem knattspyrn- an hefur notið góðs af og á eftir að njóta enn frekar. Kamerún byijaði á tveimur góð- um sigrum og tryggði sér þar með sæti í 16 liða úrslitum. Liðið hafði náð takmarkinu og því voru úrslit- in gegn Sovétríkjunum ekki óeðli- leg — það var hvorki spurning um líf eða dauða hjá Kamerún. En það verður gaman að fylgjast með lið- inu í næsta leik.“ „Verðum að bæta tæknina" Landsliðsþjálfari íslands sagði greinilegt að almennt færi tækni leikmanna fram, þeir bestu yrðu enn betri. „íslendingar verða að taka mið af þessum framförum. Við verðum að bæta tæknin^ til að dragast ekki aftur úr. Kannski náum við aldrei þeim bestu, en ekkert hefst án þess að reyna.“ KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Trúðurinn kemur á óvarl Grínistinn Paul Gascoigne er besti maður enska landsliðsins og tekur lífið alvarlega aul Gascoigne, leikmaður Tottenham og enska lands- liðsins, er þekktastur fyrir skemmtilegar athugasemdir, fijálslegt vaxtarlag og kæruleys- islegt viðmót til knattspyrnu. Hann hefur verið kallaður trúður- inn en hefur engu að síður verið besti maður enska landsliðsins í heimsmeistarakeppninni og eini leikmaður liðsins sem leikið hefur af fullum krafti báða leikina. Fjöl- miðlar hafa vakið athygli á breyttu háttalagi hans og betri leik, sem hefur komið liðinu til góða í fyrstu leikjunum, Hann er dáður af áhorfendum en oftast lítt- eða misskilinn af breskum blaðamönnum. Hann er eini leikmaður liðsins sem æfir í þykkum íþróttagalla og segir það þægilegra. Þeir sem fylgjast með liðinu vita þó betur; Gascoigne þarf að fækka kílóunum enda er hann þyngsti maður liðsins. „Hann hefur grennst síðan hann kom til Italíu og er sá leik- maður sem hefur leikið af mestum krafti,“ segir Bobby Robson, þjálf- ari enska landsliðsins. Hann hrós- ar honum einnig fyrir prúðmann- lega framkomu, jafnt innan sem utan vallar. Gascoigne lék fyrsta leik sinn í 1. deild árið 1985 með New- castle. Hann vakti strax athygli, kannski of mikla, og var gagn- rýndur fyrir slæma framkomu á leikvelli. Síðan hefur hann róast og breskir fjölmiðlar segja að það hafi verið gæfuspor er hann skrif- aði undir samning við Tottenham. Undanfarna mánuði hefur minna borið á Gascoigne utan vallar en meira farið fyrir honum á leikvelli. Hann hefur að mörgu leyti tekið við hlutverki stjómanda enska liðsins og Bobby Robson segir hann besta mann liðsins í keppninni. „Ef hann leikur eins og hann hefur gert ættum við að fara uppúr riðlinum og nú þegar eigum við honum mikið að þakka.“ - Xi KUBBUR ER TAKMARKIÐ HUGSAÐU KUBBAÐU ALVÖRU LEIKFANG FYRIfí ÞÁ SEM GETA HUGSAÐ 6 LITIR = 6 STYRKLEIKAR Baggio fær Qallahjól! Leikmönnum Sameinuðu arabísku furstadæ- manna var heitið Rolls Royce bifreið, tæ- kist þeim að skora í heimsmeistarakeppninni. Tveir þeirra sneru heim með slíka bifreið en þátttöku liðsins er lokið í keppninni. ítalir halda þó áfram og einn þeirra fékk farartæki fyrir mark sem hann skoraði. Ro- berto Baggio, framheiji ítalska landsliðsins, hafði á orði fyrir leik liðsins gegn Tékkum að hann vildi fá svipuð laun fyrir mark, helst reið- hjól. Baggio skoraði í leiknum og var það eitt besta mark keppninnar. Samtök bif- og reiðhjólaeigenda á Ítalíu bár- ust fregnir af ummælum Baggios, sendu honum skeyti og lofuðu honum hjóli: „Vegna þess hve glæsilegt markið var, höfum við ákveðið að senda þér fjallahjól af fullkomnustu gerð.“ Roberto Baggio fær hjól fyrir mark gegn Tékkum. Paul Cascoigne hefur leikið mjög vel með enska landsliðsinu á HM.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.