Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.06.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JUNI 1990 19 Aðalsteinn Ingólfsson Tveir dyraverðir Hressó handteknir LÖGREGLA handtók tvo dyra- verði veitingahússins Café Hressó í Reykjavík aðfaranótt mánudagsins eftir að þeir höfðu neitað einkennisílæddum lög- reglumönnum um aðgang að staðnum um klukkan hálftvö að nóttu en þá stóð skemmtanahald enn yfir. Tveir lögreglumenn á gangi í Austurstræti veittu athygli að nokkur mannfjöldi var á veitinga- húsinu og þaðan barst tónlist um það bil hálftíma eftir að samkomu- haldi átti eftir að verða lokið. Þeir ræddu við dyravörð sem stóð í dyr- um staðarins og þegar þeir fóru þess á leit við hann að koma inn á staðinn fengu þeir þvert nei og þurftu að beita valdi til að komast inn. Þar var fyrir yfirdyravörður staðarins sem einnig vildi meina lögreglunni aðgang. Lögreglumenn kölluðu eftir liðsauka, handtóku dyraverðina tvo og sáu um að skemmtanahald væri stöðvað. Dyraverðirnir voru færðir til við- ræðna á lögreglustöð, þar sem í ljós kom að þeir bjuggu yfir lítilli þekk- ingu á þeim reglum sem gilda um starfa þeirra, að sögn lögreglu. Að því loknu voru þeir fijálsir ferða sinna. Almenna bókafélagið: Einfarar í íslenskri myndlist BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka- félagsins hefur gefið út bókina „Einfarar í íslenskri myndlist" eftir Aðalstein Ingólfsson list- fræðing, en áður hafði bókin komið út á ensku hjá Iceland Review. í bókinni er fjallað um Sölva Helgason, ísleif Konráðsson, Karl Einarsson Dunganon, Olöfu Grímeu Þorláksdóttur, Stefán Jónsson frá Möðrudal, Eggert Magnússon, Þórð Valdimarsson, Sigurlaugu Jónas- dóttur, Kristinn Ástgeirsson, Gunn- ar Guðmundsson og Guðmund Ófeigsson. Bókin hefst á ítarlegum inngangi eftir Aðalstein um myndlist ís- lenskra einfara. Þá fylgja æviágrip og kynning á ellefu einförum og 95 litljósmyndir af verkum þeirra. Aðalsteinn Ingólfsson skilgreinir myndlist einfara þannig: „... þeir voru sjálfmenntaðir og höfðu þróað með sér ferska, einkanlega og ein- læga myndsýn, óháða ríkjandi hefð- um eða tísku í myndlist. Og allir eru þeir einstakir í list sinni.“ Einfarar í íslenskri myndlist var prentuð á Ítalíu. Bókin er 96 blaðs- íður. Þessa dagana stendur yfir sýning á verkum einfara í íslenskri mynd- list í Hafnarborg, listasafni Hafn- firðnga. í bókinni eru m.a. litmynd- ir af mörgum þeim verkum er þar eru. EC0N0UNE Lætur fara vel um þig Ford Econoline var kosinn best hannaði bandaríski bíllinn af sinni gerð í Bandaríkjunum 1989. Ef þú kýst Ford Econoline sem sendibifreið getur þú valið um 3 stærðir en sem fólksflutningabifreið (Club Wagon) tekur hann 12-15 manns. VATNSSUGUR OG TEPPA- HREINSIVÉLAR Ford Econoline kemur með: Hemlalæsivörn (ABS) að aftan, 145 ha bensínvél 6 strokka EFI, 3ja gíra sjálfskiptingu, lituðu gleri, vökvastýri, hábaksstólum, styrktri fjöðrun, teppi á framgólfum, öflugri miðstöð, stórum útispeglum, klæðningu á framhurðum, fallegu mælaborði, AM/FM stereo-útvarpi m/klukku o.fl. o.fl. Auk þess fáanlegur með ýmsum viðbótarbúnaði, ss. V8 bensín- eða diselvél, samlæsingu á hurðum, rafdrifnum rúðum, veltistýri, hraðafestingu o.fl. Ford Econoline er góð fjárfesting. Verð frá 1.676 þús. kr. m/vsk. 1.346 þús. kr. án/vsk. Komdu og Fó^d^fömdö^muninn! G/obusi l Ágniúla 5, s. 681555 HÖtlNÚ AUCLÝSINCASTOfA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.